29.4.2007 | 08:54
kameljónið les upp í kvöld í kraganum
Guðfríður Lilja býður konum í heimsókn í Kragakaffi Hamraborg 1-3
sunnudaginn 29. april kl. 20.00
Fjölmargar lista- og stjórnmálakonur munu troða upp
Guðrún Gunnarsdóttir syngur
Katrín Jakobsdóttir verður á rómantísku nótunum
Verðlauna stuttmynd Helenu Stefánsdóttur
Birgitta Jónsdóttir les ljóð með tónlist
Thelma Ásdísardóttir kemur á óvart
Kolbrún Halldórsdóttir og Svandís Svavarsdóttir leika af fingrum fram
Mireya Samber verður með myndlistasýningu
Gaman væri að sjá einhverjar konur úr vinahópnum koma við í kvöld... ég skal lofa að lesa upp eitthvað pólitískt... Kata sér um rómantíkina... held að ég lesi innflytjendaljóðið mitt langa... Hetjur...
28.4.2007 | 16:13
Meira um hinn meinta útvarpsþátt...
Var að tala við Andreu í morgunn og sagði hún mér að þátturinn er orðin svo vel kryddaður af gæða viðtölum að hann mun spanna frá 16:00 til 18:00 og halda svo áfram um kvöldið...
Gleymdi að nefna að minn gamli kennari og jazzgeggjari með meiru Vernharður Linnet verður líka í þættinum og líka Jói G. En mamma og Valdi ráku með honum Gallerí Lækjartorg fyrir margt löngu.
Eftir kosningar mun ég svo fara að leggja drög að minningartónleikum í febrúar á næsta ári... og útgáfu á disk með efni með mömmu... held áfram að blogga um þessi málefni, kannski bý ég til nýtt blogg tileinkað henni, ætla allavega að setja upp Bergþóruvef um leið og tími gefst
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.4.2007 | 20:52
Útaf minningarþætti á Rás 2 um Bergþóru Árnadóttur
Var að tala við Andreu Jónsdóttur áðan og ég er orðin mjög spennt að heyra þáttinn hennar um mömmu. Var búin að lofa að setja á bloggið mitt klukkan hvað hann verður fluttur: 1. maí klukkan 16:00 til 18:00.
Hér er svona ca, næstum allir sem ég man eftir að Andrea er búin að tala við: Hjörleifur Valsson, Páll Óskar, Bubbi, Aðalsteinn Ásberg, Eyjólfur Kristjáns, Ingi Gunnar, Stella, Þorvaldur Ingi, Diddi fiðla, Labbi, Helgi, Tryggvi Hubner, Pálmi Gunnars, Guðrún Gunnars, Hörður Torfa: ég er sennilega að gleyma einhverjum... En ég treysti henni Andreu 100% til að gera frábæran þátt enda slá henni fáir við í þáttagerð um tónlist.
Að heyra sögur um mömmu er mér sem fágætur fjársjóður, hún lifir í gegnum þessar sögur og þegar ég heyri eitthvað nýtt er eins og ég fái aðeins lengri tíma með henni.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.4.2007 | 07:28
Leg er bara snilld
Bauð Neptúnusi í leikhús í gærkveldi í tilfefni 16 ára afmælis hans. Fórum að sjá Leg í Þjóðleikhúsinu. Langt síðan ég hef skemmt mér svona vel. Við vorum í hláturkasti út sýninguna. Fannst allt vel heppnað við þessa sýningu. Margmiðlunarhluti hennar var ótrúlega vel útfærður og þessi dásamlegi sjúklegi húmor hans Hugleiks snillarlega yfirfærður í leikhúsið. Þetta er eini söngleikurinn sem ég hef séð þar sem ég hef ekki verið í króniskri þjáningu vegna aulahrolls. Ég nefnilega þoli ekki söngleiki, veit ekki af hverju... fer alltaf um mig þegar fólkið fer að syngja samtölin...
Mæli hiklaust með þessari sýningu.
26.4.2007 | 14:36
Kosningar eða hvað?
Maður fyllist hálfgerðu þunglyndi þegar maður hugsar út í þá staðreynd hve erfitt það virðist vera fyrir fólk að hugsa út fyrir þann ramma sem snýr að þeim sjálfum. Skil ekki af hverju það virðist vanta samfélgsvitundargenið í þjóðina. Það gerist svo oft í ræðu og riti að fólk opinberar að því er andskotans sama um allt og alla nema sig sjálft. Mér finnst þetta svo endurspeglast í því hvernig fólk kýs.
Tek það fram að ég hef ekkert á móti því að fólk hugsi um sína velferð en það væri ágætt að það myndi líka hugsa um hvað er gott fyrir heildina. Nú stöndum við frammi fyrir mikilli vá sem snýr að hlýnum jarðar. Það er alveg ljóst að þessi hlýnum mun hafa áhrif á okkar samfélag. En þó að við myndum græða heil ósköp á því með því að fá hlýrri sumur eða geta látið plómutré vaxa í garðinum okkar þá er það jafnframt staðreynd að hækkun sjávarborðs mun verða milljónum jarðbúa að fjörtjóni. Það er enn talað um þessi mál hérlendis meðal ráðamann af nokkru kæruleysi eins og þetta komi okkur ekki alveg við. Við erum nú einu sinni svo græn og væn og búum á heimsins hreinustu eyju, eða hvað? Það skiptir engu máli að fórna henni ef við búum áfram við stöðugan hagvöxt og getum haldið áfram að taka lán á okurvöxtum og haldið áfram að kaupa það allra nýjasta og sett enn eitt heimsmetið í tækjum per haus.
Við erum orðin svo sjálfumglöð að við spáum ekkert í því hvernig ástandið á þjóðarbúinu verður þegar börnin okkar taka við. Sjálfbærni er bara eitthvað tískuorð og það eina sem virkilega skiptir máli er að fá sem mest NÚNA. En hvað svo? Hvað ef við höldum áfram með sömu ríkissjórn? Skiptir engu máli hinn skammarlegi aðbúnaður sem aldraðir, öryrkjar og fólk í láglaunastéttum býr við? Hver trúir í hjarta sínu að ríkisstjórnin meini þessi loforð sín? Mér finnst eiginlega verst þegar fólk segist ekki ætla yfirhöfuð að kjósa. Hefur fólk virkilega enga skoðun á því í hvernig samfélagi það vill búa í?
Það væri líka hægt að segja þetta svona?
Mótmælendur almennt biðja landsmenn að taka fréttum á komandi sumri af samskiptum lögreglunnar og mótmælenda með gagnrýnum huga, en uppsetning mótmælendabúða hefur verið boðuð frá og með 6. júlí. Segir í tilkynningu, sem mótmælendur skrifa undir að mótmælendur hafi ekki afskipti af lögreglu af fyrra bragði og þurfi að koma til háttsemi af þeirra hálfu, sem varði við lög.
Af hverju eru svona fréttatilkynningar frá lögreglunni birtar sem fréttir: algerlega gagnrýnislaust frá blaðamönnum?
![]() |
Lögregla biður landsmenn að taka fréttum frá mótmælendum með gagnrýnum huga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
20.4.2007 | 19:32
Er hinn alþjóðlegi nöldurdagur í dag?
Hvað er eiginlega að fólki að vera sífellt að tala um foræðishyggju ef VG lætur í sér heyra. Það er eins og fólk lesi bara fyrirsagnir á svona fréttum og lætur misvitrar athugasemdir fjúka í engu samhengi við fréttina. Þarna stendur til dæmis að verið er að taka undir yfirlýsingar borgarstjóra sem ég hélt að væri í allt öðrum flokki. Kannski er Villi bara genginn í VG. Hann vill allavega gert margt sem VG lögðu grunninn að í borgarstjórn á sínum tíma sem er hið besta mál.
Ég styð það heilshugar að húsin verða endurbyggð í sinni upprunalegu mynd. Það væri menningarlegt slys að gera það ekki. Sér í lagi er mér Lækjargata 2 hjartfólgin, átti ófáar stundir á kaffihúsinu Mensu og ógleymanlegar minningar sem tengjast manninum mínum heitnum á veitingastað sem var þar eitt sinn.
![]() |
VG hvetur til samstöðu um endurreisn húsanna sem brunnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.4.2007 | 06:55
Afmælisdæmisaga
Þegar ég varð 16 ára þá var ég stödd í landsins mest spennandi heimavistaskóla, þeas Núpi. Ég hafði beðið við símann í litla herberginu sem geymdi myntsímann allan daginn í þeirri von um að mamma myndi hringja. Ekkert gerðist. Ég hringdi því í hana til að gefa henni tækifæri á muna. En það gerði hún ekki. Þetta varð til þess að ég velti mér upp úr þessi í eymd og sjálfsvorkun í mörg ár. Hún sendi mér skeyti næsta dag en það var ekki nóg ég var í krónískri sjálfsvorkun. Eg hefði nú alveg getað sagt, ertu ekki að gleyma einhverju eða eitthvað en til þess var ég of stolt.
Dagurinn var í alla staði fullkominn. Ég byrjaði á að fara í MM þar sem frambjóðendur sem hafa gefið út bækur var teflt fram til að þiggja og leysa út fyrstu ávísanirnar þjóðargjafar bókaútgefanda. Ég sagði öllum sem ég kannaðist við þar að ég ætti stórafmæli. Keypti svo Múmínálfabók handa dóttur minni í afmælisgjöf og ljóðabók til að gefa í aðra afmælisgjöf. Þá lá leiðin í Hljómalind en ég ætlaði bara að stoppa stutt með nokkur eintök af Dagbókinni til gjafar í fanginu. Sagði samt við Einar ljóðalurk þegar ég mætti, ég á afmæli í dag og varð það úr að allir á kaffihúsinu sungu fyrir mig og ég fékk dýrindis vegan köku og latte. Hitti þar nokkra íslandsvini mína og tók maríuhænu upp úr töskunni og leyfi henni að vera með.
Það er greinilegt að mamma er eitthvað að þvælast hér, Einar hélt að ég borðaði ekki rjóma og gjaf mér því "grænar baunir" með kökunni. Ég hefði haldið að hann væri búinn að missa það, ef fyrir mér hefði ekki rifjast upp minning um mömmu. Hún ætlaði eitt sinn að ganga fram af afa sem var þekktur fyrir að blanda saman undarlegum mat og fékk sér grænar baunir út á ís. (afa fannst þetta bara ágæt hugmynd af mixi). Þannig hefur hún laumað sér í huga Einars til að minna á sig.
Svo var brunað í vinnuna og var tekið á móti mér með afmælissöng og hnausþykkri súkkulaðiköku. Svo kom varaformaðurinn með bráðfallegt blóm handa mér og framkvæmdastýran með glæsilega pottaplöntu sem ég ætla að hafa í kosningamiðstöðinni fram yfir kosningar sem lukkudýr.
Ég fékk skrilljón símtöl og fallega tölvupósta, svo voru börnin mín svo góð við mig. Um kvöldið fór ég að kyrja, þetta var sá tími mánaðarins þar sem svokallaðir fræðslufundir eiga sér stað og var umræðuefnið hvernig jarðneskar langanir séu undirrót uppljómunar. Hvernig maður getir verið alkemisti í sínu eigin lífi og breytt þjáningu í meðal, eða eitri í gull. Og þar fékk ég líka köku og staðfestingu á því að ég þrátt fyrir háan aldur þá gæti ég enn lært.
Ég hafði einmitt lært eitthvað ákaflega dýrmætt: Með því að biðja um það sem ég vildi, fékk ég nákvæmlega það sem ég vildi. Og ég sá að mamma hafði án þess að vita það gefið mér dýrmæta gjöf þegar hún gleymdi 16 ára afmælinu mínu. Ég lærði hægt og bítandi að biðja um það sem ég vil. Það er enginn smá gjöf.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.4.2007 | 16:28
Athugið, athugið... Kameljónið á afmæli á morgunn
Í tilefni stórafmælis míns á morgunn 17. apríl, þar sem ég mun verða hálf áttræð og komast á hinn virðulega fimmtugsaldur mun ég vera til viðtals fyrir vini og vandamenn. Engin afmælisveisla fyrr en ég verð 41, enda miklu flottari tala... Vænti þess að vinir og velunarar sendi mér afmælisskeyti via tölvupóst ellegar mun ég falla í hamslausa sjálfsvorkun... Það er líka alveg nóg að skilja eftir skilaboð hér á blogginu:) Takið daginn frá á næsta ári... lofa stórafmælisveislu með allskonar velgjörningi...
Ég mun eyða deginum á morgunn í minni stórskemmtilegu vinnu en láta mér bregða í Mál og Menningu klukkan 10 þegar þjóðargjöfin hefst...
Gjafir, blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en ég hygg bjóða öllum þeim sem vilja að þiggja skáldsögu mína Dagbók kameljónsins að gjöf á morgunn. Afmælisdagar eru miklu skemmtilegri þegar maður gefur eitthvað. Ég gaf til dæmis ömmu minni gjöf sem hún gat gefið öðrum þegar hún varð 80 ára. Bjó til fallega bók með skýjamyndum eftir hana og ljóðum og öðru fallegu, svo gat hún gefið öllum sem henni langaði þessa sérútgáfu.. Handgerð og allt:) Ömmu þótti mjög gaman að gefa bókina sína og þannig gat ein gjöf glatt marga...
Þeir sem vilja bókagjöfina mína geta nálgast hana í Kaffi Hljómalind, mun fara með nokkur eintök þangað í fyrramálið, kannski mun ég líka skilja hana eftir á skringilegum stöðum, eins og í strætóskýlum ef ég hef tíma...
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
15.4.2007 | 23:02
Samkvæm sjálfri sér
enda ekki við öðru að búast af henni. Hefði ekkert á móti því að fá þessa plötu í afmælisgjöf... girnist sjaldan plötur en það er alltaf ákveðinn viðburður þegar kemur út nýr diskur með henni... alltaf óvænt ævintýraferð og tilfinningarússibani. Hún hefur einhvern svo sérstakan hljóm í rödd sinni að oftar en ekki fæ ég gæsahúð og eitt og eitt tár trítlar niður kinnarnar... veit ekki hvort að það sé gleðitár eða ekki...
merkilegt akkúrat þegar ég var að skrifa ævintýri fór einhver tölvuleikjatónlist af stað í lokuðum pc laptop sem liggur hér við hliðina á mínum... svo slökknaði á honum, og tölvan fór aftur í svefnmók...
![]() |
Volta staðfestir stöðu Bjarkar sem eins áhugaverðasta tónlistamannsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.4.2007 | 15:27
Og spennan eykst...
... ætli þeim takist að berja saman lista fyrir kosningar?
... ætli þeim takist að fá undirskriftir til að fá umboð til að bjóða fram?
ég er eiginlega í sálarkreppu út af þessu. mér fannst það hið besta mál að það kæmi hægri grænn flokkur... og hugmynd Ómars gjöfug að búa til valkost fyrir sjálstæðisfólkið sem finnst flokkurinn of íhaldsblár...
en svo hef ég verið að skoða pólitískan bakgrunn þeirra sem ætla sér frama í þessu framboði og sýnist hugmyndafræðilega þau muni ekki getað starfað saman heilshugar, ekkert frekar en bræðingur vinstrimanna í samfó.
Jakob er úr samfylkingunni
Ómar sjálfstæðismaður
Margrét er Frjálslynd
Veit ekki alveg hvaða flokk Ósk hefur kosið eða stutt... var að vona að hún væri bara anarkisti í hjarta sínu
Ólafur er úr Þjóðarhreyfingunni
þetta er nú svona pínuponsu geðklofa dæmi...
tek það fram að ég virði alveg tilraun þeirra en hygg að hún muni ekki skila miklum árangri... finnst ekki falleg siðfræði að reyna að veiða til sín fólk sem voru jafnvel stofnendur VG í hægri flokk... þessar veiðar hafa ekki skilað tilætluðum árangri nema síður sé... ég fyllist bara einskonar vantrausti á fólk sem beitir slíkum aðferðum...
![]() |
Ómar og Margrét leiða lista Íslandshreyfingarinnar í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.4.2007 | 07:13
Landsvirkjun hagar sér eins og einræðisríki
![]() |
Vilja að Landsvirkjun hætti undirbúningi að stórvirkjunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.4.2007 | 06:34
Heimsókn í kirkjugarð og útvarpsþáttur um mömmu
Í gær fór ég með börnin mín í heimsókn til ömmu í Hveró. Þó hún sé orðin hálfblind blessunun skal það aldrei bregðast að gerðar séu lummur, þær eru sérstaklega gerðar fyrir Neptúnus og fullkomnlega vegan. Þá vill hún alltaf hafa hlaðborð af ýmsum kræsingum handa okkur. Amma býr til alveg sérstakt kúmenkaffi og er skemmtileg sögukona þegar sá gállinn er á henni. Við áttum góða stund hjá henni. Á heimleið ákvað ég að koma við í Kotstrandakirkjugarði og kíkja á leiðið hennar mömmu. Rosalega var það erfitt, miklu erfiðara en þegar hún var sett ofan í jörðina. Blómin voru sölnuð á leiðinu og þetta var eitthvað svo einmannalegt. Ég ætla að reyna að finna einhvern sem getur gert fyrir okkur gítarstein merktan henni og skella þarna við tækifæri. En tárin og söknuðurinn er allt liður í því að lifa með sorginni. Því það er sorg og hana má ekki kæfa né henni afneita.
Annars fékk ég gleðifréttir á föstudaginn, þá fékk ég símtal frá Andreu Jónsdóttur og hefur henni verið falið að setja saman 2 tíma þátt á rás 2 um mömmu sem verður útvarpað 1. maí. Fullkomin dagsetning... og ég er sannfærð um að þessi þáttur verður mjög góður, enda ekki margir íslenskir útvarpsmenn eða konur sem standast samanburð við Andreu þegar kemur að umfjöllun um tónlist.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.4.2007 | 06:21
Sérstök rödd og útgeislun
![]() |
Verkmenntaskólinn á Akureyri vann Söngkeppni framhaldsskólanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.4.2007 | 07:43
Af hverju má drekka alls staðar en ekki reykja?
Maður heyrir aldrei sögur af reykingafólki gera eins fábjánalega hluti og fólk undir áhrifum áfengis. Þá hef ég aldrei lesið um eða frétt af neinum sem lemur einhvern eða keyrir niður mann og annan undir nikótínæði samanber ölæði. Sama dag og tilkynnt var um hámark foræðishyggjunar í tengslum við þetta fáránlega reykingabann, les maður enn og aftur um fólk sem missir allt niðrum sig í ölæði en oftast er fólki fyrirgefið: hann eða hún voru ofurölvi og vissu ekki hvað þau gerðu. Morð hafa jafnvel verið réttlæt undir þessum formerkjum.
Mér finnst allt í lagi að fólk reyki á börum og kaffihúsum á meðan það er löglegt að kaupa tóbak. Ef allir reykja á vinnustað þá er fáránlegt að segja að það skaði aðra ef fólk reykir þar og þessar hugmyndir um þessi skýli eru nú bara mesta bull sem ég hef heyrt í langan tíma. Það verður virkilega gott fyrir samfélagið okkar þegar drykkja fer meira fram í heimahúsum, sér í lagi þar sem börn eru. Af hverju er í lagi að fólk drekki meðan það er að sinna börnum sínum, keyri jafnvel fullt með þau í bílunum sínum. Auðvitað er ekki í lagi að reykja ofan í fólk en mér hefur nú sýnst reykingamenn taki mun meira tillit til annarra svona á heildina litið en þeir sem drekka.
Vona að næsta herferð gegn einhverju verði gegn þeim sem drekka, hvað ætli sú fíkn kosti samfélagið? Hvað ætli drykkja annarra hafi rústað mörgum lífum?
![]() |
Skemmdu tæplega 30 bifreiðar í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tenglar
Nýja Ísland
Ég les:
Tíbet
- Fréttir frá Tibet
- Tibet Info Net An Independent Information Service on Contemporary Tibet
- Undercover in Tibet Ný heimildarmynd frá Channel 4 um hvernig ástandið er í raun og veru í Tíbet
- Leaving Fear Behind Viðtöl við Tíbeta í Tíbet stuttu fyrir mótmælin í mars
- Cry of the Snow Lion Margverðlaunuð heimildarmynd um Tíbet
- Yeti - heimildarmynd
- Yogis of Tibet Heimildarmynd um Jógameistara Tíbets sem eru óðum að hverfa
- Students for a Free Tibet
- Dalai Lama
- Tibetan Uprising
- Kerti fyrir Tíbet
- Tibet TV
- Central Tibetan Administration
- Om mani padme hum
Ýmsar slóðir
sem ég man eftir í andartakinu
- The Hunger Site
- THE MEATRIX
- Myspace síðan mín
- Úgáfan Beyond Borders Alþjóðleg útgáfa sem ég stofnaði árið 1999 í netheimum
- Hitt bloggið mitt
- Félagið Ísland-Palestína
- Womb of Creation Vefurinn minn sem ég hef haldið við síðan 1995
- Myspace síðan hennar mömmu
- Saving Iceland
- Be the change:)
- Náttúra vefur með umhverfisvitund
- Nattura info
- Care 2 make a Difference
Bækur
Bækurnar mínar
-
: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni -
: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra. -
: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónhlaða
Bloggvinir
-
ADHD
-
Agný
-
Alfreð Símonarson
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Alexandra Briem
-
Andrés Magnússon
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Ari Sigurðsson
-
Baldvin Björgvinsson
-
Baldvin Jónsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bara Steini
-
Bergur Sigurðsson
-
Bergur Thorberg
-
Bergur Þór Ingólfsson
-
Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
-
Binnan
-
Birgir Þórarinsson
-
Birna Rebekka Björnsdóttir
-
Bjargandi Íslandi
-
Bjarkey Gunnarsdóttir
-
Björgvin R. Leifsson
-
SVB
-
Brjánn Guðjónsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
-
Brynja skordal
-
Brynjar Hólm Bjarnason
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Daníel Haukur
-
Dorje
-
Dísa Dóra
-
Egill Bjarnason
-
Egill Jóhannsson
-
Einar Guðjónsson
-
Einar Indriðason
-
Einar Vignir Einarsson
-
Einar Ólafsson
-
Eiríkur Bergmann Einarsson
-
Eldur Ísidór
-
Elyas
-
Elín Sigurðardóttir
-
Elísabet Markúsdóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Erna Hákonardóttir Pomrenke
-
Eva Benjamínsdóttir
-
Eydís Hentze Pétursdóttir
-
Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Finnur Bárðarson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Fríða Eyland
-
Félag Anti-Rasista
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Gaukur Úlfarsson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Gerður Pálma
-
Gestur Guðjónsson
-
Goggi
-
Greta Björg Úlfsdóttir
-
Gunnar Pétursson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnlaugur B Ólafsson
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Bergmann
-
Guðjón Heiðar Valgarðsson
-
Guðmundur Helgi Helgason
-
Guðmundur M Ásgeirsson
-
Guðmundur Ragnar Guðmundsson
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Guðný Lára
-
Guðrún S Sigurðardóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gísli Hjálmar
-
Haffi
-
Halldór Sigurðsson
-
Hannibal Garcia Lorca
-
Haukur Már Helgason
-
Heidi Strand
-
Heilsa 107
-
Heiða Þórðar
-
Helga Auðunsdóttir
-
Kaleb Joshua
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Himmalingur
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlekkur
-
Hlynur Hallsson
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Hlédís
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Hulla Dan
-
Hólmfríður Guðlaug Einarsdóttir
-
Hörður B Hjartarson
-
Húmoristaflokkurinn
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingibjörg Helga
-
Ingibjörg SoS
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Isis
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jakob Smári Magnússon
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jens Guð
-
Johann Trast Palmason
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jón Bjarnason
-
Jón Gerald Sullenberger
-
Jón Sigurgeirsson
-
Jón Svavarsson
-
Jón Valur Jensson
-
Jón Þór Ólafsson
-
DÓNAS
-
Katrín Mixa
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Ketill Sigurjónsson
-
Ketilás
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristbergur O Pétursson
-
Kristján B. Jónasson
-
Kristján Kristjánsson
-
Kristján Logason
-
Kristín Dýrfjörð
-
Kristín Snorradóttir
-
Krummi
-
Kári Harðarson
-
Landvernd
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Lovísa
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lýður Árnason
-
Mafía-- Linda Róberts.
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
Margrét Lóa Jónsdóttir
-
Margrét Sigurðardóttir
-
Markús frá Djúpalæk
-
María Kristjánsdóttir
-
María Pétursdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Morgunblaðið
-
Myndlistarfélagið
-
Mál 214
-
Máni Ragnar Svansson
-
Neo
-
Oddi
-
Paul Nikolov
-
Perla
-
Pjetur Hafstein Lárusson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pálmi Guðmundsson
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Rannveig H
-
Ransu
-
Róbert Björnsson
-
Rögnvaldur Hreiðarsson
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Samstaða - bandalag grasrótarhópa
-
SeeingRed
-
Sema Erla Serdar
-
Sigga
-
Signý
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
-
Sigurgeir Þór Hreggviðsson
-
Sigurjón Sigurðsson
-
Sigurður Hrellir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þór Guðjónsson
-
Skuldlaus
-
Snorri Sturluson
-
Soffía Valdimarsdóttir
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
-
Stríða
-
Sveinbjörn Eysteinsson
-
Sveinn Hjörtur
-
Sveinn Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Swami Karunananda
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sævar Finnbogason
-
Sævar Einarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Sóley Tómasdóttir
-
Sólveig Klara Káradóttir
-
TARA
-
Tilkynning
-
Tinna Jónsdóttir
-
Trausti Traustason
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Tína
-
TómasHa
-
Valgeir Skagfjörð
-
Valgerður Halldórsdóttir
-
Vefritid
-
Vilborg Eggertsdóttir
-
Vilhelmina af Ugglas
-
Vilhjálmur Árnason
-
Villi Asgeirsson
-
Vinir Tíbets
-
Viðar Eggertsson
-
Viðar Freyr Guðmundsson
-
Vér Morðingjar
-
Vésteinn Valgarðsson
-
arnar valgeirsson
-
fingurbjorg
-
hreinsamviska
-
leyla
-
molta
-
oktober
-
Einhver Ágúst
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Ár & síð
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Ásgerður
-
Ásta Hafberg S.
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Ævar Rafn Kjartansson
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Ólaf de Fleur Jóhannesson
-
Ólafur fannberg
-
Ólöf de Bont
-
Ómar Ragnarsson
-
Óskar Arnórsson
-
Örlygur Hnefill Örlygsson
-
Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
-
Þröstur Unnar
-
Þór Jóhannesson
-
Þór Saari
-
Þórhildur og Kristín
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Andrés.si
-
Anna Karlsdóttir
-
Anna Margrét Bjarnadóttir
-
Ari Jósepsson
-
Aron Ingi Ólason
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Barði Bárðarson
-
Bergþór Gunnlaugsson
-
Billi bilaði
-
Bjarki Steingrímsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Bogi Jónsson
-
brahim
-
Daði Ingólfsson
-
Daníel Sigurður Eðvaldsson
-
Dóra litla
-
Dúa
-
Einar Björn Bjarnason
-
Elsabet Sigurðardóttir
-
Esther Anna Jóhannsdóttir
-
Frosti Sigurjónsson
-
Grétar Eiríksson
-
Guðbjörg Hrafnsdóttir
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Héðinn Björnsson
-
Hreyfingin
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Högni Snær Hauksson
-
Ingvi Rúnar Einarsson
-
Ísleifur Gíslason
-
Jack Daniel's
-
Jóhann Ágúst Hansen
-
Jóhannes Þór Skúlason
-
Jóhann Pétur
-
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
-
Jónas Bjarnason
-
Jón Kristófer Arnarson
-
Jón Lárusson
-
Karl Gauti Hjaltason
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Madhav Davíð Goyal
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Morten Lange
-
Óðinn Kári Karlsson
-
Ólafur Eiríksson
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Rafn Gíslason
-
Rannsóknarskýrslan
-
Rúnar Freyr Þorsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Sigurður Einarsson
-
Sigurður Jónsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Sveinbjörn Ragnar Árnason
-
Vaktin
-
Vilhjálmur Sveinn Björnsson
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson