Leita í fréttum mbl.is

Af hverju gerir hann það ekki sjálfur?

Ég hef alltaf furðað mig á því þegar ég er að mótmæla einhverju eða vekja athygli á óréttlæti af einhverju tagi að það koma alltaf hjarðir af fólki sem spyrja mig, "af hverju mótmælir þú ekki þessu eða hinu?" Ég er loksins komin með rétta svarið fyrir þetta fólk, "af hverju gerir þú það ekki sjálf/ur?"

Finnst alltaf frekar hjárænulegt þegar fólk gagnrýnir aðra fyrir að mótmæla ekki einhverju sem brennur á þeim. Finnst það lélegt taktík til að taka fókusinn af getuleysi sínu í að gera eitthvað í málunum sjálfur.

 

 


mbl.is Björk ætti frekar að syngja gegn fátækt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nákvæmlega.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 09:02

2 identicon

uh, stál og hnífur er merki mitt.

Mér finnst Bubbi hafa skilað sínu ágætlega í gegnum árin og hjákátlegt ef hann ætti að halda áfram að syngja um sömu hluti endalaust.

Finnst þetta góð athugasemd hjá honum, og um það bil það gáfulegasta sem ég hef heyrt í þessu þjóðfélagi í lengri tíma.

Það er ungt fólk í dag sem nennir ekki að vinna af því það hefur það svo gott hjá foreldrum sínum.

Það er eitthvað ekki í lagi í þessu samfélagi, Bubbi fattar það, fattar þú það?

Þorvarður Goði (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 09:08

3 Smámynd: Birna M

Bubbi varð frægur fyrir að gagnrýna kerfið og óréttláta atvinnurekendur og syngja um að lífið á góða Íslandi er ekki jafn jollý og menn vilja vera láta. Björk kemur úr sama geira og fékk sinn uppgang í sömu tónlistarhornum, en mér finnst hún því miður gegnum tíðina bara verið að mótmæla tísku málefnum. Hjartað hennar er ekki í því en ef það selur gerir hún það. Bubbi hinsvegar hefur látið hluti flakka og fólk annað hvort hatar hann af öllu hjarta eða elskar hann af sömu ástríðu. Oft heur kallinn farið í mínar fínustu en hann má eiga það sem hann á.

Birna M, 19.7.2008 kl. 09:29

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Hvaða bull og vitleysa. Birna býrð þú í hausnum á Björk? Hvernig veistu hvað hún hugsar eða er hennar hjartans mál? Síðan hvenær þarf Björk að hórast til að selja sína tónlist? Ég held að fólk ætti nú aðeins að skoða bakgrunn hennar í náttúruvernd áður en það slær fram öðrum eins klisjum.

Ég var ekkert að reyna hafa eitt eða neitt af Bubba, en finnst bara kjánalegt að vera að gagnrýna fólk fyrir að gera þó eitthvað ef það er ekki eftir hans eigin forskrift. Ég stend enn við fyrirsögnina, af hverju gerir hann það ekki sjálfur?

Birgitta Jónsdóttir, 19.7.2008 kl. 09:39

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Þorvaður Goði ef að unga fólkið hefur það svona gott að það þarf ekki að vinna er þá einhver fátækt hérna? Ef að það er þar sem potturinn er brotinn í samfélaginu þá er ég ekki að fatta þetta. Upplýstu mig?

Birgitta Jónsdóttir, 19.7.2008 kl. 09:41

6 identicon

Bubba Morteins er auðvitað frjálst að halda styrktartónleika gegn fátækt. Ég er viss um að þegar hann gerir það kemur einhver og tuðar um það hversvegna hann styrki ekki frekar krabbameinsrannsóknir í Bandaríkjunum eða kjarabaráttu tónmenntakennara í Kabúl.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 11:46

7 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

lol:)

Birgitta Jónsdóttir, 19.7.2008 kl. 11:51

8 identicon

Maðurinn á klárlega um sárt að binda eftir tapið á verðbréfabraskinu og er því ekki úr vegi að hrynda af stað átakinu "Björgum Bubba!" en áhugasamir Fésbókar-notendur geta tekið þátt á http://www.facebook.com/group.php?gid=20664828044 ... góðar stundir.

...désú (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 21:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.