14.5.2009 | 06:55
Furðulegur fundur
Ég sat á þessum fundi og vil upplýsa að plaggið er þrungið leynd vegna þess að það átti eftir að laga orðalag í því áður en það yrði sent á fjölmiðla. Annars var þessi fundur frekar furðulegur og fór stór hluti hans í orðræðu Sigurmundar Davíðs um Framsóknarherbergið. Finnst reyndar alveg furðulegt að einhver þingflokkur geti átt herbergi í þinghúsinu. Auðvitað eiga þingflokksherbergi að vera notuð útfrá stærð þingflokka ekki útfrá ímynduðu eignarhaldi á einhverju sem með sanni tilheyrir þeim sem þjóðin kýs inn á þing hverju sinni. Það er auðvitað alltaf breytilegt og ófyrirséð.
Eðlilegast væri að láta starfsfólk þingsins um að útdeila þessum herbergjum eftir stærð flokka, ekki útfrá tilfinningasemi. Sem þau reyndu í þessu tilfelli og hafa fengið bágt fyrir. Víðsvegar um heim er þingflokkaherbergjum útdeilt eftir stærð flokka en hér hefur það verið þannig að tveir flokkar hafa hér öllu ráðið og útdeilt ekki bara til sín öllu því besta er tengist störfum þingsins heldur líka í samfélaginu.
Það er að breytast núna enda kominn tími til. Þinghópur Borgarahreyfingarinnar mun fá aðstöðu í vesturvæng Arnarhreiðursins og deila með XD ritara og kaffiaðstöðu sem og fundarherbergi. Þetta mun vera besta húsið til að vera með skrifstofur þingmanna, því nefndarsviðið er í sama húsi. Það kom mér svo sem ekkert á óvart þegar það kom í ljós að þeir hefðu úthlutað sér bestu aðstöðunni.
Annars þá má ég til með að gagnrýna þessa leynd sem hvílir yfir blessaðri ríkisstjórninni og vona að þar verði gerð bót á sem fyrst. Ég held að ef hægt verði að vinna útfrá málefnum á þessu þingi að við getum komið miklu meira í verk en ef unnið er eftir hefðbundnum argaþras leiðum. Auðvitað á stjórnarandstaða að veita þétt aðhald og sporna við fótum ef unnið er þvert á stefnu hvers og eins flokks. En það er ekki tími né ráð til að eyða miklum tíma í hefðbundið málþóf - skora á alla sem sitja inni á þingi að setja málefnin ofar flokkslínum og hugsa fyrst og hag almennings - síðan um hag flokksins sem viðkomandi tilheyrir.
Tímarnir sem framundan eru - verða mjög erfiðir fyrir marga í samfélaginu. Það verður að tryggja að þjóðin fórni sér ekki við uppbygginu án þess að verða tryggt fyrir því að slíkt vítavert gáleysi í stjórnsýslu geti átt sér stað að nýju. Gleymum því ekki að allar stofnanir sem almenningur treysti brugðust. Gleymum því ekki að það var hugmyndafræði XD og XB um sjálftöku og einkavinavæðingu sem setti hér heilt samfélag á hausinn með undraverðum hraða.
Sigmundur Davíð: Kom mjög á óvart | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.5.2009 | 06:19
Hér duga engin vettlingatök
Þið hafið ekki tíma kæra tilvonandi ríkisstjórn til að taka ykkur allan þann tíma sem til þarf. Fólk er búið að bíða með ótrúlega miklu langlundargeði eftir því að sjá til lands og margir við það að gefast upp. Það er ykkar að koma með alvöru aðgerðir til hjálpar en því miður eru þær aðgerðir sem þið hafið sett í forgang ekki nógu róttækar - hér var hrun - það er ekki hægt að byggja upp undirstöðurnar með legókubbum.
Það er ekki neitt réttlæti í því að fólk sem er orðið örmagna vegna óvissu og ótta um framtíð sína sé látið bíða enn lengur. Þið lofuðu gegnsæi en stjórnarmyndunarviðræðurnar ykkar sem nú eru búnar að taka viku hafa í engu létt á áhyggjum almennings.
Það er ljóst að við getum ekki staðið við skuldbindingar þær sem þið hafið ákveðið að láta þjóðina bera. Engar áhættur verða teknar ef þið viljið ekki styggja ESB. Nú er ESB umræðan farin að minna á álver álver umræðuna - eina lausnin og ekkert plan B. Hvað er plan B hjá ykkur - hvað á að gera fyrir heimilin NÚNA?: fólk er reitt og það mun rísa upp að nýju ef óréttlætinu linnir ekki.
Kæra tilvonandi ríkisstjórn - hér duga engin vettlingatök - hlustið á tillögur Hagsmunasamtaka heimilanna og gerið að ykkar. Borgarahreyfingin leggur til að allir flokkar og hreyfingar sameinist um að koma þeim tillögum í framkvæmd strax eftir helgi. Hættið að gera hlutina svona flókna - það var hægt á sínum tíma að stroka út verðtryggingu launa með einu pennastriki. Það er líka hægt að setja í framkvæmd bráðaaðgerðir fyrir heimilin okkar með einu pennastriki ef þið hafið til þess nægilegt hugrekki og þor.
Hvet ykkur til að lesa bréf á blogginu hans Egils Helga frá Gunnari Tómassyni, en þar reifar hann hugmyndir að því hvernig má leysa bráðavanda heimilanna.
Margir íhuga greiðsluverkfall | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.4.2009 | 11:48
Ný vinnubrögð inni á þingi
Borgarahreyfingin ætlar að opna gluggana inn á þing. Við ætlum að deila með þjóðinni hvað fer fram á þinghóps/flokks/hreyfingar fundum okkar, strax eftir fundina. Þá getur fólk séð milliliðalaust hvað við erum að gera þarna inni. Fundargerðir okkar munu þá birtast á vefnum okkar.
Við viljum leggja til að nefndum verði sett betri vinnuskilyrði með því að hafa tímaramma á þeim málum sem þar daga oft uppi. Þá er mikilvægt að þeir sem í nefndum sitja og fjalla um tiltekna hópa að fulltrúi þeirra sem nefndin fjallar um hafi fast sæti í nefndinni.
Ég hlakka til að finna fleti á samstarfi um hugmyndir okkar að lýðræðisumbótum meðal flokkanna - trúi ekki öðru en að það hugnist öllum sem starfa í umboði þjóðarinnar að lagfæra þá risastóru kerfishnökra sem við búum við.
Og takk aftur allir sem tóku þátt í að gera Borgarahreyfinguna að því sem hún er í dag:)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)
28.4.2009 | 11:01
Stjórnlagaþing fólksins
Fyrir helgina var ég í sjálfskipaðri atvinnubótavinnu, eftir helgina veitti 7% þjóðarinnar mér og félögum mínum í Borgarahreyfingunni umboð til að vera talsmenn hennar á þingi. Þetta eru mikil viðbrigði og ég er ekki alveg enn að ná utan um þessar miklu breytingar.
Ég er meira en þakklát þessu trausti og vona að ég muni standast þær væntingar sem kjósendur okkar bera til okkar. Stefnan okkar er einföld en sumir þættir hennar gætu vafist fyrir þeim sem aðhyllast flokksræði og að halda í þau völd sem þeir hafa nú þegar.
Það hefur farið lítið fyrir umræðu um Stjórnlagaþing í fjölmiðlum - ég ætlaði alltaf að koma því að þegar ég var í pallborðum og umræðum í fjölmiðlum en það tókst ekki, því ESB umræða sem og spillingarmál XS og XD voru þungamiðja orðræðunnar og erfitt að koma okkar rödd að. Ég er samt sannfærð um að það muni lagast núna, því fyrirspurnakerfi þingheims er þess eðlis að flokkarnir verða að svara okkar fyrirspurnum þar.
Kreppan er rétt að byrja og mikilvægt að við tryggjum að almenningur leggi ekki á sig ómælt erfiði við að vinna sig úr þessu og standi svo kannski frammi fyrir því eftir 10 ár að allt fari á sama veg og núna. Stjórnlagaþing verður að vera þing fólksins ekki flokksræðisins. Tillögur Ragnars Arnalds varðandi Stjórnlagaþing hugnast mér best af þeim tillögum sem ég hef séð hingað til. Þá er mikilvægt að hafa það í huga að Stjórnlagaþing á að búa til einföld lög sem allir geta skilið og tryggi hér nauðsynlegar lýðræðisumbætur og réttlæti. Ég held að slíkt þing gæti gefið þjóðinni eitthvað uppbyggilegt að tala um og vera með í - ég held að það sé kominn tími á að við förum að hugsa út fyrir alla þessa ramma og segja má að niðurstaða kosninganna hafi endurspeglað vilja þjóðarinnar um raunverulegar umbætur.
Ég veit að sumir óttast vinstri stjórn - það geri ég ekki - ég hef horft á og upplifað samfélagið okkar molna innan frá vegna þeirrar nýfrjálshyggju sem hér hefur sýkt og eyðilagt meira en margan grunar. Ég hef verið svo lánsöm að reka mig á alla mögulega kerfisveggi bæði fyrir mig og aðra - það er ágætur grunnur til að byrja sín þingstörf á - að laga þessa kerfisgalla með stórkostlegum endurbótum á stjórnsýslu landsins.
En fyrst og fremst hjartans þakkir til allra sem studdu mig í þessari baráttu og lögðu lið við að vinna að því að skapa þessa hreyfingu en segja má að drög að henni hafi verið rædd í nóvember þegar 10 manna hópur ræddi um hvernig hægt væri að finna lausnir á hinu algera hruni sem við erum enn að upplifa. Ég ætla ekki að telja upp alla sem lögðu okkur lið því það er alltaf þannig að maður gleymir einhverjum - en eitt er alveg ljóst - við sem munum setjast á þing erum bara angi af risastórri grasrót sem vonandi mun halda áfram að þrýsta á utan frá. 1000 þakkir til allra sem tóku þátt í að gera það mögulegt að við erum 4 að fara inn á þing.
Hvet fólk til að mæta í 1. maí göngur og minna á að við viljum Stjórnlagaþing fólksins og að það verði enginn niðurskurður í mennta- og heilbrigðisþjónustu. Það má skera af annars staðar. Hættum við að fara til Kína á heimssýninguna - sá gjörningur mun kosta okkur skattborgara 420 milljónir. Notum þá peninga frekar í heilbrigðisþjónustuna.
Þörf á að endurskoða kosningalög | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.4.2009 | 10:49
Völdin til fólksins
Bjarni Ben kaus fyrstur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.4.2009 | 10:45
Spurning til allra flokka:
Fáum við áfram faglega ráðna ráðherra?
Svar óskast frá flokkunum FYRIR kosningar
24.4.2009 | 09:58
Gleymum því ekki af hverju boðað er til kosninga
Í stefnu Borgarahreyfingarinnar stendur að AGS eigi ekki að ráðskast með ríkissjóð og að auðlindir þjóðarinnar verði þjóðareign.
Samningur fyrri ríkisstjórnar við AGS skuldbindur okkur til að skera niður um 50 milljarða á ári og að varpa yfir á þjóðina skuldum sem hún stofnaði ekki til vegna ICESAVE. Slíkan samning er ekki hægt að standa við nema að skaða undirstöður samfélagsins og setja börn okkar og barnabörn í skuldafangelsi.
Slíkur samningur er siðlaus. Við verðum að semja við sjóðinn upp á nýtt.
Sigmundur Davíð spáir öðru hruni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.4.2009 | 09:02
Hugmyndir XO um atvinnumál: vinnuplagg
Hef ekki tekið eftir því að flokkarnir séu að beita sér fyrir þá sem nú þegar eru atvinnulausir - ef fólk er lengur atvinnulaust en hálft ár - þá er mjög erfitt fyrir viðkomandi að komast aftur inn á vinnumarkað. Mikilvægt er að koma til móts við þennan hóp sem nú þegar spannar 10% landsmanna. Skorum á atvinnulausa að koma að þessari hugmyndavinnu með okkur.
1. Innihaldslaus kosningaloforð fjórflokkana um atvinnumál eru siðlaus blekkingarleikur og eru til skaða fyrri almenning og atvinnulífið.
2. Besta leiðin til að efla íslenskt atvinnulíf (fyrirtækin) og þar með auka atvinnuþátttöku er að skipta út krónunni fyrir annan gjaldmiðil, annað hvort með myntbandalagi við aðra þjóð (USA eða Noreg t.d.) eða ESB. Ef það tekst ekki þá þarf að taka einhliða upp aðra mynt og þar væri hagkvæmast að taka upp Evru vegna vægis hennar í utanríkisviðskiptum Íslands en annars Dollar. Það má svo sem velta upp einhverri hugmynd um mynt- og efnahagsbandalag við Noreg sem nokkuð mörgum hugnist en það er þó miklu óljósara fyrirbæri.
3. Störf í matvælaiðnaði sem myndu stóraukast ef áhugasömum (bændum) væri gert kleyft að fá rafmagn á taxta sem kemst nærri stóriðjutaxtanum. Ylrækt, lífræn ræktun, heimaframleiðsla á býlum, einnig til útflutnings. Í framhaldinu verði komið á kerfi þar sem allir kaupendur raforku, stóriðja sem aðrir, fái einfaldlega að kaupa sér raforku í opnum útboðum og aflögð verði algerlega leynd með raforkuverð. Þannig nýtum við auðlindina best.
4. Stuðningsumhverfi fyrir nýsköpun og frumkvöðlastarf þarf að einfalda og efla og taka það úr þeim farvegi sem það er nú undir flokkspólitískri stjórn og setja undir stjórn þeirra sem hafa þegar náð árangri í þeim efnum. Hátækni- , tölvu- og fjármálamenntað fólk er einnig atvinnulaust og þetta fólk þarf að leiða saman, t.d. í gegnum miðstöðina í lið 5 í stefnuskránni okkar.
5. Bráðaaðgerðir til aðstoðar atvinnulausum verða að koma til STRAX til að koma í veg fyrir að hér skapist stórkostlegt félagslegt vandamál vegna afleiðinga langvarandi atvinnuleysis. Nú þegar eru nærri 20.000 manneskjur atvinnulausir.
5a. Við þurfum að byrja strax með því að setja upp miðstöð mannaða atvinnulausum sem fengu 1,5 atvinnuleysisbætur.
5b. Þetta fólk færi inn í atvinnuleysisskrána og fyndi valið fólk (50 til 100 manns) með sérþekkingu á einhverjum ákveðnum sviðum. Því yrði svo boðnar 1,5 atvinnuleysisbætur til verða verkefnisstjórar og stofna hópa atvinnulausra utan um sérsvið sitt með það fyrir augum að bjóða upp á praktískar leiðir út úr atvinnuleysinu með t.d. námskeiðum í stofnun fyrirtækja, einyrkjarekstri, endurmenntun, námskeiðum eða hverju öðru sem gagnast gæti hugsanlegum þátttakendum. Mikilvægt er að þetta sé eftirspurnardrifið, þ.e. ekki skipulagt ofan frá heldur falli að hugmyndum og áhugsviðum þátttakenda.
5c. Í boði yrðu 1,25 atvinnuleysisbætur fyrir þátttakendur.
5c. Hvatt yrði til stofnunar alls konar smá- og einyrkjafyrirtækja þar sem fólkið héldi fullum (auknum) bótum meðan það væri að spjara sig í nýjum rekstri og koma undir sig fótunum á ný.
6. Mikilvægt er að bjóða upp á ný atvinnutækifæri við hæfi en ekki setja t.d. bankamenn í álver, pípara í leikskólavinnu eða skáld í bókhald.
7. Hvert starf í álveri ALCOA kostaði um 230 milljónir króna. Það er hægt að gera mjög margt annað fyrir brot af þessari upphæð þegar kemur að því að skapa ný störf.
8. Einnig má efla mikið félagsstarf atvinnulausra með stofnun t..d. Leikfélags atvinnulausra, Kórs atvinnulausra, Gönguhóps atvinnulausra (vikuleg Esjuganga t.d.), Sjósunds atvinnulausra o.s.frv., þetta er kannski einfaldlega spurning um hugmyndaflug. Félag atvinnulausra smiða, kennara, bókara, o.s.frv. sem hittust og spjölluðu og fengu nýjar hugmyndir.
9. Það ætti að nýta þær félagsmiðstöðvar sem eru til staðar sem samverustaði fyrir þá sem eru atvinnulausir.
10. Fyrirtækin verða meðhöndluð samkvæmt grein 4 í stefnuskránni þar sem meginstefnan er að afskrifa ekki skuldir sjálfkrafa heldur yrði það eingöngu gert sem hluti af endurskipulagningu þar sem t.d. starfsfólkið tæki yfir reksturinn. Það eru t.d. ekki fyrirtækin í sjávarútvegi sem veiða fiskinn heldur sjómennirnir á skipunum og þeir geta vel haldið því áfram þó eigendur fyrirtækjanna tapi þeim.
11. Það mun verða erfitt að koma alveg í veg fyrir gjaldþrot í því algera hruni sem blasir við
þar sem margir eru einfaldlega skuldsettir langt upp fyrir haus og jafnvel atvinnulausir
í ofanálag. Ef gjaldþrot verða mjög algeng þá þarf að lagfæra löggjöfina þannig að
fjárnámsaðgerðir verði takmarkaðar og að fólk komist tiltölulega fljótt af vanskilaskrá
og eigi þá auðveldara að koma undir sig fótunum á ný.
Stjórnin heldur enn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.4.2009 | 08:34
Enginn er ólöglegur
Fyrstu sumartónleikar ársins verða haldnir á nýja hljómleikastaðnum Sódóma við Tryggvagötu (Gamla Gauk á Stöng). Tónleikarnir eru haldnir til að vekja athygli á stöðu hælisleitenda hér á landi - sem og annarsstaðar í heiminum. Fjölmargir listamenn koma fram, þar á meðal: Vicky, Blóð, Megasukk & Ágústa Eva, Tóta & Djassbandið, Þrjár raddir beatur, Rapparinn Nour frá Bagdad, Skorpulifur og AMFJ.
Kynngimagnað kvöld: Íslensk músik, stutt erindi um stöðu hælisleitenda, og arabískt rapp. Aðgangseyrir er 1000 kr.
Um hælisleitendur
Um 20-30 hælisleitendur dvelja á Íslandi hverju sinni. Margir þeirra eru flóttamenn frá stríðshrjáðum löndum, eins og Afganistan og Írak. Þeir dvelja í herbergjum í Njarðvík, en flestir Íslendingar vissu ekki af tilvist þeirra fyrr en nú í vetur. Sumir þeirra hafa beðið eftir svari við hælis-umsókn sinni í nokkur ár. Á meðan þeir bíða mega þeir ekki vinna, ekki stunda nám, og eins eiga þeir erfitt með að fá lágmarks læknaþjónustu. Þeir vita ekki hvort þeir fái svar frá Útlendingastofnun á morgun, í næsta mánuði eða eftir ár. Líf þeirra er því ein nagandi óvissa.
Á árunum 1990 til 2007 sóttu 601 manns um hæli á Íslandi, öllum var hafnað nema einum. 53 fengu hinsvegar tímabundið dvalarleyfi. Útlendingastofnun hefur veitt vinum ráðamanna greiða og skjóta þjónustu, á meðan þeim hælisleitendum, sem hingað koma með réttum leiðum, hefur kerfisbundið verið hafnað. Þess vegna er Ísland langt undir þeim tölum sem nágrannalönd okkar hafa markað sér varðandi hælisveitingar. Þessu verður að breyta!
Af hverju ekki Grikkland?
Hælisleitendum er vísað frá Íslandi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Reglugerðin var samin til að tryggja hælisleitendum athvarf leiti þeir þess innan Schengen-svæðisins. Hún að tryggja það að fyrsta landið, innan Schengen-svæðisins, sem hælisleitendur koma til, sé skylt að skoða mál þeirra. Hælisleitendur eiga þó einnig rétt á að sækja um hæli í öðrum löndum innan svæðisins. Hér á landi hafa hælisleitendur iðulega verið sendir aftur til fyrsta Schengen-landsins sem þeir ferðuðust í gegnum, í mörgum tilvikum er það Grikkland - án þess að mál þeirra sé skoðað hérlendis.
Að undanförnu hefur Grikkland ekki uppfyllt skilyrði Dyflinnarreglugerðarinnar, en um 2,4% hælisleitenda sem eru sendir þangað fá þá sanngjörnu málsmeðferð sem Dyflinnarreglugerðin lofar þeim. Á heimasíðu Rauða kross Íslands stendur:
Íslensk stjórnvöld verða að ganga úr skugga um að [hælisleitandi] fái umsókn sína til meðferðar og að hann eigi ekki á hættu að verða sendur til heimaríkis... Íslensk stjórnvöld eru bundin af Flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna og alþjóðlegum mannréttindasáttmálum sem banna endursendingu... til heimalands eða annars ríkis þar sem viðkomandi á hættu á að verða fyrir ofsóknum... Væri t.d. ljóst að íslensk stjórnvöld gætu sent hælisleitanda til annars aðildarríkis Dyflinnarsamkomulagsins og hefði rökstuddan grun um að það ríki myndi síðan strax senda viðkomandi til síns heimalands þar sem hann ætti á hættu að verða fyrir ofsóknum þá væru íslensk yfirvöld mjög líklega að brjóta gegn skuldbindingum sínum.
Ítrekað hafa hælisleitendur verið sendir af íslenskum stjórnvöldum til Grikklands, án þess að íslenskt stjórnvöld hafi fengið staðfestingu frá Grikklandi um að þeir taki mál hælisleitandans að sér. Því eru mörg dæmi um að þeir hælisleitendur séu sendir frá Grikklandi aftur heim - til Afganistan eða Íraks, eða þess lands sem þeir flúðu upphaflega.
Í Grikklandi búa hælisleitendur í tjöldum, í flóttamannabúðum, þar sem aðgengi að hreinu vatni er takmarkað. Þeir njóta engra réttinda - sé þeim nauðgað, eða þeir beittir ofbeldi, geta þeir ekki leitað sér hjálpar eða réttar síns. Þess vegna hafa samtök eins og Amnesty International og Flóttamannahjálp Sameinuðu Þjóðanna lagt til að ríki sendi ekki hælisleitendur til Grikklands.
Dómstólar í Belgíu úrskurðuðu einnig, í apríl 2008, að þarlendum stjórnvöldum sé óheimilt að vísa hælisleitendum til Grikklands vegna slæmrar meðferðar. Sama ár var lögð fyrir Evrópuþingið 68 blaðsíðna skýrsla sem norskar og finnskar stofnanir unnu um beitingu Dyflinnarsáttmálans í tilfelli Grikklands. Þar kemur fram að móttaka og hýsing flóttafólks sem er handtekið við komuna til Grikklands er fært í varðhald og hýst til lengri tíma í varðhaldsmiðstöðvum. Dvölin þar feli í sér linnulaus mannréttindabrot, aðstæður og meðferð séu óviðunandi og vitnisburður liggi fyrir um skelfilegt ofbeldi og pyndingar af hálfu lögreglu.
21. öldin verður öld flóttamannsins.
Ísland verður að standa við þær alþjóðlegu skuldindingar sem landið hefur þegar skrifað undir. Á síðasta ári sagði hælisleitandi frá Afganistan að honum væri ítrekað svarað, þegar hann fengi höfnun um hæli, að hann væri einfaldlega ólögleg manneskja. Í september síðastliðinn var hann sendur með lögreglufylgd frá Íslandi, og aftur til Afganistan. Enginn manneskja er ólögleg! Enginn er ólöglegur!
Nánari upplýsingar
- Flóttamenn á Íslandi
- Nánari upplýsingar um stöðu hælisleitenda í Grikklandi má m.a. finna hér: Greek Asylum Policy and the Dublin II Regulation
Hér er youtube myndband frá búðunum í Grikklandi:
22.4.2009 | 08:11
Viljum við óbreytt ástand?
Ég var að spjalla við nokkra frambjóðendur annarra flokka í gær á meðan ég beið eftir að fara í útsendingu í kosningasjónvarpið í gær. Þar kom fram áhugavert viðhorf hjá XF og XD - þeim finnst ef þjóðin kýs óbreytt ástand - þeas ef niðurstöður verða eins og þess könnun sýnir til dæmis að þjóðin sé að kjósa burt hugmyndina um að hafa faglega ráðna ráðherra. Ég spurði þá af hverju þeir myndu ekki bara spyrja þjóðina frekar en að draga slíka ályktun: svarið var dæmigert að það væri óþarfi.
Almenningur er sáttur við að ráðnir voru tveir ráðherrar á faglegum forsendum - ég ætla að vona að fólk skilji að allar lýðræðisumbætur sem við höfum fengið loforð um verða af engu ef við veitum ekki mjög öflugt aðhald innan þings sem utan.
Hér ríkir mikill lýðræðishalli vegna yfirþyrmandi ráðherraræðis. Hér er engin svokölluð þrískipting valds. Alþingi afgreiðir í miklum meirihluta ráðherrafrumvörp á meðan þingmannafrumvörp rétt silast yfir 20% þeirra sem afgreidd eru. Hlutskipti stjórnarandstöðu virðist eitthvað svo tilgangslaust ef það er staðreynd að hlutfall frumvarpa þeirra nær ekki einu sinni 1%. Það þarf að skoða betur hvernig þessi þingmannafjöldi nýtist þjóðinni best. Það þarf að tryggja að ráðherrar verði ekki áfram þingmenn. Það þarf að tryggja að þingmenn sitji ekki lengur en í 8 ár á þingi í senn.
Sjálfstæðismenn tryggðu það með síðasta gjörning sínum að auðlindir okkar eru EKKI í þjóðareign. Það er okkur hættulegt á tímum sem þessum.
Stórfeldur niðurskurður er nú þegar hafinn - hann birtist sem tillögur að því að minka skólasetu barna - í skólanum þar sem 8 ára sonur minn sækir sitt nám verður ekki ráðið aftur í stöður þeirra sem hætta og fólki hefur verið sagt upp. Nú þegar eru bekkirnir allt of stórir - 25 börn í bekk og ekki hægt að sinna börnum almennilega sem þurfa sérkennslu. Talað er um að það þurfi að sameina bekki enn frekar. Mikið var þrengt að skólunum í hinu svokallaða góðæri - ég er ekki að sjá hvernig á að vera hægt að skera niður enn frekar í barnaskólunum.
S- og V-listar bæta heldur við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.4.2009 | 16:06
Stór helgi framundan
Á sunnudaginn næstkomandi verður frumburðurinn minn 18 ára og dóttir mín mun fermast að borgaralegum sið. Kosningadagurinn fellur smá í skuggann á þessum stóru viðburðum í lífi barnanna minna:)
En því er ekki að neita að ég er rosalega spennt að vita hvað mun koma upp úr kjörkössunum - ég vona að það verði breytingar - ekki stöðnun. Ég vona að flokkarnir beri gæfu til að horfa á aðalatriðin en ekki gleyma sér í einhliða stefnum og ofsatrú á einhæfum lausnum. Það er svo mikilvægt að þjóðin utan þings sem innan geti einbeitt sér að því að finna lausnir sem við getum verið sammála um. Það er hörmulegt til þess að vita að það eigi að draga fólk í skotgrafir varðandi ESB.
Ég held að farsælast sé að fá að vita hvað stendur í boði og leyfa þjóðinni svo að taka upplýsta ákvörðun. En best væri ef þjóðin hefði rétt á að kalla eftir þjóðaratkvæðagreiðslum óháð þessum tilteknu deilum. Það myndi taka þessar umræður frá flokkunum til fólksins.
21.4.2009 | 08:49
Við erum breytingaafl
Hvernig er Borgarahreyfingin öðruvísi: nokkrir punktar
1. Hjá okkur eru engir þingmenn á lista - það var ákvæði sem við settum varðandi framboð.
2. Hjá okkur eru engir með bein hagsmunatengsl - þess vegna erum við best til þess fallin að takast á við spillinguna sem grasserar ekki bara í viðskiptalífinu - heldur líka inn á þingi meðal þingmanna flestra flokka, nema VG. Það voru ekki ráðamenn sem áttu hugmyndina að því að fá Evu Joly til landsins, heldur útgefandi hennar og fréttamaður - síðan voru það við almenningur sem hafi áhrif á hana með því að setja upp facebook síðu þar sem skorað var á hana að hjálpa okkur.
3. Við viljum að ráðherrar séu ekki þingmenn heldur ráðnir á faglegum forsendum. Nú höfum við reynslu af slíkum gjörning og það hefur tekist mjög vel. Gleymum því ekki að það var ekki hugmynd flokkana að fá faglega ráðherra heldur kröfur almennings sem varð til þeirra miklu tíðinda að hér gæti skapast hefð fyrir alvöru þrískiptingu valds.
4. Við viljum að þingmenn sitji ekki lengur en 8 ár á þingi.
5. Við viljum gera raunverulega uppstokkun á stjórnsýslu okkar sem er allt of dýr og óskilvirk.
6. Við viljum færa völdin til fólksins - þjóðaratkvæðagreiðslur strax með 7% þröskuldi ekki 15% eins og flokkarnir leggja til. Það er mjög erfitt að fá 15% undirskriftir - þó málefnið sé eitthvað sem brennur á þjóðinni.
7. Við viljum tryggja að auðlindir okkar verði skilyrðislaust í eigu þjóðarinnar og það verði tryggt í stjórnarskrá strax. Skil ekki af hverju það var ekki barist til síðasta blóðdropa til að tryggja þetta ákvæði. Ef ég hefði verið í stjórn þá hefði ég neitað að rjúfa þing fyrr en þetta væri tryggt:)
8. Við viljum persónukjör og stjórnlagaþing fólksins ekki flokkana. Hugmyndir flokkana um stjórnlagaþing er einfaldlega þannig að ljóst er að það er sniðið fyrir flokksmaskínur ekki að þjóðinni. Við munum efna til þjóðfundar fljótlega eftir kosningar þar sem allri þjóðinni verður boðið að taka þátt í að finna lausnir á þeim mikla vanda sem við stöndum frammi fyrir.
Ég verð að þjóta núna en er óendanlega þakklát fyrir þann mikla stuðning sem við erum að fá - ég ætla ekki að fagna fyrr en eftir að atkvæði eru talin - en ég fagna því hugrekki sem fólk er að sýna með því að þora að kjósa eitthvað allt annað en það hefur kannski alltaf gert. Enda alveg ljóst að stjórnmálaöflin eru enn föst í því að hugsa fyrst og fremst um völd síðast um þjóðina. Okkur vantar enn að vita hvernig þeir ætla sér að skera niður um 150 milljarða á næstu þremur árum - það er bara ekki hægt að fylgja þessum handónýta samning við AGS. Krefjumst þess að ný stjórn geri nýjan samning við AGS. Hinn samningurinn var samþykktur án allrar baráttu fyrir sanngjörnum skilmálum.
O-listi fengi fjóra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.4.2009 | 22:55
Þetta reddast kosningar
Ég var að lesa komment á eyjunni og sá þar setninguna þetta reddast kosningar. Finnst það ekki fjarri lagi. Það er skautað fimlega frá raunveruleikanum og svörin eins loðin og angóruköttur frá flokkunum sem þó eiga hver um sig tóku þátt í að skapa hér þá óvissu sem við stöndum frammi fyrir.
Okkur var lofað að óvissunni yrðu eytt ef ný stjórn tæki við - bráðabirgðastjórnin hefur þar brugðist okkur. Ef eitthvað er finn ég fyrir enn meiri óvissu um framtíðina - því á einhvern barnslegan hátt treysti maður orðum þeirra sem nú halda um stjórnartaumana.
Það var reyndar ýmislegt fleira sem sló mig í þessari ágætu færslu hjá manni sem titlar sig Helgi
"Við vitum hverjir kostirnir eru í komandi kosningum en hvað felst í þeim? það verða skattahækkanir, tekjuskattur verður hækkaður, en minn hefur verið rætt um veltuskatta eins og tryggingagjald, vsk, olíugjald, áfengisgjald og þess háttar. Hvar verður skorið niður? Það er búið að skera niður í landbúnaðarkerfinu um 600 millur, þegjandi og hljóðalaust. En þá eru eftir 49.4 milljarðar. Líklega verður fæðingarorlofssjóður skorinn niður, stofnanir sameinaðar, komugjöld hækkuð, endurgreiðslur til tannlækninga lækkaðar, framhaldsskólar sameinaðir, jöfnunarsjóður sveitafélaga skorinn niður, laun lækkuð. Þetta eru allt atriði sem hafa ekki verið rædd og munu ekki verða rædd að því að þau eru óþægileg. Þessar kosningar eru svona eins og einn stór tékki sem er búið að skrifa undir en eftir að fylla út. Við munum kjósa og vona það besta. Þetta eru þetta reddast kosningarnar."
Mikið skil ég hann vel og væri eins og hann til í að fara bara burt, en ætla að gera lokatilraun til að athuga hvort að þjóðin vilji búa áfram við kerfi sem byggt er á spillingu og bitlingum og einkavinavæðingu og sjálftöku - það eina sem vakir fyrir mér með því að bjóða mig fram til þings er að færa völdin til fólksins - kannski vill þjóðin bara ekki þá ábyrgð og við því er þá ekkert að gera. En ég vil í það minnsta reyna til þrautar og þá get ég sagt við börnin mín þegar sama sagan endurtekur sig að ég hafi í það minnsta lagt nótt við nýtan dag - blóð svita og tár í að skapa farveg fyrir lýðræðisumbætur - gleymum því ekki að samfélagið okkar verður ekki lagað nema að við gerum eitthvað sjálf til að laga það.
Ef fólk er virkilega til í að eyða næstu tíu árum í að lepja dauðann úr skel til þess eins að láta arðræna sig aftur vegna þess að orsökin var aldrei lagfærð - þá verður það bara svo að vera - það er ekki hægt að þvinga fólk til að hafa hugrekki - það verður að koma innanfrá - ég vona að sem flestir finni fyrir innri byltingu sem yfirleitt leiðir til þess að fólk er tilbúið að breyta til. Ég ætla að leyfa mér að vona að fólk hendi ekki atkvæði sínu í ruslið - því ég veit ekki um neinn sem mun vera að fara inn í traust þingsæti sem myndi taka mikið mark á því - autt atkvæði er dautt atkvæði ef fólk heldur að einhverjir ráðamenn hlusti á það eða geri eitthvað í því. Hér ríkir engin pólitísk ábyrgð.
D og S listi stærstir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.4.2009 | 19:14
Óskiljanlegt
Mér er alveg fyrirmunað að skilja þessa atlögu að garðyrjubændum og landbúnaði. Það kostar okkur nánast ekki neitt að styrkja fyrirtæki landsins með því að lækka raforkuverð til þeirra STRAX - fyrst að ekki er hægt lækka stýrivexti þá væri þetta hagkvæm og góð lausn til að fyrirbyggja að fyrirtæki fari í þrot - það er neyðarástand - það kallar á alvöru úrræði.
Það mun kosta þjóðarbúið óhemju háar fjárhæðir ef fleiri fyrirtæki fara í þrot og eitt það alvitlausasta sem hægt væri að gera núna er að tryggja ekki aukna sjálfbærni þjóðarinnar - það gerum við ekki með því að keyra garðyrkjubændur sem og aðra bændur í þrot.
Þetta var fínn fundur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.4.2009 | 22:05
Kalla eftir þjóðarsátt um lægra orkuverð til bænda
Borgarahreyfingunni finnst eðlilegt að á tímum sem þessum séu auðlindir okkar nýttar til að tryggja að fleiri fyrirtæki fari ekki á hausinn. Það yrði þjóðhagslega hagkvæmt að lækka orkuverð til bænda og selja þeim orkuna á sambærilegu verði og Alcoa. Það er ekki hagkvæmt að bændur gefist upp vegna óþarfa byrða sem á þá eru lagðar. Það væri aftur á móti öllum til hagsbóta ef þeir halda áfram að framleiða innlendar afurðir - það mætti til stórauka útflutning á til dæmis lífrænu grænmeti ef skilyrði til slíkrar ræktunnar séu gerð þannig að það sé rekstrarlegt umhverfi til að stunda þannig starfsemi.
Þá munum við þjóðin njóta þess að fá ferskt grænmeti og aðrar landbúnaðarafurðir á lægra verði og innflutningur sem okkur er afar dýr núna væri ekki það eina sem við þurfum að treysta á. Á heildina litið hlýtur það að teljast hagkvæmt og það væri hægt að gera þetta strax. Kalla því eftir þjóðarsátt en fyrst og fremst pólitískri sátt um þessa lausn til að hjálpa bændum að komast yfir þennan erfiða hjalla.
Ef Landsvirkjun verður af einhverjum tekjum vegna þessa - þá verður bara að hafa það - orkan kostar okkur ekki nærri því eins mikið og það kostar að láta fyrirtækin rúlla.
Garðyrkjubændur skrifuðu ekki undir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Tenglar
Nýja Ísland
Ég les:
Tíbet
- Fréttir frá Tibet
- Tibet Info Net An Independent Information Service on Contemporary Tibet
- Undercover in Tibet Ný heimildarmynd frá Channel 4 um hvernig ástandið er í raun og veru í Tíbet
- Leaving Fear Behind Viðtöl við Tíbeta í Tíbet stuttu fyrir mótmælin í mars
- Cry of the Snow Lion Margverðlaunuð heimildarmynd um Tíbet
- Yeti - heimildarmynd
- Yogis of Tibet Heimildarmynd um Jógameistara Tíbets sem eru óðum að hverfa
- Students for a Free Tibet
- Dalai Lama
- Tibetan Uprising
- Kerti fyrir Tíbet
- Tibet TV
- Central Tibetan Administration
- Om mani padme hum
Ýmsar slóðir
sem ég man eftir í andartakinu
- The Hunger Site
- THE MEATRIX
- Myspace síðan mín
- Úgáfan Beyond Borders Alþjóðleg útgáfa sem ég stofnaði árið 1999 í netheimum
- Hitt bloggið mitt
- Félagið Ísland-Palestína
- Womb of Creation Vefurinn minn sem ég hef haldið við síðan 1995
- Myspace síðan hennar mömmu
- Saving Iceland
- Be the change:)
- Náttúra vefur með umhverfisvitund
- Nattura info
- Care 2 make a Difference
Bækur
Bækurnar mínar
-
: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni -
: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra. -
: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 509133
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónhlaða
Bloggvinir
- ADHD
- Agný
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Alexandra Briem
- Andrés Magnússon
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Ari Sigurðsson
- Baldvin Björgvinsson
- Baldvin Jónsson
- Baldvin Jónsson
- Bara Steini
- Bergur Sigurðsson
- Bergur Thorberg
- Bergur Þór Ingólfsson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Binnan
- Birgir Þórarinsson
- Birna Rebekka Björnsdóttir
- Bjargandi Íslandi
- Bjarkey Gunnarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- SVB
- Brjánn Guðjónsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynja skordal
- Brynjar Hólm Bjarnason
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Daníel Haukur
- Dorje
- Dísa Dóra
- Egill Bjarnason
- Egill Jóhannsson
- Einar Guðjónsson
- Einar Indriðason
- Einar Vignir Einarsson
- Einar Ólafsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eldur Ísidór
- Elyas
- Elín Sigurðardóttir
- Elísabet Markúsdóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Erna Hákonardóttir Pomrenke
- Eva Benjamínsdóttir
- Eydís Hentze Pétursdóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- FLÓTTAMAÐURINN
- Finnur Bárðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fríða Eyland
- Félag Anti-Rasista
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Gaukur Úlfarsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gerður Pálma
- Gestur Guðjónsson
- Goggi
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Gunnar Pétursson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Bergmann
- Guðjón Heiðar Valgarðsson
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðmundur M Ásgeirsson
- Guðmundur Ragnar Guðmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðný Lára
- Guðrún S Sigurðardóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Hjálmar
- Haffi
- Halldór Sigurðsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haukur Már Helgason
- Heidi Strand
- Heilsa 107
- Heiða Þórðar
- Helga Auðunsdóttir
- Kaleb Joshua
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlekkur
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Jón Michelsen
- Hlédís
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Hrólfur Guðmundsson
- Hulla Dan
- Hólmfríður Guðlaug Einarsdóttir
- Hörður B Hjartarson
- Húmoristaflokkurinn
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingibjörg Helga
- Ingibjörg SoS
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Isis
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakob Smári Magnússon
- Jakob Þór Haraldsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jens Guð
- Johann Trast Palmason
- Jóhannes Ragnarsson
- Jón Bjarnason
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Svavarsson
- Jón Valur Jensson
- Jón Þór Ólafsson
- DÓNAS
- Katrín Mixa
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Ketill Sigurjónsson
- Ketilás
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristbergur O Pétursson
- Kristján B. Jónasson
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Logason
- Kristín Dýrfjörð
- Kristín Snorradóttir
- Krummi
- Kári Harðarson
- Landvernd
- Laufey Ólafsdóttir
- Lovísa
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lýður Árnason
- Mafía-- Linda Róberts.
- Margrét Guðjónsdóttir
- Margrét Lóa Jónsdóttir
- Margrét Sigurðardóttir
- Markús frá Djúpalæk
- María Kristjánsdóttir
- María Pétursdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Morgunblaðið
- Myndlistarfélagið
- Mál 214
- Máni Ragnar Svansson
- Neo
- Oddi
- Paul Nikolov
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Pálmi Gunnarsson
- Pálmi Guðmundsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rannveig H
- Ransu
- Róbert Björnsson
- Rögnvaldur Hreiðarsson
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Samstaða - bandalag grasrótarhópa
- SeeingRed
- Sema Erla Serdar
- Sigga
- Signý
- Sigrún Jónsdóttir
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurgeir Þór Hreggviðsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Sigurður Hrellir
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Skuldlaus
- Snorri Sturluson
- Soffía Valdimarsdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Stríða
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Sveinn Hjörtur
- Sveinn Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Swami Karunananda
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sævar Einarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Sóley Tómasdóttir
- Sólveig Klara Káradóttir
- TARA
- Tilkynning
- Tinna Jónsdóttir
- Trausti Traustason
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Tína
- TómasHa
- Valgeir Skagfjörð
- Valgerður Halldórsdóttir
- Vefritid
- Vilborg Eggertsdóttir
- Vilhelmina af Ugglas
- Vilhjálmur Árnason
- Villi Asgeirsson
- Vinir Tíbets
- Viðar Eggertsson
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Vér Morðingjar
- Vésteinn Valgarðsson
- arnar valgeirsson
- fingurbjorg
- hreinsamviska
- leyla
- molta
- oktober
- Einhver Ágúst
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Ár & síð
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásgerður
- Ásta Hafberg S.
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ólöf de Bont
- Ómar Ragnarsson
- Óskar Arnórsson
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Þröstur Unnar
- Þór Jóhannesson
- Þór Saari
- Þórhildur og Kristín
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórólfur S. Finnsson
- Andrés.si
- Anna Karlsdóttir
- Anna Margrét Bjarnadóttir
- Ari Jósepsson
- Aron Ingi Ólason
- Axel Þór Kolbeinsson
- Barði Bárðarson
- Bergþór Gunnlaugsson
- Billi bilaði
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Kristjánsson
- Bogi Jónsson
- brahim
- Daði Ingólfsson
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Dóra litla
- Dúa
- Einar Björn Bjarnason
- Elsabet Sigurðardóttir
- Esther Anna Jóhannsdóttir
- Frosti Sigurjónsson
- Grétar Eiríksson
- Guðbjörg Hrafnsdóttir
- Guðmundur Óli Scheving
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Héðinn Björnsson
- Hreyfingin
- Hulda Haraldsdóttir
- Högni Snær Hauksson
- Ingvi Rúnar Einarsson
- Ísleifur Gíslason
- Jack Daniel's
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóhann Pétur
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Jónas Bjarnason
- Jón Kristófer Arnarson
- Jón Lárusson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Lúðvík Lúðvíksson
- Madhav Davíð Goyal
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Morten Lange
- Óðinn Kári Karlsson
- Ólafur Eiríksson
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Rannsóknarskýrslan
- Rúnar Freyr Þorsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Vaktin
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson