Leita í fréttum mbl.is

Spurning til allra flokka:

Fáum við áfram faglega ráðna ráðherra?

Svar óskast frá flokkunum FYRIR kosningar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Hvert er þá þitt svar?

Björgvin R. Leifsson, 24.4.2009 kl. 18:34

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Að sjálfsögðu eigum við að hafa faglega ráðna ráðherra en ekki síður mikilvægt ef það þykir of róttækt að fagmennskan ráði í alla ráðherrastóla að þá eiga ráðherrar að afsala sér þingmennsku á meðan á ráðherratíð þeirra stendur til að tryggja betri þrískiptingu valds.

Birgitta Jónsdóttir, 24.4.2009 kl. 19:43

3 identicon

Ef þingmenn sem verða ráðherrar afsala sér þingmennsku þá er komin upp sú staða að ríkisstjórnin er með mikið meiri mannafla en stjórnarandstaðan. Þetta myndi því koma sér ákaflega illa fyrir stjórnarandstöðuna.

Óli Gneisti (IP-tala skráð) 24.4.2009 kl. 20:01

4 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Nei Óli. Ef þingmenn, sem verða ráðherrar, afsala sér þingmennsku, eru þeir ekki lengur á þingi, heldur í ríkisstjórn og hefðu ekki lengur aðkomu að umræðu á þinginu. Ég reikna frekar með því að VG vilji hafa faglega ráðna ráðherra áfram án þess að ég sé að tala fyrir væntanlegan þingflokk. Ég veit að það er nokkur vilji fyrir þessu innan flokksins og sömuleiðis því að ráðherrar afsali sér þingmennsku, sem aftur hleypir nýju fólki inn á þing.

Björgvin R. Leifsson, 24.4.2009 kl. 22:56

5 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Ég sækist eftir því að verða gleðibankastjóri íslands... Lofa alsherjar stuðæri með miklum vöxum og áframhaldandi hressleika þó þjóðarskútan fari til helvítis.

Brynjar Jóhannsson, 25.4.2009 kl. 05:00

6 identicon

Nei Björgvin, þetta er ákaflega vanhugsað. Ráðherrar eru fulltrúar meirihlutans hvort sem þeir afsala sér þingmennsku eða ekki. Aukalegi mannaflinn hjálpar alltaf meirihlutanum. Þeir hafa fleiri til að senda í fjölmiðla og þeir hafa fleiri til að taka þátt í karpinu á Alþingi.

Óli Gneisti (IP-tala skráð) 25.4.2009 kl. 17:07

7 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Að sjálfsögðu eru þeir áfram fulltrúar meirihlutans en þeir taka ekki þátt í atkvæðagreiðslu.

Björgvin R. Leifsson, 27.4.2009 kl. 18:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 508716

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.