Leita í fréttum mbl.is

Arnþrúður Karlsdóttir hótar mér

Fékk þennan póst frá Arnþrúði Karlsdóttur í nótt: "Birgitta. Lengi skal manninn reyna segir gamalt og gott máltæki og sannarlega á það við um þig núna. Ég er viss um að móðir þín snýr sér við í gröfinni yfir þeim ummælum sem þú viðhefur um mig. Viltu að ég segi sannleikann um þig og hvernig þú komst fram við hana??????? Þetta verður þér dýrkeypt..AK"

Ég hef bara einfalt svar við þessu: gjörðu svo vel, ég hef ekkert að fela gagnvart sambandi mínu og mömmu, það gekk oft á ýmsu hjá okkur enda átti mamma við sjúkdóm að stríða sem kenndur er við áfengissýki og samband okkar oft harla stormasamt út af því, uns mér tókst að vinna með mína meðvirkni og læra að aðgreina sjúkdóminn frá manneskjunni. En við mamma áttum fallegt samband undir lokin og það fær enginn tekið það frá mér, sér í lagi ekki kona sem mamma talaði ekki við undir lok æviskeiðs síns, þrátt fyrir langa vináttu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Arnþrúður er ótrúleg! Hún er mjög óábyrg í í miðlinum sínum, lætur ýmislegt flakka sem flokkast undir gróusögur og róg. Það segir mér alveg nóg. Ég er enn að reyna að skilja hvers vegna hún var fengin til að troða upp á Ráðhúströppunum.

Hjálmtýr V Heiðdal, 27.10.2008 kl. 08:14

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Það sem mér finnst svo furðulegt er að hún fær að komast upp með að haga sér eins og hún gerir, oft sverta mannorð fólks sem getur litlum vörnum komið fyrir sig. Það ganga svo sem allskonar sögur um hana, en ég ætla ekki að leggjast svo lágt að hafa þær eftir, því ég vil ekki vera á hennar plani.

Seinni mótmælin voru undarlegur farsi, ég ber mikla virðingu fyrir Ómari og hef alltaf haft gaman að beittri ádeilu Snorra en mér féllust hendur þegar ég sá Arnþrúði hefja máls, eins og þú Hjálmtýr þá skil ég ekki af hverju hún hóf upp rödd sína þarna. 

Grétar: held að það væri ráð að birta hið ágæta ljóð hans Páls J. Árdals sem heitir Ráðið og mamma samdi eitt sinn lag við. Það lýsir einmitt svo vel aðferðum við að sverta mannorð. Skelli því hér inn seinna í dag... verð að koma mér til vinnu núna.

Birgitta Jónsdóttir, 27.10.2008 kl. 08:33

3 Smámynd: Rannveig H

Birgitta þetta er ótrúlegt, og ég held að þú gerðir rétt að koma þessu lengra Ég skrifað færslu um mótmælin viltu kíkja á hana :)

Rannveig H, 27.10.2008 kl. 08:40

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

kíkti á færsluna þína, og hygg að þú hafir nokkuð til þíns máls:)

ég hef aldrei þolað leynimakk og finnst best að hafa allt á útopnu. frétti að Arnþrúður les fólki pistilinn dag hvern og hún mun sennilega misnota stöðu sína sem útvarpsstjóri og lesa mér pistilinn... og það er allt í lagi, ef hún vill reyna að mannorðsmyrða mig þá lýsir það bara hennar innræti og ég ætla ekki að taka því persónulega.

Birgitta Jónsdóttir, 27.10.2008 kl. 09:00

5 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Ef Arnþrúði er alvara, þá held ég að hún sé sjálfri sér verst.

Vésteinn Valgarðsson, 27.10.2008 kl. 09:31

6 Smámynd: Stríða

Það er ekki í lagi með þessa konu. Ég get ímyndað mér hvernig hún hefur reynt að stjórna fólki með hótunum.

Stríða, 27.10.2008 kl. 09:36

7 identicon

já, ætli hún sé ekki sjálfri sér verst konan sú arna, uss þetta er ljótt að heyra.

alva (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 10:55

8 identicon

Vil lýsa yfir stuðningi mínum og aðdáun þér hefur verið mjög annt um móður þina í erfiðum veikindum hennar, kemur fram milli línanna á því sem þú skrifar er reynir mjög á aðstandendur þekki það úr starfi og eigin reynslu.

Arnþrúður hefur hvorki haft skilning eða kærleika til að meðhöndla svo erfitt mál. Sorglegt hvernig hún hagar sér oftar en ekki á Útvarp Sögu.

Þú gætir fengið tvær athugasemdir en er sama hugsunin, kerfið virtist ekki í lagi.

Með kveðju

Sigríður Laufey Einarsdóttir (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 11:02

9 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Þakka ykkur fyrir kommentin... þetta viðbragð Arnþrúðar er bara enn ein birtingamyndin í þessu leikhúsi fáránleikans sem við lifum við í dag.

þakka þér fyrir orðin og hluttekninguna Sigríður Laufey, það er mér mikils virði:)

Birgitta Jónsdóttir, 27.10.2008 kl. 11:17

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Frábært hjá þér að birta hótunarbréf Arnþrúðar.  Að svona manneskja skuli hafa heila útvarpsstöð til afnota vekur hjá manni óhug.

Sigrún Jónsdóttir, 27.10.2008 kl. 11:45

11 Smámynd: Johann Trast Palmason

Ég á ekki orð, og þessi manneskj.. nei fæst orð bera sem minnstan skaða, en hver heldur hun að hun sé ?

Johann Trast Palmason, 27.10.2008 kl. 12:13

12 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

ég er nú svo mikil pollíana að ég var að senda henni jákvæða orku... :)

en auðvitað er það óhugnaleg staðreynd að hún stjórnar heilli útvarpsstöð :::: en ég hef nú fengið svo oft ljótar kjaftasögur um mig að það þarf nú mikið að mæða á til að það fara inn fyrir minn skráp...

Jóhann var að kíkja á myndirnar þínar inn á flickr... mjög mikið af frábærum ljósmyndum... var að fíla humans í ræmur... takk fyrir mig.

Birgitta Jónsdóttir, 27.10.2008 kl. 12:20

13 Smámynd: Ásgerður

Þetta er ótrúlega lágkúrulegt af henni. En aldrei hlusta ég á þessa stöð, og enginn sem ég þekki, þannig að í mínum huga, hefur hún engin völd. Bara ofur-stjórnsöm kona sem kann engin mörk, sorglegt alveg.

Haltu bara áfram þínu striki Birgitta, sumt er ekki í okkar valdi, og á verðum við að sleppa tökunum

Það tekur enginn mark á þessari konu lengur.

Knús á þig

Ásgerður , 27.10.2008 kl. 12:28

14 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

aka ... gefðu mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt - kjark til að breyta því sem ég fæ breytt og vit til að greina þar á milli:)

knús til baka - enda er ég alræmdur knúsari:....:

Birgitta Jónsdóttir, 27.10.2008 kl. 12:36

15 Smámynd: Heidi Strand

Það er tvennt sem við þurfum núna og það er samstöðu og kærleikur.

Heidi Strand, 27.10.2008 kl. 14:08

16 Smámynd: Heidi Strand

Getraun: Hver kom siðast saman 1967?

Heidi Strand, 27.10.2008 kl. 15:29

17 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Fín auglýsingabrella hjá Arnþrúði :)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 27.10.2008 kl. 16:26

18 Smámynd: Héðinn Björnsson

Alltaf skal sumt fólk snúa öllu upp í persónuleg vandamál. Auðvaldið í samfélagi okkar er að setja landið í auðn og á meðan snýst umræðan um svona kjaftæði.

 Ef við förum ekki að átta okkur á hverjir raunverulegir óvinir okkar eru og sýna samstöðu með raunverulegum bandamönnum okkar þá munum við sitja ein eftir á Titanic meðan að ríka fólkið hefur komið sér vel fyrir á þessum fáu björgunarbátum sem voru tilbúnir.

Héðinn Björnsson, 27.10.2008 kl. 16:39

19 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

hverjir eru hinir raunverulegu bandamenn okkar Héðinn, ég verð að viðurkenna að ég er svolítið ringluð þessa dagana...

ég hef komist að þeirri niðurstöðu að við skópum þetta vandamál, við sem þjóð sofnuðum á verðinum, samfélagsvitund okkar er í molum og held að ekkert sé mikilvægara á þessari stundu en að við horfumst í augu við að hana þarf að rækta af miklum móð núna, þar liggur von okkar og velferð... aldrei hefur okkur sem þjóð gefist annað eins tækifæri til að búa til það samfélag sem við viljum búa í, spurningin er í hvernig samfélagi viljum við búa:)

Birgitta Jónsdóttir, 27.10.2008 kl. 16:54

20 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Þú er svöl og flott kona, með ríka réttlætiskennd, Birgitta mín  -og gerir hárrétt í að birta þetta ógeðslega hótunarbréf frá Arnþrúði Karlsdóttur.

Þegar svona fautar eru annars vegar þýðir ekki annað en að bjóða þeim byrgin. 

Nú gerist annað af tvennu; hún lyppast niður og reynir jafnvel að sleikja þig upp, eða fer að misnota útvarpsstöðina,sem hún sölsaði undir sig frá grunlausum meðeigendum, til að rægja þig.

So what !

Eflaust fá fleiri hana á bakið líka, fyrir að standa með þér, en það er bara ekki hægt annað en að sýna þeim samstöðu sem verða fyrir þessarri óværu.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 27.10.2008 kl. 17:15

21 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

Sæl Birgitta. Ég veit ekki um hvað málið snýst nema það sem kemur fram á bloggi þínu. En ég vil benda þér á að þú ert að brjóta lög um persónuvernd í tvígang. Fyrst með ummælum um að Arnþrúður hafi reynst mömmu þinni illa. Ef þú getur ekki sannað það fyrir dómi þá má búast við að það verði dæmt sem rógburður og þú krafin skaðabóta. Í öðru lagi með því að birta einkabréf á bloggi þínu.

mér sýnist þetta ekki viturlegt hjá þér og kalla yfir þig skaðabótaábyrgð og sennilega það að moggabloggið er í fullkomnum rétti að loka blogginu þínu ef Arnþrúður snýr sér til þeirra.

þú skalt leita til persónuverndar á personuvernd.is og spyrjast fyrir. fólkið þar gefur góð svör um hver réttarstaða þín er. 

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 27.10.2008 kl. 17:42

22 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ekki líst mér á það. Byltingin ekki byrjuð en er strax farin að éta börnin sín.

Emil Hannes Valgeirsson, 27.10.2008 kl. 17:53

23 Smámynd: Heidi Strand

Ef það er til réttlæti á Íslandi þá verður mjög mikið að gera hjá dómstólunum þegar hvítþvottinn er lokið.
Varðandi færslunna þá held ég að A.K. getur örugglega svarað fyrir sig sjálf.
Ef Birgitta má ekki segja frá sína reynslu á blogginu, hvað með allt sem  A.K. hefur þjáð sig um á útvarp Sögu? Oft hefur það verið á gráu svæði.
Ég skora á þig Salvör og Personvernd að hlusta á A.K. á Sögu á milli kl.11 og 12

Heidi Strand, 27.10.2008 kl. 18:25

24 Smámynd: AK-72

Ég fatta ekki alveg þennan komment frá Salvöru því hún virðist ekki sjá að því að Arnþrúður hóti Birgittu, heldur telur það miklu verra að Birgitta segi frá því, ef ég les þetta rétt. Ef fólk fær hótanir þá er það ekkert einkamál, heldur á ekki að vera að fela það og koma með fram í sviðsljósið.Ég játa að það er hægt að þar að auki hægt að lesa dulbúna hótun úr þessu frá Salvöru en ég vona þó að svo sé ekki.

Auk þess ef bannað er að birta einkabréf eða fólk segi frá sínu sjónarhorni á samskiptum, þá getum við alveg eins hætt ævisöguskrifum og fréttalfutningi. Það eru jú oft á tíðum samskipti fólks sem rata þangað.

AK-72, 27.10.2008 kl. 18:59

25 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

Hvaða ummæli hafðir þú um Arnþrúði, sem gerði hana svona reiða og hvar?

Þóra Guðmundsdóttir, 28.10.2008 kl. 16:45

26 Smámynd: Heidi Strand

Á Kjarvalssýningu eftir andlát listamannsins, var á sýninguna birt einkabréf frá dóttur hans án hennar vitund, og var þetta var einkamál fjölskyldunnar.

það er ekki sama hver á í hlut.

Ég er búin að átta mér á því að sumir eiga meira réttindi en aðrir.

Heidi Strand, 28.10.2008 kl. 20:05

27 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Svona persónulegt skítkast, þegar látnu fólki er blandað í umræðuna.... mér finnst varla hægt að leggjast lægra. En ég efast um að þetta sé rétt já Salvöru, að þú sért að brjóta lög Birgitta, en þó svo væri þá þorir AK ekki að láta reyna á það fyrir dómi. Almenningur myndi "jarða" Arnþrúði ef hún ætlaði sér að hjóla í þig með málaferlum út af þessu.

Gunnar Th. Gunnarsson, 29.10.2008 kl. 01:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 508758

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband