Leita í fréttum mbl.is

Gott hjá ykkur:)

Mjög ánægð að sjá hve góð mætingin er vegna þessa mikilvæga máls. Ég styð það 100% að standa vörð um þennan spítala og hef af því miklar áhyggjur hve flaustursleg öll vinnubrögðin eru í kringum þetta mál sem og önnur mál er tengjast heilsugæslu á landinu.

Það yljar mínu baráttuhjarta að sjá að fólk er að vakna til meðvitundar um hvað við stöndum frammi fyrir og er að gera eitthvað í því. Í þessari miklu neyð sem við stöndum frammi fyrir er samstaða lykilatriðið. Gleymum öllum þessum smáatriðum um ekki neitt og tökum höndum saman um að verja þá sem þurfa með sanni á því að halda að við sláum skjaldborg um - gamla fólkið, öryrkja, fátækt fólk, sjúklinga, sem og börnin okkar.


mbl.is Fullur salur í Hafnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Einarsson

Sendum Guðlaug Þór í endurhæfingu á St Jósefsspítala.

Hörður Einarsson, 10.1.2009 kl. 14:55

2 Smámynd: corvus corax

Í almáttugs bænum ekki endurhæfa hann, "They shoot horses, don´t they?"

corvus corax, 10.1.2009 kl. 15:11

3 Smámynd: corvus corax

Eftir á að hyggja ...það er ekki hægt að endurhæfa það sem var ekki hæft fyrir.

corvus corax, 10.1.2009 kl. 15:12

4 Smámynd: Hörður Einarsson

Fyrirgefið mér þetta frumhlaup, nær væri að setja hann í sótthví.

Hörður Einarsson, 10.1.2009 kl. 18:27

5 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Full ástæða til að gleðjast yfir því hvað Hafnfirðingar standa vel saman. Vona að þeirra sterka samstaða verði a.m.k. þeirra góða spítala til bjargar!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 10.1.2009 kl. 19:15

6 identicon

En er ekki gott að vita að gamlingjarnir fái inni á St. Jósefs þar sem það hefur verið mjög erfitt að fá pláss fyrir eldriborgara í borginni.

Toggi (IP-tala skráð) 10.1.2009 kl. 22:38

7 Smámynd: Máni Ragnar Svansson

Ekki ef það kemur niður á öðru Toggi(IP-tala skráð-son)   St. Jósefs spítalinn er bara vel rekinn spítali og alveg óþarfi að flytja starfsemina annað.  Þetta hljómar svipað hjá þér og mjálmið í Helga K. Hjálmssyni formanni landssambands eldri borgara á bls. 8 í dag í Fréttablaðinu.  Það er ekki bara verið að sleikja feldinn á sjálfum sér eins og kötturinn, heldur þarf líka að sleikja inniskó Ó-Heilbrigðisráðherrans

Máni Ragnar Svansson, 10.1.2009 kl. 23:37

8 Smámynd: Dunni

Innilega sammála þér. Mér finnst gott að sjá hve fólkið heima á Íslandi stendur vel saman um þessar mundir.  Sérstaklega vegna þess að það að nýfrjálshyggjufurstarnir hafa árum saman gert lítið úr þeim sem nenntu að standa í kjarabaráttu með verkföllum og öllu sem því tilheyrði..

Sendi ykkur baráttukveðjur heim. 

Dunni, 11.1.2009 kl. 10:02

9 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Takk fyrir tilsvörin... gaman hvað hinn séríslenski gálgahúmor virðist blómstra þessa dagana.

Ég er annars alveg hrikalega óþolinmóð að eðlisfari og vildi helst að við gætum fengið að sjá alvöru hreinsun núna - áður en þetta veruleikafirrta fólk sem hér stjórnar rústar fleiri mannslífum með niðurskurðahnífum sínum sem virðist vera algerlega vanhugsað í besta falli eða lyktar af því að þau beri ekki hag þjóðarinnar í fyrirrúmi!

Birgitta Jónsdóttir, 11.1.2009 kl. 12:09

10 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Algjörlega sammála þér Birgitta! Það þarf sennilega að henda þessu liði út úr alþingishúsinu áður en það veldur meiri skaða en orðið er. Mér sýnist það hreinlega vera orðið lífsspursmál að koma þeim út!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 11.1.2009 kl. 16:03

11 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Ég kalla eftir flísbyltingu - þar sem við mætum fyrir utan þing þegar það kemur saman aftur og neitum að fara fyrr en þau fara...

Birgitta Jónsdóttir, 12.1.2009 kl. 07:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 508734

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband