Leita í fréttum mbl.is

Að búa til kraftaverk

Segja má að fyrir hvern og einn sem fær gervifót í þessari mögnuðu aðgerð sé verið að búa til kraftaverk í lífi þeirra. Þetta er með sanni frábært framtak og gaf mér gleðisting í hjartað.

Ég hef alltaf verið heilluð af sjálfboðaliðastarfi og nú þegar þrengir að hjá okkur er kærkomið tækifæri fyrir þjóðina mína að gera meira af slíku. Ég held að miðað við þann mikla niðurskurð sem framundan er að skólar, sjúkrahús, elliheimili þyrftu á aðstoð sjálfboðaliða að halda. Það á að fækka skólaliðum sem fylgjast til dæmis með börnunum þegar þau eru úti í frímínútum. Allir sem þekkja til eineltis vita að frímínúturnar eru martröð fyrir krakka sem eru lagðir í einelti ef enginn fullorðinn er til staðar.

Það er lítil hefð fyrir sjálfboðaliðavinnu hérlendis, en víða um heim eru sjálfboðaliðavinna grunnur að  samfélagsgerðinni, þar þykir það til dæmis sjálfsagt að foreldrar séu vikir í að hjálpa til í skólum barna sinna. Þar fer fólk inná sjúkrahús og elliheimili og veitir fólki félagskap með spjalli og upplestri. Sjálfboðaliðastarf þarf ekkert að vera flókið - það getur einmitt snúist um jafn einfaldan hlut og að sýna hlýju og alúð.


mbl.is Kraftaverk á Gaza
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ágætur punktur hjá þér. En kannski ekki rétt að lítil hefð sé fyrir sjálfboðavinnu hér á landi. Minni á björgunarsveitirnar, Hringskonur, Mæðrastyrksnefnd o.fl. Net íslenskra björgunar- og hjálparsveita er líklega einstakt í heiminum. Þannig mætti nefna fleiri dæmi um að sjálboðaliðar hafi verið virkir þátttakendur í samfélaginu.

Ég er ekki viss um að almenn ánægja ríki um að foreldrar taki störf af skólaliðum og öðru fólki sem hefur unnið á lægstu launum í áraraðir.

Nýlegt dæmi um sjálfboðaliða er Jónas Jónasson útvarpsmaður, sem vinnur kauplaust að þætti á RÚV. Mér finnst það ekki fyndið. 

Engu að síður er þetta góður punktur hjá þér.

Kristján (IP-tala skráð) 24.5.2009 kl. 10:12

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Það er búið að reka skólaliðina og því nauðsynlegt að einhver sinni þessu. Ég er mjög óánægð með þann niðurskurð sem grunnskólarnir þurfa að taka á sig - norræna velferðarstjórnin var búin að lofa því að skera ekki niður í menntakerfinu en það verður ekki svo. Búið er að reka flest alla  lausráðna starfsmenn grunnskólanna í Reykjavík.

Varðandi björgunarsveitirnar þá er það að sjálfsögðu frábært starf sem þær vinna - en það eru nú samt sambærilegar sveitir sjálfboðaliða um víðan heim sem vinna til dæmis sem sjálfboðaliðar sem vara-slökkviliðsmenn ef skógareldar breiðast út.

Miðað við þau lönd sem ég hef búið í erum við aftarlega á merinni varðandi sjálfboðaliðastörf.Það er fjarri lagi að ég sé að gera lítið úr þeim sem nú þegar vinna sjálfboðaliðastörf. Ég sagði ekki að það væri engin hefð heldur lítil hefð.

Birgitta Jónsdóttir, 24.5.2009 kl. 10:35

3 Smámynd: Stefán Bogi Sveinsson

Ég er ekki sammála þér um að það sé lítil hefð fyrir sjálfboðaliðastörfum hérlendis. Það er hins vegar kannski einhver munur á birtingarmyndinni. Það er vissulega ekki algengt að menn vinni sjálfboðaliðastörf í ummönnun hér á landi. En hér heima eru það björgunarsveitirnar eins og áður er minnst á og svo íþrótta- og ungmennafélagshreyfingin, KFUM&K og fleiri samtök. Ég hef reyndar tekið eftir því að sjálfboðaliðastarfið stendur sterkari fótum úti á landi en á höfuðborgarsvæðinu, hver svo sem ástæðan er fyrir því.

Stefán Bogi Sveinsson, 24.5.2009 kl. 11:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 508729

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30