Leita í fréttum mbl.is

Ættartré ríkisvalds og bankabákns

Kæri bloggheimur

Í bígerð er að útbúa ættartré nokkuð - þar sem tengsl ríkisvaldsins eru rakin á myndrænan hátt við einkavinavæðinguna. Óska eftir upplýsingum um slík tengsl - fyrsta tréð mun fyrst og fremst fjalla um banka- og ráðherratengsl. En allar upplýsingar eru vel þegnar um tengsl almennt frá ríkisvaldi inn í einkageira. Hægt að senda mér þessar upplýsingar á netfangið: fjallkonan@riseup.net

Hef verið þögul á blogginu undanfarið - en hef verið að sinna mínum borgaralegu skyldum á annan hátt. Finnst fátt eins mikilvægt núna og að miðla réttum upplýsingum til almennings -mér til mikillar ánægju hefur netið sannað ágæti sitt - en þar fær maður þær upplýsingar sem maður þarf en ekki í íslenskum fjölmiðlum. Margir bloggarar hafa verið ötulir við að miðla réttum upplýsingum og það eina sem vantar upp á vegna þess að magnið af upplýsingum er svo mikið er staður sem helstu punktar eru teknir saman. Verið er að þróa slíka upplýsingagátt og mun ég láta ykkur vita þegar hún kemst í loftið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Þú ert dugleg kona Birgitta, takk fyrir það.

Viss um að baráttukonan hún mamma þín brosir úr sínum stað.......

Soffía Valdimarsdóttir, 11.11.2008 kl. 08:59

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

takk Soffía mín:)

ég veit það eitt að ef ég geri ekki allt sem í mínu valdi stendur til að breyta þessu ástandi spillingar og örvinglunar að ég myndi springa úr harmi

Birgitta Jónsdóttir, 11.11.2008 kl. 09:09

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Frábært framtak!

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 11.11.2008 kl. 10:09

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Það mætti gera samsvarandi fyrir stjórnsýslu og sjórnmálamenn. Skoða hvaða embætti börn sjórnmálamanna hafa fengið. Svo má líka skoða hvaða embætti börn embættismanna hafa fengið.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 11.11.2008 kl. 10:12

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Þetta er fólkið sem fær laun skv kjararáði og eru mun hærri en annarra opinberra starfsmanna.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 11.11.2008 kl. 10:13

6 Smámynd: Hafdís Lilja Pétursdóttir

Gott framtak. Gangi þér allt að sólu.

Hafdís Lilja Pétursdóttir, 11.11.2008 kl. 10:51

7 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

það er aldrei að vita Jakobína nema að við tökum það næst - af spillingunni er nóg af taka... því miður

takk Hafdís fyrir fallegt innlegg - hef ekki heyrt þetta orðatiltæki áður en finnst það fallegt:)

Birgitta Jónsdóttir, 11.11.2008 kl. 11:46

8 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Hefurður talað við Odd ættfræðing, Birgitta?

Greta Björg Úlfsdóttir, 11.11.2008 kl. 12:03

9 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

hlakka til að skoða þetta. Það kemur margt til með að skýrast.

Ævar Rafn Kjartansson, 11.11.2008 kl. 12:30

10 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Greta Björg Úlfsdóttir, 11.11.2008 kl. 12:37

11 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Flott framtak Svona framtakssemi virkar sem gleðiveita fyrir mína hrelldu sál. Gangi þér vel að safna upplýsingunum og koma þeim saman.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 12.11.2008 kl. 01:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband