Leita í fréttum mbl.is

Afmæli, veislur og reykleysi

Ég er svo lánsöm að hafa fengið að lifi enn eitt árið. Ekkert stórafmæli eins og í fyrra, en það er alltaf gaman að eiga svona einn spes dag. Neptúnus eldri sonur minn er búinn að vera í eldhúsinu í þrjá tíma að gera dýrindis gulrótar afmælisköku handa mömmu sinni:)  Delphin er veikur og ég er hálf veik sjálf. Hætti að reykja fyrir viku síðan og er alveg ótrúlega þreytt. Það mun án efa brá af áður en um langt líður.

Annars var ég í alveg stórkostlega skemmtilegri afmælisveislu í gærkvöldi, hjá henni Elísabetu Jökuls vinkonu minni til margra ára. Hún er örugglega ein alskemmtilegasta vinkona mín og það var svo gaman að sjá hvað hún ljómaði í gullkjól með risastórar gleðisólir í augunum. Það var allavega svo skemmtilegt að ég er eiginlega með harðsperrur í maganum út af því að ég hló svo mikið. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

takk fyrir góðan pistil Birgitta! Er að rembast við að hætta að reykja sjálfur og gengur brösótt. Enn langar mikið að vera laus við þetta..ég hætti kaffidrykkju og fékk hausverk sem tók margar vikur að losna við. drekk núna bara kaffi ef það koma gestir. Tóbak er það mest vanabindandi efni sem til er, sest í minnisellurnar og er taugaeitur. Fer ekki í miðtagakerfið eins og mörg önnur eiturlyf gera..Mætti banna allt tóbak mín vegna. Held að ég myndi ekki fara og klaupa til að eltast við smyglaðar sígarettur..

Óskar Arnórsson, 17.4.2008 kl. 17:23

2 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Til hamingju með enn eitt árið kæra Birgitta! Þvílík veikindi sem hafa geysað hérna að undanförnu. Vona að ykkur batni fljótt.

Elísabet er perla. Við vorum nágrannar þarna á tímabili. Bið að heilsa henni með afmæliskveðjum. 

Laufey Ólafsdóttir, 17.4.2008 kl. 17:24

3 identicon

Til hamingju með afmælið elsku Birgitta..

Vona að reykingabindindið gangi vel.

Hlakka til að hitta þig í næstu viku.

Kærleikskveðjur

Guðrún Harðard

Guðrún Harðardóttir (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 23:13

4 identicon

Til hamingju með afmælið og til lukku með reykleysið !

kær kveðja

ofurskutlan

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 23:22

5 identicon

Til hamingju með afmælið! :)

Einar Steinn Valgarðsson (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 23:52

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Til hamingju með afmælið Birgitta mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.4.2008 kl. 00:30

7 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Til hamingju með daginn Birgitta. Við eigum þá afmæli sitt hvorn daginn þú og ég því ég á óþægilega stórt afmæli í dag. En gangi þér vel að hætta að reykja. Þett´er svo skelfilega mikið eitur.

Soffía Valdimarsdóttir, 18.4.2008 kl. 11:31

8 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Til hamingju með afmælið

Markús frá Djúpalæk, 18.4.2008 kl. 12:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 508759

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband