Leita í fréttum mbl.is

Lífsbók: minningaþáttur um Bergþóru Árnadóttur kominn á netinu

Bergþóra ÁrnadóttirÞá er þátturinn kominn á netið...

Smellið hér til að hlusta á fyrri hluta og hér til að hlusta á seinni hluta. Vil nota tækifærið og þakka RÚV fyrir að hafa þennan þátt 1. maí. Eiginlega allir nefndu tvennt sem var einkennandi fyrir mömmu: að hún hefði verið mikil baráttukona og brautryðjandi fyrir aðrar konur í tónlist og það að tónlistin hennar hefði ekki notið verðskuldaðrar virðingar.

Stefnt verður að því að endurútgefa allar plöturnar hennar, kannski í einu lagi í fallegu boxi, eða eina af öðrum. Kemur allt í ljós eftir kosningar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Ég hlustaði á þáttinn meðan ég var að vinna (troða í þvottavélar) og ég verð að segja eins og er að mér varð ekkert úr verki, þannig að ég hætti bara og settist niður til að hlusta, frábær þáttur um yndislega manneskju.

Þröstur Unnar, 3.5.2007 kl. 20:52

2 identicon

Takk Birgitta, ég náði ekki að hlusta á seinni þáttinn fyrr en núna á netinu. Frábær þáttur. Ég er búin að senda linkinn á fólk sem er búið að vera að bíða eftir að geta hlustað. Ein samstarfskona upplýsti mig um að Bergþóra væri uppáhaldssöngkonan hennar og hún hefði misst af seinni þættinum, hún var miður sín og ljómaði þegar ég sagði henni að ég gæti sent henni linkinn

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 3.5.2007 kl. 23:50

3 Smámynd: Ólafur fannberg

frábært

Ólafur fannberg, 3.5.2007 kl. 23:53

4 identicon

Sæl Birgitta!

Vil byrja á að senda samúðarkveðjur vegna fráfalls mömmu þinnar.Við áttum góða stund saman þegar hún kom til Íslands í síðasta sinn þar sem hún heimsótti mig og var meðal annars að hlusta á mínar tónsmíðar,það var yndisleg stund sem ég mun ekki gleyma á meðan ég lifi.mamma þín var snillingur  bæði hvað varðar lagasmíðar og ljóð,lögin hennar munu lifa með okkur um ókomna tíð,og gaman til þess að vita að til stendur að gefa þau út aftur.Þátturinn var mjög góður á RúV,og mun hann halda minningu hennar á lofti.

Kveðja Bryndís Rafnsdóttir

Bryndís Rafnsdóttir (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 16:59

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Nú er bara að finna tíma og útgáfu sem er tilbúinn til að gefa út minningabók um hana... hygg að næstu árin fari í að halda minningu hennar á lofti enda átti hún það svo sannarlega skilið.

Birgitta Jónsdóttir, 5.5.2007 kl. 07:48

6 Smámynd: Ár & síð

Bestu þakkir fyrir að gefa okkur kost á hlusta á þáttinn á Netinu.
Matthías

Ár & síð, 5.5.2007 kl. 12:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 15
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 508814

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.