Leita í fréttum mbl.is

Hver segir að þrýstingur skipti ekki máli

Ríki heims hafa þrýst all rækilega á kínversk yfirvöld að efna loforð sín um aðgang fjölmiðla að landinu sem og aðgang almennings að fjölmiðlum, sem voru forsenda þess að Ólympíuleikarnar verða haldnir í Kína. Það er aðeins út af þessum þrýsting sem þetta er að gerast og hið besta mál. En gleymum ekki mannréttindabrotunum sem eru í gangi þarna. Í gær maður hnepptur í 5 ára fangelsi fyrir það eitt að safna undirskriftum fyrir bættum mannréttindum í Kína... Skora á íslenska ráðamenn að gera eitthvað til að auka á þrýsting gagnvart hinni miskunnarlausu stefnu kínverskra ráðamanna varðandi mannréttindi og annan munað eins og til dæmis tjáningarfrelsi.



mbl.is Opnað fyrir vefsíðu BBC í Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tek hér með undir áskorun þína til stjórnvalda.  Þessi frétt sýnir að það er veikur blettur hjá ráðamönnum í Kína, og þjóðir heims eiga að nýta sér hana til að koma á einhverskonar lýðræði í Kína og frelsi handa Tíbet.  Ef þau gera það ekki, þá er píp þeirra um nauðsyn innrásarinnar í Írak nákvæmlega það PÍP orðskrum, fals, lygi, viðbjóður afsakið meðan ég æli

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.3.2008 kl. 11:13

2 Smámynd: Pálmi Gunnarsson

það er harðstjóra siður að loka á fréttir - afbaka staðreyndir, ljúga, myrða, og brjóta almennt á rétti fólks sem ekki tikka á sömu nótum og viðkomandi. Því miður ætlar það að verða okkar ólán að hengja okkur við ríki eins og Kína þar sem öll mannréttindi sem fyrirfinnast í bókinni eru brotin. Við viljum fá að vera með stóru strákunum hvort það er nú Kína, USA eða Rússland og horfum þess vegna til fjalls þegar kemur að mannréttindabrotum og mannfórnum. Lítum á það sem ásættanlegan fórnarkostnað fyrir viðskiptasambönd og fleira upphefjandi. Fyrir það má þjóðin skammast sín.

Pálmi Gunnarsson, 25.3.2008 kl. 11:57

3 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Hversvegna standa íþróttamenn alveg stikk frí fyrir utan þetta mál. Hugnast þeim svona vel að þvo af sér svitann í vatni sem tekið hefur verið af fátækum bændum. - Er Gorge Lucas eini maðurinn sem þorir að ganga út úr þessu svínaríi Peking?

Svanur Gísli Þorkelsson, 25.3.2008 kl. 12:21

4 identicon

Sæl Birgitta!

Sammála er ég því að þrýstingur skiptir miklu máli og hefur verið erfitt fyrir þjóðir að komast í aðstöðu sem krefur Kínverja til að bregðast við.  Ólympíuleikarnir eru fyrsta raunverulega vogaraflið sem náðst hefur á Kína, í það minnsta í mjög langan tíma.

Ég sé ekki alveg hvað lýðræði, eða skortur á því, í Kína hefur með mannréttindabrot að gera eða úrbætur þar að lútandi, eins og Ásthildur er að tala um.  Mannréttindabrot eru líka framin í lýðræðislöndum og ekki sjálfgefið að framin séu mannréttindabrot í kommúnista- og einræðisríkjum, þó sagan sýni að það er líklegt.

Svanur!  Var það ekki Steven Spielberg sem var listrænn ráðgjafi ólympíuleikanna í Kína?

Bjartur (IP-tala skráð) 25.3.2008 kl. 13:01

5 identicon

Peningar/vald eru plástur á mannréttindabrot í augum margra

DoctorE (IP-tala skráð) 25.3.2008 kl. 13:32

6 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Ju mikid rett, Bjartur, Takk

Svanur Gísli Þorkelsson, 25.3.2008 kl. 13:51

7 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Tek líka undir þessa áskorun...

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 25.3.2008 kl. 14:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 508800

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.