Leita í fréttum mbl.is

Samkvæm sjálfri sér

enda ekki við öðru að búast af henni. Hefði ekkert á móti því að fá þessa plötu í afmælisgjöf... girnist sjaldan plötur en það er alltaf ákveðinn viðburður þegar kemur út nýr diskur með henni... alltaf óvænt ævintýraferð og tilfinningarússibani. Hún hefur einhvern svo sérstakan hljóm í rödd sinni að oftar en ekki fæ ég gæsahúð og eitt og eitt tár trítlar niður kinnarnar... veit ekki hvort að það sé gleðitár eða ekki...

merkilegt akkúrat þegar ég var að skrifa ævintýri fór einhver tölvuleikjatónlist af stað í lokuðum pc laptop sem liggur hér við hliðina á mínum... svo slökknaði á honum, og tölvan fór aftur í svefnmók...


mbl.is Volta staðfestir stöðu Bjarkar sem eins áhugaverðasta tónlistamannsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Júlía

Ég skil reyndar ekki þessa setningu :  "Björk eigi sér engan jafningja í popptónlist um þessar mundir og hugsanlega sé breski tónlistamaðurinn Damon Albarn sá eini, sem hafi lagt sig jafn mikið fram við að tryggja, að hann endurtaki sig ekki."  Að hann endurtaki sig ekki hvað ?  Jú í þessum skrifuðu orðum skil ég hvað verið er að meina . Bara illa orðað.  

Verið er að meina að Damon Albarn leggur sig mikið fram til að tryggja að hann endurtaki sig ekki í tónlist.  Líkt og Björk.

Hún er mikið náttúrutalent.  

Ester Júlía, 15.4.2007 kl. 23:23

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Sammála, hygg að þetta sé bara illa þýtt hjá þeim sem sér um mbl.is. Oft eru fréttirnar svo illa matreiddar ofan í okkur að maður skilur hvorki upp né niður í hvað er verið að segja. Þetta er sennilega ekki orðað svona í ensku greininni.

Annars er ég ekki alveg sammála þessari grein... og furðulegt að miða hana við öðlinginn Albarn.

Birgitta Jónsdóttir, 16.4.2007 kl. 06:31

3 Smámynd: Ester Júlía

Þetta stakk mig líka.  Finnst skrýtið að miða hana við Damon Albarn... hann er reyndar flottur tónlistarmaður en kemst ekki með tærnar þar sem hún hefur hælana.   

Ester Júlía, 16.4.2007 kl. 07:06

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já verð að viðurkenna að mér fannst það sama. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.4.2007 kl. 09:18

5 identicon

Fyrir utan það að Damon hefur átt velgengni að fagna með hljómsveitinni Blur þá hefur honum tekist að hasla sér völl með tveimur hliðarverkefnum: Gorillaz og The Good, The Bad and the Queen. Held að hann hafi ná meiri velgengni í Bandaríkjunum með þessum tveimur sveitum heldur en með Blur. Hann er í öllu falli ekki staðnaður tónlistarlega séð, eins og réttilega er bent á í greinni hér að ofan. Hann hefur einnig gefið út eina sólóplötu.

Nú hefur Björk verið lengur að og hugsanlega selt fleiri plötur í það heila, en ég get ekki séð í hvaða samhengi tær Damons og hælar Bjarkar ættu að þurfa að metast. Varla eru þau að keppast um hylli sömu aðdáenda. Þau eru það ólíkir tónlistarmenn.

Eina forsendan sem ég sé fyrir því að blaðamönnum finnst skemmtilegt að nefna þau í sömu andrá er sú að hann hefur búið í heimalandi hennar og hún í heimalandi hans. Og jú, hann var aðdáandi Sykurmolanna þegar hann var ungur, en í dag eru tónlistarlegir tær hans á allt öðrum stað heldur en hennar rytmaföstu hælar.

Hún er mikið náttúrutalent, vissulega. En hann er enginn aukvisi heldur.

Kristian Guttesen (IP-tala skráð) 16.4.2007 kl. 11:50

6 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Held að enginn sé að kasta rýrð á hann. Þessi þráður byrjaði eiginlega út af arfalélegri þýðingu ... þar sem málfarið var slíkt að varla var hægt að skilja það sem stóð þar...

Birgitta Jónsdóttir, 16.4.2007 kl. 12:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31