Leita í fréttum mbl.is

Og spennan eykst...

... ætli þeim takist að berja saman lista fyrir kosningar?
... ætli þeim takist að fá undirskriftir til að fá umboð til að bjóða fram?

ég er eiginlega í sálarkreppu út af þessu. mér fannst það hið besta mál að það kæmi hægri grænn flokkur... og hugmynd Ómars gjöfug að búa til valkost fyrir sjálstæðisfólkið sem finnst flokkurinn of íhaldsblár...

en svo hef ég verið að skoða pólitískan bakgrunn þeirra sem ætla sér frama í þessu framboði og sýnist hugmyndafræðilega þau muni ekki getað starfað saman heilshugar, ekkert frekar en bræðingur vinstrimanna í samfó.

Jakob er úr samfylkingunni
Ómar sjálfstæðismaður
Margrét er Frjálslynd
Veit ekki alveg hvaða flokk Ósk hefur kosið eða stutt... var að vona að hún væri bara anarkisti í hjarta sínu
Ólafur er úr Þjóðarhreyfingunni
þetta er nú svona pínuponsu geðklofa dæmi...

tek það fram að ég virði alveg tilraun þeirra en hygg að hún muni ekki skila miklum árangri... finnst ekki falleg siðfræði að reyna að veiða til sín fólk sem voru jafnvel stofnendur VG í hægri flokk... þessar veiðar hafa ekki skilað tilætluðum árangri nema síður sé... ég fyllist bara einskonar vantrausti á fólk sem beitir slíkum aðferðum...


mbl.is Ómar og Margrét leiða lista Íslandshreyfingarinnar í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sammála, sammála, sammála.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.4.2007 kl. 15:36

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Aldrei hefði ég trúað því að hægri menn væru svona fíngerðir. Að það þyrfti að bera á borð fyrir þá sérrétt til að þeir fengjust til að matast. En svona er nú þetta. Frjálshyggjan, markaðshyggjan og græðgin er það vítamín sem hægri öflin hafa nærst á og munu nærast á. Það eru afleiðngar þessarar pólitísku stefnu sem græna stefnan berst við um allan heim. Græna stefnan sér að verði ekki vikið af vegi græðgi og markaðshyggju er voðinn vís og hann blasir við nú þegar að dómi færustu náttúruvísindamanna um allan heim.

Framboð með þessa pólitísku þverstæðu í bakgrunni og sem baráttumál er mesti tvískinnungsháttur sem ég hef orðið vitni að á langri ævi. Ekki treysti ég mér til að lifa á sölu kjúklingakjöts og berjast jafnframt gegn kjúklingaeldi.

Árni Gunnarsson, 15.4.2007 kl. 16:22

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

lol

góð myndlíking Árni...

Birgitta Jónsdóttir, 15.4.2007 kl. 16:45

4 Smámynd: Jens Guð

  Íhaldshreyfingin er fallin á tíma.  Hafi hún yfir höfuð einhvern tímann átt möguleika.  Mjög illa hefur gengið að berja saman framboðslistum.  Mér skilst að einungis hafi með miklum vandræðagangi tekist að raða í nokkur sæti í tveimur kjördæmum.  Ennþá verra gengur að safna á meðmælendalista.  Það er víst ekki búið að ná að fylla einn einasta meðmælalista á öllu landinu.

  Mest er ég undrandi á Margréti Sverris.  Hún kyngir því að Í-hreyfinging sé kvótaflokkur.  Var baráttan gegn kvótakerfinu þó áður aðal baráttumál Möggu.  Jafnframt sættir Magga sig við Í-hreifingin vilji að Ísland gangi í Evrópusambandið.  Það er líka kúvending.

  Þetta er ekki traustvekjandi.  Þar fyrir utan eru hægri menn ekki grænir.  Það kom glöggt fram þegar Ólafur F.  Magnússon var púaður niður á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins fyrir nokkrum árum. 

Jens Guð, 15.4.2007 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 508764

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.