Leita í fréttum mbl.is

Myndband frá mótmælunum á laugardaginn

Skellti saman smá myndbandi sem ég skaut á myndavélina mína góðu á laugardaginn var og fékk svo lánað lag frá vini mínum Jón Tryggva en hann samdi stórgott lag og texta út frá því sem hann hefur verið að upplifa í tengslum við Tíbet undanfarið. Það var svo hrikalega kalt á laugardaginn og gleymdi að taka vettlinga, þannig að ég var ekkert að skjóta neitt mikið ... enda fullt af fólki að taka upp efni:)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

myndband af andkínverskum áróðri ;) http://www.youtube.com/watch?v=uSQnK5FcKas

Tíbet er hluti af Kína ;) http://www.youtube.com/watch?v=x9QNKB34cJo

Ari (IP-tala skráð) 25.3.2008 kl. 02:01

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

manni verður nú bara ómótt við að lesa athugasemdirnar frá blessuðum kínverjunum. Hef reyndar fengið einn slíkan yfir mig á facebook, en ég setti myndband af mánudagsmótmælunum þar. Sá maður er búinn að senda viðstöðulaust komment með tenglum í svona myndbönd og sama hve oft ég bið hann um að virða það að hann sé ekki velkominn, þá heldur hann alltaf áfram að pósta og segja miður fallega hluti um Tíbeta ... en þetta er góð æfing í æðruleysi og sýnir í mýflugumynd hve kínverjar eiga bágt með að virða landamæri, huglæg eða efnislæg:)

p.s. ég er ekki að segja að allir kínverjar séu svona....

Birgitta Jónsdóttir, 25.3.2008 kl. 08:32

3 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Frábært lag og passar vel við myndskeiðið. Gott væri ef gagnkvæm virðing væri alls staðar við lýði. Þá væri nú heimurinn betri staður til að búa í

Laufey Ólafsdóttir, 25.3.2008 kl. 15:51

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Allar byltingar byrja í manns eigin hjarta, þær felast í alúðlegum litlum hlutum sem hafa áhrif á þá sem verða á vegi manns á lífsleiðinni. Við getum haft óendanlega mikil áhrif á heiminn í kringum okkur. Það vita allir hvað eitt bros getur gert, ef við öll gerum eitthvað, ef við öll öxlum ábyrgð á að ljá þeim sem kúgaðir eru rödd okkar eða tökum til í eigin ranni ef það er það sem fær mann til að fyllast eldmóð til aðgerða. Þá er sanni verður heimurinn okkar allt annar og sem betur fer er til þannig fólk út um allt og þú ert ein þeirra Laufey mín.

Birgitta Jónsdóttir, 25.3.2008 kl. 16:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 508757

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband