Leita í fréttum mbl.is

Enn grafa þeir gjá

340x-7.jpg

Augljóst er að kínverska alræðisstjórnin ætlar sér aldrei að fara í neinar málamiðlanir varðandi Tíbet. Ástandið í Tíbet hefur aldrei verið verra en hér ríkir einatt mikil þögn um málefni Tíbets. Ég hef fylgst með ástandinu í landinu og hef þungar áhyggjur af því hvernig alþjóðasamfélagið horfir fram hjá því þjóðarmorði sem þar fer fram fyrir nánast opnum tjöldum. Landið er enn lokað fyrir opinberar rannsóknir mannúðarsamtaka á afdrifum þeirra þúsunda Tíbeta sem hurfu eftir óeirðirnar í mars í fyrra.

Enn er fólk sett í fangelsi fyrir það eitt að neita að afneita Dalai Lama. Enn hverfur fjöldi fólks á ári hverju eða deyr út af pyntingum í fangelsum. Kínversk yfirvöld ögra og slá á útréttar hendur þeirra er vilja finna friðsamlega lausn og fá að fremja sitt menningarlega þjóðarmorð í friði fyrir alþjóðasamfélaginu. Skammarlegt.


mbl.is Útlegð Dalaí Lama verði minnst með hátíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

úff..er hægt að finna eitthvað smá horn á þessari guðsvoluðu jarðkringlu þar sem mannkynið kemur fram við hvort annað af virðingu og ást????

Andskotinn bara

Heiða B. Heiðars, 19.1.2009 kl. 10:50

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Við verðum bara að byrja á því og vona að það hafi áhrif á aðra - Tíbetar eru gott fordæmi um fólk sem hefur komið fram við kvalara sína af einstakri virðingu og reisn.

Birgitta Jónsdóttir, 19.1.2009 kl. 10:53

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Og Heiða - knús á þig - það er búið að vera svo gefandi að horfa á þig springa út eins og risastórt réttlætisblóm:)

Birgitta Jónsdóttir, 19.1.2009 kl. 10:54

4 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Það er svona að vera stanslaust innan um svona eldhuga eins og þig og fleiri :)
Þó það komi ekkert jákvætt út úr þessu hruni en allt það frábæra fólk sem ég hef kynnst þá er það hellingur xxx

Heiða B. Heiðars, 19.1.2009 kl. 11:42

5 Smámynd: Ingibjörg SoS

Á eftir að kynna mér þetta miklu betur. Hef samt lesið mér til heil ósköp á tenglasíðunum þínum, Birgitta. - Upplifi þvílíkan viðbjóð. Tíbetbúar svo einstaklega heilbrigðir. ...........Ræði þetta meir síðar. Þvílík dúndur gerjun innra með mér. Búin að vara þó nokkra mánuði nú. Reyndar alla mína æfi, en nú á mjög víðfermum nótum, - erfitt að útskíra. Auðveldara að upplifa. Mun deila með ykkur.......

Allavegana, - það er eitthvað stórmerkilegt að gerast á plánetunni okkar. Það eru líka óhugnanlegir hlutir að ryðjast upp á yfirborðið á einhvern nýjan hátt. ....NEI  - get ekki útskýrt.

Takk aftur fyrir þáttinn þinn hjá Jónasi, Birgitta. Snart mig djúpt.

Get allavega útskírt, að mér finnst yndislegt að lesa samræðurnar ykkar, - Birgitta og Heiða

Ingibjörg SoS, 19.1.2009 kl. 12:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 15
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 508814

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband