Leita í fréttum mbl.is

Furðulega sett upp frétt

Ég held að ég myndi lítið annað gera en að leiðrétta fréttir ef ég færi að standa í slíku, en mér finnst þessi fyrirsögn ranglát, ég sagði aldrei að fólkið í utanríkismálanefnd væri óttaslegið, heldur sagði ég að undirtónninn í álitinu frá meirihlutanum væri óttaþrunginn, það er ekki alveg það sama:) Ég held að fólkið í utanríkismálanefnd sé ekki endilega óttaslegið, heldur sé fólk bara á öndverðu meiði með hver hin alþjóðlegu viðbrögð verði ef við setjum fyrirvara á samninginn.

Annars þá hef ég um lítið annað hugsað undanfarnar vikur og hef komist að eftirfarandi niðurstöðu:

Það væri lang heiðarlegast að láta Breta og Hollendinga vita að það sé ekki vilji til að skrifa undir ríkisábyrgð án þess að setja fyrirvara við samninginn. Okkur hefur verið sagt að það eitt og sér muni fella samninginn - samningurinn verður felldur á þinginu ef engir fyrirvarar verða gerðir. Því væri best að láta þá vita af þessu og setja nú þegar saman faglega samninganefnd ástamt því að kalla til almannatengslafyrirtæki í Bretlandi og Hollandi og byrja nú þegar að útskýra okkar hlið á málinu. Það er nefnilega alveg furðulegt þegar því er haldið fram að með því að fella samninginn í þeirri ómögulegu mynd sem hann er í dag séum við að segja umheiminum að við ætlum okkur ekki að axla ábyrgð á þessu máli. 


mbl.is Óttaslegin utanríkismálanefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Hansson

Alveg innilega sammála.

Það er slæm pólitík að segja blákalt nei.

Það er enn verra að segja já og amen.

Millileiðin er að samþykkja með fyrirvörum. Vissulega er verið að hafna samningnum með því, en það er þó gert á diplómatískan hátt og af kurteisi. Um leið er lýst vilja til að ræða málið betur og ná ásættanlegri niðurstöðu.  

Ég get ekki séð að það sé ástæða til að óttast harkaleg viðbrögð eða refsiaðgerðir af hálfu vestrænna réttarríkja við þeirri niðurstöðu. Þá er eitthvað mikið að sem falið er fyrir almenningi.

Haraldur Hansson, 22.7.2009 kl. 15:23

2 Smámynd: Ignito

Sæl

Þetta er rétt hjá þér varðandi fyrirsögnina og fær mann til að hugsa hvað liggi að baki.  Er hugsunin að setja þetta upp í æsifréttastíl til að auka viðbrögð eða hluti af einhverju pólitísku plotti ?

Ég vill einnig koma því að sem kjósandi þíns flokks að þú hefur staðið þig vel, enda var það ávallt von mín að þeir sem kæmu inná þing fyrir flokkinn ynnu þar með heiðarleika og hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi.   Að mínu mati hefur þú unnið þannig frá upphafi þingferils þíns.

Ég er sammála Haraldi og þá sérstaklega í lokahluta athugasemndarinnar.

Ég skil ekki það sem virðist hanga yfir þessari umræðu allri innan þingsala og utan, en það er þessi gífurlegi hræðsluáróður sem ósýnd gögn eiga að styðja, en kemur samt ekki upp á yfirborðið.  Sem dæmi þetta tal um 'Kúbu norðursins'.

Hefur þingmönnum verið sýnd einhverskonar gögn sem hugsanlega gera það að verkum að íslendingar mega óttast það, verði þessi samningur felldur, þá verði landið fyrir útskúfun hjá vestrænum þjóðum? Eða kemur þetta eingöngu frá þeim sem séð hafa gögnin og tala í kringum málið með hótunum samkvæmt eigin mati af þeim gögnum?

Ef tengt er seinni spurningunni þá dreg ég þá ályktun að þar sé í gangi forræðishyggja yfir þingmönnum og þá í leiðinni lýðskrum.

Mjög einkennilegt að samningur milli aðila beri með sér að upplýsingum sé haldið frá þeim sem skuli samþykkja samninginn. 

Tæplega myndi nokkur skrifa undir sem ábyrgðarmaður að láni þar sem ýmiss skilyrði fyrir láninu kæmu ekki fram.

Ignito, 22.7.2009 kl. 15:56

3 identicon

Nú er ég sammála þér. En hins vega mjög ósáttur við vinnubrögð Borgarahreyfingarinnar í ESB málin, ESB er allt of stórt mál til þess að hægt sé að víla og díla með það. ESB er mesta kjarabót sem íslendingum mun nokkurntíman bjóðast. Þarna yrði tækifæri fyrir ungt fólk til að koma þaki yfir höfuðið gert miklu auðveldara. Vissir þú að vextir á íslandi munu lækka um 228 miljarða á ári, já á hverju

ári? Það slagar hátt í Icsave, eða það sem talið er að við þurfum að borga. Vissir þú að það er, miðað við 5% vexti og 5% verðbólgu þá er 40 faldur munur á vaxtagreiðslu íbúðalána hér og í Þýskalandi? 20 miljón króna lán verður 24 eftir 40 ár á meðan sama upphæð slagar í 300 miljónir hjá okkur hérna á íslandi. Á ungt fólk ekki skilið að standa jafnfætis öðru ungu fólki í nágrannaríkjum okkar?

Þegar upp er staðið þá fjallar þetta bara um skiptingu kökunnar. Þessir 228 miljarðar fara núna til einhverra annarra en almennings. Ef þessi lækkun yrði þá þýddi það fjármagnsfærslu sömu upphæðar til almennings. Venjulegur launamaður þyrfti ekki að leggja eins mikla vinnu á sig til að láta enda ná saman. Sá hinn sami gæti eytt meiri tíma með bönunum sínum og fjölskyldu, nú eða veitt fjölskyldunni betri lífsskilyrði. Eg held að margir hverjir sem eru á móti,  séu það eingöngu vegna þess að einhverjir stjórnmálamenn hafi gefið það út að þeir væru á móti. Ef fólkið í landinu fengi upplýsingar um það hversu mikil kjarabót þetta væri, þá myndi það kannski taka afstöðu til málsins út frá sjálfu sér en ekki út frá einhverjum sérhagsmunasamtökum.

Valsól (IP-tala skráð) 22.7.2009 kl. 17:10

4 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Get vel tekið undir þetta, Birgitta. Skynsamleg og eðlileg framvinda og tillaga.

Helgi Jóhann Hauksson, 22.7.2009 kl. 21:29

5 Smámynd: Páll Blöndal

Ofdekraðir ESB andstæðingar á moggablogginu
http://pallblondal.blog.is/blog/pallblondal/entry/918743/

Páll Blöndal, 23.7.2009 kl. 01:09

6 Smámynd: Lýður Árnason

Sæl, Birgitta.   Skiptir engu óttaslegið, þrungið eða sprungið, aðalatriðið er að þú ert sönn á þingi og berð augljólega hag þjóðarinnar fyrir brjósti.  Tel Borgarahreyfinguna (3/4) hafa breytt rétt í ESB-atkvæðagreiðslunni miðað við aðstæður og varðandi ísbjörgu þurfum við íslendingar ekki að vera hrædd við neitt nema okkur sjálf.  Haltu þínu striki og óska þér velfarnaðar í því sem liggur fyrir.

Kveðja, LÁ

Lýður Árnason, 23.7.2009 kl. 01:50

7 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Gangi þér innilega vel Birgitta mín!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 23.7.2009 kl. 01:51

8 identicon

Það er ástæðulaust að taka hræðsluáróðurinn alvarlega. Ástandið verður heldur ekki mikið verra en það sem upp mun koma í kjölfar þessa samnings. Ég hugsa að innlegg Jóns Daníelssonar, hagfræðings í London, sé gagnlegt í þessu sambandi og að réttast sé að setjast aftur að samningaborðinu og þá með aðkomu Evrópusambandsins sjálfs (sbr. athugasemdir Elvíru Mendes). Evróputilskipunin virðist hafa verið það gölluð og ónákvæm að það er ennþá spurning í mínum huga hversu mikla lagalega ábyrgð við Íslendingar berum á þessu (sbr. minnisblaðið sem kynnt var til sögunnar í gær og einungis virðist gera ráð fyrir ábyrgð innistæðutryggingasjóðsins - sjá einnig athugasemdir Stefáns Más, lagaprófessors, við þetta allt saman). Eðlilegast hefði verið að Evrópusambandið sjálft hefði haft eftirlit með bankastarfsemi eins ríkis í öðru eða þá að eftirlitsaðilar beggja ríkja hefðu haft eftirlitsskyldu. M.ö.o. þá bera hér líka ábyrgð þeir sem komu kerfinu á, en það var auðvitað Evrópusambandið í allri sinni dýrð. Það er hins vegar engin spurning í mínum huga, að það voru okkar menn - stjórnmálamenn og stofnanir eins og FME og Seðlabankinn - sem klúðruðu þessu ásamt vitleysingunum í Landsbankanum. Athafnir þessara manna sem og aðgerðaleysi gæti sem hægast flokkast sem landráð af gáleysi. Íslensk þjóð á hins vegar ekki ein að bera ábyrgð á klúðrinu en um það mál þarf hins vegar að komast að samkomulagi með sanngirnissjónarmið að leiðarljósi. Miðað við þetta ófullkomna lagaumhverfi sem þessi bankamál bjuggu við þá er engin sanngirni í því að það séu einungis við sem berum hallann af þessu öllu saman og sérhver kristin þjóð við samningaborð ætti að geta viðurkennt það. Í huga kristins manns er réttlæti án miskunnsemi ekkert réttlæti og þessi Icesave samningur er miskunnarlaus.

Grútur (IP-tala skráð) 23.7.2009 kl. 06:55

10 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Kæra Birgitta, hafðu enga áhyggjur af "föslkum, röngum & villandi fréttaflutningi miðla SAMSPILLARINNAR og svo dansa RÍKISFJÖLMIÐLAR ávalt með sitjandi valdhöfum...!  Spunnameistarar XS eru komnir á fullt að undirbúa að "fjöldi þingmanna XS séu að krefjast fyrirvara á samning VG sem Svavar stóð fyrir" - taktu eftir að XS kom auðvitað hvergi nálægt þessum IceSLAVE samningi...!  XS kom heldur ekki nálægt hruninu í fyrra, það var allt RÁNFUGLINUM að kenna, ekki XS - það vil nefnilega svo skemmtilega til að ekkert er XS að kenna - ótrúlega fyndinn flokkur - já stórhættulegur flokkur "land & þjóð."

kv. Heilbrigð skynsemi

Jakob Þór Haraldsson, 24.7.2009 kl. 21:15

11 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Ég held, að samþykki með skilyrðum, sé ekki nægilega sterk aðgerð.

Önnur, er að hafna núverandi samningi, hreint og beint, sem þá er ekki hægt að misskilja, eða rangtúlka.

En, á sama tíma lísa því yfir, þ.e. Alþingi, að þ. sé í prinsippinu sammþykkt ábirgðinni, sem slíkri - og muni ekki hafna að undirgangast slíka ábyrgð, ef ásættanlegir samningar um slíka ábyrgð nást. Óskað, sé eftir nýjum samningum.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 31.7.2009 kl. 15:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband