Leita í fréttum mbl.is

Bónus EKKI lagt í einelti

Bónus er ekki lagt í einelti. Þeir sem eiga fyrirtækið, hafa verið með siðlausa viðskiptahætti um langt árabil og lagt margan kaupmanninn í einelti með því að beita þá afarkostum og reynt að setja marga þeirra í þrot.

Fólk ætti að hafa það hugfast að Bónus er í þeirri stöðu að eiga líka heildsölurnar sem nú kallast birgjar. Ekki halda að við höfum ekki borgað fyrir peningagjafir Bónus með aukakrónum á helstu nauðsynjar. Bónus er ekki og hefur aldrei verið góðgerðastofnun. Engin stórfyrirtæki eru þannig uppbyggð. Peningastyrkir til vinsælla stofnana er yfirleitt vandlega úthugsað af markaðsdeild þeirra um hvernig þeir geti keypt sér góðvild í samfélaginu sem þeir eru á sama tíma tilberar á.

En hér er Íslenska spilaborgin: ótrúleg ormagryfja

 


mbl.is „Dapurleg jólagjöf“
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Nákvæmlega Birgitta mín. 

Sigrún Jónsdóttir, 20.12.2008 kl. 11:41

2 Smámynd: Vilhelmina af Ugglas

Eins og mælt úr mínum munni!

Vilhelmina af Ugglas, 20.12.2008 kl. 12:13

3 Smámynd: Ástþór Magnússon Wium

Mér finnst hugmyndin að mótmælunum "Sveltum svínið" nokkuð áhugaverð. Er ekki tilvalið tækifæri í leiðinni að fjarlægja DV Baugsmiðilinn, eineltistækið þeirra, úr hillunum og henda í ruslið? Þar er sorpið úr ritstjórunum sem neita að segja okkur hver hótaði blaðinu best geymt. Ég hef að undanförnu skrifað töluvert um spillingu og einelti DV Baugsmiðilsins á http://lydveldi.is. Ég vorkenni forkólfunum ekkert að smakka á eigin meðölum.

Ástþór Magnússon Wium, 20.12.2008 kl. 12:52

4 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Alveg sammála þér í þessari færslu, Bónus er engin góðgerðarstofnun þó eigendur hafi mikið reynt að ganga í augun á fólki. Ég hef forðast Bónusverslanir enda engin nálægt mér. 1 + hafa lagt lítið á íslenskar landbúnaðarafurðir.

Ragnar Gunnlaugsson, 20.12.2008 kl. 16:15

5 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Já þær eru ekki fallegar sögurnar af framferði stóra bróður í garð litlu kaupmannana sem hafa verið að týna tölunni einn á fætur öðrum, sveltir út að hinum "frjálsa" markaði með aflsmunum, tuddaskap og bolabrögðum.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 20.12.2008 kl. 17:19

6 identicon

Einsog mælt úr mínum munni !

Skora á alla að refsa þeim með því að sniðganga ÖLL þau fyrirtæki sem þeir reka !

Skítt með hvort bónus er aðeins ódýrari, því það er gert með svindli !

pffffff...........

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 20.12.2008 kl. 18:09

7 Smámynd: Einar Þór Strand

Reyndar er eitt sem ég skil ekki og það er hvers vegna Kaupás er ekki sektaður líka því það voru þeir sem fóru með mjólkina niður fyrir innkaupsverð á undan.

Einar Þór Strand, 20.12.2008 kl. 21:06

8 Smámynd: Brattur

... Einar Þór... Kaupás er ekki sektað  þar sem þeir eru ekki "markaðsráðandi"...  þar liggur hundurinn grafinn...

Tímasetningin á gjöfum til góðra málefna hefur heldur aldrei verið tilviljun... Bónus hefur alltaf gefið þegar beina þarf athyglinni frá óþægilegum málum sem snerta þá og eru í fréttum eða í umræðunni þá stundina...

Brattur, 20.12.2008 kl. 22:55

9 Smámynd: Einar Þór Strand

En það var engin þörf á neinu þegar kaupmanninum á horninu var útrýmt af forverum Haga og Kaupáss með undirboðum og fantaskap, þetta svo kallaðan samkeppnis eftirlit er hanónýtt

Einar Þór Strand, 20.12.2008 kl. 23:31

10 identicon

Smá svona einföld aðferðafræði. Ég hef verslað við Bónus í áratugi. Hef aldrei haft hærri laun en í biðröðinni þar bíðandi eftir því að borga. Seinni tíma upplýsingar breyta ekki þeim staðreyndum. Bíð spennt eftir nýrri tilboðum. En þakka það sem ég hef notið..Mig raunar hryllir við þessum ofsóknum.

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 21.12.2008 kl. 00:05

11 identicon

Sammála Hallgerði.

Huldís (IP-tala skráð) 21.12.2008 kl. 01:37

12 Smámynd: Heidi Strand

Það er svipað verð bónus og í Krónunni og í Nettó. Grænmeti úr Bónus verður svo fljótt ónýtt og það er ekki ódýrt ef það fer bara í ruslið.
Ég hef verslað í Bónus frá upphafi, en er núna hætt. Það er nú meira sem við höfum sparað þegar við fáum bakreikninganna núna. Þeir eru tilkomnir meðal annars vegna mönnum eins og J.Á.J.

Heidi Strand, 21.12.2008 kl. 23:45

13 identicon

Þegar Bónus er nefnt á nafn er orðið spilling sjaldnast langt undan. Hér er áhugaverð grein um spillingu.

http://www.coe.int/t/dg1/greco/evaluations/round3/GrecoEval3(2007)7_Iceland_One_EN.pdf

Jón Sigurðsson (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 10:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 508744

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband