Leita í fréttum mbl.is

Stór helgi framundan

NeptúnusÁ sunnudaginn næstkomandi verður frumburðurinn minn 18 ára og dóttir mín mun fermast að borgaralegum sið. Kosningadagurinn fellur smá í skuggann á þessum stóru viðburðum í lífi barnanna minna:)

En því er ekki að neita að ég er rosalega spennt að vita hvað mun koma upp úr kjörkössunum - ég vona að það verði breytingar - ekki stöðnun. Ég vona að flokkarnir beri gæfu til að horfa á aðalatriðin en ekki gleyma sér í einhliða stefnum og ofsatrú á einhæfum lausnum. Það er svo mikilvægt að þjóðin utan þings sem innan geti einbeitt sér að því að finna lausnir sem við getum verið sammála um. Það er hörmulegt til þess að vita að það eigi að draga fólk í skotgrafir varðandi ESB. 

Ég held að farsælast sé að fá að vita hvað stendur í boði og leyfa þjóðinni svo að taka upplýsta ákvörðun. En best væri ef þjóðin hefði rétt á að kalla eftir þjóðaratkvæðagreiðslum óháð þessum tilteknu deilum. Það myndi taka þessar umræður frá flokkunum til fólksins.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Jón Michelsen

Ég kaus utankjörstaðar í dag og er ákaflega sáttur við mitt atkvæði!!!
Þetta er í annað sinn á mínum ferli sem ég styð EKKI flokkinn og er ákaflega sáttur við það.
Fuck you all you fjórflokka-glæpamenn.

X- O

Hlynur Jón Michelsen, 21.4.2009 kl. 18:20

2 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Til hamingju með börnin þín, næsta sunnudag. bestu kveðjur.

Þráinn Jökull Elísson, 21.4.2009 kl. 19:24

3 identicon

Til hamingju með börnin þín og til hamingjumeð árangurinn á stöð 2 í kvöld þú stóðs þig vel.

Er enn að leita að gjallarhorni fyrir okkur fann ekkert í dag.

kv

Maggi

Mr;Magoo (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 22:10

4 identicon

Hvur þremillinn!

Neptúnus Hirt (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 23:41

5 Smámynd: Sigurður Hrellir

Til hamingju vinkona og takk fyrir fína frammistöðu á Stöð 2.

Sigurður Hrellir, 22.4.2009 kl. 02:44

6 Smámynd: Hörður B Hjartarson

 Til hamingju með gullin þín tvö , eða eru þau kannske fleiri , sé svo , þá aftur og enn til hamingju með þau öll , þetta er besta gullið , en það þarf stundum að pússa mikið svo lítt falli á

Hörður B Hjartarson, 3.5.2009 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband