Leita í fréttum mbl.is

Hvað er borgaraleg óhlýðni?

Fékk þessa greinagóðu lýsingu á borgaralegri óhlýðni í pósthólfið mitt og langaði að deila þessu með ykkur. Það er algengt að fólk skilji ekki alveg út á hvað borgaraleg óhlýðni gangi. Ég var svo heppin að hafa haft tækifæri til að fara á námskeið fyrir nokkrum árum í borgaralegri óhlýðni. Sömu grunnreglurnar liggja alltaf að baki og fannst mér rétt að birta þessar leiðbeiningar hér, svo fólk gæti hætt að tengja saman ofbeldi við slíkar aðgerðir. Auðvitað vona ég að það verði miklu meira um slíka óhlýðni hérlendis - þó svo árangur náist ekki alltaf strax - þá sannar sagan að þessar aðferðir virka.

"Að brjóta lög viljandi í þeim tilgangi að draga athygli að eða réttlæta sýnilegt óréttlæti í lögum eða pólitískum framgangi ríkisins.

Opinber ólögleg hegðun sem er hönnuð til þess að höfða til réttlætiskenndar meirihlutans til þess að breyta lögum án þess að vanvirða reglu við lög þ.e. óofbeldisfullar aðgerðir svo og vilji til að sæta lagalegri refsingu eru oft meðhöndlaðar sem skilgreining á borgaralegri óhlýðni.

Hvenær er lögbrot borgaraleg óhlýðni?

* Hún er ávallt laus við beint ofbeldi og fer fram opinberlega en ekki í skjóli nætur.
* Hún snýst um að brjóta lög til að bæta lög.
* Hún hefur það að markmiði að bæta samfélagið.
* Hún krefst undirgefni við lögin, þ.e. að sæta refsingu án andmæla fyrir brot sitt.

Hvenær réttmæt?


* Ef athöfnin er án ofbeldis.
* Mótmælendurnir sætta sig við refsingu.
* Góðar líkur (reasonable prospect) á að athöfnin verði til að leiðrétta óréttlætið.
* Mótmælendur hafa fyrst reynt að fara löglegar leiðir...
* Óréttlætið er meiriháttar.
* Mótmælendur viðurkenna að aðrir samfélagsþegnar kunna að vera í sömu stöðu og þeir."
mbl.is Röng forgangsröðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Fínt!

Fólki veitir ekkert af að fá útlistun á þessu! Umræðan er orðin verulega skökk þegar talað eru að eggjakast sé ofbeldi... Hvernig í ósköpunum verður hægt að kalla barsmíðar ofbeldi þannig að það hafi einhverja merkingu eftir að búið er að eyðileggja orðið með eggjakasti og rúðubroti! 

Heiða B. Heiðars, 20.12.2008 kl. 10:43

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Nákvæmlega: að kasta eggi er ekki ofbeldi, að standa inn í Glitni og lesa auglýsingapésa er ekki ofbeldi, að fara inn í Bónus eða Hagkaup og skoða vörur en kaupa þær ekki er EKKI ofbeldi. Ég er ekki fylgjandi rúðubrotum, enda auðvelt að skaðast af slíku. En ég er ekki heldur fylgjandi sifjaspellum hagsmuna á milli þingsins og viðskiptalífsins.

Vildi bara óska að fólk hætti að eyða orku í tittlingaskít og færi að einbeita sér að því sem skiptir máli. Bandormshreinsun í viðskiptum og æðstu stofnana:)

Birgitta Jónsdóttir, 20.12.2008 kl. 10:52

3 Smámynd: Sigga Hjólína

Algjörlega sammála. Bandormshreinsn í viðskiptum og æðstu stofnana!

Sigga Hjólína, 20.12.2008 kl. 11:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 508711

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband