Leita í fréttum mbl.is

Undirskriftarsíðan liggur niðri

Það er greinilega verið að æfa mig í æðruleysi. Í morgun datt serverinn sem hýsir undirskriftarlistann niður. Ég eða aðrir komast ekki inn á hann. Ég bið ykkur um að sýna þessu skilning. Ég hef notað þetta svæði í mörg ár og aldrei upplifað annað eins vesen::::: 

Ef fólk vill skrá sig, þá tek ég við skráningu á póstfangið mitt. Þarf að fá kennitölu og nafn: birgitta@this.is

Þetta þýðir auðvitað brjálæðislega mikil aukavinna sem tæknin guðdómlega átti að sjá um... vona bara að þetta komist í lag í dag, því við ætlum að skila listunum á morgunn.... góðu fréttirnar eru að það eru í það minnsta 3000 búnir að skrá sig í raunheimum sem og netheimum, sem er frábært :) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: AK-72

Ég næ allavega að komast á síðuna. Ætla svo að reyna að koamst aftur að mótmæla.

AK-72, 9.7.2008 kl. 11:53

2 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Ó ó ó, barn síns tíma... æjæ. Jæja maður verður kannski að mæta í búrku á sýninguna, þykjast vera frá Afganistan og ekki tala íslenska.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 9.7.2008 kl. 14:39

3 identicon

Ég kemst inn á síðuna.

Og ég biðst velvirðingar á Orra. Hann heldur að hann sé fyndinn.

Jesús Kristur (IP-tala skráð) 9.7.2008 kl. 15:45

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Ég hef verið blokkeruð og kemst ekki inn á mína eigin undirskriftarsíðu.... arg

vona að þetta verði komið í lag áður en ég þarf að skila listanum á morgunn...

Það er eiginlega mjög góð ástæða fyrir því að Orri ætti að mæta í búrku sem og ég sjálf ef ég myndi sýna myndbandið sem ég á af honum sem og sjálfri mér við listræna tilburði árið 1990:) ásamt reyndar fleiru mætu fólki sem ætti líka að fá sér búrku. ég er komin með undirskriftar deleríum - ég bið forláts.

Birgitta Jónsdóttir, 9.7.2008 kl. 15:53

5 identicon

Ég hef fyrir löngu skráð mig og vildi að mótmælenda tíminn væri mér hliðhollari því þá myndi ég mæta.

Ragga (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 00:45

6 Smámynd: Sigurður Rósant

Ertu ekkert farin að sjá að þér, Birgitta? Þessi blökkumaður er einn af þeim mörgu blöffurum frá Afríku sem hafa snúið okkur Vesturlandabúum með alls kyns klækjum, lygum og blekkingum, náð af okkur fé í því skyni að hann sé að styrkja nám ungmenna, hjálpa sjúkum og sorgmæddum.

Hættu nú þessum flumbrugangi og biddu Björn og Hauk afsökunar á bráðlætinu.

Með kveðju

Sigurður Rósant, 10.7.2008 kl. 17:29

7 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Af hverju í ósköpunum ætti ég að biðja Björn og Hauk afsökunar um að biðja þá um að sýna mannúð í verki og fjalla um mál Paul hérlendis.

Ég hef alla tíð tekið þann pól í hæðina að um hans mál yrði fjallað hér og fjölskyldan hans sameinuð. Ef það er flumbrugangur og bráðlæti í þínum heimi Sigurður þá verður það bara að vera svo.

Birgitta Jónsdóttir, 11.7.2008 kl. 10:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 508787

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband