Leita í fréttum mbl.is

Hvað með alla hina?

Það sem bent er á í bréfinu sem Bjarni skrifaði þó ekki, er það sem fjölmiðlar ættu að einbeita sér að. Að sjálfsögðu er það fréttnæmt að Bjarni segi af sér, enda eitthvað sem margir munu virða við hann um langa hríð. Þetta eru stórfréttir í íslenskri pólitík. Hér sitja menn og konur sem fastast burtséð hve stór brot þeirra eru.

Margir hafa talað um landráð forsætisráðherra, en hann brosir bara og heldur fyrir eyrun og segist ekki ætla að hlusta á okkur sem hann vinnur fyrir. Hér verður ekki kosið. Þó er það augljóst að við erum búin að segja honum upp fyrir löngu, því að landið mun ekki fá neina aðstoð að utan nema við losum okkur við toppana. Hver vill lána brennuvörgum?

Svo veruleikafirrt er þetta sjónspil að dregnar eru upp eldgamlar skoðanakannanir sem eiga að segja okkur að hann njóti 50 og eitthvað % fylgis. 

Ég hef vitað lengi hve undarlegar áherslur eru hér í fjölmiðlaumfjöllun og aðeins við ritstjóra að sakast. Af hverju skrifuðu þeir ekki í fyrirsagnir: "Úreltar skoðanakannanir sýna stuðning við Geir" í stað "Ríflega helmingur ánægður með Geir"? 

 

post-1036-1147901033.jpg

 


mbl.is Bjarni segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Bjarni hefur sett fordæmi.  Hann er maður að meiri.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.11.2008 kl. 12:55

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Afsögn Bjarna er gott fordæmi

Hólmdís Hjartardóttir, 11.11.2008 kl. 13:00

3 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ágætt hjá Bjarna.

Samt - menn segja bara af sér ef "sést til þeirra" - pæliðíðí.

Greta Björg Úlfsdóttir, 11.11.2008 kl. 13:00

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já það má skoða marga og ganga framsóknarmenn þar framarlega (aðrir en Bjarni sem hefur lítið gert af sér)

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 11.11.2008 kl. 13:11

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég vona líka að "bréfið" verði ekki útundan vegna þeirrar stórfréttar að þingmaður axli ábyrgð.  Bjarni sýnir fáheyrt fordæmi og er maður að meiru.

Sigrún Jónsdóttir, 11.11.2008 kl. 17:39

6 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Sigrún, mér finnst ekkert sérlega frábært að hafa verið að plotta þetta, yfirhöfuð, hann var bara svo "óheppinn" að plottið lak þangað sem síst skyldi. Það var bara sjálfsagt að hann segði af sér, annað ekki. Sorglega fáir sem þekkja sinn vitjunartíma, svo að sjá að hann sé einn þeirra. Jú, á meðal vesalmenna má segja að hann hafi hafið sig aðeins upp fyrir hina, svona sirka á level við heiðarlegt fólk, ekki spönn lengra.

Greta Björg Úlfsdóttir, 11.11.2008 kl. 23:05

7 Smámynd: Valgeir Bjarnason

Bjarni sagði af sér vegna eigin mistaka. Hann á virðingu skilið fyrir það. Það er aftur á móti athyglisvert að hann varð uppvís að svikum við eigin flokksmenn, en ekki þjóðina. Það virðist vega þungt.

Valgeir Bjarnason, 12.11.2008 kl. 11:45

8 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ég er sammála því, Valgeir, að það er athyglisvert að slík lítilvægari svik skuli við eigin flokksmann skuli vega þyngra en stórvægileg svik við alla þjóðina. Þetta fer líklega eftir því hversu þungur botninn er sem vermir stólinn og veikburða fæturnir sem undir honum standa.

Greta Björg Úlfsdóttir, 12.11.2008 kl. 12:04

9 Smámynd: Heidi Strand

Myndin af kerlingunni með hjálminn vekur upp í mér slæmar minningar.
Í garðræktinni væri þetta illgresi.

Heidi Strand, 16.11.2008 kl. 22:58

10 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Karlinn við hliðina á henni er líka óttalegur njóli.

Greta Björg Úlfsdóttir, 16.11.2008 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 508653

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.