Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Bananlýðveldið Ísland

Mér hefur alltaf liðið eins og útlaga hérlendis. Ég hef ekki getað fundið það í mér að tilheyra klíkum eða nýta mér vensl til að fá betri þjónustu. Ég hef alltaf hafnað klíkuskapnum og fyrir vikið er maður einskonar holdsveikisjúklingur í hugum margra.

Ég veit að hér verður ekkert alvöru uppgjör. Til þess að slíkt uppgjör gæti átt sér stað þyrftum við að vera harla hugrökk og afnema fjölskyld- klíku- vina- flokkshollustu. Ég er ekki að sjá það gerast. Ef ég skoða afneitunarferlið sem er í gangi varðandi hver ber ábyrgð þá er ljóst að notuð verður séríslenska aðferðin, "ha ég, ekki satt, það var "blíb" sem stal ærunni frá þjóðinni í gær... og svona gengur þetta koll af kolli uns auðljóst er að enginn gat mögulega borið ábyrgð, því það var enginn annar en jólakötturinn sem át æruna þegar hann fattaði að það var enginn innistæða fyrir henni.

Ég veit að við munum áfram keyra á skyndilausnum. Afnemum umhverfismat og leggjum helst niður ráðuneyti umhverfis til að spara. Leggjum aftur niður mannréttindastofu og burt með alla útlendinga mun kveða við, sumt af þessu er nú þegar byrjað að kveða við sem er vægast sagt skammarlegt.

Hvar erum við eiginlega stödd þegar eina fólkið sem þjóðin treystir eru þingmenn sem eru sestir á helgan stein? Ekki það að mér finnist Jón Baldvin ekki skelleggur og hafi gefið greinagóð svör. 

Við munum áfram sitja uppi með meiri hollustu við flokka heldur en heiðarleika, málefni og heilindi.

Sifjaspell nátengingar og krossbanda eru á þeim skala að hægt væri að segja að við höfum sett enn eitt heimsmetið samkvæmt höfðatölu.

Hvernig verður hið nýja Ísland? Verður það eitthvað öðruvísi? Munum við hafa vilja og þor til að breyta hugsunargangi okkar, neysluvenjum og gildismati? Nú er svo komið að við getum ekki, hvorki sem þjóð né mannkyn, tjaldað til einnar nætur. Það er afar mikilvægt að fólk, ekki bara hér heldur um gjörvalla veröld endurskoði gildismat sitt á lífsgæðum. Staðreyndin er þessi: ef við höldum áfram á sömu braut neyslu þá verður ekki til nægilega mikið af jörðinni til að metta okkur öll, hvað þá halda áfram á þeirri tæknivæddu braut sem við höfum lagt svo mikið í. Núna lifum við í veruleika ótta, ótta við aðrar þjóðir, ótta við að það sé ekki til nóg fyrir alla, ótta við hryðjuverk og ótta við þá sem hafa ekki arkað í hjólför græðgisvæðingar. Við óttumst nánast allt og við óttumst ekkert frekar en óvissuna. En óvissan er hluti af lífsins gangi, það er alltaf óvissa, það er ekki til neinn morgundagur aðeins þessi stund. Það veit enginn hvað morgundagurinn ber í skauti sér. En það að vita ekki hvað morgundagurinn ber í skauti sér er gott fyrir okkur og ágæt áminning um að láta ekkert ógert í dag sem við getum framkvæmt í dag. Nýtum okkur þessa óvissu til að gera byltingu í hjarta okkar. Ræktum hjartavöðvann, hann er miklu traustari en ef hausinn okkar ræður einn för, því ekkert hefur gert okkur meiri grikk en að halda að vitsmunir okkar einir geti leyst vandamál heimsins. Horfið bara í kringum ykkur og sjáið hve jörðin er sviðin af eiginhagsmunasemi og hroka þeirra er hugsa án siðferðis- og réttlætiskenndar. 

Ég held að kvendi við stjórn séu ekki endilega lausnin, heldur hygg ég að þeir sem eru hjartahreinir og eigi engra hagsmuna að gæta séu þeir sem ættu að leiða þetta land okkar inn í nýja tíma. En eru þannig manneskjur til hérlendis? Auðvitað, ykkar er að koma auga á þetta fólk, fólk sem hefur unnið baksviðs að því að hjálpa öðrum, þeir sem hafa unnið baksviðs af alúð og umhyggju fyrir þeim sem minna mega sín og aldrei kallað á athygli fyrir það. Þannig fólki myndi ég treysta fyrir landinu okkar. 


Kalla eftir alvöru fjölmiðlaumfjöllun

Á tímum sem þessum þarf maður trausta fjölmiðla sem eru ekki málgagn þeirra sem réðu för í spillingarleiknum mikla. Staðan er því miður þannig að allir helstu fjölmiðlar landsins eru undir stjórn útrásarvíkinga og stjórnmálamanna sem tóku þátt í áhættuleik sem enn er engan veginn lokið.

Ég vil fá að skipta þessu fólki út úr brúnni, henda öllum flokkum út í hafsauga og kjósa einstaklinga. Ég treysti ekki þeim er telja að það sé þjóðinni fyrir bestu að vita ekki nákvæmlega hver staðan er. Ég treysti ekki þeim sem semja ekki fyrir opnum tjöldum, ég treysti ekki þeim sem neyta okkur um að fá að kjósa. Ég fer fram á afsökun til þjóðarinnar fyrir öll mistökin og afglöpin. Ég lýsi vantrausti á alla víkinga og einveldinga á þingi, í bönkum, í útrás. 

Ég kalla eftir rannsóknablaðamennsku, ég kalla eftir réttum fréttum. Í gær voru mótmæli, sem ég reyndar komst ekki á, en eldri sonur minn fór á. Hann sagði mér að þarna hefðu verið 2000 eða fleiri. Allir fjölmiðlar héldu því fram að þarna hefðu aðeins verið 500 manneskjur. Ég verð að viðurkenna að ég treysti syni mínum betur sem og öðrum sem þarna voru betur heldur en fjölmiðlum, enda hafa þeir stundað lygar um langa hríð eða aðlögun sannleikans. Ég hef sjálf unnið hjá dagblaði og sá vinnubrögðin. Þau eru ekki vönduð og ekki hikað við að hagræða sannleikanum ef það mögulega selur fleiri blöð. 

Ég hef margoft orðið vör við að sannleikanum er hnikað í fjölmiðlum og veruleikinn afbakaður, síðan tekur fólk mark á þessu og myndar sér afstöðu útfrá því sem þar er sagt. Mér finnst eitt helsta áhyggjuefnið í dag að það vanti gagnrýna hugsun og hugrekki í fjölmiðlana.

Ég kalla eftir því að þeir fjölmiðlamenn og konur sem hafa enn einhverja sómatilfinningu og æru, mótmæli því að segja upplognar fréttir eða fréttir sem greinilega er verið að hagræða sannleikanum, hvort heldur að það sé til að selja fleiri blöð eða þóknast þeim er greiða þeim launin. 

Ég er alveg búin að fá nóg að lygum og hálfsannleika. Ég vil fá að vita hvar við stöndum, þjóðin þarf að vita hvar hún stendur. Við erum ekki lengur í miðju stormsins. Ég vil vita hvað er verið að bjóða Rússum og IMF í skiptum fyrir lán. Ég vil vita af hverju Norðmenn eru ekki búnir að hjálpa okkur. Ég vil fá kort yfir tengsl þeirra er nú leiða land og fjármálastofnanir.  Og síðast en ekki síst vil ég fá að kjósa, ég treysti ekki þeim sem frömdu glæpinn til að vera dómarar í sínu eigin máli.

Ég vil nota tækifærið og þakka þeim manneskjum sem hafa staðið vaktina og oft fengið illt fyrir. Ég vil þakka þeim fyrir hugrekkið og heiðarleikann. Það er vissulega umhugsunarefni af hverju enginn tók mark á þeim nema einstöku "svartsýnisfólk og úrtölufólk".


mbl.is Útreið Íslands engin tilviljum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mig langar að heyra sannleika frá vörum ráðamanna

Þeim hefur tekist að rugla mig svo hressilega í ríminu að ég veit ekki lengur hvort að ég eigi að hamstra eða ekki. Ég veit ekki hvort að allt sé gufað upp eða hvort að við séum stöndug. Ég veit ekki hvort að við erum lögð í alheimseinelti eða hvort að við höfum kallað þessa hörku yfir okkur.

Eitt veit ég þó að ég harma ekki að við komumst ekki í öryggisráðið. Við þurfum að sýna aðhald í fjármunum og höfum ekki efni á einhverjum útávið flottræfilshætti lengur.

Annars þá ætla ég að frumflytja fyrsta kafla Kreppuljóða á Rosenberg í kvöld í samfloti við biblíubeltishljómsveitina Southside, sem státar stormhviðum eins og Mikka Pollock og Ron Whitehead.

Mun líka lesa Wake up ljóðið mitt sem ég samdi fyrir 10 árum síðan og er akkúrat um þessa tíma sem við erum að fara í gegnum núna... það er ekki hægt að þýða það með góðu móti en ég bjó til heila ljóðalistaverkabók með þessum titli. Heimavinnubók sem ég saumaði með ærum sársauka að japönsku sniði... nú er í tísku að gera heimagert, það er eins og ég segi alltaf, ef ég þrjóskast við að vera í samhljómi við sjálfa mig þá kemst ég alltaf að lokum í tísku;) engin ástæða að eltast við slíkt....

 

 

Wake UP

 


mbl.is Rétt að fara í framboðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjósa takk

Mikið er rætt um, meðal annars hér á blogginu mínu að hér skulu ekki verða galdrabrennur. Það er sniðugt að nota þetta orð, runnið undan rifjum þeirra sem vilja að við tökum því sem hefur gerst hér án þess að segja neitt, gera neitt, eða krefjast neins. Kannski er vita gagnslaust að mótmæla, en ég hef séð það að ef nógu margir sýna í orði og á borði að þeir vilji breytingar að það virkar.

Ég vil ekki galdrabrennur, ég vil ekki tjarga neinn EN ég vil ekki að sama fólkið sjái um endurreisn sem felldi þetta samfélag. Ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir hvaða áhrif allt þetta sukk og einkavinavæðingarbull hefur kallað yfir okkur.

Sumum finnst það rangt að krefjast þess að Davíð byrji á því að fara frá völdum. Allt eða ekkert segja sumir og satt best að segja hefði ég viljað að mótmælin á morgun myndu fjalla um allan pakkann... ég vil fá að kjósa, ég vil nýja stjórn yfir allan seðlabankann, ég vil að þeir auðmenn sem tóku þátt í fallinu fái að gjalda fyrir það, selji eigur sínar og borgi skuldir sínar til þjóðarinnar. 

Ég veit ekki hvort að fangelsi sé lausnin, en það væri ágætt ef við myndum senda þetta fólk út í Papey og leifum þeim að búa við meinlætalifnað um stund, eða fá þau í samfélagsþjónustu í nokkur ár. 

Ég hafði aldrei neitt sérstakt traust til ríkisstjórnar, banka eða auðmanna. Ég vil fá að kjósa, ég held að Þorgerður hafi rangt fyrir sér þegar hún reynir að bjarga eigin skinni og vill ekki leyfa okkur að kjósa fyrr en eftir 3 ár. Ríkisstjórnin og sér í lagi XD er vanhæft til að fara í naflaskoðun án þess að færa einhverjar fórnir. Þetta er eins og alki segist ætla að fara í meðferð eftir næsta fyllerí. 

Ég vil fá að kjósa, ég vil hreinsun, en ég verð að viðurkenna að ég held að ég muni skila auðu. Ég lýsi vantrú á allt og alla. Ég er þreytt á atvinnupólitíkusum, ég er þreytt á því að þeir sem stjórna hér eru í engum tengslum við veruleikann. Ég er þreytt á því að heyra stöðugt talað um veruleika minn af einhverjum greiningardeildum, af fólki sem getur ekki skilið hvað það er að missa allt og eiga ekki fyrir mat eða öruggt húsaskjól. 

Ég tek það fram að ég á ekkert og hef engu tapað, en þarf eins og aðrir að þrengja sultarólina, því allt hefur hækkað svo mikið, sér í lagi matvara og það er harla erfitt að sleppa því.  Ég hefði ekkert á móti því að styrkari stoðum yrði veitt undir okkar landbúnað. Synd að sjá öll gróðurhúsin sem eru að grotna niður í Hveragerði. 

Ég vil sjá alvöru breytingar hér, við þurfum að læra að vera sjálfbær, við þurfum að leggja metnað í að búa til samfélag sem er ekki háð olíu og nánast öllum hráefnum til að geta staðið af okkur storma af þessum tagi. 

Ég vil sjá alvöru samfélagsbreytingar, þar sem við lærum aftur að hafa samábyrgðartilfinningar og að samfélagsábyrgðin er ekki á fárra höndum. Samfélög okkar eru alltaf byggð á sjálfum okkur. Kannski ættum við að reka þjóðina eins og hún leggur sig. Ráðamenn segja að við höfum öll tekið þátt í sukkinu og svínaríinu og allir hafi notið góðs af góðærinu. Ef svo er ... þá erum við öll vanhæf.


mbl.is Ísland standi við alþjóðlegar skuldbindingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ákall til þjóðarinnar

Ákall til þjóðarinnar - Davíð Oddsyni vikið frá störfum

Við mótmælum öll – Hittumst á Austurvelli á laugardag kl. 15. Vertu þáttakandi, ekki þolandi. Hvetjið alla sem ykkur eru nærri til að mæta líka. Við fáum kannski bara þetta eina tækifæri.
Ákall til þjóðarinnar - Davíð Oddsyni vikið frá störfum – Eina leiðin til að þjóðin haldi sjálfsvirðingu sinni nú er að hún sameinist í fjölmennum mótmælum með ein skýr skilaboð til stjórnmálamanna. Skýr skilaboð um að þjóðinni stendur ekki á sama, skilaboð um að hún sé þátttakandi en ekki þolandi í þeirri atburðarás sem nú fer í hönd. Skýr skilaboð sem valdhafar geta brugðist við strax, að Davíð Oddssyni verði vikið úr starfi Seðlabankastjóra.

Davíð Oddson ber mesta pólitíska ábyrgð á því að bankarnir voru einkavinavæddir á sínum tíma og hleypt í útrás með veikburða eftirlitskerfi. Síðan stillti hann sér upp til að fylgjast með þeim sem Seðlabankastjóri án faglegar þekkingar. Með röð mistaka í hagstjórn Seðlabankans undir forustu Davíðs og ótrúlegan einleik hans síðustu vikur er þjóðin gjaldþrota, rúin trausti og virðingu í alþjóðasamfélaginu.

Nýjir tímar - Vertu þáttakandi, ekki þolandi

http://www.nyirtimar.com/

p.s. þetta er ekki á mínum vegum en ég styð þetta heilshugar og ætla að mæta... það er kominn tími til að sýna að við látum ekki troða meira á okkur.


mbl.is Rekin úr búð í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira um meinta kreppu

Ég get ekki hugsað mér að skipuleggja mótmæli, þó slíkt brenni á mér, ég get ekki hugsað mér að skrifa langar ritgerðir þegar það form sem ég hef alltaf heillast hve mest af liggur svo beint við.

Búin að fá upp í kok af löngum pistlum um eiginlega ekki neitt, því við erum engu nær um hvað varð um lýðræðið okkar. Spilling grasserar fyrir opnum tjöldum, en hér skal ekki kosið.

Ætla því að halda áfram að skrifa ljóð í knöppum ljóðabálk sem að sjálfsögðu heitir Kreppuljóð. Fyrst fjalla ég um fallið, er næstum búin með þann bálk, er núna að skrifa um reiðina, get ekki beðið eftir að komast í lokabálkinn sem um fjalla um upprisuna. Ég ætla að skrifa þetta á meðan þjóðin er að fara í gegnum þessi stig. Finnst sem við séum hætt að falla og ættum að vera að skríða inn í reiðina. Reiði á fyrst að vera stormur innra sem feikir til snyrtilega röðuðum fallvöltum veruleikanum, síðan á hún að hvetja mann til að þrýsta á breytingar, að fara úr ofbeldissambandinu, að hætta að laumast í ríkið fyrir alkann, að hætta að ljúga fyrir fíkilinn, að hætta að láta eins og allt sé í lagi. Það er ekki allt í lagi, en enn sem komið er vitum við ekki nákvæmlega hvað er mikið er ekki í lagi. 

Kreppuljóð

Fallið

Enn í nýjustu tísku
eilítill útsölubragur á
góðærisspikið vellur út um buxnastreng
og allt of þröngar peysur

bótaxfylltar innfallnar


sílikon brennur illa
í fimbulkulda
fallina gilda


------------------------------------

Þjóðin er lömuð
hrædd
í skuggunum falla þau hvert á fætur öðrum
í hællærisharakírí

tómar tóftir glerhalla
og þó erum við rétt að byrja

------------------------------------

Þoturnar þagnaðar í annarri heimsálfu bíða
færis á ný
þjóðargersemin horfinn
æran ekki traustari en svo
að ljúfan og brúnklukkan blésu á spilaborgina
höff pöff - kreditkortaturnarnir hrynja


timburmennirnir virðast engan enda taka
jafnvel krúttin ekki lengur sæt


suss hér verða engar galdrabrennur

------------------------------------

Hann hneppir hnöppum úr gulli
í Kensington
á meðan sitjum við uppi með glópagullið
og óræðnar tilfinningar

en suss hér verða engar galdrabrennur

------------------------------------

Undir stólum ríkisstjórnar eru pappírstætarar
þar er skýrslum laumað undir
sem allir ættu að sjá
en fáir vilja heyra

------------------------------------

Sjarmatröllið í gráfjalli
steingerfð þjóð undir
hvössu bliki

svo brosir hann sakleysislega og reitir einn brandara
og álögin eru fullkomnuð
lemúraþjóðin gekk fyrir björg
af því að pabbi sagði það

hér verða engar galdrabrennur

------------------------------------

Upphæðir sem enginn skilur
og vogunarsjóðir og
svikamyllur
og einn og einn don kíótí

Við erum ekki gjaldþrota
við erum stöndug
enginn getur lengur reiknað hve hár skuldahali hvers mannsbarns eyjunnar er
upphæðir sem enginn skilur
eru ekki raunverulegar
fyrr en launaumslagið er skyndilega tómt

hókus pókus
góðærið var okkur öllum til góða
haldið áfram að kaupa
haldið áfram að vera þæg
og þegja

það er gott fyrir hagkerfið að vera gráðugur

------------------------------------

Skipbrot frjálshyggjunnar
skipbrot auðvaldsins
skipbrot Milton Friedmanista
nú eru þeir sem það studdu
stimplaðir afturhaldskommatittir

Davíð kominn í heilan hring
í hringavitleysunni

Íslendingar gjalda sjálfstæði sitt dýru verði


------------------------------------

Nú er litla Ísland
hryðjuverkaþjóð
hefur framið stórfelld hryðjuverk í skjóli frjálshuggunar hyggjunar
á sitt eigið sjálfstæði
sína eigin afkomu

kalla ekki sumir slíkt sjálfsmark
á ögurstundu
í vítaspyrnuleik verðlausra verðhalla
verðlausra lífsgilda

hvar er kletturinn
öryggið
traustið rúið


mbl.is Mjög róttæk viðbrögð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppuljóð II

Fallið II

Þoturnar þagnaðar í annarri heimsálfu bíða
færis á ný
þjóðargersemin horfinn
æran ekki traustari en svo
að ljúfan og brúnklukkan blésu á spilaborgina
höff pöff - kreditkortaturnarnir hrynja


timburmennirnir virðast engan enda taka
jafnvel krúttin ekki lengur sæt


suss hér verða engar galdrabrennur


mbl.is Svalir Íslendingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppuljóð

Segja má að tímar sem þessir séu einskonar gullnáma fyrir andans fólk, verandi skáld fyrst og fremst þá get ég ekki annað en skrifað ljóð er tengjast þessum miklu viðburðum, ekki aðeins hér heldur út um heimsbyggð alla. Ég byrjaði því fyrir nokkrum dögum að skrifa Kreppuljóðabók sem mun skiptast í nokkra kafla. Ég er að skrifa kaflann "Fallið" núna og hef ákveðið að hafa kreppuljóðin knöpp:) Að sjálfsögðu mun bókin enda á kaflanum "Upprisan". Mun deila með ykkur þessum ljóðum en tek það fram að þau eru ekkert pússuð, heldur hrá eins og ástandið...

Fallið

I
Útundan mér sé ég kreppuhönd
lauma tjarnargæs inn í skjannahvítan Range Rover
flaumur fjaðra eins og blindhríð um stund

 

c_documents_and_settings_brjann_office_my_documents_islenskijeppinn.jpg

 


mbl.is IMF tilbúinn að hjálpa Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk kærlega

Ég ætla með sanni að þiggja þetta góða boð:) taka með mér börnin og njóta þessarar stórkostlegu hljómsveitar. Mun án efa veita birtu í sálartetur.
mbl.is Afboðunin ákveðinn léttir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljóð án lags

Steinn Steinarr hafði ótrúlegt vald á skáldmálinu og djúpan skilning á því hvernig yrkja átti alþýðuljóð sem jafnframt höfðuðu til þeirra sem djúpvitrari þóttust vera. Var mér mikil fyrirmynd þegar ég var að stíga mín fyrstu skref á skáldabraut þegar ég var 14 ára. Margar tilfinningar hafa brunnið í brjósti mínu undanfarna daga og ef til vill lýsir þetta ljóð ágætlega hugarástandi landans í dag. Finnst sem fólk ráfi um í einskonar losti og virðist hafa týnt raust sinni og þeirri gæfu að vita að við getum öll haft áhrif á gang mála ef við stöndum saman, ekki til að hlusta á gleðibankann, heldur til að sýna í verki að okkur er nóg boðið. Ég hvet alla til að líta inn á bloggið hennar Láru Hönnu en þar kemur fram að á meðan þjóðinni blæðir sitja þeir enn að kjötkötlunum sem tóku þátt í braskinu, nú í boði ríkisstjórnarinnar. Tími til að finna röddina innra með okkur og láta almennilega í okkur heyra.

Setti síðan lagið við Ljóð án lags eftir Bergþóru Árnadóttur í tónhlöðuna, njótið vel.

Ljóð án lags
Ljóð: Steinn Steinarr


Ég reyndi að syngja
en rödd mín var stirð og hás,
eins og ryðgað járn
væri sorfið með ónýtri þjöl.
Og ég reyndi á ný,
og ég grét og ég bað eins og barn.

Og brjóst mitt var fullt af söng,
en hann heyrðist ekki.
Og brjóst mitt titraði
af brimgný æðandi tóna,
og blóð mitt ólgaði og svall
undir hljómfalli lagsins.
Það var söngur hins þjáða,
hins sjúka, hins vitfirrta lífs
í sótthita dagsins,
en þið heyrðuð það ekki.

 


mbl.is Hvað sagði Davíð?
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.8.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 509715

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband