Leita í fréttum mbl.is

Mál að linni

c_documents_and_settings_brjann_office_my_documents_islenskijeppinn.jpgHvað þarf mikil spilling að koma upp á yfirborðið til að þjóðin rísi upp og standi saman gegn öllum þeim ósköpum sem á okkur hafa dunið? Nú er verið að einkavinavæða heilbrigðiskerfið eins og mörg teikn voru á lofti um fyrir margt löngu.

Allir siðspilltustu foringjar viðskiptaheimsins halda áfram að starfa við sömu störf með nýjum kennitölum. Meira að segja bankarnir nýju eru með sama fólkið með ný starfsheiti. 

Verið er að flytja gamalt fólk hreppaflutningum og tilsvör ráðamanna eru svo hrokafull og skilningsvana að maður verður að klípa sig til að athuga hvort að manni sé að dreyma. 

Treystir einhver maður eða kona ráðamönnum til að hafa þjóðarhag í fyrirrúmi? Ég veit að mikilvægri skýrslu um ástand mála var keypt af Landsbankanum og síðan var henni stungið undir stól. Skýrsla sem varpaði ljósi á alvarleika og þá slæmu stöðu sem við vorum komin í - skýrsla sem lykilmenn landsins lásu og hunsuðu - fyrir hartnær ári síðan.

Ég veit ekki með ykkur en ég er fyrir margt löngu búin að fá nóg. Ég treysti engum sem hér ráða, ég treysti ekki ríkisstjórninni, ég treysti ekki þingheimi, ég treysti ekki viðskipalífinu, ég treysti ekki fjölmiðlum eða ríkisfyrirtækjum, sér í lagi Seðlabanka, Fjármálaeftirlitinu eða bönkunum. 

Það er vont að búa í samfélagi þar sem maður getur ekki treyst þeim máttarstólpum sem bera eiga samfélagið uppi. Stundum líður mér eins og allt sé að hrynja yfir mig, eins og hænunni sem hrópaði að himininn væri að hrynja. 

En hefur neyðin ekki kennt okkur - þjóðinni eitthvað? Neyð ætti að laða fram samstöðu - það háskaveður sem ríkisstjórnin talar gjarnan um ætti væntanlega að vera utan að komandi vá - en við erum að vakna upp við þann vonda draum að þau hafa magnað yfir okkur gjörningaveður sem við virðumst ekki geta losnað við. Uppskeran brostin og þó er okkur sagt að plægja akrana sem búið er að blóðmjólka. Hvenær er nóg komið? Hvað getum við gert? Er eitthvað sem við getum gert? Er nóg að mæta á fundi á laugardögum og gera svo ekki neitt það sem eftir lifir af vikunni? Þurfum við ekki að hreinsa upp þessa hringorma sem hafa tekið sér bólfestu í efstu lögum samfélagsins? Hvernig gerum við það?

Ég veit ekki hve lengi ég þoli að horfa upp á þjóðina mína taka við svipuhöggunum og bera fyrir sig engar varnir.

Ég mæli annars með fantagóðri hvatningarræðu sem gersemin hún Lára Hanna skrifaði til okkar.


mbl.is Tryggvi hafði bein afskipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

þakka þér fyrir góðan pistil Birgitta. Ég vona að það náist samstaða meðal okkar, þjóðarinnar, á þessu ári til þess að íta þessum óhæfu valdamönnum kurteysislega til hliðar.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 10.1.2009 kl. 12:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 508730

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband