Leita í fréttum mbl.is

Er hinn alþjóðlegi nöldurdagur í dag?

Hvað er eiginlega að fólki að vera sífellt að tala um foræðishyggju ef VG lætur í sér heyra. Það er eins og fólk lesi bara fyrirsagnir á svona fréttum og lætur misvitrar athugasemdir fjúka í engu samhengi við fréttina. Þarna stendur til dæmis að verið er að taka undir yfirlýsingar borgarstjóra sem ég hélt að væri í allt öðrum flokki. Kannski er Villi bara genginn í VG. Hann vill allavega gert margt sem VG lögðu grunninn að í borgarstjórn á sínum tíma sem er hið besta mál.

Ég styð það heilshugar að húsin verða endurbyggð í sinni upprunalegu mynd. Það væri menningarlegt slys að gera það ekki. Sér í lagi er mér Lækjargata 2 hjartfólgin, átti ófáar stundir á kaffihúsinu Mensu og ógleymanlegar minningar sem tengjast manninum mínum heitnum á veitingastað sem var þar eitt sinn.


mbl.is VG hvetur til samstöðu um endurreisn húsanna sem brunnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ár & síð

Og það þarf að gæta þess að mest ljósmyndaða horn borgarinnar einkennist ekki af kókauglýsingu, kebabsjoppu og hraðbanka, hraklegum dæmum um þá íslensku skyndilausnamenningu sem nú tröllríður öllu.

Menn verða líka að fara  að koma sér út úr þessum leiðindaham í kosningabaráttu að segja alla aðra en fólk í sama flokki og maður sjálfur vera fífl. Miklu fleira sameinar en sundrar, jafnvel í landsmálapólitíkinni.

Ár & síð, 21.4.2007 kl. 13:32

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Alveg sammála þér í þessu. Þó svo ég styðji einhvern flokk eins og til dæmis VG núna, þá þýðir það ekki að ég sjái ekkert nema fífl í öðrum flokkum.

Ef af verður að borgin kaupi húsin sem brunnu þá skilst mér að þau verði endurbyggð í sem upprunalegustu mynd og þá væntanlega verða kókauglýsingar og annað sem tengist skyndibitalausnamenningu okkar ekki sett á húsin:)

Birgitta Jónsdóttir, 22.4.2007 kl. 06:07

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég myndi vilja hafa þau í svipuðum stíl, er ekki viss um að gamla "Haraldarbúð" skipti höfuðmáli enda ekki upphafleg fjöl í því húsi og búið að augnstinga það.  En götumyndin verður að vera svipuð.  Svo vildi ég sjá meira líf þarna yfir daginn, þe Austurstræismegin.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.4.2007 kl. 20:40

4 Smámynd: Ólafía Ingibjörg Sverrisdóttir

eg myndi vilja hafa þau eins og þau voru enn það er mikil vinna að gera upp svona hus auðvitað

Ólafía Ingibjörg Sverrisdóttir, 25.4.2007 kl. 20:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband