24.5.2009 | 07:36
Að búa til kraftaverk
Segja má að fyrir hvern og einn sem fær gervifót í þessari mögnuðu aðgerð sé verið að búa til kraftaverk í lífi þeirra. Þetta er með sanni frábært framtak og gaf mér gleðisting í hjartað.
Ég hef alltaf verið heilluð af sjálfboðaliðastarfi og nú þegar þrengir að hjá okkur er kærkomið tækifæri fyrir þjóðina mína að gera meira af slíku. Ég held að miðað við þann mikla niðurskurð sem framundan er að skólar, sjúkrahús, elliheimili þyrftu á aðstoð sjálfboðaliða að halda. Það á að fækka skólaliðum sem fylgjast til dæmis með börnunum þegar þau eru úti í frímínútum. Allir sem þekkja til eineltis vita að frímínúturnar eru martröð fyrir krakka sem eru lagðir í einelti ef enginn fullorðinn er til staðar.
Það er lítil hefð fyrir sjálfboðaliðavinnu hérlendis, en víða um heim eru sjálfboðaliðavinna grunnur að samfélagsgerðinni, þar þykir það til dæmis sjálfsagt að foreldrar séu vikir í að hjálpa til í skólum barna sinna. Þar fer fólk inná sjúkrahús og elliheimili og veitir fólki félagskap með spjalli og upplestri. Sjálfboðaliðastarf þarf ekkert að vera flókið - það getur einmitt snúist um jafn einfaldan hlut og að sýna hlýju og alúð.
![]() |
Kraftaverk á Gaza |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.5.2009 | 10:27
Þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar
Í eftirfarandi skrá er getið um þau lagafrumvörp, sem unnið er að í einstökum ráðuneytum og áformað er að flytja á 137. löggjafarþingi. Flutt kunna að verða fleiri frumvörp en getið er og atvik geta einnig hindrað flutning einstakra frumvarpa. Jafnframt eru taldar upp tillögur til þingsályktunar, sem ætlunin er að flytja.
Forsætisráðuneytið
- Frumvarp til laga um þjóðaratkvæðagreiðslur. Í frumvarpinu verður að finna ákvæði um fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu, sem efnt er til í kjölfar ákvörðunar Alþingis eða ríkisstjórnarinnar, en einnig ef til hennar kemur vegna ákvæða stjórnarskrárinnar (breyting á kirkjuskipan o.fl.).
- Frumvarp til laga um ráðgefandi stjórnlagaþing. Í frumvarpinu verður að finna ákvæði um val á fulltrúum, skipulag og verkefni stjórnlagaþings.
- Frumvarp til laga um breyting á ýmsum lögum vegna flutnings verkefna milli ráðuneyta. Í frumvarpinu verður að finna ákvæði um þær breytingar á heitum og verkefnum ráðuneyta sem er að finna í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna og koma eiga til framkvæmda á árinu 2009.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
- Frumvarp til laga um breytingar á lögum um kosningar til Alþingis nr. 24 16. maí 2000. Um er að ræða breytingar á lögunum svo unnt sé að taka upp svokallað persónukjör þar sem kjósendur geti haft meiri eða minni áhrif á val á frambjóðendum í kosningum.
- Frumvarp til laga um breytingar á lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5 6. maí 1998. Frumvarpið gerir ráð fyrir breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórnar og að tekið verði upp persónukjör, líkt og í kosningum til Alþingis.
Félags- og tryggingamálaráðuneytið
- Frumvarp til laga um aðild starfsmanna við samruna hlutafélaga yfir landamæri.
Í frumvarpinu verða lagðar til breytingar sem fela í sér innleiðingu á 16. gr. tilskipunar nr. 2005/56/EB, um samruna hlutafélaga yfir landamæri - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tímabundna ráðningu starfsmanna.Í frumvarpinu verða lagðar til breytingar á lögunum að teknu tilliti til athugasemda Eftirlitsstofnunar EFTA á innleiðingu tilskipunar nr. 1999/70/EB, um tímabundnar ráðningar, hér á landi.
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum um starfsmenn í hlutastörfum.
Í frumvarpinu verða lagðar til breytingar á lögunum að teknu tilliti til athugasemda Eftirlitsstofnunar EFTA á innleiðingu tilskipunar nr. 97/81/EB, um hlutastörf, hér á landi. - 4. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar.
Í frumvarpinu verður lögð til breyting á lögunum sem felur í sér breytingu á frítekjumarki vegna fjármagnstekna elli- og örorkulífeyrisþega
Fjármálaráðuneytið
- Frumvarp til laga um stofnun hlutafélags til að stuðla að endurskipulagningu þjóðhagslega mikilvægra atvinnufyrirtækja. Frumvarpið er liður í vinnu að endurreisn bankakerfisins. Það var upphaflega flutt á síðasta þingi en verður endurflutt.
- Frumvarp til lokafjárlaga 2007. Frumvarpið var upphaflega flutt á síðasta þingi en verður endurflutt.
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Kjararáð. Í athugun er að gera þá breytingu að forræði Kjararáðs nái til fleiri ríkisaðila en nú er.
- Frumvarp til laga um heimild til að veita ríkisábyrgð á lánum til að styrkja gjaldeyrisforðann o.fl.
- Skýrsla um áætlun í ríkisfjármálum 2009 til 2013. Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna er ákveðið að áætlun þessi verði lögð fram til kynningar. Í henni er gerð grein fyrir þeim aðgerðum í ríkisfjármálum sem taldar eru nauðsynlegar til að ná jöfnuði í ríkisfjármálum á næstu árum og standa við forsendur aðstoðaráætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
- Frumvarp til breytinga á ýmsum skattalögum o.fl. vegna tekjuöflunar ríkissjóðs. Gert er ráð fyrir á grundvelli áætlunar um jöfnuð í ríkisfjármálum verði nauðsynlegt að auka tekjur á þessu ári.
- Frumvarp til breytinga á ýmsum lögum til lækkunar á ríkisútgjöldum 2009. Gert er ráð fyrir á grundvelli áætlunar um jöfnuð í ríkisfjármálum verði nauðsynlegt að draga úr útgjöldum ríkissjóðs á þessu ári.
Heilbrigðisráðuneytið
- Frumvarp til laga um heilbrigðisstéttir. Tilgangur frumvarpsins er að samræma ákvæði fjórtán laga sem nú gilda um heilbrigðisstéttir og fella í eina rammalöggjöf. Nánari ákvæði um einstakar stéttir verði sett með reglugerðum.
Iðnaðarráðuneytið
Engin fyrirhuguð þingmál á 137. löggjafarþingi.
Menntamálaráðuneytið
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum um náms- og starfsráðgjafa. Með frumvarpinu er lagt til að heimilt verði að fela viðurkenndum háskólum sem bjóða upp á nám í náms- og starfsráðgjöf að gefa út leyfisbréf til náms- og starfsráðgjafa.
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Með frumvarpinu er lagt til að heimilt verði að falla frá kröfum laganna um ábyrgðarmenn.
Samgönguráðuneytið
Engin fyrirhuguð þingmál á 137. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006. Um er að ræða upptöku á nýjum flokki veiða, svokölluðum strandveiðum, þar sem handfæraveiðar verða frjálsar innan ákveðins ramma og að uppfylltum settum skilyrðum. Jafnframt eru í frumvarpinu ákvæði um svokallaðar frístundaveiðar og heimildir til að leyfa smáveiðar í fræðsluskyni, auk ákvæða er varða skiptingu veiða úr stofnum djúpkarfa og gullkarfa.
- Frumvarp til laga um hvali, sem kemur í stað eldri laga um hvalveiðar nr. 26/1949 og miðast við breyttar þjóðfélagsaðstæður og þá þróun sem orðið hefur á stjórnsýslurétti.
- Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna endurskoðunar á undanþágum frá I. kafla I. viðauka við EES-samninginn og innleiðingar á nýrri matvælalöggjöf Evrópusambandsins.
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum nr. 99/1993. Frumvarpið er flutt vegna framlengingar á búvörusamningum um mjólkur- og sauðfjárframleiðslu, sem gerð var 18. apríl síðastliðinn.
Umhverfisráðuneytið
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum um erfðabreyttar lífverur, nr. 18/1996. Markmið frumvarpsins er að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/18/EB í íslensk lög, um vísvitandi sleppingar erfðabreyttra lífvera í náttúruna.
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 52/1988 um eiturefni og hættuleg efni. Markmið frumvarpsins er að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 842/2006/EB í lög um tilteknar flúoreraðar gróðurhúsalofttegundir en tilskipunin hefur verið felld inn í EES samninginn. Frumvarpið fjallar um kröfur sem gerðar eru til aðila sem annast uppsetningu, viðhald og aðra þjónustu vegna kælikerfa, loftkælinga og slökkvikerfa sem innihalda gróðurhúsalofttegundir.
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Markmið frumvarpsins er að innleiða í lög reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 1013/2006/EB um flutning úrgangs en tilskipunin hefur verið felld inn í EES samninginn.
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 55/2003 meðhöndlun úrgangs og lögum nr. 162/2002 um úrvinnslugjald. Markmið frumvarpsins er að starfsemi Endurvinnslunnar hf. verði breytt til samræmis við kröfu um framleiðendaábyrgð, sbr. ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 52/1989 um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota drykkjavöruumbúða. Við þessa breytinu munu lög nr. 52/1989 falla út gildi. Setja þarf ákvæði um einnota drykkjavöruumbúðir inn í lög nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og jafnframt að fella niður ákvæði um einnota drykkjavöruumbúðir í lögum um úrvinnslugjald nr. 162/2002.
- Tillaga til þingsályktunar um náttúruverndaráætlun 2009 2013. Umhverfisráðherra ber skv. lögum nr. 44/1999 um náttúruvernd að vinna náttúruverndaráætlun á fimm ára fresti og leggja hana fyrir Alþingi.
Utanríkisráðuneytið
- Frumvarp til laga um eftirlit með hlutum, tækni og þjónustu sem hafa hernaðarlega þýðingu. Með frumvarpinu eru m.a. uppfærðar gildandi reglur (lög nr. 4/1988 um útflutningsleyfi) um eftirlit með útflutningi hluta, sem hægt er að nota í hernaði eða til hryðjuverka, í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar.
- Tillaga til þingsályktunar um aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Viðskiptaráðuneytið
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög.
Á grundvelli EES-reglna þarf að breyta ákvæðum framangreindra laga til að einfalda reglur við samruna og skiptingu félaga. Frumvarpið var lagt fyrir á síðasta þingi, en ekki afgreitt. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki.
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ýmsum hegðunar- og hæfisreglum í ljósi fjármálaáfallsins. - Frumvarp til laga um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki.
Í frumvarpinu felst heildarendurskoðun á þeim kafla laganna sem fjallar um sparisjóði. - Frumvarp til laga um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki.
Í frumvarpinu er lagt til að bætt verði við ákvæði í bráðabirgðaákvæði með lögum um fjármálafyrirtæki, er varða heimilda skilanefnda og slitastjórna til útgreiðslu. - Frumvarp til laga um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög.
Tilgangur frumvarpsins er að auka gagnsæi varðandi eignarhald, auka jafnrétti kynja í stjórnum og meðal framkvæmdastjóra. - Frumvarp til laga um vátryggingarstarfsemi.
Um er að ræða heildarendurskoðun á lögum um vátryggingarstarfsemi. Með frumvarpinu eru gerðar tillögur að innleiðingu tilskipunar um endurtryggingu í íslenskan rétt. Frumvarpið var lagt fyrir á síðasta þingi, en ekki afgreitt. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 45/1997, um vörumerki, með síðari breytingum.
Í frumvarpinu er lagt til að tæming réttinda (réttindaþurrð) miðist við Evrópska efnahagssvæðið, í stað alþjóðlegrar tæmingar. Hliðsjón er höfð af nýlegum dómi EFTA-dómstólsins. Frumvarpið var lagt fyrir á síðasta þingi, en ekki afgreitt. - Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna innleiðingar á tilskipun 2005/29/EB um óréttmæta viðskiptahætti.
Frumvarp þessi felur í sér innleiðingu á ákvæði tilskipunar um óréttmæta viðskiptahætti. Frumvarpið var lagt fram á síðasta þingi, en var ekki afgreitt.
![]() |
Allt undir í Karphúsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.5.2009 | 18:24
Hvað kostar hvert stöðugildi?
Gott væri að reikna út hvað hvert stöðugildi kostar við byggingu tónlistarhússins miðað við til dæmis viðgerðir á vegum landsins sem sumir hverjir eru í vægast sagt hættulegu ástandi. Ég er nú enginn talnaspekingur en mér rennur í grun að það væri töluvert ódýrara að ráða fólk í vinnu við að laga það sem þegar hefur verið byggt og er að grotna niður - sér í lagi út á landi, en að halda áfram að byggja tónlistarhúsið.
Endilega leiðréttið mig ef ég hef rangt fyrir mér.
![]() |
Deilt um tónlistarhús á þingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.5.2009 | 07:49
Jómfrúrræðan mín
Þessi ríkisstjórn hefur lagt fram frábæra stefnuskrá ef hún hefði verið sett saman fyrir árið 2006. Stjórnarsáttmálinn hefði án efa komið þjóðinni að verulegu gagni í góðærinu. En ríkisstjórnin virðist ekki vera meðvituð um að við erum tæknilega séð gjaldþrota þjóð.
Þessi stjórn hefur um margt góðan vilja og margt í þeirra stefnu sem Borgarhreyfingin getur stutt varðandi lýðræðisumbætur. Stjórnin hefur sett frábært fordæmi fyrir nýjum vinnubrögðum á þinginu með því að leggja ESB málið í dóm samvisku sérhvers þingmanns óháð flokkslínum. Þarna er kominn vísir að vinnubrögðum sem við viljum upplifa á þinginu.
En þegar ég las verkefnalista sumarþingsins varð ég satt best að segja reið. Öskureið vegna þess að þessi listi endurspeglar ekki þá brýnu þörf á neyðaraðgerðum til að hjálpa fjölskyldunum í landinu. Reið því ég upplifi eins og svo margir aðrir að ráðamenn hafi ekki fullan skilning á því hörmulega óréttlæti sem við höfum orðið fyrir og virðast ekki skilja umfang neyðarinnar. Það þýðir ekkert að vera með bómullaraðgerðir eða málamiðlanir til að þóknast öllum hags á meðan þjóðinni er að blæða út.
Nú þurfa stjórnvöld að sýna okkur að þau hafi þor og vilja til að forgangsraða rétt, sýna að þau setji fjölskyldurnar í fyrsta sæti en ekki fjármagnseigendur.
Samkvæmt því sem komið hefur fram telur ríkisstjórnin að þær aðgerðir sem hún hefur boðað séu nægilega góðar til að hjálpa nauðstöddum. Því mun ekkert verða gert á þessu sumarþingi til að bregðast við neyðarópum almennings um hjálp.
Við verðum að hugsa út fyrir ramman taka hugrakkar ákvarðanir sem litast ekki af flokkadráttum eða valdapólitík. Það er ekkert réttlæti í því að veðsetja vinnu Íslendinga til næstu 70 ára til að borga skuldir sem þjóðin efndi aldrei til.
En það verður engin þjóðarsátt fyrr en fargansröðin verður rétt hjá núverandi ríkisstjórn. Það verður engin þjóðarsátt nema hér verði skuldastaða heimilanna leiðrétt með stórum heildrænum aðgerðum sem koma heimilunum strax til hjálpar áður en fólk hreinlega gefst upp.
Kæru landsmenn
Þjóðin hefur verið beitt miklu óréttlæti. Það verður að draga einhverja til ábyrgðar á því hruni sem við sjáum enn ekki fyrir endann á. Það er mikil reiði í samfélaginu. Ef enginn verður færður til saka og eigur þeirra sem enn svíkja og pretta fyrir opnum tjöldum frystar á meðan rannsókn stendur, mun skella á önnur bylting, bylting fólks sem hefur engu að tapa. Það er einfaldlega ekkert réttlæti í því að þeir aðilar sem hafa hneppt komandi kynslóðir í rammgert skuldafangelsi gangi enn lausir á meðan aðrir er fangelsaðir og sektaðir fyrir að stela sér í matinn.
Ósjálfrátt eru háttvirtir þingmenn og hæstvirtir ráðherrar grunaðir um hagsmunatengsl.
Endurreisnin verður að fela í sér von. Von um réttlátt samfélag sem er ekki gróðrarstía svika og pretta. Vonin kemur þegar ljóst er að hér verði tekið föstum tökum á spillingu og að það sé tilgangur með því að fórna sér enn og aftur fyrir samfélagið sem við búum í. Ef hér verða ekki gerðar nauðsynlegar stjórnsýslubreytingar og lýðræðishallinn réttur af, mun fólk eiga það á hættu að lenda í sömu stöðu áður en langt um líður.
Það er því miður staðreynd að AGS stjórnar fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar. Við megum ekki láta þau fjölmörgu varnarorð sem við höfum fengið um þá vá sem við stöndum frammi fyrir sem vind um eyru þjóta. Auðlindir okkar og sjálfstæði er í bráðri hættu. Lærum af reynslunni í þetta sinn. Við vorum ítrekað vöruð við vegna ofþenslu í bankakerfinu okkar, en hlustuðum ekki, gerðum lítið úr þeim sem varnarorðin sögðu og uppskárum algert hrun fyrir vikið.
Yfir okkur vofir skriðþungi jöklabréfa sem geta hæglega gefið, því sem næst gjaldþrota hagkerfi okkar náðarhöggið. Við krefjumst þess að leyndinni yfir þeim verði aflétt nú þegar, sem og bankaleyndinni. Þjóðin krefst þess og við erum hér inni á þessu þingi til að þjóna henni og því megum við aldrei gleyma.
![]() |
Átta jómfrúrræður í kvöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.5.2009 | 15:48
Frábær skemmtun
Mikið finnst mér þetta gott framtak og fallegt - það er gaman að sjá hve fjölbreytt samfélagið okkar er orðið og ég var að sjálfsögðu sérstaklega ánægð að sjá dans Snæljónsins frá Tíbet - tók meira segja þátt með yngri syni mínum í búlgörskum hringdansi:) í Ráðhúsinu áðan. Ætla núna að þjóta niðrí Iðnó og sjá hann Nour 19 ára hælisleitanda frá Írak syngja sín eigin lög.
Kærar þakkir til allra sem stóðu að friðargöngunni og fjölmenningardeginum - þetta er fullkominn dagur, sól, bjartsýni, hlýja og gleði:)
![]() |
Fjölmenningardagur í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.5.2009 | 10:05
AGS stjórnar Íslandi
Þessi frétt og yfirlýsing Franek ætti svo sem ekki að koma neinum á óvart. Það sem kemur mér á óvart er þögn Steingríms varðandi til dæmis þetta tiltekna atriði samningsins. Það að samið hafi verið um einhvern ramma varðandi hámark stýrivaxtalækkun er hrein og klár aðför að þjóðarhagsmunum.
Þeir aðilar sem rituðu undir samninginn við AGS ruddu brautina að einhverju sem jafnvel sérfræðingar AGS klóruðu sér í hausnum yfir. Okkar samningsmenn hreinlega sömdu ekki neitt - heldur skrifuðu bljúgir undir án þess þó að einhver keyrði byssu í bakið á þeim. Ég hef horft á heilmargar heimildarmyndir um AGS og lesið um þessa stofnun sem alla jafna skilur eftir sig sviðna jörð í þeim löndum sem hún hefur afskipti af. Það vakti athygli mína að einn af samningsmönnum Jamaíka ræddi um hvernig hann hefði barist á hæl og hnakka fyrir því að fá betri samning - hvert prósentustig samningsins - tímalína og annað var rætt um og reynt að fá betri skilyrði. (AGS fór samt sem áður alveg hræðilega illa með Jamaíka samt sem áður og á tveimur árum var landbúnaði landsins rústað).
Ég krefst þess að það verði gerður nýr samningur við AGS ellegar að skila þessu láni án tafar. Hér er ný ríkisstjórn og eðlilegt að þetta verði endurskoðað enda ljóst að við munum ekki geta greitt þetta lán á tíma án þess að rústa hér allri grunnþjónustu.
Hlustum á þann fjölda fólks sem hefur varað okkur við undanfarna mánuði. Skellum ekki skollaeyrum við eins og gert var fyrir bankahrundið.
![]() |
Vaxtastefnunni hafi verið lýst í viljayfirlýsingunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.5.2009 | 07:31
Fjölmenningardagurinn
Fjölmenningardagurinn í Reykjavík verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 16. maí nk. Þetta er í fyrsta sinn sem Fjölmenningardagurinn er haldinn en markmiðið er að fagna fjölbreytileikanum sem borgarsamfélagið býður upp á. Glæsileg dagskrá er í boði sem miðar að því að allir fái notið sín og fjölbreytileikinn blómstri.
Dagskráin hefst klukkan 13.00 með fjölþjóðlegri göngu sem fer af stað frá Hallgrímskirkju. Fjölþjóðagangan er samstarfsverkefni Heimsgöngunnar og ýmissa samtaka innflytjenda á Íslandi. Markmið Heimsgöngunnar, sem fer fram síðar á þessu ári, er að stuðla að friði í heiminum og tilveru án ofbeldis. Yfirskrift Fjölþjóðagöngunnar að þessu sinni er friður og eining sem á mjög vel við um þessar mundir. Ómar Ragnarsson hefur samið Heimsgöngumars sem Lúðrasveitin Svanur mun frumflytja við upphaf göngunnar og svo aftur þegar komið er á leiðarenda í Vonarstræti við Ráðhús Reykjavíkur.
Í Ráðhúsi Reykjavíkur og Iðnó hefst svo fjölbreytt skemmtidagskrá frá klukkan 14.00- 17.00 og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Þar kennir ýmissa grasa, meðal annars Bambusdans, dans Snæljónsins frá Tíbet, Japönsk teathöfn og söngur frá Kenía, Sri Lanka, Írak, Búlgaríu og Indlandi svo eitthvað sé nefnt. Af nógu verður að taka og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Fjölmenningardagurinn er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Alþjóðahúss og Heimsgönguhópsins og er stefnt að því að gera Fjölmenningardaginn að árlegum viðburði í borginni.
15.5.2009 | 06:57
Biðlaun
![]() |
22 á ráðherralaunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2009 | 17:34
Fínt að hafa valkost
Ég ætlaði ásamt nokkrum þingfélögum að vera úti á Austurvelli í stað þess að sækja messuna - finnst persónulega ekki rétt að blanda saman trúarbrögðum og þinghaldi. Veit að þetta er hefð og allt það en mér ber að fara eftir minni eigin siðferðisvitund varðandi þingstörf.
Ég gæti alveg hugsað mér að kíkja til Siðmenntar og hlusta á hann Jóhann en honum hefur tekist ljómandi vel upp við að veita börnunum mínum borgaralega fræðslu fyrir borgaralega fermingu.
Mér finnst það flott hjá þeim að bjóða upp á þennan valkost. Tek það fram að ég er ekki trúlaus - hef verið búddisti um langa hríð og finnst það fínn valkostur fyrir mig. Ég er ekki að fordæma þá þingmenn sem ákveða að fara í kirkju en kalla eftir umræðu um hvort fólki finnst í lagi að blanda saman trúarbrögðum og þingsetningu.
![]() |
Hugvekja í stað guðsþjónustu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2009 | 17:18
Beiðni til ríkisstjórnar
Kæra ríkisstjórn, mikið þætti mér nú vænt um ef blessað ESB blaðið með orðinu trúnaðarmál verði gert opinbert hið fyrsta - helst fyrir kvöldfréttir. Þá þætti okkur í Borgarahreyfingunni best að losna undan viðjum þess að þurfa leyna þjóðina einhverju sem engin ástæða er að leyna - finnst öll þess dulúð helst til þess fallin að gróusögur fari á flakk og fólk fyllist óöryggi og jafnvel ótta.
Ég er auðvitað nýgræðingur í pólitískri refaskák og vil helst ekki þurfa að læra ósiði svona rétt í upphafi starfs míns í þágu þjóðarinnar - finnst það skjóta skökku við að þurfa að fela eitthvað fyrir fólkinu sem ég starfa í umboði fyrir. Held að fólk sé ekkert sérstaklega hresst með að ég sé að standa í vegi fyrir gegnsærri stjórnsýslu en samt þætti mér verra að brjóta trúnað við ykkur og þess vegna bið ég ykkur í fyllstu einlægni um að vera svo góð og upplýsa þjóðina um innihald plaggsins.
![]() |
Kanna hvort einhverjir fletir séu til samstöðu" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2009 | 06:55
Furðulegur fundur
Ég sat á þessum fundi og vil upplýsa að plaggið er þrungið leynd vegna þess að það átti eftir að laga orðalag í því áður en það yrði sent á fjölmiðla. Annars var þessi fundur frekar furðulegur og fór stór hluti hans í orðræðu Sigurmundar Davíðs um Framsóknarherbergið. Finnst reyndar alveg furðulegt að einhver þingflokkur geti átt herbergi í þinghúsinu. Auðvitað eiga þingflokksherbergi að vera notuð útfrá stærð þingflokka ekki útfrá ímynduðu eignarhaldi á einhverju sem með sanni tilheyrir þeim sem þjóðin kýs inn á þing hverju sinni. Það er auðvitað alltaf breytilegt og ófyrirséð.
Eðlilegast væri að láta starfsfólk þingsins um að útdeila þessum herbergjum eftir stærð flokka, ekki útfrá tilfinningasemi. Sem þau reyndu í þessu tilfelli og hafa fengið bágt fyrir. Víðsvegar um heim er þingflokkaherbergjum útdeilt eftir stærð flokka en hér hefur það verið þannig að tveir flokkar hafa hér öllu ráðið og útdeilt ekki bara til sín öllu því besta er tengist störfum þingsins heldur líka í samfélaginu.
Það er að breytast núna enda kominn tími til. Þinghópur Borgarahreyfingarinnar mun fá aðstöðu í vesturvæng Arnarhreiðursins og deila með XD ritara og kaffiaðstöðu sem og fundarherbergi. Þetta mun vera besta húsið til að vera með skrifstofur þingmanna, því nefndarsviðið er í sama húsi. Það kom mér svo sem ekkert á óvart þegar það kom í ljós að þeir hefðu úthlutað sér bestu aðstöðunni.
Annars þá má ég til með að gagnrýna þessa leynd sem hvílir yfir blessaðri ríkisstjórninni og vona að þar verði gerð bót á sem fyrst. Ég held að ef hægt verði að vinna útfrá málefnum á þessu þingi að við getum komið miklu meira í verk en ef unnið er eftir hefðbundnum argaþras leiðum. Auðvitað á stjórnarandstaða að veita þétt aðhald og sporna við fótum ef unnið er þvert á stefnu hvers og eins flokks. En það er ekki tími né ráð til að eyða miklum tíma í hefðbundið málþóf - skora á alla sem sitja inni á þingi að setja málefnin ofar flokkslínum og hugsa fyrst og hag almennings - síðan um hag flokksins sem viðkomandi tilheyrir.
Tímarnir sem framundan eru - verða mjög erfiðir fyrir marga í samfélaginu. Það verður að tryggja að þjóðin fórni sér ekki við uppbygginu án þess að verða tryggt fyrir því að slíkt vítavert gáleysi í stjórnsýslu geti átt sér stað að nýju. Gleymum því ekki að allar stofnanir sem almenningur treysti brugðust. Gleymum því ekki að það var hugmyndafræði XD og XB um sjálftöku og einkavinavæðingu sem setti hér heilt samfélag á hausinn með undraverðum hraða.
![]() |
Sigmundur Davíð: Kom mjög á óvart |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.5.2009 | 06:19
Hér duga engin vettlingatök
Þið hafið ekki tíma kæra tilvonandi ríkisstjórn til að taka ykkur allan þann tíma sem til þarf. Fólk er búið að bíða með ótrúlega miklu langlundargeði eftir því að sjá til lands og margir við það að gefast upp. Það er ykkar að koma með alvöru aðgerðir til hjálpar en því miður eru þær aðgerðir sem þið hafið sett í forgang ekki nógu róttækar - hér var hrun - það er ekki hægt að byggja upp undirstöðurnar með legókubbum.
Það er ekki neitt réttlæti í því að fólk sem er orðið örmagna vegna óvissu og ótta um framtíð sína sé látið bíða enn lengur. Þið lofuðu gegnsæi en stjórnarmyndunarviðræðurnar ykkar sem nú eru búnar að taka viku hafa í engu létt á áhyggjum almennings.
Það er ljóst að við getum ekki staðið við skuldbindingar þær sem þið hafið ákveðið að láta þjóðina bera. Engar áhættur verða teknar ef þið viljið ekki styggja ESB. Nú er ESB umræðan farin að minna á álver álver umræðuna - eina lausnin og ekkert plan B. Hvað er plan B hjá ykkur - hvað á að gera fyrir heimilin NÚNA?: fólk er reitt og það mun rísa upp að nýju ef óréttlætinu linnir ekki.
Kæra tilvonandi ríkisstjórn - hér duga engin vettlingatök - hlustið á tillögur Hagsmunasamtaka heimilanna og gerið að ykkar. Borgarahreyfingin leggur til að allir flokkar og hreyfingar sameinist um að koma þeim tillögum í framkvæmd strax eftir helgi. Hættið að gera hlutina svona flókna - það var hægt á sínum tíma að stroka út verðtryggingu launa með einu pennastriki. Það er líka hægt að setja í framkvæmd bráðaaðgerðir fyrir heimilin okkar með einu pennastriki ef þið hafið til þess nægilegt hugrekki og þor.
Hvet ykkur til að lesa bréf á blogginu hans Egils Helga frá Gunnari Tómassyni, en þar reifar hann hugmyndir að því hvernig má leysa bráðavanda heimilanna.
![]() |
Margir íhuga greiðsluverkfall |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.4.2009 | 11:48
Ný vinnubrögð inni á þingi
Borgarahreyfingin ætlar að opna gluggana inn á þing. Við ætlum að deila með þjóðinni hvað fer fram á þinghóps/flokks/hreyfingar fundum okkar, strax eftir fundina. Þá getur fólk séð milliliðalaust hvað við erum að gera þarna inni. Fundargerðir okkar munu þá birtast á vefnum okkar.
Við viljum leggja til að nefndum verði sett betri vinnuskilyrði með því að hafa tímaramma á þeim málum sem þar daga oft uppi. Þá er mikilvægt að þeir sem í nefndum sitja og fjalla um tiltekna hópa að fulltrúi þeirra sem nefndin fjallar um hafi fast sæti í nefndinni.
Ég hlakka til að finna fleti á samstarfi um hugmyndir okkar að lýðræðisumbótum meðal flokkanna - trúi ekki öðru en að það hugnist öllum sem starfa í umboði þjóðarinnar að lagfæra þá risastóru kerfishnökra sem við búum við.
Og takk aftur allir sem tóku þátt í að gera Borgarahreyfinguna að því sem hún er í dag:)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)
28.4.2009 | 11:01
Stjórnlagaþing fólksins
Fyrir helgina var ég í sjálfskipaðri atvinnubótavinnu, eftir helgina veitti 7% þjóðarinnar mér og félögum mínum í Borgarahreyfingunni umboð til að vera talsmenn hennar á þingi. Þetta eru mikil viðbrigði og ég er ekki alveg enn að ná utan um þessar miklu breytingar.
Ég er meira en þakklát þessu trausti og vona að ég muni standast þær væntingar sem kjósendur okkar bera til okkar. Stefnan okkar er einföld en sumir þættir hennar gætu vafist fyrir þeim sem aðhyllast flokksræði og að halda í þau völd sem þeir hafa nú þegar.
Það hefur farið lítið fyrir umræðu um Stjórnlagaþing í fjölmiðlum - ég ætlaði alltaf að koma því að þegar ég var í pallborðum og umræðum í fjölmiðlum en það tókst ekki, því ESB umræða sem og spillingarmál XS og XD voru þungamiðja orðræðunnar og erfitt að koma okkar rödd að. Ég er samt sannfærð um að það muni lagast núna, því fyrirspurnakerfi þingheims er þess eðlis að flokkarnir verða að svara okkar fyrirspurnum þar.
Kreppan er rétt að byrja og mikilvægt að við tryggjum að almenningur leggi ekki á sig ómælt erfiði við að vinna sig úr þessu og standi svo kannski frammi fyrir því eftir 10 ár að allt fari á sama veg og núna. Stjórnlagaþing verður að vera þing fólksins ekki flokksræðisins. Tillögur Ragnars Arnalds varðandi Stjórnlagaþing hugnast mér best af þeim tillögum sem ég hef séð hingað til. Þá er mikilvægt að hafa það í huga að Stjórnlagaþing á að búa til einföld lög sem allir geta skilið og tryggi hér nauðsynlegar lýðræðisumbætur og réttlæti. Ég held að slíkt þing gæti gefið þjóðinni eitthvað uppbyggilegt að tala um og vera með í - ég held að það sé kominn tími á að við förum að hugsa út fyrir alla þessa ramma og segja má að niðurstaða kosninganna hafi endurspeglað vilja þjóðarinnar um raunverulegar umbætur.
Ég veit að sumir óttast vinstri stjórn - það geri ég ekki - ég hef horft á og upplifað samfélagið okkar molna innan frá vegna þeirrar nýfrjálshyggju sem hér hefur sýkt og eyðilagt meira en margan grunar. Ég hef verið svo lánsöm að reka mig á alla mögulega kerfisveggi bæði fyrir mig og aðra - það er ágætur grunnur til að byrja sín þingstörf á - að laga þessa kerfisgalla með stórkostlegum endurbótum á stjórnsýslu landsins.
En fyrst og fremst hjartans þakkir til allra sem studdu mig í þessari baráttu og lögðu lið við að vinna að því að skapa þessa hreyfingu en segja má að drög að henni hafi verið rædd í nóvember þegar 10 manna hópur ræddi um hvernig hægt væri að finna lausnir á hinu algera hruni sem við erum enn að upplifa. Ég ætla ekki að telja upp alla sem lögðu okkur lið því það er alltaf þannig að maður gleymir einhverjum - en eitt er alveg ljóst - við sem munum setjast á þing erum bara angi af risastórri grasrót sem vonandi mun halda áfram að þrýsta á utan frá. 1000 þakkir til allra sem tóku þátt í að gera það mögulegt að við erum 4 að fara inn á þing.
Hvet fólk til að mæta í 1. maí göngur og minna á að við viljum Stjórnlagaþing fólksins og að það verði enginn niðurskurður í mennta- og heilbrigðisþjónustu. Það má skera af annars staðar. Hættum við að fara til Kína á heimssýninguna - sá gjörningur mun kosta okkur skattborgara 420 milljónir. Notum þá peninga frekar í heilbrigðisþjónustuna.
![]() |
Þörf á að endurskoða kosningalög |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.4.2009 | 10:49
Völdin til fólksins
![]() |
Bjarni Ben kaus fyrstur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tenglar
Nýja Ísland
Ég les:
Tíbet
- Fréttir frá Tibet
- Tibet Info Net An Independent Information Service on Contemporary Tibet
- Undercover in Tibet Ný heimildarmynd frá Channel 4 um hvernig ástandið er í raun og veru í Tíbet
- Leaving Fear Behind Viðtöl við Tíbeta í Tíbet stuttu fyrir mótmælin í mars
- Cry of the Snow Lion Margverðlaunuð heimildarmynd um Tíbet
- Yeti - heimildarmynd
- Yogis of Tibet Heimildarmynd um Jógameistara Tíbets sem eru óðum að hverfa
- Students for a Free Tibet
- Dalai Lama
- Tibetan Uprising
- Kerti fyrir Tíbet
- Tibet TV
- Central Tibetan Administration
- Om mani padme hum
Ýmsar slóðir
sem ég man eftir í andartakinu
- The Hunger Site
- THE MEATRIX
- Myspace síðan mín
- Úgáfan Beyond Borders Alþjóðleg útgáfa sem ég stofnaði árið 1999 í netheimum
- Hitt bloggið mitt
- Félagið Ísland-Palestína
- Womb of Creation Vefurinn minn sem ég hef haldið við síðan 1995
- Myspace síðan hennar mömmu
- Saving Iceland
- Be the change:)
- Náttúra vefur með umhverfisvitund
- Nattura info
- Care 2 make a Difference
Bækur
Bækurnar mínar
-
: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni -
: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra. -
: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.5.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónhlaða
Bloggvinir
-
ADHD
-
Agný
-
Alfreð Símonarson
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Alexandra Briem
-
Andrés Magnússon
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Ari Sigurðsson
-
Baldvin Björgvinsson
-
Baldvin Jónsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bara Steini
-
Bergur Sigurðsson
-
Bergur Thorberg
-
Bergur Þór Ingólfsson
-
Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
-
Binnan
-
Birgir Þórarinsson
-
Birna Rebekka Björnsdóttir
-
Bjargandi Íslandi
-
Bjarkey Gunnarsdóttir
-
Björgvin R. Leifsson
-
SVB
-
Brjánn Guðjónsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
-
Brynja skordal
-
Brynjar Hólm Bjarnason
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Daníel Haukur
-
Dorje
-
Dísa Dóra
-
Egill Bjarnason
-
Egill Jóhannsson
-
Einar Guðjónsson
-
Einar Indriðason
-
Einar Vignir Einarsson
-
Einar Ólafsson
-
Eiríkur Bergmann Einarsson
-
Eldur Ísidór
-
Elyas
-
Elín Sigurðardóttir
-
Elísabet Markúsdóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Erna Hákonardóttir Pomrenke
-
Eva Benjamínsdóttir
-
Eydís Hentze Pétursdóttir
-
Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Finnur Bárðarson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Fríða Eyland
-
Félag Anti-Rasista
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Gaukur Úlfarsson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Gerður Pálma
-
Gestur Guðjónsson
-
Goggi
-
Greta Björg Úlfsdóttir
-
Gunnar Pétursson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnlaugur B Ólafsson
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Bergmann
-
Guðjón Heiðar Valgarðsson
-
Guðmundur Helgi Helgason
-
Guðmundur M Ásgeirsson
-
Guðmundur Ragnar Guðmundsson
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Guðný Lára
-
Guðrún S Sigurðardóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gísli Hjálmar
-
Haffi
-
Halldór Sigurðsson
-
Hannibal Garcia Lorca
-
Haukur Már Helgason
-
Heidi Strand
-
Heilsa 107
-
Heiða Þórðar
-
Helga Auðunsdóttir
-
Kaleb Joshua
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Himmalingur
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlekkur
-
Hlynur Hallsson
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Hlédís
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Hulla Dan
-
Hólmfríður Guðlaug Einarsdóttir
-
Hörður B Hjartarson
-
Húmoristaflokkurinn
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingibjörg Helga
-
Ingibjörg SoS
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Isis
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jakob Smári Magnússon
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jens Guð
-
Johann Trast Palmason
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jón Bjarnason
-
Jón Gerald Sullenberger
-
Jón Sigurgeirsson
-
Jón Svavarsson
-
Jón Valur Jensson
-
Jón Þór Ólafsson
-
DÓNAS
-
Katrín Mixa
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Ketill Sigurjónsson
-
Ketilás
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristbergur O Pétursson
-
Kristján B. Jónasson
-
Kristján Kristjánsson
-
Kristján Logason
-
Kristín Dýrfjörð
-
Kristín Snorradóttir
-
Krummi
-
Kári Harðarson
-
Landvernd
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Lovísa
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lýður Árnason
-
Mafía-- Linda Róberts.
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
Margrét Lóa Jónsdóttir
-
Margrét Sigurðardóttir
-
Markús frá Djúpalæk
-
María Kristjánsdóttir
-
María Pétursdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Morgunblaðið
-
Myndlistarfélagið
-
Mál 214
-
Máni Ragnar Svansson
-
Neo
-
Oddi
-
Paul Nikolov
-
Perla
-
Pjetur Hafstein Lárusson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pálmi Guðmundsson
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Rannveig H
-
Ransu
-
Róbert Björnsson
-
Rögnvaldur Hreiðarsson
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Samstaða - bandalag grasrótarhópa
-
SeeingRed
-
Sema Erla Serdar
-
Sigga
-
Signý
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
-
Sigurgeir Þór Hreggviðsson
-
Sigurjón Sigurðsson
-
Sigurður Hrellir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þór Guðjónsson
-
Skuldlaus
-
Snorri Sturluson
-
Soffía Valdimarsdóttir
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
-
Stríða
-
Sveinbjörn Eysteinsson
-
Sveinn Hjörtur
-
Sveinn Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Swami Karunananda
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sævar Finnbogason
-
Sævar Einarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Sóley Tómasdóttir
-
Sólveig Klara Káradóttir
-
TARA
-
Tilkynning
-
Tinna Jónsdóttir
-
Trausti Traustason
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Tína
-
TómasHa
-
Valgeir Skagfjörð
-
Valgerður Halldórsdóttir
-
Vefritid
-
Vilborg Eggertsdóttir
-
Vilhelmina af Ugglas
-
Vilhjálmur Árnason
-
Villi Asgeirsson
-
Vinir Tíbets
-
Viðar Eggertsson
-
Viðar Freyr Guðmundsson
-
Vér Morðingjar
-
Vésteinn Valgarðsson
-
arnar valgeirsson
-
fingurbjorg
-
hreinsamviska
-
leyla
-
molta
-
oktober
-
Einhver Ágúst
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Ár & síð
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Ásgerður
-
Ásta Hafberg S.
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Ævar Rafn Kjartansson
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Ólaf de Fleur Jóhannesson
-
Ólafur fannberg
-
Ólöf de Bont
-
Ómar Ragnarsson
-
Óskar Arnórsson
-
Örlygur Hnefill Örlygsson
-
Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
-
Þröstur Unnar
-
Þór Jóhannesson
-
Þór Saari
-
Þórhildur og Kristín
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Andrés.si
-
Anna Karlsdóttir
-
Anna Margrét Bjarnadóttir
-
Ari Jósepsson
-
Aron Ingi Ólason
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Barði Bárðarson
-
Bergþór Gunnlaugsson
-
Billi bilaði
-
Bjarki Steingrímsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Bogi Jónsson
-
brahim
-
Daði Ingólfsson
-
Daníel Sigurður Eðvaldsson
-
Dóra litla
-
Dúa
-
Einar Björn Bjarnason
-
Elsabet Sigurðardóttir
-
Esther Anna Jóhannsdóttir
-
Frosti Sigurjónsson
-
Grétar Eiríksson
-
Guðbjörg Hrafnsdóttir
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Héðinn Björnsson
-
Hreyfingin
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Högni Snær Hauksson
-
Ingvi Rúnar Einarsson
-
Ísleifur Gíslason
-
Jack Daniel's
-
Jóhann Ágúst Hansen
-
Jóhannes Þór Skúlason
-
Jóhann Pétur
-
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
-
Jónas Bjarnason
-
Jón Kristófer Arnarson
-
Jón Lárusson
-
Karl Gauti Hjaltason
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Madhav Davíð Goyal
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Morten Lange
-
Óðinn Kári Karlsson
-
Ólafur Eiríksson
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Rafn Gíslason
-
Rannsóknarskýrslan
-
Rúnar Freyr Þorsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Sigurður Einarsson
-
Sigurður Jónsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Sveinbjörn Ragnar Árnason
-
Vaktin
-
Vilhjálmur Sveinn Björnsson
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson