Leita í fréttum mbl.is

Að sjá það sem gott er:)

Skemmtilegt að fólk geri eitthvað til að létta sér lund. Það er svo sannarlega af nógu að taka í þessu leikhúsi fáránleikans sem við virðumst vera stödd í þessa dagana.

Í gær fórum við yngri sonur minn í göngutúr út í myndbandsleigu hér í vesturbænum. Hún heitir 107 Reykjavík og er ein af þessum fáu sem enn eru í eigu einstaklinga en ekki bónusvídeó keðjunnar. Við förum afar sjaldan á myndbandsleigur en þegar við gerum það, þá verður það að smá ævintýri. Við vorum með frostbit í kinnum eftir ágætlega langan göngutúr og ákváðum að fá okkur Hulk og Ironman. Það kostaði bara 550 krónur og þegar við vorum búin að borga þá bauð starfsstúlkan okkur að fá ís í kaupbæti að eigin vali. Við urðum auðvitað alveg himinlifandi og þakklát. 

hulk.jpgHvet fólk að versla við kaupmanninn á horninu, því þar er oftast besta þjónustan og síðast en ekki síst, þá eru hlutirnir oft á betri kjörum þar :) Langaði bara að þakka fyrir mig, því það er fátt betra en að finna til þakklætis.

Mér líður pínupons eins og innra með mér búi Hulk sem þurfi að fá útrás fyrir það sem undan er gengið, held að það verði ágætt að skreppa í kyndilgöngu á eftir og finna að maður er ekki einn um að vera nóg boðið. Ætla að taka ömmu með mér. 


mbl.is Innstæður frystar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er góður dagur fyrir kyndilgöngu, göngum meðan Lög gegn fólkinu eru ekki gengin í gildi, og ekki er hægt að handtaka fólk í göngum eftir geðþótta.

Gullvagninn (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 09:54

2 identicon

Yndislegt. Allir á Austurvöll í dag. Við verðum að láta vita af okkur. Við erum fólk en ekki tölur á blaði.

Rósa (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 10:36

3 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Besta þjóðfélagsgagnrýnin kemur í gegnum kaldhæðni og kímnigáfu. Þetta er besta leiðin til að sýna fáránleika hlutanna svart á hvítu.

Kaupmaðurinn á horninu er auðvitað bestur. Verst hvað þeir eru orðnir sjaldgæfir.

Laufey Ólafsdóttir, 25.10.2008 kl. 11:31

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Börn eru líka góðir félagar. Kvöldstund með barninu á þess forsendum getur kveikt á litla skemmtipúkanum í sál okkar.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 25.10.2008 kl. 11:59

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Heyr, heyr Laufey, þú ert með þetta.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.10.2008 kl. 17:47

6 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Það er Hulkur í allri þjóðinni núna held ég.

Ævar Rafn Kjartansson, 25.10.2008 kl. 23:08

7 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Er ekki LURKUR í allri þjóðinni ?

Hildur Helga Sigurðardóttir, 26.10.2008 kl. 04:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.