Leita í fréttum mbl.is

Hræddar löggur

Þora löggurnar bara að vera með ofbeldi gagnvart ungu fólki og friðarsinnum? Svo virðist vera. Þeir eru augljóslega skíthræddir við bílstjórana eða kannski eru þeir bara sammála þeirra málstað og fara því um þá silkihönskum. 

Ég tek það fram að ég er ekki fylgjandi ofbeldi að neinu tagi, og varð því oft nokkuð brugðið yfir yfirgangi og ofbeldi lögreglu gangvart sammótmælendum mínum í tengslum við Saving Iceland. Það er áhugavert að bera saman ReClaim the Streets Karnivalið, þar sem ungt fólk var skrautlega klætt með tónlist á pallbíl að labba Snorrabraut í fyrra. Ekki fór lögreglan neinum silkihönskum um þessa krakka. Það eru fjölmörg vitni að því hve langt í frá ofsafengin viðbrögð lögreglunnar voru og til upptökur af því. Þau lokuðu aldrei alveg Snorrabraut og fullt af hjáleiðum þarna. Þó fannst lögreglu tilefni til að handtaka fólk, lumbra á því og brjóta rúðu á einum bílnum. Þau voru á leið niður Laugarveg en fengu ekki að halda göngunni áfram. Rökin: þau sóttu ekki um leyfi og fólk kvartaði undan hávaða!

Mig langar til að fólk hugsi sig vel og lengi um af hverju löggan fær sér pulsu með bílstjórnum og í nefið en beitti þetta unga fólk ofbeldi. Mér finnst að þetta eigi bara alls ekki að líðast.

 


mbl.is Suðurlandavegi lokað á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það má lesa það á milli línanna Birgitta að þú viljir að það verði gætt jafnræðist í valdbeitingu og að það verði tekið fastar á vörubílstjórunum.

Sigurjón Þórðarson, 23.4.2008 kl. 10:54

2 Smámynd: Landi

Það verður fróðlegt að sjá hvað almenningur gerir og hvernig hann bregðist við ef lögreglan beitir þesum kylfum og skjöldum,er verið valdið að kalla yfir sig einhverju sem á eftir að verða mun umfangsmeiri og jafnvel harðari aðgerðir almennings.

Landi, 23.4.2008 kl. 10:55

3 identicon

Hvort sem um er að ræða friðarsinna, Falun Gong, umhverfisverndarsinna eða bílstjóra þá tel ég það mjög alvarlegt að lögreglu skuli beitt gegn fólki sem er að nýta sér lýðræðislegan rétt sinn til að viðra skoðanir sínar.  Reyndar er þetta bara gert þegar skoðanir almennings fara ekki saman við skoðanir valdhafanna.  Til dæmis voru menn með mótmælaspjöld fjarlægðir af Austurvelli á 17. júní fyrir nokkrum árum.  Þeir máttu ekki tjá skoðanir sem voru andstæðar skoðunum forsætisráðherra.  Þegar forsætisráðherra lauk máli sínu klappaði stór hluti áhorfenda og tjáði þannig skoðun sína á málflutningum.  Enginn þeirra var handtekinn þrátt fyrir tjáningu skoðana.  Jú, af því að menn voru í þessu tilviki að tjá skoðanir sem voru jákvæðar í garð valdhafa

Er ekki kominn tími til þess að landinu sé stjórnað samkvæmt vilja og hagsmunum almennings eins og menn héldu að meiningin væri við lýðvelsisstofnunina.  Á þjóðin að sætta sig endalaust við valdarán stjórnmálaflokkanna sem virðist sífellt vera að festa sig í sessi.

hreidare@mi.is

Hreiðar Eiríksson (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 10:56

4 identicon

Hefur lögreglunni kannski verið falið það vald að brjóta niður tjáningar- og málfrelsi landans. Ég styð bílstjórana heils hugar vegna þess að þeir eru ekki bara að berjast fyrir sig sjálfa heldur alla þá sem þurfa að kaupa bensín á landinu. Ef bensínverð lækkaði þá er aldrei að vita nema flugfargjöld lækkuðu í verði líka. Ég er full aðdáunar á fólki sem gefur sér tíma til þess að mótmæla harðræði og misbeitingu á valdi.. Ekki hef ég haft mig upp af rassinum til að gera nokkurn skapaðan hlut

Lísa Margrét Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 10:56

5 identicon

Afsakið frönskuna enn  Mikið djöfull eruð þið "gay"  Tómar hippa-mussur og treflar.  Að loka inn og útgönguleiðum úr höfuðborginni er Stórt lögbrot og menn verða ákærðir fyrir hryðjuverk því að þetta eru hryðjuverk í fullum skilning lagana, "aðgerðir sem miðast af að skapa hræðslu og ringulreið og tefla öryggi borgara í hættu" Ég persónulega vona að lögreglan taki af fullum þunga á þessum vörubílstjórum og kæri þá einmitt fyrir HRYÐJUVERK.  Þetta kemur Tjáningar eða málfrelsi ekki baun við, þeir meigja seigja það sem að þeir vilja, tjá sig með öllum mögulegum leiðum enn EKKI skapa hættu og hræðslu meðal almennra borgara.

Ásgeir Ólafsson (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 11:20

6 identicon

Bifreiðastjórarnir valda óviðkomandi fólki hættu, kostnaði, töfum og  leiðindum með yfirgangi sínum og ofbeldisverkum. Þetta hefur margsinnis sýnt sig. Þeir eru einungis að vekja athygli á sínum þrönga málstað og hann er ekki annar en sá að þeir verða fyrir tekjutapi eins og svo fjöldamargir aðrir vegna hins háa olíuverðs. Það var ekki ríkisstjórn Íslands sem setti verðið á olíufatinu í 118USD. Og skattarnir á eldsneyti eru ekki nema rétt mátulegir. Hvaðan á annars að taka fé til framkvæmda og samfélagsverkefna? Vörubílstjórarnir gætu lagt niður störf í mótmælaskyni. Það er lögleg mótmælaleið ef rétt er að þvi staðið.

Lögreglan á að setja mótmælaaðgerðum bifreiðastjóranna skýr mörk sem miðast við það að mótmælendur fylgi lögum og reglum í aðgerðum sínum. Ella verða þeir að mæta réttarkerfinu. Þetta verður að gerast sem fyrst áður en vitleysan gengur lengra.

K.S.

Kristján Sveinsson (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 11:45

7 identicon

Svar til Ásgeirs, sæll mikið óskaplega ert þú vel að þér í orðavali það vilja allir hlusta á mann sem er svona málefnalegur og kurteis og ég fagna því að þú sért ekki Tómur hrokagikkur ,skapbráður og ókurteis dressmannsluri og að lokum óska ég þér velfarnaðar,því sennilega þarftu á því að halda kæri Ásgeir

Kristín Jónsdóttir (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 12:00

8 identicon

Svar til Kristínar, Þakka þér kærlega fyrir það.  Nei nei þú þarft ekkert að óska mér velfarnaðar, ég hef nóg af honum í þessu frábæra ríki sem að við búum í.  "Enn er Dressmanluri" eithvað sem er andstæðan við "hippamussur" og "Trefla" ??

 Ég þarf ekki að loka vegum og skapa hættu til að tjá málfrelsi mitt, ég nota það hérna.

Ásgeir Ólafsson (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 12:16

9 identicon

Sæll Ásgeir ( svar við Dressmannsluri)

Dressmannsluri er maður sem er með límheila skiljist sem!! þeir sem hafa enga eða ekki djúpa persónulega reynslu en bóklega muna jú upplýsingar en hafa engar sjálfsmyndaðar skoðanir og segja mjög gjarnan,,,,,,en það stendur hér og veifa lögum og bókum í andlitið á manni einsog heilagri ritningu fela sig bakvið góð gleraugu með valdamikið skrifborð fyrir framan sig,,,,,gleyma húmanískri nánd eða skilningi klæða sig í jakkaföt og bindi úr Dressmann því það jú  fit the profile.Og það er töff að blogga en skilar ekki eins miklu..............Ég las sem oft áður blogg hjá konu sem á mjög veikt barn nema hvað að hún hafði gert litla stafsetningarvillu,hún var að lýsa vanlíðan sinni og barnsins yfir öllu sem gekk á og gengur á í þeirra lífi nema þar skráir kona sig inn til að benda henni á stafsetningarvilluna og útskýrir hana heilmikið,og hvernig heldur þú að móðirin hafi tekið því ? jamm,,,,í hvaða flokki heldur þú að þessi" klára " íslenskuleiðréttingapúki hafi verið í ?en nóg um það ..............

Vonandi ert þú ekki einn af fjölmörgum Dressmannslurunum Ásgeir því þetta er fólkið okkar sem setur lögin og stjórnar hér öllu á bakvið tjöldin og við hin nögum neglurnar og horfum á,,  verðum svo kolklikk ef einhver dirfist að tefja rammann okkar og þægindahringinn því við viljum ekki fara úr honum.Á meðan aðrir berjast fyrir okkur þá sitjum við hér og körpum um hvað má og má ekki og bið ég því frekar um mussu og trefil ,eða eitthvað allt annað sem virkar betur þú og ég . Kveðja Kristín

Kristín Jónsdóttir (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 14:05

10 identicon

Það er einkennileg árátta að snúa skoðanaskiptum upp í persónulegt skítkast.  Ekki hvað síst þegar sömu aðilar gagnrýna í öðru orðinu mein "lögbrot" við nýtingu vörubifreiðastjóra á tjáningarfrelsi sínu en nota síðan sama tjáningarfrelsið til að ata fólk aur á internetinu og - jú - brjóta með því lög.

Borgaraleg óhlýðni er að mínu mati nauðsynlegt fyrirbæri í lýðræðislegu samfélagi.  Mannréttindi eru grundvöllur lýðræðisins.  Á Íslandi höfum til talið okkur standa vel í mannréttindamálum en svo er ekki í raun.  Í raun ættum við að skammast okkar og laga til hjá okkur áður en við a.m.k. segjum öðrum þjóðum til í mannréttindamálum. 

Hreiðar Eiríksson (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 17:18

11 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Merkiegt þetta með orð - sumir kjósa að lesa eitthvað á milli lína sem hlýtur að eiga heima í þeirra eigin ranghugmyndum. Af hverju ætti ég að styðja meiri valdníðslu þó ég fordæmi hana á öðrum hópum. Ég bara furða mig á mismunandi viðbrögðum hjá mismunandi samfélagshópum. En því miður þá virðist lögreglan hafa ákveðið að eina lausnin sé að beita tilhæfulausu ofbeldi. Það sem gerðist þarna í dag er skammarlegt og ég fordæmi það.

Birgitta Jónsdóttir, 23.4.2008 kl. 18:58

12 identicon

Ég er sammála.  Þetta var röng, yfirdrifin og óþörf beiting ofbeldis.  Lögreglan á að þjóna almenningi en ekki ráðast á almenning.

Hreiðar Eiríksson (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 16:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband