Leita í fréttum mbl.is

Fær fjölskyldan hennar áfallahjálp?

Sennilega ekki - ég hef í þrígang í mínu lífi þurft að ganga í gegnum það sem fjölskylda þessarar konu er að fara í gegnum og því miður þá virðist vera alvarleg kerfisvilla í gangi þegar kemur að hlúa að aðstandendum þeirra er hverfa - burtséð hvernig það ber að.

Það er ekki hægt að lýsa óvissunni og óttanum sem grípur um aðstandendur og mjög mikilvægt að þeir fái faglega aðstoð þeirra sem huga að sálargæslu -og þá er ég ekki að tala um presta - heldur fólk sem hefur faglega þekkingu á því ferli sem svona áfall er og kann að gefa ráð þar að lútandi. 

Ég sendi aðstandendum Aldísar styrk, von og einlæga samúð.

 


mbl.is Björgunarsveitir kallaðar til leitar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigrún Jónsdóttir, 27.2.2009 kl. 21:43

2 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Það sem þarf er að færa þetta samfélag á miklu agademískara og manneskjulegra stig. Áfallahjálp á einfaldlega að vera sjálfsögð við vissar aðstæður og ótrúlegt að hún skuli ekki vera veitt nema mað takmörkuðum skorti. Mér finnst eins og við séum að sífellt að berja grjótinu í sama vegginn.

Brynjar Jóhannsson, 27.2.2009 kl. 22:36

3 Smámynd: TARA

Tek undir með þér að ég óska aðstandendum hennar alls þess besta og vonandi finnst Aldís heil á húfi. Ég skil tilfinningar þeirra og þínar Birgitta, því ég hef misst ástvini, týnt ástvini og dóttir minni var rænt.

Áfallahjálp er alveg ágæt svo langt sem hún nær, en einhvern veginn er það svo að við komumst alltaf yfir hlutina á eigin vegum og eigin forsendum, sama hvað allir eru fúsir að hjálpa. Stuðningur er vissulega mikilvægur og bara það að vita að einhver er til staðar, þó ekki sé nema til að fá öxl til að gráta við, það hjálpar meira en allt annað. Yfirleitt þarfnast maður ekki orða, heldur nærveru og fullvissu um að maður sé ekki aleinn.

Hafðu það gott

TARA, 27.2.2009 kl. 22:52

4 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Að vita ekki um afdrif ástvinar hlýtur að vera með því alerfiðasta sem hægt er að leggja á manneskjur.  Góður hugur og nærvera er væntanlega með því fáa sem aðrir geta lagt af mörkum undir slíkum kringumstæðum.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 28.2.2009 kl. 02:23

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Það er alla vega mín reynsla að þessum málum að fólk virðist feimið við að vera í bandi þegar svona áföll bera að - það virðist ekki vita hvað skal segja og þorir ekki að blanda sér inn í þessa atburðarás - sér í lagi þegar niðurstaða er fengin.

Þess vegna þurfa aðstandendur að fá tíma kannski eftir tvær til þrjár vikur hjá áfallateymi eða sálfræðing sem hefur reynslu af því að leiða fólk í gegnum svona áföll. Eina sem okkur var boðið upp á þegar pabbi hvarf voru gleðipillur og svefnpillur sem ég afþakkaði.

Birgitta Jónsdóttir, 28.2.2009 kl. 05:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 508741

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband