Leita í fréttum mbl.is

Mig langar að heyra sannleika frá vörum ráðamanna

Þeim hefur tekist að rugla mig svo hressilega í ríminu að ég veit ekki lengur hvort að ég eigi að hamstra eða ekki. Ég veit ekki hvort að allt sé gufað upp eða hvort að við séum stöndug. Ég veit ekki hvort að við erum lögð í alheimseinelti eða hvort að við höfum kallað þessa hörku yfir okkur.

Eitt veit ég þó að ég harma ekki að við komumst ekki í öryggisráðið. Við þurfum að sýna aðhald í fjármunum og höfum ekki efni á einhverjum útávið flottræfilshætti lengur.

Annars þá ætla ég að frumflytja fyrsta kafla Kreppuljóða á Rosenberg í kvöld í samfloti við biblíubeltishljómsveitina Southside, sem státar stormhviðum eins og Mikka Pollock og Ron Whitehead.

Mun líka lesa Wake up ljóðið mitt sem ég samdi fyrir 10 árum síðan og er akkúrat um þessa tíma sem við erum að fara í gegnum núna... það er ekki hægt að þýða það með góðu móti en ég bjó til heila ljóðalistaverkabók með þessum titli. Heimavinnubók sem ég saumaði með ærum sársauka að japönsku sniði... nú er í tísku að gera heimagert, það er eins og ég segi alltaf, ef ég þrjóskast við að vera í samhljómi við sjálfa mig þá kemst ég alltaf að lokum í tísku;) engin ástæða að eltast við slíkt....

 

 

Wake UP

 


mbl.is Rétt að fara í framboðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

hahahaha, þú ert nú meiri grínistinn

„heyra sannleika frá vörum ráðamanna“ hahaha

Brjánn Guðjónsson, 17.10.2008 kl. 19:53

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

sorrí, en hvar muntu flytja téð ljóð?

Brjánn Guðjónsson, 17.10.2008 kl. 19:54

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

ég veit - ég hef alltaf verið afar fyndin:) þetta er allavega fimmaurabrandari dagsins...

ég verð á rosenberg - veit eiginlega ekki neitt hvenær ég stíg á svið en þarna verða einnig magadansmeyjar og ægilegt fjör...

Birgitta Jónsdóttir, 17.10.2008 kl. 19:58

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gangi þér vel Birgitta mín, en svör færðu varla frá núverandi ráðamönnum, þeir vita ekkert í sinn haus sjálfir, hvað þá að vera aflögufærir fyrir almúgan í þessu landi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.10.2008 kl. 20:13

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hefði verið gaman að mæta..en ég er orðin svo þreytt og sybbin...mæti frekar hress á mótmælin á morgun og les ljóðin þín síðar. Vona bara að fólk mæti ærlega!!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 17.10.2008 kl. 22:30

6 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Nú er bara að bretta upp ermarnar gegn heimsvaldasinnum og auðmöngurum Birgitta. mótmælafundur við Breska sendiráðið og í framhaldi af homum ganga til keflavíkurflugvallar, þar sem hermadarverkamenn og friðarspillar hennar Hátignar Elísabetar 2.ætla að planta sér niður í des. ,er mín tillaga.Stöðva þarf það hernaðrbrölt sem gömlu heimsveldin eru að æfa á Keflavíkurflugvelli strax.Nógu slæmt var að hafa Kanann, en að gera Ísland að æfingastöð fyrir morð og dráp,NEI.  ÍSLAND ÚR NATÓ OG BRETINN BURT.Við treystum á þig Birgitta.

Sigurgeir Jónsson, 17.10.2008 kl. 22:47

7 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Nú er völlurinn galopinn og hægt að halda fund hvar sem er á vellinum, svo framarlega sem BBverði þar ekki mættur með víkingasveit sína sem honum er trúandi til ,það verður þá að ráðast.Við sjáum við honum.Þetta var allt erfiðara í gamla daga.

Sigurgeir Jónsson, 17.10.2008 kl. 22:55

8 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

ég held að við ættum að taka til í okkar eigin garði fyrst áður en við förum að beina reiði okkar að bretum. það hafa verið gerð alvarleg mistök af okkar ráðamönnum - stundum meðvituð mistök til að fá sem mest strax. þeir sem eru ábyrgir fyrir því þurfa að bæta fyrir það með því að hverfa frá völdum strax.

Birgitta Jónsdóttir, 18.10.2008 kl. 09:33

9 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Nú er ég hissa Birgitta.Bretar verða að virða samninga um EES sem þeir eru hluti af sem ESB þjóð.ÉG trúi ekki að þú styðjir það hernaðarbrölt sem Bretar stunda nú um víða veröld og ætla sér að nota Ísland sem æfingarstað fyrir verkin.ÉG fer svei mér þá að halda að mótmæli þín hingað til hvort sem það er um Tíbet eða Kárahnjúka hafi farið fram í svefni.

Sigurgeir Jónsson, 18.10.2008 kl. 12:49

10 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

hver ert þú eiginlega sigurgeir? af hverju stendur þú ekki bara sjálfur fyrir bretauppreisn? kannski er ég bara sofandi og öll sú vinna sem ég hef lagt í mótmæli og meðmæli og samstöðu bara verið draumur - en hann var þó allavega afar gefandi draumur:)

Birgitta Jónsdóttir, 18.10.2008 kl. 14:51

11 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

og svo vil ég taka það fram að þó ég gjarnan vildi andmæla og mótmæla öllu heimsins óréttlæti þá er bara til eitt eintak af mér og ég er varla svo mikilvæg að heimurinn hrynji þó ég mótmæli ekki yfirgangi breta eða annarra sem valta yfir með heimsvaldastefnu og yfirgangi. við erum nú sjálf ekki alveg saklaus - við gerum það bara yfir náttúruna og minnihlutahópa.

Birgitta Jónsdóttir, 18.10.2008 kl. 14:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 508764

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband