Leita í fréttum mbl.is

Formleg beiðni um skjöl, minnisblöð og samninga vegna Icesave

Reykjavík  15.06.09

Ég sendi eftirfarandi beiðni til Forsætis- og Fjármálaráðuneytis í gær. Það verður spennandi að vita hvort að upplýsingalögin og stjórnsýslulögin verði virt í þessu tilfelli.

"Með vísan til Upplýsingalaga nr. 50/1996 og Stjórnsýslulaga nr. 37/1993 óska ég hér með eftir því að fá afhent öll skjöl er varða samninga yfirvalda á Íslandi við yfirvöld í Bretlandi og Hollandi um ábyrgðir Íslenska ríkisins á innistæðum sparifjáreigenda í þessum löndum, þar með talin gögn og skjöl sem urðu til við samskipti yfirvalda í október 2008 og síðar, ásamt endanlegum samningi sem nú er til umfjöllunar á Alþingi, sem og minnisblöðum nefndarinnar og álitsgerðum sérfræðinga sem voru yfirvöldum til stuðnings við samningagerðina.


Virðingarfyllst,

Birgitta Jónsdóttir

þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar"


mbl.is Bréf Þjóðverja til Kaupþings birt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert hefur breyst

Ráðherrar og stjórnarliðar hafa ekki séð ICESLAVE samninginn... hvað þá við í minnihlutanum... hvernig á fólk að geta tekið upplýstar og vandaðar ákvarðanir ef það fær ekki neinar upplýsingar?

fp_side_icesave20081010121542.jpgÉg var að vonast til þess að vinstri stjórnin myndi efna loforð sín um gegnsæi og samvinnu - man hve kunningjar mínir í VG sem voru inni á þingi í desember og janúar voru í miklu uppnámi vegna þess að þau fengu engar upplýsingar - nú eru þau í stjórn og það sem vekur furðu mína að leyndin er meira að segja meiri en áður en hin stjórnin var felld... ég skora á ykkur sem eruð í stjórn að ráða bót á þessum leynimakki. Þjóðin á rétt á að fá allt upp á borðið... 


mbl.is InDefence boðar til blaðamannafundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ókeypis TíbetBíó í dag

Ég fór í gærkvöldi á ókeypis bíó sem skartaði hlaðborði af nýjustu myndum sem tengjast Tíbet. Þessar myndir eru hverri annarri betri og láta engan ósnortin. TíbetBíó er á vegum Vina Tíbets og liður í að kynna fyrir Íslendingum málefni Tíbets. Það voru sorglega fáir í gærkvöldi og því vil ég hvetja fólk til að mæta í dag því við munum ekki eiga kost á að sýna þessar myndir aftur í bráð án endurgjalds. TíbetBíó er haldið í kjallaranum á Kaffi Rót sem er staðsett að Hafnarstræti 17. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Nánari upplýsingar um bíómyndirnar hér fyrir neðan á ensku.  Sýningar eru ókeypis en frjáls fjárframlög til styrktar Tíbetsku flóttafólki eru vel þegin.... Hlökkum til að sjá ykkur!

sun.14.júní, kl 16 - 17.20: The Unwinking Gaze (2008)
sun.14.júní, kl 17.20 - 17.40: Leaving Fear Behind (2008)
sun.14.júní, kl 17.40 - 18.30: Breaking the Wall of Silence (2008)
sun.14.júní, kl 18.30 - 19.20: Tibet´s Cry for Freedom (2008)

l23246935344_5708.jpg    The Unwinking Gaze (2008): www.unwinkinggaze.com
“The Unwinking Gaze was filmed over a period of three years with exceptional access showing the daily agonies of the [Dalai Lama] as he tries to strike a balance between his Buddhist vows and the realpolitik needed to placate China.”

leavingfearbehind4.jpg•    Leaving Fear Behind (2008): www.leavingfearbehind.com
“Leaving Fear Behind (in Tibetan, Jigdrel) is a heroic film shot by Tibetans from inside Tibet, who longed to bring Tibetan voices to the Beijing Olympic Games.  With the global spotlight on China as it rises to host the XXIX Olympics, Tibetans wish to tell the world of their plight and their heartfelt grievances against Chinese rule.  The footage was smuggled out of Tibet under extraordinary circumstances.  The filmmakers were detained soon after sending their tapes out, and remain in detention today.”

back_800.jpg•    Breaking the Wall of Silence (2008): www.mpowermedia.no
“A small radio station in the Himalayas creates waves that rock Beijing:  Voice of Tibet in Dharamsala in Northern India broadcasts free and independent news into Tibet daily.  China is doing everything possible to stop it.  Breaking the Wall of Silence is a documentary about a few that dare to challenge the monopoly of information in China...They are all speaking through Voice of Tibet, trying to break China's Great Wall of Censorship.” 

ticrfr.jpg•    Tibet's Cry for Freedom (2008): www.tibetscryforfreedom.com
“Through the eyes of the Dalai Lama and exiled Tibetans in 2007 and 2008, Tibet's Cry for Freedom explores both past and present in Tibet's long suffering non-violent freedom struggle.  Discover the truth about Tibet's history and ponder the future of a nation whose time is fast running out.”



Að ganga í björg

Það er alveg furðulegt hvernig fólk umbreytist þegar það fær völd. Það er eins og það gangi inní björg og komi út sem umskiptingar.

Það er alveg ljóst að Eva Joly hefur ítrekað rætt við ráðamenn - þar á meðal Rögnu og gagnrýnt þá starfshætti sem við henni blasa varðandi rannsóknina. Sumir þingmenn Samfylkingarinnar koma af fjöllum eins og til dæmis Ólína og kvartar sáran undan því að Eva tjái sig um þessa hluti við fjölmiðla. Það sýnir ef til vill best hve illa upplýstir stjórnarliðar eru sem starfa á þinginu. 

Eva hefur enn ekki fengið skrifstofuaðstöðu, né aðstoðarmaður hennar, honum hefur jafnframt ekki verið greidd laun hef ég frétt. Sértækur saksóknari hefur ekki farið að ráðum hennar og það er því miður alveg ljóst að hann er gjörsamlega vanhæfur og stendur þessari rannsókn verulega fyrir þrifum - ég skora á ríkisvaldið að hætta að draga lappirnar og gera samstundis það sem Eva biður um og hefur gert lengi fyrir daufum eyrum.


mbl.is Gagnrýni tekin alvarlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver segir satt

Mikið er þetta alltsaman misvísandi - ráðamenn okkar halda því fram að vinir okkar á Norðurlöndum vilji ekkert fyrir okkur gera nema að við göngumst við skuld sem þjóðin efndi ekki til - ICESLAVE - kemur svo í ljós að það er enn ein lygin... Kannski ættu íslenskir ráðamenn að vera með túlk í öllum erlendum samskiptum - það virðist nefnilega vera sem það sé alltaf einhver misskilningur í gangi...


mbl.is Lausn Icesave ekki forsenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ræðan mín um ICESAVE

iceslaveÉg er glöð að vita til þess hver margir hafa öðlast meðvitund um að þrýstingur frá almenningi hefur áhrif á stjórnvöld - það var skringilegt að vera inni á þingi og horfa á mótmælin innanfrá - ég átti erfitt að einbeita mér að hanaslagnum inni á þingi. Langaði mest að drífa mig út... sem ég svo gerði eftir að umræðan um ICESAVE var búin inni á þingi. Hér er ræðan sem ég flutti um þetta mál í dag:

Frú forseti, hæstvirtu ráðherrar, háttvirtu þingmenn og kæru landsmenn

Það er verið að skuldbinda þjóðina til að greiða skuld sem hún efndi aldrei til. Það er ranglátt. Þjóðin spyr: af hverju vilja Bretarnir ekki þetta örugga eignasafn Landsbankans sem þeirra ágæta endurskoðendaskrifstofa metur að verði 95% heimtur af?  Af hverju vilja þeir ekki taka áhættu með okkur? Hvað gerist ef við getum ekki borgað skuldina? Hvaða veð hafa Bretar til að tryggja að við borgum. Varla eru orð okkar sem þeir settu á lista meðal hryðjuverkamanna gild ein og sér.

Af hverju þessi asi? Stjórn Gordon Browns riðar til falls og því væri það sennilega skynsamlegast að geyma að rita samninga við fólk sem berst um á hæl og hnakka til að fá uppreisn æru á okkar kostnað.

Getur verið að ferlinu sé flýtt til að tryggja að við getum sótt um aðild að ESB á réttum tíma? Það á jú að þrýsta því máli með miklum hraða í gegnum þingið í sumar.
Almenningur vonaði að á sumarþingi yrði boðað til aðgerða sem beindust að því hvernig við ætluðum að vinna okkur saman úr þessum öldudal– en mér sýnast lausnir þær sem hér hafa verið boðaðar eingöngu snúast um aðild að EBS.

Hann er að verða þjóðinni ansi dýr aðgöngumiðinn að viðræðum við ESB. Því hlýt ég að spyrja mig hvort að þetta sé rétti tíminn til að setja höfuðáherslu á það mál.

ICESAVE skuldbindingin mun lengja kreppuna um minnst sjö ár – það þýðir einfaldlega að við verðum í kreppuástandi hérlendis til ársins 2024 – það mun verða til þess að þeir sem flytja burt munu aldrei koma heim aftur. Á hverjum degi flytur ein fjölskylda frá Íslandi. Á hverjum degi verða færri til að sjá um gamla fólkið okkar og þá sem geta ekki farið út af heilsufarslegum aðstæðum eða fátækt. Hér munu inniviður velferðakerfisins molna og erfitt verður að endurreisa það eftir svo langvinna blóðtöku.

Ég vona að hæstvirtu ráðamenn okkar skilji hvað þeir eru að kalla yfir þjóðina með ICESAVE samningnum. Ég hef fullan skilning að þau tóku við vondu búi frá Sjálfstæðisflokki og Framsókn – þó má ekki gleyma því að þrír ráðherrar eru enn við völd frá fyrri stjórn sem tók fullan þátt í að hylma yfir hve ástandið var orðið alvarlegt.

Það er óskynsamlegt að lofa því að borga lán sem við getum ekki borgað – ég get ekki stutt gúmmítékkaábyrgð þessarar ríkistjórnar varðandi ICESAVE og AGS.
Nú þegar borgum við 5 milljónir á dag í vexti af AGS láninu. Ég óttast að við munum glata sjálfstæði okkar og auðlindum ef við ábyrgjumst skuldir sem við getum ekki greitt. Það er aldrei bara ein lausn á vandamálum – það er hættulegt að hugsa þannig. Bjóðum Bretum lánasafnið trausta, bjóðum þeim allar eignir sem nást frá bankaræningjunum. Ef þær endurheimtur verða meiri en skuldin nemur – þá mega Bretar eiga það sem tákn um góðan vilja okkar. Ef Evrópumenn útiloka okkur úr samfélagi sínu vegna þess að við komum fram af heiðarleika þá er það ef til vill ekki góður félagskapur til að binda trúss sitt við um aldur og ævi. Það eru til aðrar þjóðir í heiminum en Evrópuþjóðir hæstvirtu ráðamenn.

Borgarahreyfingin vonar að þingmenn kjósi eftir samvisku sinni fremur en flokkslínum þegar kemur að því að kjósa um ICESAVE. Við sórum drengskapareið gagnvart þjóðinni en ekki flokkunum sem við tilheyrum – nú er tími kominn að við sýnum það í verki. Aldrei fyrr hefur það verið okkur eins mikilvægt að koma okkur úr skotgröfunum og finna leiðir til lausna óháð flokkslínum – ef til vill er nauðsynlegt að mynda hér þjóðstjórn – viðfangsefnin eru svo viðamikil að til að sátt náist þurfa allir að geta lagst saman á árarnar. Þá hygg ég að skynsamlegt væri að hlusta á þá erlendu sérfræðinga sem boðist hafa til að aðstoða okkur – og viðurkenna að vandamálin sem við erum að glíma við eru okkur ofviða.

Þetta er mál sem þjóðin á að fá að kjósa um: Eina leiðin til að hér verði sátt um þetta mál er að bera þetta undir þjóðaratkvæði.


mbl.is Skriflegt samkomulag í október
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkrar villur í fréttinni

Ég vaknaði upp við tertuskothríðina í nótt: í henni var kveikt á bílaplaninu við Þjóðarbókhlöðuna sem er beint á móti blokkinni sem ég bý við - ég hrökk upp og var of svifasein að ná ljósmynd af mönnunum tveimur sem þarna voru að verki - en þeir voru svartklæddir, á milli tvítugs og þrítugs og greinilega vel undir þetta búnir - yngri sonur minn vaknaði og gat ekki sofnað aftur - en þetta var klukkan hálf fimm í nótt.

Ég skil ekki hvað vakir fyrir fólki að gera svona lagað - hávaðinn var gríðarlega mikill út af því að bílaplanið var alveg autt - það glumdi enn hærra því heitt er í veðri og allir gluggar opnir. Ég segi nú bara skammist ykkar fyrir að vekja ugg í brjósti barna og dýra. 


mbl.is Flugeldum skotið á loft um miðja nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin bréf til þinghóps xo

Eitthvað virðast þessi bréf hafa farið forgörðum sem við þingmenn áttum að hafa fengið. Kannast alla vega ekki við að hafa fengið slík né nokkur annar í okkar þinghóp, hvorki með tölvupósti né í pósthólf...

Kannski hafa eldveggir póstsíu þingpóstsins haldið þeim úti. 

Skil ekki alveg af hverju það þyki merkilegt að ráðherrar hafi mætt á viðburðinn með honum í Hallgrímskirkju, það er ekki alveg það sama og að hitta hann á fundi sem honum er boðið á af ráðamönnum. Annars verður gaman að hitta hann með Ögmundi á morgunn. Hvað ætti ég að spyrja Dalai Lama að?


mbl.is Ögmundur mun hitta Dalai Lama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi verða friðarstundirnar fleiri

Finnst þetta alveg dásamlega jákvæðar fréttir og ef það er eitthvað sem við ættum að styrkja þá er umburðarlyndi og mannúð. Vona að þetta verði að árlegum viðburði.

Dalai Lama er frumkvöðull á þessu sviði - að sameina fólk handan trúarbragða í umburðarlyndi gagnvart því sem fólk kýs að trúa á. Það sem mér þótti hve best að heyra hann segja í sjónvarpsþættinum frábæra sem var sýndur á RÚV í gær, var að hann væri ekki fyrir trúboð:) Það er algerlega eitthvað sem ég get kvittað undir...

Hér er slóð í heimildarmyndina sem Þóra Arnórsdóttir setti saman.


mbl.is Fjölmenni á friðarstund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1 ráðherra og 2 þingflokksformenn

munu hitta Dalai Lama á morgunn. Það eru Ögmundur Jónasson, Björgvin G. Sigurðsson og ég:) Ég er ákaflega ánægð að þessi fundur muni eiga sér stað. Það er nefnilega neyðarlegt að æðstu embættismenn þjóðarinnar komi sér hjá því að hitta friðarhöfðingjann.

Því er það svo að þau okkar í þingheimi sem höfum stutt málefni Tíbets ákváðum að eiga fund saman með honum, þar eiga Ögmundur og Björgvin mikinn heiður skilið. 

Ég var farin að skammast mín allverulega fyrir það að vera Íslendingur. Þetta er þó allavega eitthvað í áttina. Það hefði verið mjög neyðarlegt að vera grátbiðja um hjálp um víða veröld og eiga svo enga mannúð sjálf.

Ég hitti Dalai Lama bæði sem friðarboðbera sem og talsmann þjóðar sem ég met mikils.


mbl.is Fólk farið að streyma í Hallgrímskirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlakka til að hitta hann

Ég er svo lánsöm að fá að hitta Dalai Lama við tvö tækifæri á þriðjudaginn. Fyrst eldsnemma um morguninn með félögum mínum úr Vinum Tíbets, síðan með Utanríkisnefnd í þinghúsinu um tvöleitið. Hlakka til að hitta hann og vona að einhverjir ráðherrar sjái sóma sinn í að bjóðast til að hitta friðarhöfðingjann. Það er ekki á okkar löskuðu ímynd erlendis bætandi að sýna ekki þessum merka manni tilhlýðilegan sóma. Verð samt að hrósa forseta alþingis og formanni utanríkisnefndar fyrir að hafa frumkvæði að því að bjóða hann velkominn til okkar.

Hér eru smá upplýsingar um félagið sem ég er hluti af og mun halda mini film fest með myndum sem tengjast Tíbet á kaffi Rót eftir rúmlega viku.

IMG_8602Vinir Tíbets er félag sem var stofnað í apríl 2008

Tilgangur okkar er:

•    að stuðla að vinasambandi íslensku og tíbetsku þjóðanna og auka þekkingu hér á landi á menningu og sögu Tíbets.

•    að vekja athygli hérlendis á ástandi mála í Tíbet.

•    að standa fyrir fjársöfnun til að hjálpa flóttafólki frá Tíbet.

•    að fá fræðimenn, listamenn, stjórnmálamenn og aðra þá sem tengjast málefnum félagsins til að halda erindi, fyrirlestra, tónleika og þess háttar hér á landi.

Til þess að skrá þig í félagið:

•    Endilega skrifaðu upplýsingar þínar á blaðið á borðinu hérna.

•    Eða sendu tölvupóst með nafni, netfangi, GSM og heimilisfangi þínu til info@tibet.is

Við erum á Facebook!             

2009 Stjórnendur:

•    Formaður: Birgitta Jónsdóttir
•    Ritari: Halldóra Þorláksdóttir
•    Gjaldkeri: Deepa Iyengar
•    Meðstjórnendur: Tsewang Namgyal, Tenzin Dakten, Katrín Björk Kristinsdóttir, Harpa Rut Harðardóttir, Hannes Högni Vilhjálmsson


mbl.is Dalai Lama í heimsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég sagði NEI við þessu frumvarpi

ásamt Þór Saari. Við vorum einu þingmennirnir sem greiddu atkvæði gegn þessu frumvarpi. Það hve hratt svona flókið frumvarp átti að fara í gegnum þingið finnst mér algerlega óásættanleg vinnubrögð. Þónokkuð hefur borið á því að það eigi að keyra frumvörp í gegn á afbrigðum síðan þing var sett. Mér finnst að það eigi að vera til algerra undantekninga en ekki eitthvað sem maður á að greiða atkvæði með nánast á degi hverjum. Ég mun því uns þetta verklag verður lagað sitja hjá eða greiða atkvæði gegn flýtimeðferð á frumvörpum í gegnum þingið. Skil reyndar ekki af hverju restin af stjórnarandstöðuflokkunum greiddu ekki atkvæði gegn þessu tiltekna frumvarpi sem greinilega var þess eðlis að margt óljóst og afar stórt í sniðum er varðar þjóðarhag hékk á spýtunni.

p.s. Margrét og Þráinn voru forfölluð og útskýrir það af hverju þau tóku ekki þátt í atkvæðagreiðslunni.


mbl.is Þingmenn fá ekkert að vita
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vanhæfni

Þetta frumvarp var illa ígrundað og skammarlegt að það fyrsta sem þessi ríkisstjórn gerir til að fylla upp í gapið ógurlega sé að samþykkja eitthvað sem var útskýrt fyrir þeim þannig að þau samþykktu öll sem eitt með fullri meðvitund að hækka skuldabyrði heimilanna um 8 milljarða á meðan ríkissjóður fær aðeins í sinn hlut 2.5 milljarð. Ég skil ekki svona vinnubrögð og mér finnst þau bera vott um einstaka vanhæfni. Það er engum manni til vansa að viðurkenna mistök og draga svona umdeilda og vafasama aðgerð til baka og fá frumvarpið lagfært eða í það minnsta sundurliðað með tölum er sýna heildaráhrif á hið alltum flókna kerfi okkar.

Ég er kannski alltof mikil bjartsýnismanneskja að ætla fólki það að bregða út af sínu harðeðli. En ríkisstjórn sem hvetur þingið til að kjósa samkvæmt samvisku sinni varðandi aðildarviðræður um EU ætti kannski að sýna betra fordæmi en hún sýndi í kvöld.


mbl.is Áfengi og eldsneyti hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brask í boði ríkisins

Það er margt gruggugt sem enn á sér stað hjá ríkisbönkunum. Þar er enn við völd fólk sem handstýrði hruninu á betri launum hjá ríkinu en sjálfur forsætisráðherra landsins. Svo heldur braskið áfram í boði ríkisins, samanber þessi frétt: "Karen Millen stofnaði samnefnt fyrirtæki ásamt fyrrum eiginmanni sínum Kevin Stanford árið 1981. Árið 2001 keyptu íslenskir aðilar og félög á þeirra vegum 40% hlut í fyrirtækinu Karen Millen. Stærsti íslenski eigandinn var Kaupþing en meðal annarra fjárfesta voru þeir Sigurður Bollason og Magnús Ármann, einn stærsti hluthafinn í Byr.

Árið 2004 var Karen Millen seld til Oasis Group, sem var í meirihlutaeigu Baugs Group. Voru viðskiptin metin á 15,8 milljarða króna og greitt fyrir Karen Millen með peningum og hlutabréfum og eignuðust hluthafar Karen Millen 25% hlut í hinu sameinaða fyrirtæki.

Síðar fór Karen Millen undir keðjuna Mosaic Fashions sem nú er gjaldþrota, en Baugur átti helmingshlut í keðjunni sem var fjármagnaður af Kaupþingi. Nýtt félag, Aurora Fashions sem er í eigu Nýja Kaupþings og lykilstjórnenda Mosaic, tók í mars yfir helstu eignir félagsins, það er Karen Millen, Warehouse, Oasis, Coast og Anoushka G.


mbl.is Karen Millen og Byr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.