Leita í fréttum mbl.is

Táragas og piparúði ekki það sama

Getur einhver upplýst hvort það var táragas eða piparúði sem var notað þarna. Mjög mikill munur þar á.  Furðulegt að lögreglunni sé ekki kennt að hemja sig betur. Hef séð þá áður missa sig alveg gagnvart mótmælendum og þá er eins og þeir geti ekki hætt að vera fautar.

Vil taka það fram þó einhverjir hafi lesið það úr mínu fyrra bloggi um þetta að ég var ekki að kalla eftir ofbeldi af hendi lögreglu gagnvart þessum mótmælendum. Furðaði mig bara á hve lögreglan var eitthvað linkindarleg gagnvart atvinnubílstjórnum miðað við hve harkalega hún hagaði sér við aðra mótmælendur.


mbl.is Lögregla beitir táragasi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Birgitta eru þetta ekki aðgerðirnar sem þú beiðst og varst að kalla eftir?

Sigurjón Þórðarson, 23.4.2008 kl. 15:42

2 Smámynd: Hlynur Jón Michelsen

http://www.youtube.com/watch?v=MCmNaLso6e4

Hlynur Jón Michelsen, 23.4.2008 kl. 15:42

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Hvaða bull er þetta í þér Sigurjón minn

Færslan mín er ekki svo löng að þú hafir ekki getað gefið þér tíma til að lesa hana alla... þar stendur :

Vil taka það fram þó einhverjir hafi lesið það úr mínu fyrra bloggi um þetta að ég var ekki að kalla eftir ofbeldi af hendi lögreglu gagnvart þessum mótmælendum. Furðaði mig bara á hve lögreglan var eitthvað linkindarleg gagnvart atvinnubílstjórnum miðað við hve harkalega hún hagaði sér við aðra mótmælendur.

Birgitta Jónsdóttir, 23.4.2008 kl. 15:49

4 identicon

Þetta er piparúði en ekki táragas.

nafnlaus (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 16:28

5 identicon

Táragas er samheiti yfir þá hluti sem framkalla sársauka og ertingu í augum...

Gunnar (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 17:01

6 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Táragas er reyndar ekki samheiti yfir hluti sem framkalla sársauka og ertingu í augum...

Birgitta Jónsdóttir, 23.4.2008 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 508726

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband