Leita í fréttum mbl.is

Mótmæli í Njarðvík í dag

Fann þetta skeyti inn á facebook áðan og vil endilega koma henni á framfæri og hvetja fólk til að mæta sem blöskrar aðgerðir lögreglu í gær gagnvart hælisleitendum. Vil jafnframt minna á að á sama tíma og verið var að leita hjá flóttafólkinu var lögreglan ekki að leita að manni sem auglýstur var í öllum fjölmiðlum sem lífshættulegur ofbeldismaður og slapp sá hinn sami úr landi á meðan verið var að gramsa í persónulegum munum hælisleitenda. Kaldhæðnislegt í meira lagi.

Boðað er til mótmælasamkomu fyrir utan Lögreglustöðina í Njarðvík í dag, föstudaginn 12. september, klukkan 14:00, til að mótmæla meðferð hælisleitenda á Íslandi og krefja lögregluna svara um aðgerð gærdagsins.

Við krefjumst þess að allir hælisleitendur á Íslandi fái sömu meðferð og væru þeir ráðherradætur, ráðherrasynir.

----

Til lögregluyfirvalda beinum við þessum spurningum:

Hvaða framkoma við hælisleitendur krafðist 58 lögreglumanna gegn 40? Hvaða aðstæður kröfðust aðkomu sérsveitarmanna?

Hvaða vopn báru sérsveitarmenn við aðgerðirnar, var þeim beitt, og hvaða tilefni þótti þá til þess?

Margir voru handjárnaðir við aðgerðirnar, að sögn lögreglu. Hversu margir, af hvaða tilefni og hversu lengi? Voru þeir handteknir? Verða þeir kærðir?

Hvaða lagaheimildir lágu að baki aðgerðinni? Ræðst lögmæti hennar af því hvaða gögn komu í leitirnar og hvaða upplýsingar þau geyma? Ef svo er, hvaða gögn voru það og hvernig er mikilvægi þeirra metið?

Voru allir hælisleitendur beittir sömu meðferð, en ekki aðeins þeir grunuðu?

Gerði lögreglan lögmætar eigur hælisleitenda upptækar? Eða er sannað að þetta hafi verið þýfi og/eða ólögmætar tekjur? Eru lagaheimildir lögreglunnar til þessarar aðgerðar skýrar?

Var brotið á viðurkenndum mannréttindum og lýðréttindum hælisleitenda í aðgerðinni – friðhelgi einkalífs, réttinum til réttlátrar málsmeðferðar?

---

Dómsmálaráðuneytið spyrjum við:

Er það satt að eftir mánaða eða ára bið í algjörri óvissu frétti hælisleitendur á Íslandi af brottvikningu sinni með 10-15 mínútna fyrirvara, áður en þeir eru fluttir á Leifsstöð?

Starfar Útlendingastofnun út frá óskrifuðum reglum um meðferð fólks á grundvelli kynþáttar, upprunalands og/eða fjárhags og stéttar?

Er réttarstaða hælisleitenda og annarra útlendinga sem hingað koma tryggð með lögum og varin með eftirlitsstofnunum? Eða hafa lögregluyfirvöld frjálsar hendur gagnvart þessu fólki? Ráða duttlungar för í meðferð þess?


---

Tekið skal fram að á Íslandi er rétturinn til að koma saman til mótmæla ekki háður leyfi neins yfirvalds.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er svolítið mikið vænisjúkt.  Lögregluyfirvöld hafa útskýrt hvers vegna farið var í þessar aðgerðir og að dómsúrskurður hafi legið fyrir.

Liðsmunurinn 58 á móti 40 er bara nokkuð eðlileg tala ef markmið aðgerðarinnar er að koma í veg fyrir að sönnunargögnum sé komið undan og tryggja öryggi.  Sérsveitarmenn vinna við almenna-löggæslu og aðstoða öll embætti landsins í stórum sem smáum verkefnum.  Af fréttamyndum að dæma eru sérsveitarmennirnir ekki vopnaðir skotvopnum frekar en aðrir lögreglumenn.  Lagaheimildir eru skýrar og lögreglan gerir aldrei hluti upptæka.  Árangur aðgerðarinnar var mjög góður að sögn lögreglustjóra.  T.d. góður á þann hátt að núna getur útlendingastofnun hraðað hælisumsóknum margra aðila sem hingað komu til lands og hafa logið til um hverjir þeir eru og eru á allan hátt ósamvinnufúsir við yfirvöld.

 Allir hælisleitendur eiga rétt á sömu meðferð hvort sem þeir eru Ramses eða séra Ramses.

Gunnar K. (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 13:08

2 identicon

Ég hef skömm á því hvimleiða fólki sem þarna sér ástæðu til að mótmæla algjörlega eðlilegum lögregluaðgerðum. Úr landi með þessa lán/vonlausu mótmælendur.

Stefán (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 13:39

3 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Endilega mótmæla þessu þetta er ótrúlegt, að menn þurfi að fara að lögum og ef þeir ekki geri það, sé von á löggimann, það er ekkert annað en ótrúlega léleg gestrisni, að ekki sé meira sagt, svo sem FASISMI, KommúnISMI nazISMI. ISMI ISMI og anfjölmennignarlegt --eitthvað.

Set inn það sem ég hef gert hjá Agli sjóðshaldara og Stormskerinu.

Alveg er ég sammála þér Egill, við verðum að láta alla njóta SÖMU MEÐÐFERÐAR. Annað er bara ljótt.

Setti þetta inn hjá Stormeskerinu um sama efni:

Nú er akkurat tíminn til að fleyta kertum, fara í mótmælagöngu, mótmælastöðu fyrir framan Dómsmálaráðuneytið og gera allt vitlaust.

Það er ótrúlega léleg gestrisni, að löggiman brjótist inn til að snuðra uppi rétt nafn og ríkisfang manna, sem hingað koma.

Svo eru þeir eitthvað að gera spooky að menn eigi smá skotsilfur og nokkur vegabréf.

Hvað er eiginlega að þessu liði? Ha, eins og það sé eitthvað asnalegt að eiga seðla til að redda smá málum? Ha, eru þessir menn svona kaldlyndir ?

Við fórum í allskonar göngur, stöður og fýlu, til að Ramses /Páll eða hvað svo sem hann heitir. fengi að vera hjá ,,konu sinni og barni” en ekki í sólinni á Ítalíu, enda vverða menn að fara að lögum þar, ferlega fúllyndir löggimannar þar.

Svo er það jafnréttisspursmál, að hinir sem eru að leita að hæli hér fái SÖMU MEÐFERÐ þegar ÞEIR LJÚGA EKKI NEITT MEIRA EN RAMSES EÐA hvað hann heitir. Jufhu eða hvað sem ættingjar hans segja.

Allir mega ljúga að löggimann, við verðum að skrifa lögguna upp og steikja á teini.

Miðbæjaríhaldið

Cosmopolitan og víðsýnn með afbrigðum

Bjarni Kjartansson, 12.9.2008 kl. 14:40

4 identicon

Auðvita átti þessi aðgerð rétt á sér. Fólk sem leynir vegabréfum sínum og öðrum einkennum fyrir yfirvöldum hefur einhverju að leyna og er það barnaskapur að halda annað.Í Noregi síðast þegar ég vissi voru um 200 hælisleitendur sem til og með höfðu brennd fingraför sín með sýru eða einhverju til að ekki væri hægt að finna út um upprunna þeirra.Það er fullt af fólki á ferðinni sem við viljum ekki hingað inn og einmitt það fólk gerir allt til að leyna sínum upprunna.Þó það kosti einhverja smá óþægindi þegar lögreglan reynir það sem hún getur til að hafa upp á óæskilegum hælisleitendum í búðum eins og í Keflavík þá verður bara að hafa það því mikið er í húfi.Og þeir sem eru með sitt á þurru ættu þá að fá fljótari afgreiðslu sinna mála þegar búið er að fækka í hópnum og eins hlýtur svona heimsókn að vera tilbreyting í annars tilbreytingarlausri bið.

Jon Mag (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 15:56

5 identicon

Hvar er lögreglustöðin í Njarðvík? Veit ekki til þess að það sé nein lögreglustöð í Njarðvík, nema ef vera skyldi uppi á Grænási (þar sem vallarlögreglan er/var til húsa).

Spyr sá sem ekki veit.

Elías (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 16:31

6 Smámynd: Gísli Sigurðsson

Að sjálfsögðu var lögreglan í fullum rétti að rannsaka mál þar sem grunur leikur á að eitthvað sé ekki eins og vera ber. Rétt eins og í öllum málum sem rannsaka þarf. Og annað, ég veit allavega um einn hælisleitanda sem er kominn í vinnu, og einn lögreglumaðurinn sem þarna var að störfum og vissi um hans hagi spurði hann hvort hann vildi ekki bara fara að drífa sig í vinnuna.

Gísli Sigurðsson, 12.9.2008 kl. 17:44

7 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

gott að benda á þetta og gæta mannréttinda þeirra sem eiga erfitt með að leita réttar síns.

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 12.9.2008 kl. 20:39

8 identicon

Það er alveg merkilegt að það er eins og það meigi ekki Slá á puttana eða Vísa útlendingum heðan burt án þess að allir verði Crazy.  Mer finst bara alti legi að það sé Gerð hús leit hjá þeim enda fundus í þessu tilfelli Svartir peningar uppá Sextánhundruð þúsund.( Dóp peningar).? Þá eru vissir einstaklingar í þessum hóp strax orðnir að sakamönnum . Enda finst mer bara allur vari góður það þarf ekki en að líta til Nágtrannalandana til að Sjá Hvernig inflitendamál eru þar gersamlega í klessu þanneg að það er ok að fara sér hægt í þessum efnum ..

Siggi (IP-tala skráð) 13.9.2008 kl. 04:59

9 Smámynd: Tína

Innlitskvitt og vikuskammtur af knúsi darling.

Tína, 13.9.2008 kl. 07:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 508746

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband