Leita í fréttum mbl.is

AGS stjórnar Íslandi

Þessi frétt og yfirlýsing Franek ætti svo sem ekki að koma neinum á óvart. Það sem kemur mér á óvart er þögn Steingríms varðandi til dæmis þetta tiltekna atriði samningsins. Það að samið hafi verið um einhvern ramma varðandi hámark stýrivaxtalækkun er hrein og klár aðför að þjóðarhagsmunum.

Þeir aðilar sem rituðu undir samninginn við AGS ruddu brautina að einhverju sem jafnvel sérfræðingar AGS klóruðu sér í hausnum yfir. Okkar samningsmenn hreinlega sömdu ekki neitt - heldur skrifuðu bljúgir undir án þess þó að einhver keyrði byssu í bakið á þeim. Ég hef horft á heilmargar heimildarmyndir um AGS og lesið um þessa stofnun sem alla jafna skilur eftir sig sviðna jörð í þeim löndum sem hún hefur afskipti af. Það vakti athygli mína að einn af samningsmönnum Jamaíka ræddi um hvernig hann hefði barist á hæl og hnakka fyrir því að fá betri samning - hvert prósentustig samningsins - tímalína og annað var rætt um og reynt að fá betri skilyrði. (AGS fór samt sem áður alveg hræðilega illa með Jamaíka samt sem áður og á tveimur árum var landbúnaði landsins rústað).

Ég krefst þess að það verði gerður nýr samningur við AGS ellegar að skila þessu láni án tafar. Hér er ný ríkisstjórn og eðlilegt að þetta verði endurskoðað enda ljóst að við munum ekki geta greitt þetta lán á tíma án þess að rústa hér allri grunnþjónustu.

Hlustum á þann fjölda fólks sem hefur varað okkur við undanfarna mánuði. Skellum ekki skollaeyrum við eins og gert var fyrir bankahrundið.


mbl.is Vaxtastefnunni hafi verið lýst í viljayfirlýsingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marteinn Unnar Heiðarsson

Ég vildi að nú væru kosningar og fólk væri búið að sjá að þessi starfandi stjórn er gjörsamlega vanhæf,Steingrímur búinn að svíkja sína kjósendur varðandi ESB og Jóhanna hugsar númer 1,2 og 3 eingöngu um ESB.Ef þetta á að verða svona og AGS á að ráða hér náum við okkur aldrei upp aftur,það er vitað að AGS og ESB eru í miklum tengslum og númer 1 hjá þeim er að auðmenn haldi sínum peningum sama hvað það kostar fyrir þjóðina.Er ekki komin tími á aðra byltingu um vanahæfa ríkisstjórn áður en það verður of seint.Steingrímur vildi skila láni AGS fyrir kosningar en hvað nú? nú skiptir stóllinn meira máli en hagur þjóðarinnar.Ég vill byltingu og það strax,og ef hávaði fyrir utan alþingi dugir ekki svo þessir landráðamenn skilji okkur þá er bara að láta sverfa til stáls.

Marteinn Unnar Heiðarsson, 16.5.2009 kl. 11:26

2 identicon

Bíddu...var ekki Davíð Oddson sem var orsökin ??

hmm.... kannski höfum við verið plötuð allann tíman ??

Þetta land er komið á hausinn, og því fyrr sem tekið verður á málunum svoleiðis því betra ! 

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 16.5.2009 kl. 11:33

3 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Talaðu við Steingrím Birgitta, eruð þið í Borgarahreyfingunni ekki komin með aukaaðild að ríkisstjórninni?

Hjörtur J. Guðmundsson, 16.5.2009 kl. 11:57

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Hjörtur: við brutum hefðir með því að fara í bandalag varðandi nefndasetu einmitt vegna þess að með þessu bandalagi þurftum við ekki að fórna neinu eða gera nein hrossakaup. Það er reginmisskilningur að halda að með því séum við með aukaaðild að ríkistjórninni. Ég hef alla vega ekki fengið nein skilaboð um það eða sóst eftir því. Við erum stjórnarandastaða og kunnum því ágætlega - við ætlum okkur aftur á móti að vinna öðruvísi en tíðkast hefur.

Ég veit svei mér þá ekki hvað gerist fyrir fólk þegar það kemst í æðstu valdastöður - veit ekki hvort að þetta fyrirkomulag stjórnarhátta passi okkar þjóðarsál - kannski ættum við að skoða aðra stjórnsýsluhætti meðal nágranna okkar - það er margt í þessari svissnesku sem ég er heilluð af. Ég held að leiðtogastjórnmál sé tímaskekkja - það æsir upp hjarðareðlið og fólk hættir að opinbera sýnar sjálfstæðu skoðanir. 

Birgitta Jónsdóttir, 16.5.2009 kl. 13:27

5 Smámynd: Þórdís Bachmann

Þetta er úr grein Michael Hudson sem kom hingað um daginn:

The Financial War Against Iceland:

“Iceland is facing a bold con job. Should it feel obliged to pay countries that have no intention of ever paying their own debts? To get paid, creditors must convince their prey to accept the falsehood that debts can and indeed should be paid.

The lie is that they can be paid without dismantling social democracy, selling off the public domain and polarizing society between creditors and debtors.”

“Creditors everywhere else in the world are writing down their claims for payment to reflect plunging property values. Iceland has an opportunity to make itself a model test case for economic justice. What better time to post the basic principle of what is to be saved – an unsupportable debt burden that must collapse in the end, or a society’s survival? Will the government defend its citizens from financial predators, or turn the economy over to them?

That is the question.”

Málið er: Við erum ekki bara fórnarlömb vondra kalla í útlöndum. Við erum fórnarlömb okkar eigin fólks, sem semur af sér (af mér!), sem stelur og svíkur og ullar svo framan í okkur og segir að okkur komi það ekki við - eða hafið þið heyrt frasann "bankaleynd"?!

Við erum fórnarlömb fólks sem svífst einskis og sem fyrirlítur okkur - þótt við séum nógu góð til að borga undir það líf í lystisemdum.

Þessu verður að breyta - núna - annars verður hér ekkert hagkerfi til að rústa - engin líf til að skerða.

Þórdís Bachmann, 16.5.2009 kl. 14:04

6 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Það er mikil vá fyrir dyrum. Nú ríður á að Borgarahreyfingin haldi vöku sinni og noti einmitt óhefðbundnar aðferðir til þess.

Arinbjörn Kúld, 16.5.2009 kl. 14:47

7 Smámynd: Björn Kjartansson

Borgarahreifinginn opinberar það að hún er armur vinstri gæna með þessu sen birgitta kallar að brjóta upp hefðir Þið voruð ekki kosinn til þess að brjóta hefðir heldu til að koma fólkinu til hjápar.

Björn Kjartansson, 16.5.2009 kl. 14:54

8 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

takk fyrir að pósta þessari grein Þórdís alveg sammála þér og Arinbirni - við stöndum frammi fyrir mikilli vá og það þarf að gera allt sem hægt er til að vekja almenning til vitundar hvert stefnir áður en það verður of seint. Við erum eins og værukærir froskar sem verið er að sjóða á vægum hita án þess að taka eftir því.

ég skil eiginlega ekkert hvað þú ert að tala um Björn - ég er mér að vitandi eini þingmaður xo sem hefur verið flokksbundinn VG - en varðandi hefðirnar þá er það langt í frá að vera aðalmálið hjá okkur - við erum bara að fóta okkur innan þingskapa og finna leiðir til að finna málefnum okkar farveg - það væri þó heimskulegt að reisa aftur samfélagið á kviksandi hinum sama og hin óraunverulega gerviauðlegð okkar hvarf í - af hverju ætti fólk að þræla sér út í 10 ár í þjóðarsátt ef hér verður ekki raunveruleg breyting í grunninn - hér er allt rotið og fúið sem hið algera hrun sýndi okkur - það verður að spúla út - annars verður engin sátt í samfélaginu.

Birgitta Jónsdóttir, 16.5.2009 kl. 15:37

9 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Mér finnst skondin sum skotin á Borgarahreyfinguna. Þingið er nýhafið og Framsóknar og Sjálfstæðismenn eru brjálaðir af því að Borgarahreyfingin vinnur að sínum málum á sinn hátt en ekki með því að vera einfaldlega á móti öllu sem stjórnarflokkarnir gera. Mig hlakkar til að fylgjast með Borgarahreyfingunn næstu misseri. Það verður mikil vinna að koma Íslensku þjóðfélagi á fætur á ný og á eftir að taka tíma. Ég er bara feginn að Sjálfstæðis og Framsókarmenn stýra ekki þeirri vinnu. Þeir stjórnuðu allt of lengi og allir sjá hvar við erum í dag.

Ég vona bara að það verði hugarfarsbreyting hjá Íslendingum og að skammtíma og græðgisleiðin víki fyrir mýkri gildum.Það þarf að skapa traust á stjónsýsluna og þar er reyndar mikið verk fyrir höndum. Ég treysti því að Borgarahreyfingin noti sína krafta við það verkefni.

Kristján Kristjánsson, 16.5.2009 kl. 16:08

10 Smámynd: Einar Karl

Er í raun alveg sammála þér Birgitta, varðandi AGS. Vont að vera uppá þá komin og bersýnilegt t.d. ða þeir setja hagsmuni krónubréfaeigenda ofar en íslensks atvinnulífs, með kröfu um gígantiska stýrivexti.

EN - það er þversögn í því að vilja skila láninu, af þeirri ástæðu að við þurfum að greiða það of hratt tilbaka.

Einar Karl, 17.5.2009 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband