22.7.2008 | 19:21
Hvað þýðir þetta?
Töluvert miklar umræður hafa verið í netheimum í dag áður en þessi tilkynning kom frá skrifstofu forsetans. Þar á meðal á mínu bloggi. Hvet ég fólk til að lesa það ásamt fjölmörgum öðrum greinum sem hafa birst á netinu í dag.
Samkvæmt þeim upplýsingum um ástand mála í Kína, finnst manni forkastanlegt að Ólafur Ragnar ætli að sína sig þarna. Með því er hann að góðkenni þann hroða sem hefur átt sér stað í aðdraganda þessara ólympíuleika.
Ég er ekki á móti því að íþróttamenn keppi á íþróttahátíðum og hef fullan skilning á því að með því að fara er draumur margra að rætast sem ef til vill hefur blásið þeim keppnismóð í brjóst um langa hríð.
Mér finnst svolítið skringilegt samt að hið íslenska ólympíusamband sem Ólafur er verndari hafi látið íþróttafólkið skrifa upp á samning þar sem íþróttafólkinu er gert að tjá sig ekki á einn eða annan hátt um pólitík. Þá er fokinn sá draumur um að okkar fólk þori að sýna smá mótspyrnu þegar það tekur við öllum medalíunum.
Ég skora á íslenska íþróttafólkið að verða sér út um upplýsingar um mannréttindabrot sem hafa verið framin í nafni þessara íþróttahátíðar og taka svo laumulega ákvörðun um að pönkast smá;) gera eitt T fyrir Tíbet í beinni með höndunum.
Ég skora líka á Ólaf að endurskoða hug sinn gagnvart þessu boði. Hann hlýtur í það minnsta að geta farið fram á eitthvað smáræði eins og til dæmis að geðfötluðum verði heimilt að mæta á ólympíuleikana.
![]() |
Forseti Íslands til Kína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
22.7.2008 | 08:43
Allir hinir sem eru líka óvelkomnir

Sá á dögunum lista yfir þá sem ekki eru velkomnir á Ólympíuleikana, en ég finn hann ekki núna, man að þeir sem fá ekki að mæta eru auðvitað Tíbetar, meðlimir Falun Gong, kínverskir múslímar, geðfatlaðir, fólk með AIDS, fólk með kynsjúkdóma, hórur, aðgerðasinnar, fólk sem hefur gagnrýnt kínversk yfirvöld, þá eru jafnframt lagðar hömlur á hvaða fréttamenn fá aðgang, en hey þú mátt taka með þér eitt gæludýr en mælt er með því að skilja smábörn eftir heima.
Þú mátt eiga von á því að vera sendur heim ef þú ert með bol með þér sem hugsanlega mögulega gæti verið pólitískur eða appelsínugulur. Þá er víst betra að taka ekki með sér upplýsingar úr landi sem flokkast gætu sem kínverskar trúnaðarupplýsingar um land og þjóð, þessar upplýsingar gætu verið: hve margir misstu vinnu í gær, hve margar konur vinna í þessari verksmiðju, eða eitthvað álíka torskilið. Ef þú ert svo óheppinn að gera eitthvað sem er bannað, sem er æði margt þá er næsta víst að enginn lögmaður vilji verja þig. Þeir sem hafa tekið að sér að verja til dæmis Tíbeta fá ekki endurnýjuð leyfin sín.

En þetta er ekki neitt miðað við það harðræði sem fólkið í Peking hefur þurft að þola út af undirbúning ólympíuleikana. Hér eru nokkur dæmi: Hús hafa verið rudd úr vegi, svo hægt sé að byggja ólympíuþorp og keppnishallir. Fólkið sem bjó þar hefur verið þvingað til að yfirgefa heimili sín og ekki fengið neinar bætur. Margir hafa flúið Peking vegna þess að þeim er bannað að hafa veitingahús sín opin eða stunda aðra vinnu sem fellur ekki að smekk yfirvalda og gæti skaðað þá nútíma ímynd sem yfirvöld vilja að heimurinn hafi af þeim. Fólk hefur sætt pyntingum eða sett í fangelsi fyrir að mótmæla því að heimili þeirra séu tekin af þeim. Heimilislaust fólk, Tíbetar, Falun Gong meðlimir, gagnrýnendur harðstjórnarinnar eru annað hvort sent út fyrir borgarmörk eða úr landi.
![]() |
Geðfatlaðir óvelkomnir á Ólympíuleikana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
21.7.2008 | 16:13
Fréttatilkynning frá Saving Iceland
Alltaf gott að fá ítarefni og gott væri ef fólk myndi nú lesa alla greinina áður en það tjáir sig:)
Ég vil hvetja fólk til að lesa blogg hjá Evu Hauks undir yfirskriftinni: Þetta er bara ekki rétta aðferðin: http://sapuopera.blog.is/blog/sapuopera/entry/595663/
GRUNDARTANGI Rétt í þessu lokuðu 20 manns frá Saving Iceland hreyfingunni, umferð til og frá álveri Norðuráls/Century og verksmiðju Íslenska Járnblendifélagsins (Elkem) í Hvalfirði. Fólkið hefur læst sig saman í gegnum rör og þannig skapað mennskan vegtálma. ,,Við mótmælum umhverfistengdum og heilsufarslegum afleiðingum námugraftar og súrálsframleiðslu Century á Jamaíka og áætlunum fyrirtækisins um nýtt álver og súrálsverksmiðju í Vestur Kongó. Fyrirhugaðar stækkanir Norðuráls og Elkem hér á landi munu leiða af sér eyðileggingu einstakra jarðitasvæða og einnig hafa í för með sér losun gífurlegs magns gróðurhúsalofttegunda" segir Miriam Rose frá Saving Iceland (1).
Century í Vestur Kongó
Árið 2007 skrifaði Century undir viljayfirlýsingu við ríkisstjórn Vestur Kongó um byggingu álvers, súrálsverksmiðju og báxítnámu þar í landi (2). Starfsemin verður keyrð áfram af gasi og krefst 500 MW af rafmagni. Century skoðar nú hvar hentugast er að staðsetja báxít-námuna og hyggst hefja byggingu álversins eins fljótt og auðið er (3).
,,Við trúum því að Vestur Kongó hafi allt það hráefni sem þarf til að starfrækja álframleiðslu með hagnaði" segir Logan W. Kruger frá Century.
,,Kruger hefur rétt fyrir sér" segir Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson frá Saving Iceland. ,,Transparency International segir Vestur Kongó hafa eitt spilltasta stjórnarfar í heiminum. Og það eru einmit þannig ríkisstjórnir sem álfyrirtækin vilja helst stunda viðskipti við " (4)
,,Það er afar ólíklegt að þeir fátæku muni nokkuð hafa upp úr þessari þróun, en munu þess í stað verða fyrir umhverfislegum áhrifum framkvæmdanna. Tekjur frá olíuframleiðslu hafa ekki skilað sér til þeirra, hvers vegna ætti það að vera eitthvað öðruvísi með báxítið?" segir Snorri.
,,Hvað varðar báxít námurnar í Vestur Kongó, er alveg ljóst að Century hyggst starfrækja stærðarinnar opna námu í líkingu við það sem önnur stórfyrirtæki vilja gera í Orissa á Indlandi og á Jamaíka, Guyana og Guinea" segir Samarendra Das, indverskur rithöfundur og sérfræðingur um áliðnaðinn, en Samarendra mun fjalla um menningarleg þjóðarmorð í tengslum við álframleiðslu á ráðstefnu Saving Iceland í Reykjavíkur Akademíunni næstkomandi Miðvikudag (sjá viðbót A).
,,Alls staðar í heiminum þar sem báxítgröftur fer fram á sér stað samhliða eyðilegging umhverfisins, jafnframt sem lifibrauð fólks og heilsa þess eru tekin af þeim. Fólk búsett á Íslandi þarf að átta sig á því hvaðan báxítið sem álið er framleitt úr, kemur" segir Samarendra.
Century á Jamaíka: umhverfis- og heilsufarsógn
Fyrirtækin St. Ann Bauxite og Kaiser í eigu Century, Alcoa, Rio Tinto-Alcan og Rusal (sem á 1/3 í Century) eiga öll aðild að báxítgreftri á Jamaíka og eru sek um umtalsverða eyðileggingu regnskóga og mengun drykkjarvatns (5,6,7). Century vill nú opna nýja námu og súrálsframleiðslu í samstarfi við kínverska fyrirtækið Minmetals, en hið síðarnefnda er þekkt fyrir fangaknúnar verksmiðjur og alvarleg mannréttindabrot í Kína og annars staðar í heiminum (Sjá viðbót B).
Elkem Íslenska Járnblendifélagið: Mengunarslys í hverri viku
Íslenska Járnblendifélagið vill nú stækka verksmiðju sína á Grundartanga í Hvarfirði, fyrir frekari framleiðslu á kísiljárni fyrir stáliðnaðinn. Verksmiðjan er nú þegar einn mesti mengunarvaldur hér á landi og losar mest magn gróðurhúsalofttegunda; aukin framleiðsla myndi leiða af sér gífurlega mengunar-aukningu (1). Í Júlí 2007 var sagt frá því að Elkem hafi 'fyrir slysni' losað stærðarinnar mengunarský frá verksmiðju sinni. Samkvæmt fréttinni orsakaðist slysið af mannlegum mistökum og haft var eftir Þórði Magnússyni, talsmanni fyrirtækisins, að sams konar slys gerist nokkrum sinnum í viku. Sigurbjörn Hjaltason, hreppstjóri Kjósahrepps, segir þessi 'slys' yfirleitt eiga sér stað að nóttu til (8).
Um Saving Iceland
Síðasta Laugardag stöðvaði Saving Iceland vinnu í heilan dag á lóð fyrirhugaðs álvers Norðuráls í Helguvík. Sú aðgerð, sem og þessi, er hluti af fjórða sumri beinna aðgerða gegn stóriðju á Íslandi og annars staðar í heiminum. Í júlí 2007 stöðvaði fólk á vegum hópsins einnig vinnu umferð til og frá álverinu á Grundartanga.
Saving Iceland varð til þegar íslenskir umhverfissinnar óskuðu eftir hjálp erlendis frá, til að vernda íslensk öræfi - ein þau síðustu í Evrópu - frá stjóriðju. Rétt eins og Norðurál/Century, vilja Alcoa og Rio Tinto-Alcan nú reisa fleiri álver hér á landi. Til þess þarf að eyðileggja öll virk jarðvarmasvæði á landinu auk þess að reisa virkjanir í hverri stórri jökulá (sjá viðbót C).
Í ár hafa fjórðu aðgerðabúðir Saving Iceland verið settar upp á Hellisheiði, nálægt jarðvarmavirkjun Orkuveitu Reykjavíkur en virkjunina er nú verið að stækka, m.a. til að koma til móts við kröfu Norðuráls um aukna orkuframleiðslu.
Nánari upplýsingar:
http://www.savingiceland.org
savingiceland at riseup.net
Viðbætur:
A.) Miðvikudaginn 23. júlí kl. 19:30 stendur Saving Iceland fyrir ráðstefnu þar sem indverski rithöfundurinn og sérfræðingur um álframleiðslunna kemur fram ásamt Andra Snæ Magnasyni rithöfundi. Umfjöllunarefni ráðstefnunnar eru áhrif álframleiðslu á þriðja heiminn auk þess sem hugmyndin um einhvers konar 'hreina og græna' álframleiðslu hér á landi verður brotin á bak aftur. Ráðstefnan fer fram í Reykjavíkur Akademíunni, Hringbraut 121. Þeir sem hafa áhuga á að tala við Samarendra, taka við hann viðtal o.sv.fr. geta haft samband við einn af ofargreindum talsmönnum SI.
B.) Árið 2004 hafði Minmentals í huga að taka yfir kanadíska námufyrirtækið Noranda, en var hafnað árið 2005 vegna alvarlegra áhyggja um mannréttindabrot kínverska fyrirtækisins. Þessi skýrsla segir nánar frá mannréttindabrotum Minmetals:
Dhir, Aaron A. (2006). 'Of Takeovers, Foreign Investment and Human Rights: Unpacking the Noranda-Minmetals Conundrum', Banking and Finance Law Review, 22, 77-104.
C.) Fyrir frekari upplýsingar um áætlaðar stóriðjuframkvæmdir á Íslandi, sjá: http://www.savingiceland.org/sos
Heimildir:
(1) Icelandic Ministry of the Environment (2006). Iceland's fourth national communication on climate change, report to the UNFCCC. http://unfccc.int/resource/docs/natc/isl
[Accessed 20-6-08]
(2) AZ Materials News (2007). Century Aluminium to Build Aluminium Smelter in Republic of Congo. http://www.azom.com/News.asp?NewsID=7734 [Accessed 20-6-08]
(3 ) Afrique en Ligne (2008). Congo to build aluminium smelter in Pointe-Noire. http://www.afriquenligne.fr/news/africa-
[Accessed 20-6-08]
(4) Transparency International (2006). Corruption Perceptions Index 2006. Transparency International, Berlin.
(5) Zadie Neufville, April 6, 2001, 'Bauxite Mining Blamed for Deforestation'. See http://forests.org/archive/samerica/baux
. [Accessed 20-6-08]
(6) Mines and Communities report,'Bauxite Mine Fight Looms in Jamaica's Cockpit Country', 24th October 2006. http://www.minesandcommunities.org/artic
. [Accessed 20-6-08]
(7) Al Jazeera (2008). Environmental damage from mining in Jamaica, June 11, 2008 News. Available through http://www.youtube.com/watch?v=vJa2ftQwf
. [Skoðað 20-6-08]
(8) MBL.is (2007). Reykur frá járnblendiverksmiðjunni Grundartanga. http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2007/07
[Skoðað 20-7-08]
![]() |
Stöðva umferð við Járnblendiverksmiðjuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.7.2008 | 11:39
Fréttatilkynning frá Saving Iceland
Ég er búin að vera að lesa misvitur komment við þessa aðgerð og ætla því að hvetja fólk til að lesa fréttatilkynninguna frá SI áður en það opinberar vanþekkingu sína. Markmiðið með svona aðgerðum er að vekja athygli á málefninu. Að miðla upplýsingum til almennings, upplýsingum sem fólk á rétt á að vita og myndi væntanlega mynda sér upplýsta skoðun í kjölfarið. Vil minna það fólk sem talar um að henda fólkinu úr landi að það vorum Íslenskir umhverfissinnar sem kölluðu eftir aðstoð erlendis frá vegna þess að við erum jú að kljást við alþjóðafyrirtæki.
SAVING ICELAND STÖÐVAR VINNU Á LÓÐ NORÐURÁLS Í HELGUVÍK
HELGUVÍK - Snemma í morgun stöðvuðu um 40 einstaklingar frá meira en tíu
löndum, vinnu á fyrirhugaðri álverslóð Norðuráls/Century Aluminum í
Helguvík. Hluti hópsins læsti sig við vinnuvélar og aðrir klifruðu krana.
Aðgerðinni er ætlað að vekja athygli á eyðileggingu jarðhitasvæða á
suð-vestur horni landsins og mannréttinda- og umhverfisbrotum Century í
Afríku og á Jamaíka .
Rétt eins og Century, vilja fleiri álfyrirtæki t.d. Alcoa og Rio
Tinto-Alcan reisa ný álver hér á landi. Verði framkvæmdirnar að veruleika
þarf að virkja hverja jökulá og jarðhitasvæði landsins.
Starfsemi fyrirhugaðs álvers Norðuráls í Helguvík krefst frekari
eyðileggingar á einstökum jarðhitasvæðum á Hellisheiði og Reykjanesi (1).
Framkvæmdir hófust í Júní án þess að heilstætt umhverfismat hafi farið
fram, og þrátt fyrir að fyrirtækið hafi hvorki orðið sér út um alla þá
orku sem álverið þarfnast né þau leyfi sem gera starfsemi þess mögulega,
t.d. leyfi fyrir losun gróðurhúsalofttegunda (2).
Umhverfismatið fyrir álverið í Helguvík var gert af verktakafyrirtækinu
HRV sem hefur tekið þátt í hönnun álvera Alcoa og Norðuráls (3).
Það er stórskrýtið að verkfræðistofa sem hefur fjárhagslegra hagsmuna að
gæta varðandi byggingu álversins skuli framkvæma umhverfismatið. Í
skjalinu koma fram furðulegar fullyrðingar, t.d. þegar gert er lítið úr
mengunarþáttum álversins vegna þess hversu vindasamt er í Helguvík' segir
Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson frá Saving Iceland.
Rétt eins og gerðist í tengslum við byggingu álvers Alcoa Fjarðaráls,
virðist ríkisstjórn Íslands engan áhuga hafa á því að fylgja löglegu og
sanngjörnu ferli. Þess í stað lætur hún eins og framkvæmdin sé
óhjákvæmileg og skapar það ótrúlegt sinnuleysi í samfélaginu. Á sama tíma
hafa mannréttindabrot Century að mestu leyti fengið að vera ósýnileg'
segir Snorri.
Mannréttinda- og umhverfiglæpir
Century er bandarískt fyrirtæki að uppruna en stærsti eigandi þess er hið
ný sameinaða Sviss-Rússneska námufyrirtæki Glencore-RUSAL. Century
Aluminum er viðriðið allmörg verkefni í Afríku og í Karabíska hafinu sem
umhverfis- og mannréttindasamtök berjast gegn.
Á Jamaíka á Century hlut í 4.8 milljón tonna báxít-námu, sem veldur
gífurlegri eyðileggingu regnskóga (4,5,6,7). Fyrirtækið hyggst einnig
reisa aðra námu og súrálsverksmiðju í samstarfi við kínverska fyrirtækið
Minmentals, sem á þátt í fangaknúnum verksmiðjum og ógeðfelldum
mannréttindabrotum í Kína sem og annars staðar í heiminum (8).
Í Febrúar 2007, skrifaði Century undir viljayfirlýsingu við ríkisstjórn
Vestur Kongó um að reisa báxítnámu, súrálsverksmiðju og álver í Pointe
Noire en framkvæmdirnar krefjast 500 MW af orku og verða allar knúnar
áfram af gasi (9).
Það er mjög ólíklegt að þeir fátæku græði nokkuð á þessari þróun heldur
munu þess í stað verða fyrir barðinu á umhverfisáhrifunum. Tekjur af olíu
hafa aldrei endað hjá þeim, hvers vegna ætti það að vera eitthvað öðruvísi
með báxítið? Transparency International hefur sagt ríkisstjórn Vestur
Kongó vera eina þá spilltustu í heiminum en það eru einmitt þannig
ríkisstjórnir sem álfyrirtækin vilja helst stunda viðskipti við...' segir
Snorri (10).
Fjárhagsleg svik álfyrirtækjanna hafa leitt af sér eyðileggingu efnahags
og umhverfis í ótal löndum, sem bitnar svo á þúsundum borgara. Áður en
framkvæmdirnar hefjast fer alltaf fram löng og kostnaðarsöm áróðursherferð
þar sem nýjum tímum velmegunar er lofað' segir Samarendra Das, indverskur
rithöfundur og sérfræðingur um áliðnaðinn (11). Samarendra mun á næstu
dögum halda fyrirlestra á nokkrum stöðum á landinu, m.a. í Reykjavíkur
Akademíunni þann 23. júlí ásamt Andra Snæ Magnasyni rithöfundi (12).
Nánari upplýsingar:
Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson s. 857 3521
Miriam Rose s. 869 3782
Jaap Krater s. 8671493
Netfang: savingiceland@riseup.net
---
Heimildir:
(1) Skýrsla frá Landvernd, Nóvember 2007, 'Athugasemdir vegna
umhverfisáhrifa orkuöflunar fyrir álver í Helguvík, sbr. frummatsskýrslur
Orkuveitu Reykjavíkur fyrir Bitruvirkjun og virkjun við Hverahlíð.'
(2) Í töflunni hér að neðan segir Skipulagsstofnun frá því hvar Norðurál
hyggst fá orkuna fyrir álverið í Helguvík. Starfsemin þarfnast 435 MW sem
mun koma frá jarðhitasvæðum á Reykjanesi og Hellisheiði. Einnni af
áætluðum jarðvarmavirkjunum, Bitruvirkjun, hefur nú verið slegið á frest
vegna umhverfisáhrifa. Orkumagn á Reykjanesi er ekki á hreinu og
umhverfismat hefur ekki átt sér stað. Árið 2007 var einungis vitað um 60%
af nauðsynlegri orku (sjá heimild 1.) en það var áður en Bitruvirkjun var
slegið á frest.
Fyrir nánari upplýsingar um skort á almennilegu umhverfismati má sjá grein
í The Ecologist, Október 2007, Aluminium Tyrants' eftir by Jaap Krater,
Miriam Rose og Mark Anslow.
(3) HRV, Umhverfismat fyrir álver Norðuráls í Helguvík.
http://savingiceland.puscii.nl/wordpress/wp-content/uploads/2008/07/hrv-helguvik-impact-assessment.pdf
(4) Heimsaíða Century. http://www.centuryca.com/st_ann.html
(5) Zadie Neufville, 6. Apríl 2001, 'Bauxite Mining Blamed for
Deforestation'. Sjá http://forests.org/archive/samerica/bauxmini.htm.
(6) Skýrsla frá Mines and Communities,'Bauxite Mine Fight Looms in
Jamaica's Cockpit Country', 24. Október 2006. Sjá
http://www.minesandcommunities.org/article.php?a=6513.
(7) 'Century Aluminum in Jamaica mining deal', 15. Maí 2006, Silicon
Valley / San Jose Business Journal.
(8) Árið 2004 hafði Minmentals í huga að taka yfir kanadíska
námufyrirtækið Noranda, en var hafnað árið 2005 vegna alvarlegra
athugasemda um mannréttindabrota Minmentals. Þessi skýrsla segir frá
frekari mannréttabrotum fyrirtækisins:
Source: Aaron A. Dhir, 'Of Takeovers, Foreign Investment and Human Rights:
Unpacking the Noranda-Minmetals Conundrum', Banking & Finance Law Review,
Vol. 22, pp. 77-104, 2006.
(9) http://sec.edgar-online.com/2007/03/01/ ... tion11.asp
og http://www.afriquenligne.fr/news/africa ... 83302.html
(10) Transparency International (2006). Corruption Perceptions Index 2006.
Transparency International, Berlin.
(11) Samarendra Das, 'Mining sacred mountains to fuel the war on terror'.
Júní 2008. See
http://savingiceland.puscii.nl/wordpress/wp-content/uploads/2008/07/2008voicesofthewilderness2lowres.pdf
(12) Miðvikudaginn 23. Júlí, kl. 19:30 heldur Saving Iceland ráðstefnu þar
sem indverski rithöfundurinn og sérfræðingur um áliðnaðinn, Samarendra Das
kemur fram ásamt Andra Snæ Magnasyni rithöfundi. Þeir munu að mestu ræða
um hnattrænar afleiðingar álframleiðslu, þá sérstaklega í þriðja heiminum
þar sem báxítgröftur fer fram. Einnig mun goðsögnin um svokallaða græna
og hreina' álframleiðslu hér á landi verða brotin á bak aftur.
Fyrirlesturinn fer fram í Reykjavíkur Akademíunni, Hringbraut 121.
![]() |
Lögregla ræðir við mótmælendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.7.2008 | 10:14
Viðrar vel til mótmæla
Fyrir þá sem halda að ég sé hætt að mæta fyrir utan kínverska sendiráðið að Víðimel á laugardögum klukkan 13 skal það upplýst að ég mun gera það uns kröfum mínum er mætt. Kröfurnar eru einfaldar: hleypið alþjóða mannréttindasamtökum sem og fjölmiðlum inn í Tíbet NÚNA.
Allir velkomnir. Það viðrar vel til að hittast og huga að því hvernig við getum gert eitthvað til að vekja athygli á málefnum Tíbets. Síðasta laugardag vorum við fá enda var rigning en núna er svo gott veður að ég trúi ekki öðru en að það verði fleiri sem eru til í að sýna kínverskum yfirvöldum að okkur er ekki sama um þau mannréttindabrot sem framin eru í Tíbet. Þó fjölmiðlar hafi nánast hætt að fjalla um Tíbet, halda voðaverkin áfram að gerast.
Við erum líka að skipuleggja fjáröflun fyrir flóttamannamóttökustöð í Dharmasala. Læt hér fylgja smá upplýsingar um þessa miðstöð.

Móttökustöðin í Dharamsala var opnuð árið 1990 til að bregðast við auknum fjölda nýrra flóttamanna sem flúið höfðu Tíbet til að leita hælis í Indlandi. Stanslaus straumur fólks hefur verið í móttökustöðina frá opnun hennar og fer enn vaxandi. Talið er að um 3000 manneskjur nái að flýja Tíbet á hverju ári. 1/3 flóttafólksins eru börn og unglingar sem koma í 90% tilvika án forráðamanna. Allir eru þeir aðframkomnir af hungri og vosbúð eftir mánaðargöngu yfir hæstu fjöll heimsins. Þá er það fremur algengt að flóttafólkið missi tær, fingur eða fætur vegna frostbita. Móttökustöðin í Dharamsala er mikilvægur áfangi í að takast á við nýtt líf eftir þessa miklu háskaför að ógleymdum ómannúðlegum ástæðum flóttans frá hinu hernumda landi.
Á hverjum degi er móttökustöðin yfirfull af nýkomnum flóttamönnun en þar er þeim veitt húsaskjól, fæði og læknishjálp. Eftir nokkrar vikur í móttökustöðinni er flóttafólkið aðstoðað við að finna sér samastað í einhverja af þeim byggðum sem Tíbetar hafa byggt upp í Indlandi.
Móttökustöðin hjálpar nýkomnum flóttamönnum við að finna sér atvinnu, skóla eða klaustur. Auk þess veitir stöðin þjálfun og fjárhagsaðstoð til þeirra flóttanna sem reyna að koma á stofn eigin fyrirtækjum.
Ein saga af þúsund áþekktra fundin úr dagbók ferðamanns um ferðalag hans til Dharmasala nýverið.
"Ég er nýkomin frá flóttamannamóttökustöðinni þar sem ég tók viðtöl við tvo nýkomna flóttamenn. Snortin af sögu þeirra þvældist ég um göturnar til að fá ferskt loft og yfirsýn. Höfðu þær nýlokið göngu sem tók þær mánuð yfir Himalayafjöllin. Hin 23 ára gamla nunna, Ngima hafði farið vegna þess að hún hafði verið gerð brottræk úr klaustrinu sínu og hafði hún jafnframt verið þvinguð til að leggja kufli sínum vegna þess að hún neitaði að hafna Dalai Lama sem trúarleiðtoga. Svo var það Dadon, hún var bara 12 ára og hafði verið send af foreldrum sínum í þessa ferð svo hún ætti möguleika á að fá menntun á sínu eigin tungumáli, og læra um sögu og menningu sína.
Á meðan á flóttanum stóð, lenti hópurinn þeirra sem samanstóð af 30 flóttafólki í miklum snjóstormi. Ngima þurfti að bera 9 ára gamla stelpu sem hafði byrjað að dragast aftur úr hópnum. En barnið dó á bakinu á Ngima. Án annarra úrræða urðu þau sem eftir lifðu að skilja eftir líkama stúlkunnar sem og fjögurra annarra barna sem létust af vosbúð í snjónum sem náði þeim upp að mitti.
Dadon, eins og flest flóttafólkið gekk yfir fjöllin í tennisskóm, með fátæklegar eigur sínar í pokum. Hún missti allar tærnar sínar vegna frostbita. Þegar ég hitti hana var hún full tilhlökkunar vegna þess að draumur hennar um að fá að hitta Dalai Lama var við það að rætast. Allir flóttamenn sem dveljast í flóttamannamóttökustöðinni fá að hitta hann áður en þeim er komið fyrir í skólum eða klaustrum."
Markmið flóttamannmiðstöðvarinnar er að bjóða upp á ókeypis aðstöðu fyrir nýkomna flóttamenn fyrstu 30 dagana. Margir hafa orðið fyrir hremmingum eftir að þeir komu til Nepal, en maóískir hermenn sitja gjarnan fyrir þeim og stela af þeim því litla sem þau eiga, berja þau og nauðga konum og stúlkum.
Þá er það einnig markmiðið að bjóða upp á fría sjúkra meðhöndlun og endurhæfingu fyrir þá sem hafa verið pyntaðir. Þá er það almenna heilsugæslu og bólusetningar fyrir alla nýja flóttamenn, sér í lagi óléttar konur og ung börn.
Mikilvægt er að hjálpa börnunum að aðlagast og finna skóla fyrir þau sem og fóstur fyrir munaðarleysingja.
Mikið starf er framundan og er gegnumstreymið af flóttafólki stöðugt að aukast. Þessi markmið muni ekki nást að fullu nema með fjárhagsaðstoð velviljað fólks og stofnana. En S.Þ. styrkja flóttamannamiðstöðina en það hrekkur ekki til.
19.7.2008 | 09:34
Tískufyrirbrigðið að vera á móti mótmælum
Ég hef orðið vör við það í kjölfar allra mótmæla sem ég hef tekið þátt í að fólk missir nánast strax drifkraftinn til að halda áfram. Nú er meira en vika síðan síðustu mótmæli voru haldin vegna Paul Ramses og virðist sem málið sé þegar gleymt og grafið. Hvar eru allir þeir sem skrifuðu nöfn sín á undirskriftarlista og mættu á mótmæli í Skuggasundi? Er einhver að hringja í BB eða HG og spyrja þá hvernig framvindan er? Það er ekki á ábyrgð örfárra að viðhalda mannréttindum og lýðræði, það er í höndunum á öllum þeim sem finnst eitthvað athugavert við hvernig því er framfylgt.
Það er afar hættulegt að gefa frá sér ábyrgðina á þennan hátt. Þeir sárafáu sem eru alltaf að skipuleggja hin og þessi mótmæli eða undirskriftarlista eða upp á komur til að vekja athygli á vanköntum samfélagsins fá ekki laun fyrir það eða umbun og því er maður oft fljótur að brenna upp eða þarf að taka á öðrum aðkallandi málum.
Ég mæli með því að áður en fólk byrjar að tuða um að einhver ætti að gera þetta eða hitt að sá hinn sami spyrji sig, "hvað get ég gert?" Það er nefnilega heilmargt sem fólk getur gert án þess að þurfa einhvern til að segja sér það. Það er mikilvægt að fólk hætti að leita að forystusauðum og finni innra með sér þann kraft og hugrekki til þarf til að hefja aðgerðir gegn því sem miður fer í samfélaginu.
Sem betur fer er fullt af fólki sem gerir eitthvað en það er ekki nóg. Ég kalla eftir aðgerðum frá almenningi sem talar og talar en gerir ekki neitt og grípur fyrsta mögulega tækifæri til að láta afvegaleiða sig með svo blygðunarlausum smjörklípum að manni verður ómótt. Það er bara ömurlegt að horfa upp á fólk ákveða að hætta að styðja einhvern málstað sem brann á þeim út af því að einhver skrifaði nafnlaust bréf til að ófrægja viðkomandi. Hversu djúpt ristir mannúðin ef fólk trúir ekki sinni hjartans sannfæringu, fyrir mér var aldrei spurning um hvort Paul Ramses væri svartur, hvítur, kristinn, múslimi, heiðarlegur eða óheiðarlegur. Krafa okkar var einföld og skýr, við kröfðumst þess að um mál hans yrði fjallað hérlendis þar sem fjölskylda hans er. En svo kom blessað bréfið á vef icenews, og svo fór Björn að tala um evru og skyndilega var harmleikur Ramses fjölskyldunnar lítilsverður miðað við efnahagsástandið og hvort að evra eða dollari væri eina leiðin til að bjarga okkur úr árans andstyggðarkreppunni.
Ég hef horft upp á svipað ferli trekk í trekk og aldrei vantar afsakanirnar fyrir framkvæmdarleysinu. Það virðist tilgangslaust að mótmæla og eða andmæla eða sýna samstöðu. Meira segja þá má varla nota þetta orð án þess að fólk tengi það við eitthvað ægilega neikvætt. Það er í tísku að vera á móti orðinu mótmæli og oft sagt að með slíkum aðgerðum sé maður að skemma fyrir málstaðnum. Reynt hefur verið að búa til ný orð sem fanga betur Protest en illa gengur að finna slíkt. Var það ekki einhver uppáhalds Íslendingur sem sagði "vér mótmælum allir"? Ég ætla að halda áfram að gera eins og hann og mótmæla ef mér finnst vegið að mannréttindum, náttúru, eða öðrum hjartans málum. Stundum hef ég séð bein áhrif af mótmælum og stundum virðist þetta vera helber tímasóun. En ég vil allavega leggja mitt á vogarskálarnar frekar en að gera ekki neitt og bíða eftir að einhver annar geri það. Ég vil frekar standa fyrir utan kínverska sendiráðið á hverjum laugardegi í góðum félagsskap en horfa á endurtekið efni í sjónvarpinu.
Ef ég veit af því að ísinn er þunnur en lítur út fyrir að vera traustur, ætti ég þá bara að labba í burtu og segja við sjálfa mig að einhver annar setji varúðarskilti?
19.7.2008 | 08:54
Af hverju gerir hann það ekki sjálfur?
Ég hef alltaf furðað mig á því þegar ég er að mótmæla einhverju eða vekja athygli á óréttlæti af einhverju tagi að það koma alltaf hjarðir af fólki sem spyrja mig, "af hverju mótmælir þú ekki þessu eða hinu?" Ég er loksins komin með rétta svarið fyrir þetta fólk, "af hverju gerir þú það ekki sjálf/ur?"
Finnst alltaf frekar hjárænulegt þegar fólk gagnrýnir aðra fyrir að mótmæla ekki einhverju sem brennur á þeim. Finnst það lélegt taktík til að taka fókusinn af getuleysi sínu í að gera eitthvað í málunum sjálfur.
![]() |
Björk ætti frekar að syngja gegn fátækt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.7.2008 | 13:06
Kerti fyrir Tíbet og Styrktartónleikar
Þar sem líður senn að Ólympíuleikunum hafa Vinir Tíbets skipulagt viðburði við upphaf og enda leikanna, til að vekja athygli á málstað Tíbeta og ekki síst sýna samstöðu með þeim á meðan á þeim stendur.
- Sett hefur verið af stað átak um allan heim sem kallast Candle for Tibet ( www.candle4tibet.org ) eða Kerti fyrir Tíbet og munu þá milljónir manns um heim allan kveikja á kertum til að sýna stuðning sinn við Tíbeta og friðsamlega frelsisbaráttu þeirra. Kertagjörningurinn fer fram 7. ágúst kl 21.00 og Vinir Tíbets ætla að taka þátt í þessu með því raða upp kertum í miðbæ Reykjavíkur.
Við hvetjum alla til að taka þátt í þessum viðburði með því að mæta á Lækjartorg og kveikja á kertum með okkur, en þeir sem geta ekki verið með eru hvattir til að taka þátt með því að kveikja á kertum á heimilum sínum eða fyrir utan þau þann 7. ágúst kl 21.00, en þetta er kvöldið fyrir opnunarhátíð Ólympíuleikanna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.7.2008 | 09:23
Fréttastofulygavélin Xinhua
Ég hef mikið verið að lesa fréttir er tengjast Kína og nú síðast í morgunn las ég áhugaverða frétt af Sydney Morning Herald vefnum um fjölmiðlafrelsi í Kína. Ég hef stundum farið inn á Xinhua fréttaveituna og það er augljóst að fjölmiðlafólk ætti EKKI að þýða beint það sem kemur frá þeim. Þeirra fréttir eru nánast alltaf byggðar á lygum og áróðri þegar kemur að mannréttindabrotum og fréttum af mótmælum. Það er svo augljóst við þessa frétt að hún er ekki sönn. Þarna á að gera lítið úr ástæðu mótmælana með því að spyrða mótmælin við glæpagengi. Minni svo enn og aftur á hvað það þýðir að verða handtekinn í Kína, það er ekki eins og að verða handtekin hérlendis, það getur oft þýtt varanlega örkumlun vegna pyntinga eða að óæskilegt fólk hreinlega hverfi að eilífu.
Hér er linkur í fréttina frá SMH frá því í morgunn um hið meinta fjölmiðlafrelsi í Kína.
![]() |
Handtökur vegna mótmælaaðgerða í Kína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.7.2008 | 22:17
Ánægjuleg þróun
Það hefur verið ánægjulegt að sjá hvernig almenningur og þeir sem stjórna fyrirtækjum eru að vakna til vitundar um að það er framtíð í að hugsa og framkvæma á vistvænan máta. Ég er tilbúin að borga meira fyrir lífbrjótanlega poka eins og aðra hluti sem maður kaupir með góðri samvisku. Reyni þó að kaupa sem minnst af pokum, nota oftast endurvinnslupokana sem ég fékk hjá Sorpu þegar ég er búin að tæma þá plasti og pappír undir innkaup:)
Finnst öðrum en mér orðið lífbrjótanlegt skringilegt?
Annars dauðlangar mér að tala um eitthvað allt annað en pólitík og sleppa því að lesa fréttir í svona viku. Get ekki beðið eftir að sjá nýju Batman myndina og leggjast í Tinna bækur um stund.
![]() |
Lífbrjótanlegar umbúðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.7.2008 | 11:08
Allir að mæta í Skuggasund í hádeginu
Ég lokaði listanum í morgunn en hann komst í lag í gær, það voru aðallega makkanotendur eins og ég sem fengu bara tóma síðu í safari.
2411manneskjur rituðu undir áskorun á internetinu og 660 áundirskriftarblöð sama efnis, þá hafa yfir 200 nöfn borist okkur í tölvupósti.
Ég er mjög ánægð með hvað margir hafa skrifað undir á svona stuttum tíma og þakka öllum sem gerðu það. Björn hefur ekki tíma til að taka við listanum og mun ég því færa honum bréf með þessum upplýsingum en ég ætla ekki að prenta hann út. Alger sóun á pappír. Björn getur fengið hann sendan í tölvutæku formi ef hann vill lesa hann eða geyma í skjalasafni sínu. Það var hann Hörður Torfason sem kom með þessa snilldarhugmynd í morgunn enda maður sem kann að einfalda hlutina:)
Hvet alla til að koma í hádeginu í Skuggasundið, þetta er lokadagur mótmælana og gaman væri að sjá mikinn mannfjölda þarna í dag. Það er annars ánægjulegt hve margir hafa mætt undanfarna daga og mikilvægt að við nútímagullfiskarnir gleymum þessu máli ekki um leið og nýjar fyrirsagnir koma á forsíðurnar.
9.7.2008 | 11:20
Undirskriftarsíðan liggur niðri
Það er greinilega verið að æfa mig í æðruleysi. Í morgun datt serverinn sem hýsir undirskriftarlistann niður. Ég eða aðrir komast ekki inn á hann. Ég bið ykkur um að sýna þessu skilning. Ég hef notað þetta svæði í mörg ár og aldrei upplifað annað eins vesen:::::
Ef fólk vill skrá sig, þá tek ég við skráningu á póstfangið mitt. Þarf að fá kennitölu og nafn: birgitta@this.is
Þetta þýðir auðvitað brjálæðislega mikil aukavinna sem tæknin guðdómlega átti að sjá um... vona bara að þetta komist í lag í dag, því við ætlum að skila listunum á morgunn.... góðu fréttirnar eru að það eru í það minnsta 3000 búnir að skrá sig í raunheimum sem og netheimum, sem er frábært :)
9.7.2008 | 10:37
Tákn friðar, vináttu og bræðralags!?!
Ekki veit ég í hvaða heimi herra HU lifir en ef meðferðin á Tíbetum er tákn friðar, vináttu og bræðralags, þá þarf ég að endurskilgreina það hjá sjálfri mér hvað slíkt táknar. Að pynta, kúga og drepa í nafni íþrótta er auðvitað sjálfsagt mál svo framarlega að enginn vitni séu að því.
Ég hafði nú ekki mikið álit á Sarkozy en mér fannst flott hjá honum að notfæra sér sín völd til að þrýsta á CCP en nú hefur hann bakkað með skottið á milli fótana og finnst mér útskýring hans vægast sagt aum.
Tíbet er enn lokað og vegna þess er ekkert fjallað um þau voðaverk sem eiga sér stað í fjölmiðlum landsins. Og vegna þess að það er ekkert um það fjallað, þá gleymir fólk Tíbet enn og aftur, mannúðin ristir ekki dýpra en það. CCP hefur tekist áætlunarverkið sitt. Loka Tíbet, allir gleyma Tíbet. That followed violent protests in Lhasa in March and unrest in the ethnic Tibetan areas of the neighbouring provinces of Gansu, Sichuan and Qinghai. But one man who has had access to the region is Dr John Powers.
Hér er annars áhugavert viðtal sem var að detta inn á netið. Ég hef því miður ekki tíma til að þýða það.
Presenter: Tom Fayle
Speaker: Dr Powers, a scholar in Tibetan religion and culture at the Australian National University
POWERS: Well, I spent about three weeks in India, in Dharamsala, which is the capital of the Tibetan exiled community and then I flew into Western Tibet, into Kashka, which is normally a good way to get into the Western parts of the Tibetan Plateau. In particular, I wanted to go to Mt Kalash, which is an important pilgrimage spot and I went to some travel agencies, and they said it was absolutely closed down. There was no way anybody was getting in. So then I went to the eastern part to Chin Hai, and I was able to get into some mixed Tibetan areas on the other side of the pass that was the traditional separation between Tibet and China. And then I went to Chengdu, to try to get into some mixed areas and that was during the earthquake. I was actually there during the earthquake and so the areas where I was planning to go to were actually flattened by the earthquake.
FAYLE: Now you did meet some Tibetan monks. What stories did you hear?
POWERS: Well, the most striking one was from a monk that I met at a Buddhist pilgrimage spot in China, who had escaped from a monastery in Eastern Tibet and he said that when he was there at his monastery, this was in late March, after the demonstration, some Chinese troops came into his monastery and started shooting the monks, randomly so it wasn't that they were looking for people in the protest. It was pure retaliation for the fact that they protested. He said that three of his closest friends had been shot dead right in front of him. He started running, and he heard more shots and more monks falling and then he managed to escape travelling by night over the next couple of weeks and he has no idea of what actually happened, because he hasn't been able to get any information in or out to his monastery.
FAYLE: We have been hearing that the monks in Tibet are being forced to take patriotic tests. What's involved here?
POWERS: Well, it's called patriotic re-education. The program started in 1996 and it was originally confined to the region of centre Tibet around Lhasa, the capital. In 2002, it was greatly extended, and now it's at all of the major monasteries across the Tibetan cultural area, which includes what the Chinese call Tibet and what has traditionally been Tibetan regions. Basically there are variations, but I actually obtained a classified document which is a manual that the cadres are given to run these courses.
The main thrust of it actually is denunciation of the Dalai Lama. According to all the monks that I have interviewed, the key factor is at the end of course, which is basically Communist indoctrination, but at the end of the course, they are required to sign a form officially denouncing the Dalai Lama. Those who do, according to the monks will pass the course, those who don't, no matter how good their grades have been will fail and that means they are usually expelled from their monasteries.
FAYLE: So, you say this expulsions from the monasteries. What other consequences are there of failing the test?
POWERS: Well, the expulsion from the monastery is quite significant, because it means that they can't function as a monk. It means they have no support. Many of those who refused to denounce the Dalai Lama end up basically having to escape, because they really have no way to continue to live in Tibet as monks. So about 3,000 to 4,000 Tibetans are escaping every year into exile, and the overwhelming majority are monks and nuns and overwhelmingly they say the reason is because they are unable to practice their religion.
FAYLE: So, apart from those going into exile, is it your sense that the monks are going along with these tests in order to stay in the monasteries?
POWERS: Oh a lot do, and the Dalai Lama himself has issued statements that have been spread across Tibet saying 'denounce me without hesitation'. He says everybody knows that it's done under duress and that you're being forced to do it. But many of the monks that I've talked to who have escaped have said that they just can't bring themselves to do it, even though he has told them to do it. It's such an important emotional thing for Tibetans, the reverence they have for the Dalai Lama that to denounce him is just something that's very, very difficult.
![]() |
Sarkozy á Ólympíuleikana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.7.2008 | 07:53
Minni á undirskriftarlista
Hvet alla sem vilja styðja Paul Ramses og sameina þessa sundruðu fjölskyldu að setja nafnið sitt á undirskriftarlistann. Honum mun verða lokað árla morguns á fimmtudaginn og afhendur sama dag þeim Birni og Hauk.
http://www.thepetitionsite.com/1/PaulRamses
"Við skorum á Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra og Hauk Guðmundsson, forstöðumann útlendingastofnunar að snúa Paul Ramses heim til Íslands nú þegar og að um mál hans verði fjallað hér á landi, þar sem fjölskylda hans dvelur.
Við skorum jafnframt á Björn og Hauk að sýna mannúð í verki, en Paul á fjölskyldu hérlendis og var hrifsaður á brott frá mánaðar gömlu barni sínu og eiginkonu aðfaranótt 3. júlí. "
![]() |
Munu ræða mál Ramses |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.7.2008 kl. 10:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.7.2008 | 11:18
Smánarlegt
Það er þjóð minni ekki til sóma að lesa þessar tölur. Mig hefur þá minnt rétt, ég hélt að það gæti bara ekki verið að við höfum úthlutað hvorki meira né minna en EINNI manneskju stöðu flóttamanns... frá upphafi. Er þetta eitthvað sem við viljum að spyrjist út um heimsbyggð? Ég held að þetta passi ekki inn í Ímynd þá af Íslandi sem Geir H. Haarde lét gera fyrir sig og á að selja þjóðina sem friðelskandi náttúrubarnaþjóð. Þannig fólk er nefnilega ekki sama um náunga sinn eins og þessar tölur gefa til kynna að okkur sé. Eitthvað er Geir ekki alveg í sambandi við þjóð sína eða við erum ekki alveg í sambandi við ráðamenn okkar.
Núna ættu sem flestir að vita af þessum smánarbletti og tími kominn til að þrýsta á hinn göfuglynda og hjartastóra Björn Bjarnason um að láta Paul Ramses fá stöðu flóttamanns númer 2 sem fær hæli hér.
Það verða mótmæli í Skuggasundinu hans Björns á eftir klukkan 12 og hvet ég fólk til að mæta. Hörður Torfason heldur utan um þetta og finnst mér þetta frábært framtak hjá honum.
Um 1100 manneskjur hafa ritað nafn sitt á undirskriftarlistann sem fór í loftið í gær. Linkur í hann í tenglasafninu mínu hér á vinstri hönd.
![]() |
Dublinarákvæðið mikið notað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tenglar
Nýja Ísland
Ég les:
Tíbet
- Fréttir frá Tibet
- Tibet Info Net An Independent Information Service on Contemporary Tibet
- Undercover in Tibet Ný heimildarmynd frá Channel 4 um hvernig ástandið er í raun og veru í Tíbet
- Leaving Fear Behind Viðtöl við Tíbeta í Tíbet stuttu fyrir mótmælin í mars
- Cry of the Snow Lion Margverðlaunuð heimildarmynd um Tíbet
- Yeti - heimildarmynd
- Yogis of Tibet Heimildarmynd um Jógameistara Tíbets sem eru óðum að hverfa
- Students for a Free Tibet
- Dalai Lama
- Tibetan Uprising
- Kerti fyrir Tíbet
- Tibet TV
- Central Tibetan Administration
- Om mani padme hum
Ýmsar slóðir
sem ég man eftir í andartakinu
- The Hunger Site
- THE MEATRIX
- Myspace síðan mín
- Úgáfan Beyond Borders Alþjóðleg útgáfa sem ég stofnaði árið 1999 í netheimum
- Hitt bloggið mitt
- Félagið Ísland-Palestína
- Womb of Creation Vefurinn minn sem ég hef haldið við síðan 1995
- Myspace síðan hennar mömmu
- Saving Iceland
- Be the change:)
- Náttúra vefur með umhverfisvitund
- Nattura info
- Care 2 make a Difference
Bækur
Bækurnar mínar
-
: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni -
: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra. -
: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.5.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónhlaða
Bloggvinir
-
ADHD
-
Agný
-
Alfreð Símonarson
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Alexandra Briem
-
Andrés Magnússon
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Ari Sigurðsson
-
Baldvin Björgvinsson
-
Baldvin Jónsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bara Steini
-
Bergur Sigurðsson
-
Bergur Thorberg
-
Bergur Þór Ingólfsson
-
Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
-
Binnan
-
Birgir Þórarinsson
-
Birna Rebekka Björnsdóttir
-
Bjargandi Íslandi
-
Bjarkey Gunnarsdóttir
-
Björgvin R. Leifsson
-
SVB
-
Brjánn Guðjónsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
-
Brynja skordal
-
Brynjar Hólm Bjarnason
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Daníel Haukur
-
Dorje
-
Dísa Dóra
-
Egill Bjarnason
-
Egill Jóhannsson
-
Einar Guðjónsson
-
Einar Indriðason
-
Einar Vignir Einarsson
-
Einar Ólafsson
-
Eiríkur Bergmann Einarsson
-
Eldur Ísidór
-
Elyas
-
Elín Sigurðardóttir
-
Elísabet Markúsdóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Erna Hákonardóttir Pomrenke
-
Eva Benjamínsdóttir
-
Eydís Hentze Pétursdóttir
-
Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Finnur Bárðarson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Fríða Eyland
-
Félag Anti-Rasista
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Gaukur Úlfarsson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Gerður Pálma
-
Gestur Guðjónsson
-
Goggi
-
Greta Björg Úlfsdóttir
-
Gunnar Pétursson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnlaugur B Ólafsson
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Bergmann
-
Guðjón Heiðar Valgarðsson
-
Guðmundur Helgi Helgason
-
Guðmundur M Ásgeirsson
-
Guðmundur Ragnar Guðmundsson
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Guðný Lára
-
Guðrún S Sigurðardóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gísli Hjálmar
-
Haffi
-
Halldór Sigurðsson
-
Hannibal Garcia Lorca
-
Haukur Már Helgason
-
Heidi Strand
-
Heilsa 107
-
Heiða Þórðar
-
Helga Auðunsdóttir
-
Kaleb Joshua
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Himmalingur
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlekkur
-
Hlynur Hallsson
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Hlédís
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Hulla Dan
-
Hólmfríður Guðlaug Einarsdóttir
-
Hörður B Hjartarson
-
Húmoristaflokkurinn
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingibjörg Helga
-
Ingibjörg SoS
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Isis
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jakob Smári Magnússon
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jens Guð
-
Johann Trast Palmason
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jón Bjarnason
-
Jón Gerald Sullenberger
-
Jón Sigurgeirsson
-
Jón Svavarsson
-
Jón Valur Jensson
-
Jón Þór Ólafsson
-
DÓNAS
-
Katrín Mixa
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Ketill Sigurjónsson
-
Ketilás
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristbergur O Pétursson
-
Kristján B. Jónasson
-
Kristján Kristjánsson
-
Kristján Logason
-
Kristín Dýrfjörð
-
Kristín Snorradóttir
-
Krummi
-
Kári Harðarson
-
Landvernd
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Lovísa
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lýður Árnason
-
Mafía-- Linda Róberts.
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
Margrét Lóa Jónsdóttir
-
Margrét Sigurðardóttir
-
Markús frá Djúpalæk
-
María Kristjánsdóttir
-
María Pétursdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Morgunblaðið
-
Myndlistarfélagið
-
Mál 214
-
Máni Ragnar Svansson
-
Neo
-
Oddi
-
Paul Nikolov
-
Perla
-
Pjetur Hafstein Lárusson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pálmi Guðmundsson
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Rannveig H
-
Ransu
-
Róbert Björnsson
-
Rögnvaldur Hreiðarsson
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Samstaða - bandalag grasrótarhópa
-
SeeingRed
-
Sema Erla Serdar
-
Sigga
-
Signý
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
-
Sigurgeir Þór Hreggviðsson
-
Sigurjón Sigurðsson
-
Sigurður Hrellir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þór Guðjónsson
-
Skuldlaus
-
Snorri Sturluson
-
Soffía Valdimarsdóttir
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
-
Stríða
-
Sveinbjörn Eysteinsson
-
Sveinn Hjörtur
-
Sveinn Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Swami Karunananda
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sævar Finnbogason
-
Sævar Einarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Sóley Tómasdóttir
-
Sólveig Klara Káradóttir
-
TARA
-
Tilkynning
-
Tinna Jónsdóttir
-
Trausti Traustason
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Tína
-
TómasHa
-
Valgeir Skagfjörð
-
Valgerður Halldórsdóttir
-
Vefritid
-
Vilborg Eggertsdóttir
-
Vilhelmina af Ugglas
-
Vilhjálmur Árnason
-
Villi Asgeirsson
-
Vinir Tíbets
-
Viðar Eggertsson
-
Viðar Freyr Guðmundsson
-
Vér Morðingjar
-
Vésteinn Valgarðsson
-
arnar valgeirsson
-
fingurbjorg
-
hreinsamviska
-
leyla
-
molta
-
oktober
-
Einhver Ágúst
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Ár & síð
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Ásgerður
-
Ásta Hafberg S.
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Ævar Rafn Kjartansson
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Ólaf de Fleur Jóhannesson
-
Ólafur fannberg
-
Ólöf de Bont
-
Ómar Ragnarsson
-
Óskar Arnórsson
-
Örlygur Hnefill Örlygsson
-
Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
-
Þröstur Unnar
-
Þór Jóhannesson
-
Þór Saari
-
Þórhildur og Kristín
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Andrés.si
-
Anna Karlsdóttir
-
Anna Margrét Bjarnadóttir
-
Ari Jósepsson
-
Aron Ingi Ólason
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Barði Bárðarson
-
Bergþór Gunnlaugsson
-
Billi bilaði
-
Bjarki Steingrímsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Bogi Jónsson
-
brahim
-
Daði Ingólfsson
-
Daníel Sigurður Eðvaldsson
-
Dóra litla
-
Dúa
-
Einar Björn Bjarnason
-
Elsabet Sigurðardóttir
-
Esther Anna Jóhannsdóttir
-
Frosti Sigurjónsson
-
Grétar Eiríksson
-
Guðbjörg Hrafnsdóttir
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Héðinn Björnsson
-
Hreyfingin
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Högni Snær Hauksson
-
Ingvi Rúnar Einarsson
-
Ísleifur Gíslason
-
Jack Daniel's
-
Jóhann Ágúst Hansen
-
Jóhannes Þór Skúlason
-
Jóhann Pétur
-
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
-
Jónas Bjarnason
-
Jón Kristófer Arnarson
-
Jón Lárusson
-
Karl Gauti Hjaltason
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Madhav Davíð Goyal
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Morten Lange
-
Óðinn Kári Karlsson
-
Ólafur Eiríksson
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Rafn Gíslason
-
Rannsóknarskýrslan
-
Rúnar Freyr Þorsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Sigurður Einarsson
-
Sigurður Jónsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Sveinbjörn Ragnar Árnason
-
Vaktin
-
Vilhjálmur Sveinn Björnsson
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson