Leita í fréttum mbl.is

Ávarp Guðmundar Beck

Ég fékk þessa frábæru ræðu frá honum Guðmundi Beck sem hann flutti á Akureyri á mótmælafundi sem þar var... hvet ykkur til að lesa hana, því hún setur hlutina í ágætt samhengi.

Svo vil ég bara þakka fyrir allan stuðninginn sem ég hef fengið í dag og vil bara segja að ég vil engu fólki neitt ill og sendi sumum bara hlýja strauma, sér í lagi toppunum í samfélaginu og einni konu.

Og svo vil ég líka segja það að ég þrái ekkert frekar en samstöðu meðal manna og held að það sé alveg möguleiki á að okkar yndislega mótmælafólk sé að komast að jákvæðri niðurstöðu fyrir almenning eins og mig. Annars þá langar mig helst að rækta fúlegg og fá mér heykvísl en fattaði svo að við erum öll ábyrg, hvað er samfélagið annað en við. Gerum eitthvað uppbyggilegt, búum til meðal úr þessu eitraða krepputíma og það mikilvægasta af öllu: við verðum að rækta með okkur samfélagsvitund, hún er í molum hjá okkur og ef við ræktum og þroskum hana, þá eigum við von:)     En hér er ræðan hans Guðmundar birt með leyfi hans:

   Ágæta samkoma!

  Ég finn mig knúinn til að ávarpa ykkur hér í dag. Við erum hér saman komin á alvarlegum tímamótum í sögu ungrar þjóðar. Á aðeins 17 árum höfum við lifað nýja Sturlungaöld þar sem misvitrir valdagráðugir menn hafa misbeitt valdi sínu og sóað auðlindum þjóðarinnar svo horfir við örbirgð komandi kynslóða ef ekki verður spyrnt við fótum.
   Gamalt máltæki segir að oft ratist kjöftugum satt á munn og svo hefi ég mátt því miður reyna síðan ríkisstjórn Íslands og 44 alþingismenn samkvæmt fyrirmælum frá Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni gáfu út lög um hryðjuverkin á Austurlandi, Kárahnjúkavirkjun og álfabrikku Alcoa. Meira en 200 milljörðum af erlendu fé eða um 2 milljónum á hvert heimili var veitt inn í íslenzkt efnahagslíf og helmingurinn af því með ríkisábyrgð. Þetta reyndist hinum sprenglærðu fjárglæframönnum í höfuðborginni nægur eldsmatur til að kynda undir falsbréfasölunni og gefa út ávísanir á auðlindir Íslands út þessa öld. Síðan fengu þeir í hendur þjóðbankana og sjóði atvinnuveganna til að fullkomna áramótabrennu frjálshyggjukapítalistmans.
   Ég sagði strax að þetta væru hryðjuverk gegn íslenzku samfélagi þar sem öllu er menn hafa verðið að reyna að byggja upp frá upphafi sjálfstæðisbaráttu var kastað í eldinn og Kárhnjúkahryðjuverkin yrðu myllusteinn um hálsinn á komandi kynslóðum. Það var einnig sárt að verða þess áskynja að ekkert nema sulturinn virtist geta kennt þjóðinni að velta af sér þessu oki og komast til raunveruleikans á ný.
   Þeir sem vöruðu við afleiðingum hryðjuverkanna, græðgisvæðingunni, sóun auðlinda og viðskiptahalla voru kallaðir öllum illum nöfnum s.s. óvinir framfara, sérvitringar, talibanar, letingjar og sakaðir um að ætla að færa þjóðina aftur í torfkofana þar sem hún drægi fram lífið á fjallagrösum.
   En hvar stöndum við nú? Ég sagði við upphaf Kárahnjúkahryðjuverkanna að verið  væri að færa íslenzka þjóð 70 ár aftur í tímann. Ég sé ekki betur en það sé að rætast með því að næstu kynslóðir sitja hér uppi með skuldahalann af óráðsíunni um ókomin ár.
   Og hver eru ráðin sem brennuvargarnir gefa, t.d. Jón Hannibalsson og Halldór Ásgrímsson? Takið eftir því góðir tilheyrendur! Það eru sömu úrræði og eftir Sturlungaöldina fyrri, að koma íslenzkri þjóð undir erlent vald og að halda áfram skuldasöfnuninni og auðlindasóuninni. Þeir ætla að koma þjóðinni aftur undir erlent vald sem kostaði okkur fyrr, meira en sex alda áþján, svo þeir sjálfir geti hreiðrað um sig sem embættismenn þess sama valds og haldið þannig áfram að reyra ykkur í fjötra skulda og niðurlægingar.
   Hlustið ekki á þessa menn sem leitt hafa þjóðina í verstu ógöngur af mannavöldum. Vonandi eruð þið að átta ykkur á að það var ekki verið að nýta auðlindir landsins í okkar þágu. Það var verið að sóa auðlindum og spilla landinu í þágu erlendra hergagnaframleiðenda og fámennrar valdastéttar falsbréfasalanna. Það var gert með valdníðslu, lögbrotum, mútum og mannfórnum. Það er ekki auðlindanýting að spilla fallvötnum og fiskimiðum og búa til 60 ferkm. leirflag á best gróna hálendissvæði Íslands með tilheyrandi loftmengun frá lóni og fabrikku. Það er ekki auðlindanýting að gefa hergagnaframleiðendum 20% orkunnar úr borholum háhitasvæðanna meðan mestur hlutinn rýkur út í andrúmsloftið með tilheyrandi loftmengun.
   Nú rísum við upp og segjum hingað og ekki lengra. Það er þegar búið að gefa Gullfoss og Grímsey. Látum ekki þá sem bera ábyrgð á hryðjuverkunum stjórna lengur. Líf okkar í nútíð og framtíð byggir á auðlindum fiskimiðanna og gróðurmoldarinnar ásamt þeirri lífsorku sem við fáum frá fegurð og hrikaleik landsins, ógnum þess og unaðsemdum. Þessum auðlindum verðum við að ráða sjálf ef við viljum skapa okkur vænlega framtíð í þessu landi. Hrindum af okkur oki þeirra manna sem vilja kasta frá okkur auðlindum landsins og sjálfstæði þjóðarinnar. Okkur ber að skila þeim til næstu kynslóðar svo hún geti fætt sig og klætt í þessu landi. Gleymið ekki spilltum verkalýðsleiðtogum sem hafa hrópað hæst á meiri auðlindasóun og lagt blessun sína yfir þrælahaldið og mannfórnirnar við Kárahnjúka í þágu auðvaldsins og heimta nú sem aldrei fyrr afsal sjálfstæðis þjóðarinnar og forræðis yfir auðlindunum.
   Tökum höndum saman, ryðjum burt öskuhrúgunni og bykkjum upp réttlátt þjóðfélag sem byggir á sjálfbærri nýtingu auðlinda, samhjálp og jöfnuði. Látum gullglýjuna aldrei aftur teyma okkur út í foraðið. Látum aldrei af höndum forræði yfir auðlindum landsins. Okkur ber að skila þeim sem minnst spilltum til næstu kynslóða sem vilja búa hér við fæðu klæði og frið.

                                    Íslandi allt!


25. okt. 2008


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Guðmundur er skemmtilega róttækur ,,,og margir góðir punktar hjá honum,,,...

Res (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 17:22

2 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Guðmund næsta laugardag á Austurvöll! Eða Grétu.

María Kristjánsdóttir, 27.10.2008 kl. 18:12

3 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Ég stóð einmitt í hríðarbyl á torginu á Akureyri og hlustaði á hann flytja þessa tölu, var hins vegar mjög ósátt við það hversu fáir komu...veit hreinlega ekki hvað þarf að ganga á til þess að Íslendingar nái að sameinast í allsherjar mótmælum í stað þess að rífast yfir kaffibollum heima hjá sér..

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 27.10.2008 kl. 20:55

4 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Flott ræða!

En til þess að þeir draumar geti ræst sem þar eru settir fram má þjóðin ekki vera svo aum að fara að grenja ef séð er fram á að ekki fái allir jólatré næstu jól !!!

Fólk verður að vera tilbúið að láta eitthvað á móti sér til þess að við höldum sjálfstæðinu. Því miður hefur mér ekki heyrst á fólki undanfarið að það hefði neinn manndóm til þess, heldur er látlaust vælt og skælt yfir skuldabyrðum framtíðar, sem sjá má framá hvaða ráð sem eru viðhöfð.

Þess vegna er maður kominn á þá skoðun að IMF sé óumflýjanlegt úrræði fyrir landann sem alinn er upp í velsæld og myndi tapa glórunni við að missa eitthvað af léttvægum lífsgæðum. Tek það fram að þak yfir höfuðið tel ég ekki til þeirra, en húsnæði með margföldum fermetrum á mann tel ég vera það.

Úpps, mér rann í skap, ekki fara að gráta. 

Það er sárt að horfa upp á land sem hefur allt að bjóða fara eins og nú stefnir allt í.

Hins vegar vil ég að núverandi ríkisstjórn fái vinnufrið fram að næstu kosningum. Ég held satt að segja að enginn núlifandi Íslendingur, ja nema gamla fólkið, kannski, nei ekki einu sinni það, myndi sætta sig við þau lífskjör sem hér yrðu ef við myndum ekki fá aðstoð erlendis frá. Og það lítur út fyrir að hún fáist ekki nema við fáum vottun frá IMF fyrst að það sé vogandi að lána okkur. Svo djúpt erum við sokkin.

Greta Björg Úlfsdóttir, 28.10.2008 kl. 05:47

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Kjarnyrtur að vanda, hann Mási. Allt tóm vitleysa náttúrulega... en kjarnyrtur samt

Gunnar Th. Gunnarsson, 29.10.2008 kl. 01:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 508800

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband