Leita í fréttum mbl.is

Er Morgunblaðið ríkisrekið?

Ég las það í leyniskýrslu sem DV birti að ríkið héldi lífinu í rekstri Morgunblaðsins. Samkvæmt þeirri skýrslu kemur fram að Árvakur skuldar 4,4 milljarða króna til Glitnis og Landsbanka. Þessir tveir bankar eru nú í eigu ríkisins. Merkilegt svona í ljósi sögunnar að það sé staðreynd, að sjálft frjálshyggjumálgagnið sé tæknilega séð: ríkisstyrkt.

Kannski væri bara best að við myndum hreinlega þjóðnýta þetta blað:)


mbl.is Laun lækka um 5% hjá Árvakri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gildir þá ekki sama um Baugsmiðlana?

Skulda þeir ekki ríkisbönkunum nokkrum sinnum þessa upphæð.

Magnús A. (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 14:19

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Alveg örugglega Magnús - spurning um að þjóðnýta þetta allt saman - nú eru þetta bara áróðursvélar fyrir mismunandi öfl í samfélaginu - ef við eigum þetta - þá eigum við ekki að láta misnota fjölmiðlana í þágu einstaklinga og flokka...

Birgitta Jónsdóttir, 26.1.2009 kl. 14:23

3 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Eitt er ljóst ... að ÞETTA ÞARF AÐ KOMA Á YFIRBORÐIÐ.. - það er ömurlegt ef það er verið að laumupúkast með svona á bak við tjöldin.

Ég er alin upp við strangheiðanleika og finnst algjört undirstöðu atriði í öllum stigum samfélaginnu að það sé fyrst fremst heiðarleiki sem er í hávegum hafður. Alveg eins og með Bankaleyndina.. þá vil ég opna sem flest af þessum "Priat" herbergjum í þessu samfélögum og losa þaðan við alla íldurfíluna.

Ég vil nýtt ísland. Núna er TÆKIFÆRIÐ TIL ÞESS og það land byggist fyrst og fremst á heiðarleika.  

Brynjar Jóhannsson, 26.1.2009 kl. 14:54

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Mér finnst rétt hjá Glitni að halda lífi í Mogga til að verja meiri hagsmuni.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 26.1.2009 kl. 15:00

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Hvaða hagsmuni ertu að tala um Heimir?

Mikið er ég annars hjartanlega sammála þér Brynjar:)

Birgitta Jónsdóttir, 26.1.2009 kl. 15:08

6 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ég er að tala um peningana sem bankinn (við) á hjá Árvakri.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 26.1.2009 kl. 15:12

7 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

vildi bara hafa það á hreinu takk fyrir svarið Heimir - ég held að það væri þjóðráð að þjóðnýta þessa miðla og jafnvel bjóða starfsfólki að taka við rekstrinum fremur en að fjórða valdið falli endanlega í hendur spillingarafla... nóg er af slíku komið

Birgitta Jónsdóttir, 26.1.2009 kl. 15:22

8 Smámynd: Kristján Logason

Skítt með peningana. Höfum áhyggjur af þeim menningarverðmætum sem liggja í ljósmyndasafni MBL.

Hvað verður um það ef erlendir aðilar kaupa blaðið eins og um hefur verið rætt 

Kristján Logason, 27.1.2009 kl. 11:09

9 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Best væri ef starfsfólkið sæi sér fært að kaupa blaðið (og ljósmyndasafnið fyrir Kristján) og fjárfestar prentsmiðjuna.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 27.1.2009 kl. 17:17

10 identicon

Já! Þjóðnýtum moggann!! án djóks...

Gunnar (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 06:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 508788

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband