Leita í fréttum mbl.is

Orðræðan sem skömm er að

Ég fanga því að þjóðin fái að kjósa um framtíð sína í dag. Mér finnst aftur á móti sorglegt hvert umræðan er komin og sannfærð um að bæði meðal þeirra sem segja já og nei séu góðar manneskjur sem og siðspillingar. Það hefur nákvæmlega engin áhrif á það hvernig ég kýs.
 
Það er svo mikilvægt fyrir okkur að læra að rökræða og hafa skoðanaskipti án þess að fara út í svona mikla heift og reiði. Ég skora á alla að tóna aðeins niður umræðuna sem virðist vera komin út í öfga sem mér finnst til háborinnar skammar. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já því miður þá er sumt fólk í ójafnvægi.  Líka vegna þess hvernig stjórnvöld hafa komið fram við fólk, það er ekki hægt að treysta þeim fyrir horn.  Þetta fólk hafði svo marga með sér í upphafi, en kaus að kljúfa þjóðina í tvær áttir, og svo öll tvöfeldnin, pukrið og jafnvel lygin, sem er algjörlega óþolandi af fólki sem ætlaði að hafa allt uppi á borðum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.4.2011 kl. 22:41

2 Smámynd: Egill Þórðarson

Þakka þér fyrir, Birgitta.
Það er eins og talað út úr mínu hjarta, þegar þú segist vilja forðast "leðjuslaginn" í orðræðunni. Mér finnst þú fylgja því sjálf að halda þig við málefnalega umræðu.
Kærar þakkir fyrir "uppljóstrunina" varðandi nýju fjárfestana um daginn. Ég hafði vonda tilfinningu fyrir þeim og sem betur fer sýndir þú fram á óheilindi þeirra.
Ég tel réttmæta athugasemd þína í Silfri Egils að bíða með kosningar þar til stjórnlagaráðið hefur lokið störfum. Þar er öflug kona í forsvari, Salvör Nordal, og ég geri mér miklar vonir um hana og ráðið í heild, jafnvel þótt breytingar verði nánast engar á stjórnarskránni.
Kv, Egill Þórðarson

Egill Þórðarson, 11.4.2011 kl. 09:21

3 Smámynd: Magnús Ragnar (Maggi Raggi).

Hvort áttu við "Fagna því" eða eins og þú segir orðrétt "Ég fanga því að þjóðin fái að kjósa um framtíð sína í dag. [...]"??? Bara spyr.

Enn ég er 100% sammála því að við þjóðin fáum að kjósa aftur, til þess eins að það sé hægt að stokka upp í þessu spillta kerfi og að þeir sem hugsa um hag þjóðarinnar fái að komast inn.

Kær kveðja frá þínum einlæga bloggvin,
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).

Magnús Ragnar (Maggi Raggi)., 12.4.2011 kl. 17:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 508709

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.