Leita í fréttum mbl.is

Ákall til þjóðarinnar

Ákall til þjóðarinnar - Davíð Oddsyni vikið frá störfum

Við mótmælum öll – Hittumst á Austurvelli á laugardag kl. 15. Vertu þáttakandi, ekki þolandi. Hvetjið alla sem ykkur eru nærri til að mæta líka. Við fáum kannski bara þetta eina tækifæri.
Ákall til þjóðarinnar - Davíð Oddsyni vikið frá störfum – Eina leiðin til að þjóðin haldi sjálfsvirðingu sinni nú er að hún sameinist í fjölmennum mótmælum með ein skýr skilaboð til stjórnmálamanna. Skýr skilaboð um að þjóðinni stendur ekki á sama, skilaboð um að hún sé þátttakandi en ekki þolandi í þeirri atburðarás sem nú fer í hönd. Skýr skilaboð sem valdhafar geta brugðist við strax, að Davíð Oddssyni verði vikið úr starfi Seðlabankastjóra.

Davíð Oddson ber mesta pólitíska ábyrgð á því að bankarnir voru einkavinavæddir á sínum tíma og hleypt í útrás með veikburða eftirlitskerfi. Síðan stillti hann sér upp til að fylgjast með þeim sem Seðlabankastjóri án faglegar þekkingar. Með röð mistaka í hagstjórn Seðlabankans undir forustu Davíðs og ótrúlegan einleik hans síðustu vikur er þjóðin gjaldþrota, rúin trausti og virðingu í alþjóðasamfélaginu.

Nýjir tímar - Vertu þáttakandi, ekki þolandi

http://www.nyirtimar.com/

p.s. þetta er ekki á mínum vegum en ég styð þetta heilshugar og ætla að mæta... það er kominn tími til að sýna að við látum ekki troða meira á okkur.


mbl.is Rekin úr búð í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

http://www.nyjirtimar.com/

.... og algert lágmark að stafsetja rétt vefslóðina. 

Látum vera með villur í textum 

www.nyirtimar.com  hefði verið berta  

Gamli kennarinn (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 18:06

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

ég límdi þetta bara inn á vefinn og get varla talist ábyrg fyrir stafsetningavillum en bendi þér á að ef þú hefur ekkert betra að gera en að nöldra að nöldra við þá sem eru að skipuleggja þetta.

Birgitta Jónsdóttir, 16.10.2008 kl. 18:17

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

hlynur auðvitað þarf að spúla út bæði í seðlabanka sem og annarsstaðar - ef þú vilt gera eitthvað til að breyta því ástandi sem hér er - gerði þá eitthvað annað en að nöldra... ég er komin með upp í kok af fólki sem hangir í smáatriðum á meðan það er verið að taka þjóðina í óæðri endann og getur ekki gert neitt uppbyggilegra en að kvarta yfir þeim sem þó eru að gera eitthvað

Birgitta Jónsdóttir, 16.10.2008 kl. 18:19

4 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Davíð hefur með athafnaleysi sínu að tryggja og treysta gjaldeyrisvarasjóð landsins valdið okkur gríðarlegu tjóni. Einnig hefur eftirlit með bönkum brugðist og sjálfsagt ber Davíð einnig mikla ábyrgð á að bindiskylda var nánast strikuð út.

Legg því eindregið til að sama aðferð verði viðhöfð og þegar Napóleón var gerður óskaðlegur með því að koma Davíð og Kó á eyju. Sjá: http://mosi.blog.is/blog/mosi/entry/675581/

Gangi ykkur vel við mótmælin á Austurvelli. Verð fjarri - því miður.

Kveðja

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 16.10.2008 kl. 18:48

5 identicon

Á visi.is má lesa eftirfarandi skilaboð frá hópi fólks sem ætlar að mótmæla á Austurvelli á laugardaginn;

„Davíð Oddsson ber mesta pólitíska ábyrgð á því að bankarnir voru einkavinavæddir á sínum tíma og hleypt í útrás með veikburða eftirlitskerfi. Síðan stillti hann sér upp til að fylgjast með þeim sem Seðlabankastjóri án faglegar þekkingar. Með röð mistaka í hagstjórn Seðlabankans undir forustu Davíðs og ótrúlegan einleik hans síðustu vikur er þjóðin gjaldþrota, rúin trausti og virðingu í alþjóðasamfélaginu,"

Ég er ekki par hrifin af DO en finnst þó að hér verði aðeins að staldra við. Hann á ekki að bera meiri pólitíska ábyrgð fremur en aðrir í hans flokki né þeim flokkum sem setið hafa með sjálfst.fl. í núverandi ríkisstjórn og þeirri síðustu, þó honum finnist hann vera stór og mikill karl þá var hann nú ekki svo stór að geta ráðið þessu öllu einn. Ég er sammála því að hann sé ekki að standa sig sem seðlabankastjóri og ætti því að fara frá í því embætti en það á ekki að refsa honum eða kenna honum einum um hvernig hefur farið í útrásinni, það er of mikil einföldun.

Það á svo að koma í veg fyrir það í framtíðinni að ríkisstofnanir eða sendiráðsembætti séu notaðar sem geymslustaðir fyrir útbrunna stjórnmálamenn hvaðan sem þeir koma. Það á einfaldlega að ráða í störfin eftir auglýsingu, hæfasta fólkið á hverjum tíma.

Við verðum að gæta þess að fara ekki á nornaveiðar og nafngreina sérstaklega einhverja fáa einstaklinga í þessum útrásarhópi seka þegar í raun er um ca. 100 manna útrásarhóp að ræða og hluti af þeim saklausir af öllu saknæmu. Í þessum hópi er að finna bankastjóra, Alþingi og Ríkisstjórn, seðlabankastjórana, fjármálaeftirlitið ofl.

Í sjónvarpinu, Kstljósi, var farið yfir feril útrásarinnar og rætt við marga sem í dag standa í björgunaraðgerðum. Það var skrýtið að sjá suma þar lofa þessa útrás sármóðgaðir yfir hrakspám greiningadeilda erlendra banka um bólu sem gæti sprungið en sitja svo í þeirri stöðu nú að bólan sprakk og þeir að reyna að bjarga einhverju.... ég hafði nú á orði að RÚV gæti sparað sér útgjöld við áramótaskaup, þetta yfirlit var eins og eitt slíkt skaup.

Aðgát skal höfð í nærveru sálar og munum að allir eru saklausir uns sekt er sönnuð en þá á að taka á þeim aðilum og gera upptækar eigur þeirra sem hafa hugsanlega verið fengnar með ólögmætum hætti en ekki fyrr. 

Ragnhildur (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 20:50

6 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Dabbi er auðvitað holdgervingur. það þarf að sópa honum burt ásamt mörgum öðrum

Brjánn Guðjónsson, 16.10.2008 kl. 21:11

7 Smámynd: Þórarinn Sigurður Andrésson

ég vil nú bara aðeyns koma því að, að Davíð Oddsson hefur ekki neitt að gera í því embætti sem hann er í!!

Allt sem hann gerir þessa dagana og síðustu misseri er bæði landi og þjó til skammar og bætir ekki ímynd þjóðar sem á í erfiðleikum eins og við erum að ganga í gegnum núna.

Davíð er einn af þeim sem kom mestum látum af stað um daginn í sambandi við bretana he he en ég verð að hætta núna vegna þess að ég fæ hausverk þegar ég hugsa um Davíð!! einskonar ofnæmi.

Tóti Ripper 

Þórarinn Sigurður Andrésson, 16.10.2008 kl. 21:32

8 Smámynd: Thee

Voðalega verður sorglegt að horfa upp á ykkur mótmæla á laugardaginn. Þið sjáið ekki hvað er í gangi, haldið að þetta sé bara einhver kreppa. 

Thee, 16.10.2008 kl. 22:18

9 identicon

Ni "riksdemostranter" löper som tikar  - av drift och utan reflektion!

S.H. (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 22:54

10 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Skaðinn er skeður...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 17.10.2008 kl. 05:50

11 identicon

Sæl Birgitta!

Er fyllilega sammála þér en ég varð fyrir gífurlegum

vonbrigðum með Dr. Gunna í Silfrinu í gær þar sem hann

lýsti því yfir að hann hafi nú ekkert meint með því að setja nafnið sitt undir samtökin, bara verið að lána það? Hvenær á þessum fíflagangi að linna? Hvað er maðurinn að hugsa? Ítök fjölmiðla eru svo sterk að hann lýsir frekar frati á mótmælin sem hann skrifar undir til að þóknast yfirmönnum sínum og halda vinnunni. Ef þetta er ekki lýsandi dæmi þess hvernig málum er háttað hér á landi þá veit ég ekki hvað. Hann ætti að skrifa skammarpistil um sig sjálfan í næstu bakþönkum ef hann hefur þá einhverja bakþanka, sk. siðferðiskennd, þar að segja? Fólk sem skrifaði undir nafnalista Nýrra tíma á netinu sem var á spam formi er ekki ánægt. Þeim lista verður að eyða og byrja upp á nýtt. Hér á landi ríkir engin mótmælahefð frekar en umræðuhefð sem aðrar vestrænar þjóðir hafa tileinkað sér og þróast öldum saman. Legg til að menn hætti að bulla í fjölmiðlum, fari að tileinka sér hefðir annara þjóða sem vita hvað lýðræði er og hvaða verkfæri við almenningur höfum til að rétta bátinn við, áður enn han sekkur endanlega og láti verkin einu tala. Slík framkvæmd kallast því ágæta nafni : Lýðræði!

Kjörkuð (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 15:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 508727

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.