Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Táragas og piparúði ekki það sama

Getur einhver upplýst hvort það var táragas eða piparúði sem var notað þarna. Mjög mikill munur þar á.  Furðulegt að lögreglunni sé ekki kennt að hemja sig betur. Hef séð þá áður missa sig alveg gagnvart mótmælendum og þá er eins og þeir geti ekki hætt að vera fautar.

Vil taka það fram þó einhverjir hafi lesið það úr mínu fyrra bloggi um þetta að ég var ekki að kalla eftir ofbeldi af hendi lögreglu gagnvart þessum mótmælendum. Furðaði mig bara á hve lögreglan var eitthvað linkindarleg gagnvart atvinnubílstjórnum miðað við hve harkalega hún hagaði sér við aðra mótmælendur.


mbl.is Lögregla beitir táragasi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræddar löggur

Þora löggurnar bara að vera með ofbeldi gagnvart ungu fólki og friðarsinnum? Svo virðist vera. Þeir eru augljóslega skíthræddir við bílstjórana eða kannski eru þeir bara sammála þeirra málstað og fara því um þá silkihönskum. 

Ég tek það fram að ég er ekki fylgjandi ofbeldi að neinu tagi, og varð því oft nokkuð brugðið yfir yfirgangi og ofbeldi lögreglu gangvart sammótmælendum mínum í tengslum við Saving Iceland. Það er áhugavert að bera saman ReClaim the Streets Karnivalið, þar sem ungt fólk var skrautlega klætt með tónlist á pallbíl að labba Snorrabraut í fyrra. Ekki fór lögreglan neinum silkihönskum um þessa krakka. Það eru fjölmörg vitni að því hve langt í frá ofsafengin viðbrögð lögreglunnar voru og til upptökur af því. Þau lokuðu aldrei alveg Snorrabraut og fullt af hjáleiðum þarna. Þó fannst lögreglu tilefni til að handtaka fólk, lumbra á því og brjóta rúðu á einum bílnum. Þau voru á leið niður Laugarveg en fengu ekki að halda göngunni áfram. Rökin: þau sóttu ekki um leyfi og fólk kvartaði undan hávaða!

Mig langar til að fólk hugsi sig vel og lengi um af hverju löggan fær sér pulsu með bílstjórnum og í nefið en beitti þetta unga fólk ofbeldi. Mér finnst að þetta eigi bara alls ekki að líðast.

 


mbl.is Suðurlandavegi lokað á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært!

Hann á með sanni skilið að fá stuðning. Dalai Lama hefur alltaf verið boðberi friðar og ég hef aldrei heyrt hann segja styggðaryrði um kínversku þjóðina, þó hann með rétti hefur gagnrýnt og beðið kínversk yfirvöld um að sýna stillingu og mannúð gagnvart Tíbetum. 


mbl.is Dalai Lama heiðursborgari Parísar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftirmæli: eitt af fyrstu lögunum hennar mömmu

Upptaka úr Kjallaranum 1976 - einhver skringilegasti sjónvarpsþáttur
sem hefur verið sýndur hérlendis. Sést þó ekki svo glöggt hér en varð bara að
sýna ykkur hvað hún mamma var einstaklega falleg í þessari upptöku og hve
lagið hefur aldrei misst sinn einstaka hljóm. Tímalaust lag og ljóð. 
 

Ályktun Vina Tíbets

Ályktun Vina Tíbets eftir samstöðufund fyrir utan kínverska sendiráðið laugardaginn 19. apríl 2008
 
Í dag mættum við í sjöunda sinn fyrir utan kínverska sendiráðið. Á þessum eina og hálfa mánuði sem hefur liðið síðan við hófum aðgerðir hefur lítið gerst hjá ráðamönnum landsins nema að við erum nokkuð nær því að vita afstöðu þeirra sem stýra landinu. Einn ráðherra hefur gefið skýr skilaboð og svarað bréfi okkar, ekki aðeins í orði heldur einnig í verki.
 
Aðspurður af fréttamanni hvort að það gæti ekki spillt viðskiptahagsmunum á milli þjóðanna ef hann talaði um ástandið í Tíbet við kínverska ráðamenn, hvað Viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, að hann mæti mannréttindi ofar viðskiptahagsmunum.  Þessu fögnum við og vonum að hann standi við stóru orðin.
 
Málefni Tíbets var rætt í Utanríkisnefnd og lét Steingrímur J. Sigfússon bóka nokkur mikilvæg atriði sem gætu stuðlað að mannréttindum í Tíbet. Þessi fundur var haldinn 26. mars en illa hefur gengið að fá annan fund út af þessu máli og engar ályktanir verðið gefnar út.
 
Þrír þingmenn svöruðu ákalli okkar til þingheims og var því öllum þingmönnum  sent annað bréf í gær þar sem ítrekað var mikilvægi þess að gera sjálfa sig meðvitaða um stöðuna í Tíbet og kallað eftir aðgerðum. Viðbrögðin hafa verið mun betri í þetta sinn, um tuttugu hafa svarað og þar á meðal ráðherrar. Það vakti þó furðu okkar að Menntamálaraðherra virðist ekki hafa neinn hug á að ræða málefni Tíbet, samkvæmt bréfi hennar til okkar, þegar hún fer til Kína til að taka þátt í Ólympíuleikunum sem eru víst orðnir algerlega lausir við alla pólitík. Við fögnum því en minnumst þess að sama skapi að kínversk yfirvöld hafa sniðgengið Ólympíuleikana all oft í pólitískum tilgangi. Við viljum líka minna á að hlaup með Ólympíukyndilinn á rætur sínar að rekja til annars leiðtoga sem sagði að Ólympíuleikarnir væru ekki pólitískur gjörningur, en sá leiðtogi hét Hitler.
 
Við ætlumst ekki til að íþróttamenn okkar sleppi því að taka þátt í Ólympíuleikunum en betra væri að ráðamenn okkar sem ætla sér að mæta geri grein fyrir því, hvort þeirra för verði aðeins til skemmtunar eða hvort að þeir ætli að nota hana til að þrýsta á kínversk yfirvöld varðandi mannréttindi.
 
Við höfum komið með fjölmargar tillögur hvernig við getum gert eitthvað sem þjóð til að verða við hjálparkalli Tíbeta. Við skorum hér með á að þverpólitísk samstaða náist um það að við bjóðumst til að halda fyrstu samræðurnar á milli Dalai Lama og kínverskra yfirvalda. Væri það mjög í anda þeirrar ímyndar sem forsætisráðherra vill að þjóðin verði markaðssett sem, þ.e.a.s. Friðarþjóðin.
 

Vinir Tíbets


mbl.is Mótmæli gegn Frökkum í Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undercover in Tibet

Samkvæmt því sem ég komst að við að horfa á heimildarmyndina Undercover in Tibet - væri þess ferð til lítils ef leitað væri að sannleikanum um hvernig ástandið er raun og veru í Tíbet. Tíbetar þora ekki að tala við útlendinga um hvernig málum er háttað vegna þess að þeir eru sendir beint í pyntingabúðir kínverskra yfirvalda. 

Hvet því enn og aftur til að fólk horfi á þessa mynd sem ég er alltaf að vísa í: Undercover in Tibet

Verð að segja það Björgvini til tekna að hann gerði heimavinnuna sína áður en hann fór og hefur mér fundist hann vera afar samkvæmur sjálfum sér í því sem hann tekur sér fyrir hendur og gerir hlutina af heilindum. 


mbl.is Boðinn í ferð til Tíbet
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minni á hinn vikulega fund hjá kínverska sendiherranum

tíbet
Fréttatilkynning: Viðræður á milli Kína og Tíbet án tafar

Laugardaginn 19. apríl klukkan 13:00 mun fólki gefast kostur á að sýna Tíbetum stuðning í verki með því að mæta fyrir utan kínverska sendiráðið að Víðmel 29. Krafa fundarins er einföld: Viðræður á milli kínverskra yfirvalda og Dalai Lama án tafar. 

Dalai Lama hefur gegnið svo langt að falla frá kröfum Tíbeta um að endurheimta sjálfstæði landsins og hefur um nokkurt árabil lagt til við kínversk yfirvöld að Tíbetar séu tilbúnir að lifa við sjálfstjórn. Þetta gerði Dalai Lama í þeirri von að það myndi greiða fyrir að samræður myndu hefjast. En ekkert hefur miðað í þá átt. Því er mikilvægt að heimurinn þrýsti á kínversk yfirvöld að hefja þessar viðræður án tafar. Tíbetska þjóðin hefur beðið um stuðning heimsbyggðarinnar í meira en hálfa öld. Við getum sýnt þeim að okkur er ekki sama með því að mæta á vikulega samstöðufundi fyrir utan kínverska sendiráðið, skrifað greinar, kynnt okkur ástandið í landinu og hvatt þingmenn okkar til dáða. 

Til hamingju Ísland! Rio Tinto komið loks til okkar.

Lítið hefur farið fyrir umræðu um siðferði risafyrirtækja hérlendis. Hvet alla sem hafa einhvern hug á að kynna sér hvernig þessi fyrirtæki eru í eðli sínu að sjá hina stórsnjöllu mynd "the Corporation". 

Finnst rétt að kalla eftir þessari umræðu fyrst að hið afar vafasama fyrirtæki Rio Tinto hefur loks náð landfestum hérlendis. 

Kalla eftir smá rannsóknarblaðamennsku í þeirra fremur óhugnanlegu viðskiptasögu.

 


mbl.is Álverið í Straumsvík starfar undir merkjum Rio Tinto Alcan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afmæli, veislur og reykleysi

Ég er svo lánsöm að hafa fengið að lifi enn eitt árið. Ekkert stórafmæli eins og í fyrra, en það er alltaf gaman að eiga svona einn spes dag. Neptúnus eldri sonur minn er búinn að vera í eldhúsinu í þrjá tíma að gera dýrindis gulrótar afmælisköku handa mömmu sinni:)  Delphin er veikur og ég er hálf veik sjálf. Hætti að reykja fyrir viku síðan og er alveg ótrúlega þreytt. Það mun án efa brá af áður en um langt líður.

Annars var ég í alveg stórkostlega skemmtilegri afmælisveislu í gærkvöldi, hjá henni Elísabetu Jökuls vinkonu minni til margra ára. Hún er örugglega ein alskemmtilegasta vinkona mín og það var svo gaman að sjá hvað hún ljómaði í gullkjól með risastórar gleðisólir í augunum. Það var allavega svo skemmtilegt að ég er eiginlega með harðsperrur í maganum út af því að ég hló svo mikið. 


Mikill áhrifamaður...

Edward þessi hefur haft mjög mikil áhrif til hins góða í heimi okkar, því að með kenningu sinni stuðlar hann að því ljóst og leynt að auka áhrifamátt þess einfalda sannleika að einstaklingar geti breytt heiminum í kringum sig með aðgerðum eða aðgerðaleysi sínu.

Kenning hans er ef til vill enginn nýr sannleikur fyrir ýmsa sem leitað hafa á andans mið, en hann náði að útskýra kenningu sína á svo einfaldan máta að hvert mannsbarn gat tengt við það sem hann uppgötvaði. Það hafa mjög fáar kenningar af þessu tagi nema kannski afstæðiskenningin og 100 apa kenningin haft eins mikil áhrif á hugarfar mitt...

blessuð sé minning þín Edward Lorenz og 1000 þakkir. 


mbl.is Höfundur „fiðrildaáhrifanna“ látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.8.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 509732

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.