Leita í fréttum mbl.is

Stuttmynd um hrunið

Ég var beðin um að setja saman frétt um aðdraganda hrunsins og eftirmála þess. Ég bjó til einskonar stuttmynd. Hún fer í loftið á lítilli bandarískri sjónvarpsstöð í dag. Ákvað að deila henni með ykkur - ef þið viljið dreifa henni til vina og vandamanna á erlendri grund þá er það allt í lagi mín vegna:)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldvin Jónsson

Hvernig deilir maður henni áfram?

Baldvin Jónsson, 28.2.2009 kl. 20:04

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

þú getur sent fólk á linkinn á facebook - ég var búin að uploada henni á youtube fyrir viku en hún er enn ekki aðgengileg þar - tekur sífellt lengri tíma ferlið að fá myndirnar upp þar...

http://www.facebook.com/home.php#/video/video.php?v=65299676513&ref=nf

Veit ekki hvort að þetta sé aðgengilegt fyrir aðra en á fjébókinni en þú getur deilt henni í það minnsta meðal fjésbókarvina;I

Birgitta Jónsdóttir, 28.2.2009 kl. 20:20

3 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Þetta er frábær texti Birgitta! Einlægnin bæði í honum og flutningi þínum er alveg einstök!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 28.2.2009 kl. 22:24

4 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Mjög áhrifaríkt myndband, laus við rembing og upphrópanir ...... og eftir situr maður með tárin fljótandi niður kinnar.

Með kærleikskveðju.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 1.3.2009 kl. 02:09

5 identicon

FLott myndband, flottur texti.

Kolla (IP-tala skráð) 1.3.2009 kl. 02:15

6 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég var búin að sjá þetta fína myndband á Fésbókinni. Tregðan með YouTube gæti verið sú, að síðast þegar ég vissi var hámarkslengd myndbanda þar 10 mínútur en myndbandið þitt er rúmlega 11 mínútur.

Pældu í þessu.

Ég er nýbúin að setja inn myndband á YouTube og það gekk mjög vel, enda var það bara rúmar 3 mínútur.

Lára Hanna Einarsdóttir, 1.3.2009 kl. 02:33

7 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Magnað myndband.  Góður boðskapur.

Magnús Sigurðsson, 1.3.2009 kl. 08:37

8 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Þakka ykkur fyrir:) Ég var alveg rosalega lengi að finna út hvernig yrði best að miðla þessu ástandi. Lára Hanna ég hef lent í þessum vandræðum með miklu styttri myndbönd - búið að vera svona síðan í fyrra - setti inn mjög stutt myndband nokkrum dögum áður en ég uploadaði þessu og það er ekki enn sýnilegt. Ég hef reyndar lent í því að vera sett á háan spamfacktor út af engu hjá fyrirtækjum - sem þýðir að starfmaður þar fékk ekki póst hjá mér sem var með lítið viðhengi. Hann sagði að ég væri í hæstu skilgreiningu mögulegri á servernum hjá sér sem spammari! Samt sendi ég nánast aldrei út fjöldapóst. Það er margt skringilegt í tölvuheimum:)

Birgitta Jónsdóttir, 1.3.2009 kl. 08:37

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Setti þetta beint inn á Facebook hjá mér án þess að skoða sjálf...hafði ekki tíma en treysti dómgreind þinni:)

Var að skoða - frábært- fágað og skilur eftir kökk í hálsi og tárvot augu.

Takk fyrir Birgitta

Sigrún Jónsdóttir, 1.3.2009 kl. 09:53

10 identicon

Mjög fínt myndband EN mér finnst ekki hægt að tala um byltingu enn. Mér finnst það of mikil bjartsýni og það getur haft deyfandi áhrif á fjöldann að telja sigur í höfn. Ein orrusta vannst, en stríðinu er ekki lokið. Nú er að sjá hvernig blessaðar kosningarnar fara. Munum við sitja uppi með sömu stjórn og trommað var í burtu í janúar? Eða mun fólk hafa hugrekki til að flykkjast um grasrótina sem lofar alvöru breytingum?

Kristín í París (IP-tala skráð) 1.3.2009 kl. 11:56

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Flott.  Takk.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.3.2009 kl. 12:18

12 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Flott myndband. Takk fyrir Birgitta

Guðni Karl Harðarson, 1.3.2009 kl. 12:25

13 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég leyfði mér að setja tengil á stuttmyndina á blogginu mínu,  sem og að senda hana til dóttur minnar sem er skiptinemi í USA.  Stuttmyndin hjálpar henni ugglaust að skilja og útskýra ástandið fyrir þarlendu fólki.

Takk ! 

Anna Einarsdóttir, 1.3.2009 kl. 14:45

14 Smámynd: Jens Guð

  Góð samantekt og vel heppnuð framsetning. 

Jens Guð, 1.3.2009 kl. 15:51

15 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Til hamingju með flott myndband :)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 1.3.2009 kl. 18:48

16 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Þakka ykkur innilega fyrir :)

Kristín í París - ég er sammála þér - mun væntanlega gera mynd 2 um ástandið ... þar sem þeim álitnu spurnum verður svarað...

ljóst er að flest loforð og fögur fyrirheit flokksræðisins munu ekki verða efnd... það er kominn tími á eitthvað allt annað en innantóm loforð.

Birgitta Jónsdóttir, 1.3.2009 kl. 19:13

17 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Oh Birgitta!! ÉG ELSKA ÞIG!!

Æðislega fínt hjá þér og ég fékk tár í augun við að horfa á þetta!! "The people of Iceland"...Það erum við!! Ég er svo stolt af því að tilheyra þeim hópi og þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast fólki eins og þér!

Farin að hlusta á þjóðsönginn!

Heiða B. Heiðars, 2.3.2009 kl. 00:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 508753

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband