Leita í fréttum mbl.is

Hagsmunasamtök heimilanna

Er að fá svo mörg skeyti um hópa sem hafa tekið til starfa sem viðbrögð við þessu neyðarástandi sem við búum við - Vil ekki sitja á þessum upplýsingum ein og sér. Ætla því að nota þennan vettvang til að benda fólki grasrótina - það er nefnilega svo frábært hvað mikið er að gerast undir yfirborðinu og það er það eina sem gefur mér einhverja von um að við lærum af mistökum okkar.

Vona að sem flestir sem þurfa aðstoð í þessu málefni taki þátt í að búa til sterk samtök. 

Hagsmunasamtök heimilanna

Opinn vinnufundur #3

13. janúar 2009 kl. 20.00 í Borgartúni 3

Stofnfundur

15. janúar 2009 kl. 20.00 í sal 101 í Háskólanum í Reykjavík við Ofanleiti

Unnið er að stofnun hagsmunasamtaka heimilanna í ljósi þess efnhagsástands sem ríkir og stöðu heimilanna í landinu.
 
Ljóst er að engin samtök hafa tekið að sér að gæta hagsmuna heimilanna í landinu á sama tíma og samtök eru til fyrir ýmsa aðra
hagsmunahópa og samtakamáttur þeirra í kröfum til stjórnvalda og fjármálafyrirtækja því til staðar, s.s. eins og fjármagnseigendur,
launþega, atvinnurekendur.

Undirbúningsnefnd samtakanna hefur ákveðið að boða til opinna vinnufunda og leitast við að virkja fólk til þátttöku í mótun áherslna og
tilgangs samtakanna.
 
Tilgangur vinnufundanna er að skilgreina betur þær áherslur sem lagðar verða til grundvallar starfsemi samtakanna, svo sem hlutverk, markmið,
 
nafn, lög og meginkröfur og að ræða stjórnarmyndun samtakanna.

Á stofnfundi er áformað að fara yfir niðurstöður vinnufundanna, þær lagðar fram til samþykktar og stjórn samtakanna kosin.
 
Undirbúningsnefnd bindur vonir við að stofnfundurinn verði mjög fjölmennur og þátttakendur taki virkan þátt í að móta megináherslur
samtakanna og að hann veki verðskuldaða athygli.

Samtökin munu starfa sjálfstætt og án afskipta annara hagsmunaaðila eða stjórnmálaflokka.
 
Öllum er velkomið að leggja málstaðnum lið og eru allir áhugasamir hvattir til að hafa samband eða mæta á fundina.


mbl.is Veittu fólki lán en veðjuðu á veikingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 508655

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband