Leita í fréttum mbl.is

Fréttatilkynning frá Saving Iceland

Alltaf gott að fá ítarefni og gott væri ef fólk myndi nú lesa alla greinina áður en það tjáir sig:)

Ég vil hvetja fólk til að lesa blogg hjá Evu Hauks undir yfirskriftinni: Þetta er bara ekki rétta aðferðin:  http://sapuopera.blog.is/blog/sapuopera/entry/595663/

GRUNDARTANGI – Rétt í þessu lokuðu 20 manns frá Saving Iceland hreyfingunni, umferð til og frá álveri Norðuráls/Century og verksmiðju Íslenska Járnblendifélagsins (Elkem) í Hvalfirði. Fólkið hefur læst sig saman í gegnum rör og þannig skapað mennskan vegtálma. ,,Við mótmælum umhverfistengdum og heilsufarslegum afleiðingum námugraftar og súrálsframleiðslu Century á Jamaíka og áætlunum fyrirtækisins um nýtt álver og súrálsverksmiðju í Vestur Kongó. Fyrirhugaðar stækkanir Norðuráls og Elkem hér á landi munu leiða af sér eyðileggingu einstakra jarðitasvæða og einnig hafa í för með sér losun gífurlegs magns gróðurhúsalofttegunda" segir Miriam Rose frá Saving Iceland (1).


Century í Vestur Kongó

Árið 2007 skrifaði Century undir viljayfirlýsingu við ríkisstjórn Vestur Kongó um byggingu álvers, súrálsverksmiðju og báxítnámu þar í landi (2). Starfsemin verður keyrð áfram af gasi og krefst 500 MW af rafmagni. Century skoðar nú hvar hentugast er að staðsetja báxít-námuna og hyggst hefja byggingu álversins eins fljótt og auðið er (3).

,,Við trúum því að Vestur Kongó hafi allt það hráefni sem þarf til að starfrækja álframleiðslu með hagnaði" segir Logan W. Kruger frá Century.

,,Kruger hefur rétt fyrir sér" segir Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson frá Saving Iceland. ,,Transparency International segir Vestur Kongó hafa eitt spilltasta stjórnarfar í heiminum. Og það eru einmit þannig ríkisstjórnir sem álfyrirtækin vilja helst stunda viðskipti við…" (4)

,,Það er afar ólíklegt að þeir fátæku muni nokkuð hafa upp úr þessari þróun, en munu þess í stað verða fyrir umhverfislegum áhrifum framkvæmdanna. Tekjur frá olíuframleiðslu hafa ekki skilað sér til þeirra, hvers vegna ætti það að vera eitthvað öðruvísi með báxítið?" segir Snorri.

,,Hvað varðar báxít námurnar í Vestur Kongó, er alveg ljóst að Century hyggst starfrækja stærðarinnar opna námu í líkingu við það sem önnur stórfyrirtæki vilja gera í Orissa á Indlandi og á Jamaíka, Guyana og Guinea" segir Samarendra Das, indverskur rithöfundur og sérfræðingur um áliðnaðinn, en Samarendra mun fjalla um menningarleg þjóðarmorð í tengslum við álframleiðslu á ráðstefnu Saving Iceland í Reykjavíkur Akademíunni næstkomandi Miðvikudag (sjá viðbót A).

,,Alls staðar í heiminum þar sem báxítgröftur fer fram á sér stað samhliða eyðilegging umhverfisins, jafnframt sem lifibrauð fólks og heilsa þess eru tekin af þeim. Fólk búsett á Íslandi þarf að átta sig á því hvaðan báxítið sem álið er framleitt úr, kemur" segir Samarendra.

Century á Jamaíka: umhverfis- og heilsufarsógn
Fyrirtækin St. Ann Bauxite og Kaiser í eigu Century, Alcoa, Rio Tinto-Alcan og Rusal (sem á 1/3 í Century) eiga öll aðild að báxítgreftri á Jamaíka og eru sek um umtalsverða eyðileggingu regnskóga og mengun drykkjarvatns (5,6,7). Century vill nú opna nýja námu og súrálsframleiðslu í samstarfi við kínverska fyrirtækið Minmetals, en hið síðarnefnda er þekkt fyrir fangaknúnar verksmiðjur og alvarleg mannréttindabrot í Kína og annars staðar í heiminum (Sjá viðbót B).

Elkem – Íslenska Járnblendifélagið: Mengunarslys í hverri viku
Íslenska Járnblendifélagið vill nú stækka verksmiðju sína á Grundartanga í Hvarfirði, fyrir frekari framleiðslu á kísiljárni fyrir stáliðnaðinn. Verksmiðjan er nú þegar einn mesti mengunarvaldur hér á landi og losar mest magn gróðurhúsalofttegunda; aukin framleiðsla myndi leiða af sér gífurlega mengunar-aukningu (1). Í Júlí 2007 var sagt frá því að Elkem hafi 'fyrir slysni' losað stærðarinnar mengunarský frá verksmiðju sinni. Samkvæmt fréttinni orsakaðist slysið af mannlegum mistökum og haft var eftir Þórði Magnússyni, talsmanni fyrirtækisins, að sams konar slys gerist nokkrum sinnum í viku. Sigurbjörn Hjaltason, hreppstjóri Kjósahrepps, segir þessi 'slys' yfirleitt eiga sér stað að nóttu til (8).

Um Saving Iceland
Síðasta Laugardag stöðvaði Saving Iceland vinnu í heilan dag á lóð fyrirhugaðs álvers Norðuráls í Helguvík. Sú aðgerð, sem og þessi, er hluti af fjórða sumri beinna aðgerða gegn stóriðju á Íslandi og annars staðar í heiminum. Í júlí 2007 stöðvaði fólk á vegum hópsins einnig vinnu umferð til og frá álverinu á Grundartanga.

Saving Iceland varð til þegar íslenskir umhverfissinnar óskuðu eftir hjálp erlendis frá, til að vernda íslensk öræfi - ein þau síðustu í Evrópu - frá stjóriðju. Rétt eins og Norðurál/Century, vilja Alcoa og Rio Tinto-Alcan nú reisa fleiri álver hér á landi. Til þess þarf að eyðileggja öll virk jarðvarmasvæði á landinu auk þess að reisa virkjanir í hverri stórri jökulá (sjá viðbót C).

Í ár hafa fjórðu aðgerðabúðir Saving Iceland verið settar upp á Hellisheiði, nálægt jarðvarmavirkjun Orkuveitu Reykjavíkur en virkjunina er nú verið að stækka, m.a. til að koma til móts við kröfu Norðuráls um aukna orkuframleiðslu.

Nánari upplýsingar:
 http://www.savingiceland.org
 savingiceland at riseup.net

Viðbætur:
A.) Miðvikudaginn 23. júlí kl. 19:30 stendur Saving Iceland fyrir ráðstefnu þar sem indverski rithöfundurinn og sérfræðingur um álframleiðslunna kemur fram ásamt Andra Snæ Magnasyni rithöfundi. Umfjöllunarefni ráðstefnunnar eru áhrif álframleiðslu á þriðja heiminn auk þess sem hugmyndin um einhvers konar 'hreina og græna' álframleiðslu hér á landi verður brotin á bak aftur. Ráðstefnan fer fram í Reykjavíkur Akademíunni, Hringbraut 121. Þeir sem hafa áhuga á að tala við Samarendra, taka við hann viðtal o.sv.fr. geta haft samband við einn af ofargreindum talsmönnum SI.

B.) Árið 2004 hafði Minmentals í huga að taka yfir kanadíska námufyrirtækið Noranda, en var hafnað árið 2005 vegna alvarlegra áhyggja um mannréttindabrot kínverska fyrirtækisins. Þessi skýrsla segir nánar frá mannréttindabrotum Minmetals:

Dhir, Aaron A. (2006). 'Of Takeovers, Foreign Investment and Human Rights: Unpacking the Noranda-Minmetals Conundrum', Banking and Finance Law Review, 22, 77-104.

C.) Fyrir frekari upplýsingar um áætlaðar stóriðjuframkvæmdir á Íslandi, sjá: http://www.savingiceland.org/sos

Heimildir:
(1) Icelandic Ministry of the Environment (2006). Iceland's fourth national communication on climate change, report to the UNFCCC. http://unfccc.int/resource/docs/natc/isl… [Accessed 20-6-08]
(2) AZ Materials News (2007). Century Aluminium to Build Aluminium Smelter in Republic of Congo. http://www.azom.com/News.asp?NewsID=7734 [Accessed 20-6-08]
(3 ) Afrique en Ligne (2008). Congo to build aluminium smelter in Pointe-Noire. http://www.afriquenligne.fr/news/africa-… [Accessed 20-6-08]
(4) Transparency International (2006). Corruption Perceptions Index 2006. Transparency International, Berlin.
(5) Zadie Neufville, April 6, 2001, 'Bauxite Mining Blamed for Deforestation'. See http://forests.org/archive/samerica/baux…. [Accessed 20-6-08]
(6) Mines and Communities report,'Bauxite Mine Fight Looms in Jamaica's Cockpit Country', 24th October 2006. http://www.minesandcommunities.org/artic…. [Accessed 20-6-08]
(7) Al Jazeera (2008). Environmental damage from mining in Jamaica, June 11, 2008 News. Available through http://www.youtube.com/watch?v=vJa2ftQwf…. [Skoðað 20-6-08]
(8) MBL.is (2007). Reykur frá járnblendiverksmiðjunni Grundartanga. http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2007/07… [Skoðað 20-7-08]


mbl.is Stöðva umferð við Járnblendiverksmiðjuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: kaptein ÍSLAND

hættu þessari vitleysu og fá þér almennilega vinnu ;)

kaptein ÍSLAND, 21.7.2008 kl. 17:05

2 Smámynd: kaptein ÍSLAND

kapteininn heggur til grétars með exi sinni 

kaptein ÍSLAND, 21.7.2008 kl. 18:20

3 Smámynd: kaptein ÍSLAND

kapteinninn drekkur bara hreinann kaptein morgan ,held að þú getir ekki einu sinni þefað af bjór og mundir stax finna á þér grátar eir

kaptein ÍSLAND, 21.7.2008 kl. 18:23

4 Smámynd: kaptein ÍSLAND

hmm kanski ætti kapteininn að prufa að sækja um hja alcan? 

kaptein ÍSLAND, 21.7.2008 kl. 18:33

5 identicon

Þetta er alveg hárrétt hjá Saving Iceland að álrisarnir eru

Mannréttindinda níðingar,

Umhverfis níðingar,

Hergagnaframleiðendur og síðan veldur uppbygging álvera og uppbygging virkjanna í þágu álvera ruðningsáhrifum í hagkerfinu sem þýðir hvað?

Jú ruðningsáhrif verða til þess að seðlabankinn þarf að hækka stýrivexti sem þýðir hvað?

Jú stýrivextirnir verða til þess að útflutnings og samkeppnis atvinnugreinarnar, nýsköpunar og sprotafyrirtæki hrökklast úr landi og þar tapast störf á móti störfum í álveri.

Sem sagt stórfelldur herkosnaður af stóriðjustefnunni.

Bestu kveðjur

Jón Þórarinsson

Jón Þórarinsson (IP-tala skráð) 2.8.2008 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.