Leita í fréttum mbl.is

Minni á undirskriftarlista

Hvet alla sem vilja styðja Paul Ramses og sameina þessa sundruðu fjölskyldu að setja nafnið sitt á undirskriftarlistann. Honum mun verða lokað árla morguns á fimmtudaginn og afhendur sama dag þeim Birni og Hauk.

http://www.thepetitionsite.com/1/PaulRamses 

"Við skorum á Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra og Hauk Guðmundsson, forstöðumann útlendingastofnunar að snúa Paul Ramses heim til Íslands nú þegar og að um mál hans verði fjallað hér á landi, þar sem fjölskylda hans dvelur.
Við skorum jafnframt á Björn og Hauk að sýna mannúð í verki, en Paul á fjölskyldu hérlendis og var hrifsaður á brott frá mánaðar gömlu barni sínu og eiginkonu aðfaranótt 3. júlí. "


mbl.is Munu ræða mál Ramses
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég held að það verði nú að fara yfir þennan "undirskriftalista" ef það á að vera hægt að taka hann alvarlega.

t.d. undirskriftaaðili nr. 1223 skrifar "why the fock að fá þennan negra hingað aftur er ekki nógu mikið af þessu ?"

Fransman (IP-tala skráð) 7.7.2008 kl. 08:01

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

ég mun fara yfir listann og taka út svona bull áður en ég afhendi hann.

það er alltaf einhverjir svona jólasveinar sem opinbera sitt sanna skítlega eðli.

ég hélt utan um undirskrifarlista fyrir Bobby Fisher á sínum tíma og hann var allur morandi í svona .... maður eyddi oft mörgum klukkutímum á dag í að hreinsa hann.

Birgitta Jónsdóttir, 7.7.2008 kl. 08:13

3 identicon

Síðan er einhver skatti af frægum Íslendingum á listanum, án kennitölu, en með starfsheiti þannig að það fer ekki á milli mála við hvern er átt.

Fransman (IP-tala skráð) 7.7.2008 kl. 08:18

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

einhver nöfn?

búin að hreinsa þessi tvö dónakomment

annars er listinn bara nokkuð hreinn miðað við aðra lista sem ég hef fengist við

Birgitta Jónsdóttir, 7.7.2008 kl. 08:23

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Búin að skrifa undir annarsstaðar.  'Eg vona svo sannarlega að íslendingar beri gæfu til að bjóða þessu fólki dvalarleyfi hér á landi, og það sem fyrst.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.7.2008 kl. 14:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband