Leita í fréttum mbl.is

Skamm, skamm, skamm

Bréf til ráðamanna og kvenna

Nú get ég ekki orða bundist, svona ranglæti á ekki að viðgangast hérlendis. Æruverðugi Heilbriðisráðherra og æruverðugi Félagsmálaráðherra, svona aðför að fólki sem þarf á stuðningi samfélagsins fremur öllu öðru þarf að linna NÚNA. Er ekki nóg að þeir sem þurfa að treysta á almannatryggingar þurfi að glíma við andleg sem líkamleg mein? Það er ómennskt að láta fólk bíða í óvissu um fjárhag sinn og eiga ekki ofan í sig og á sem er í þessari stöðu. Ekki fá þau mikið meira frá samfélaginu þó börn séu á þeirra framfæri. Bæturnar eru líka fáránlega lágar og við ættum að skammast okkar fyrir að bjóða fólki upp á þetta. Þó fólk beri oft höfuð hátt og beri harm sinn í hljóði þá veit ég að það er fullt af fólki sem svona er ástatt um vegna þess að við getum ekki haft manndóm til að styðja við bakið á þeim sem okkur ber samfélagsleg skylda að hjálpa. Ég skora á ykkur að prófa að lifa á sömu tekjum og þessi kona. Ég skora á ykkur að gera eitthvað NÚNA. Erum við ekki í blússandi hagvexti? Af hverju skilar hann sér ekki inn í að laga meingalla í kerfinu svo að fólk þurfi ekki að upplifa svona lagað?

Ég skora á almenning að hugsa aðeins áður en það slær enn eitt metið í jólaverslun að staldra við og hugsa hvað hægt sé að gera til að rétta hag þeirra sem eiga enga möguleika á að gefa börnunum sínum jólagjafir hvað þá kaupa sér sjálft eitthvað til hátíðarbrigða. Hvernig væri nú að í stað Þorlálsmessukaupæðis fólk myndi fylkja liði til að sýna stuðning sinn í verki gagnvart þeim sem þurfa á honum að halda eins og til dæmis öryrkjar. Allir geta átt von á að missa heilsuna sína, lenda í slysi, verða örkumla. Þú líka, ég líka, hver sem er. Áföll fara ekki í manngreinaálit.

Gerum eitthvað, sendum ráðherrum bréf, látum símtöl flæða á skrifstofur þeirra. EKKI GERA EKKI NEITT.


mbl.is Gleðileg jól fyrir 29 þúsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já þetta ætlar engan enda að taka hvernig á að fara með öryrkja.

Ég væri sko alveg til í að gera eitthvað ef ég væri á Íslandi.

Eina sem ég get er að láta það berast að þessi listi er í gangi og allir beðnir að skrifa undir.

 http://www.petitiononline.com/lidsauki/

Kveðja frá Danaveldi

Dóra (IP-tala skráð) 5.12.2007 kl. 08:06

2 identicon

Það virðist ekki vera hægt að skrifa undir þennan lista. Reyndi það en gat það ekki.

Helga (IP-tala skráð) 5.12.2007 kl. 09:43

3 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Það er alveg ótrúlegt hvernig komið er fram við lífeyrisþegana, fyrir stuttu fengu margir bréf frá Tryggingarstofnun og standa í skuld þar, svo skerða lífeyrissjóðirnir okkur svona rétt fyrir jólin. En undirskriftarlistinn er lokaður og við erum búin að afhenda hann til Jóhönnu Sigurðardóttir Félagsmálaráðherra í seinust viku, hún tók mjög vel á móti okkur. En já það verður að gerast eitthvað mikið til að laga þessi mál hjá þessu velferðarþjóðfélagi.  Kær kveðja Ingunn Fjöryrki

Ingunn Jóna Gísladóttir, 6.12.2007 kl. 10:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.