Leita í fréttum mbl.is

Ekkert grjótkast fyrr en eftir að táragasi var beitt

Fann eftirfarandi inn á this.is/nei og finnst mikilvægt að þessi vitnisburður mótmælenda fari sem víðast. Virðist sem enginn fjölmiðill hafi séð tilefni til að tala við þá sem voru vitni að atburðarrásinni.

„Góðan daginn

Ég var þarna og af hálfu mótmælenda var ekkert ofbeldi fyrr en eftir að þeir sprengdu gasið. Vissulega voru einn og einn að atast í löggunni en það var bara í formi þess að ýta á skildina þeirra og einstaka sinnum að kalla þá illum nöfnum.

Ef þeir vildu losna við þetta bögg (sem ég myndi alveg skilja) þá áttu þeir að mazea viðkomandi og taka einstaklinga úr umferð en ekki gasa hundruðir friðsamra mótmælenda sem voru að tromma og syngja.

Algjörlega tilefnislaus árás með baneitruðu gasi. Ég forðaði mér eftir að þeir héldu áfram að sprengja táragas aftur og aftur og aftur. Hátt í 20 bombur sprengdar fyrir kl. 1. Engu grjóti hent í lögguna fyrr en eftir táragasið.

Þetta er auðvitað ekki ákvörðun einstakra lögreglumanna sem flestir standa sig eins og hetjur við mjög erfiðar aðstæður. Þetta er stjórnvaldsákvörðun til að sýna hver ræður. Ruddaleg aðferð og baneitruð til þess að dreifa mannfjöldanum.

Og já, eftir að þeir gösuðu ÞÁ kom ofbeldi frá mótmælendum. Fólk varð skiljanlega mjög reitt við þessa fullkomlega tilefnislausu árás.

Þarna var fólk á öllum aldri, vissulega yngist þegar líður á kvöldið en engu að síður fullt af fullorðnu fólk, þar á meðal ég.“


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gasið er ekki bara baneitrað, það er grunað um að valda genabreytingum hjá þeim sem fyrir þeim verða.  Ef þó Googlar "tear gas and DNA" þá finnur þú greinar eins og þessa úr "The Journal of the American Medical Association" sem lýsir þessum grunsemdum.

Fransman (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 09:20

2 Smámynd: Isis

Held það verði að koma fram líka að þeir sem köstuðu hellu-steinum í lögreglumenn í nótt komu mótmælunum ekkert við. Þetta voru nokkrir haugadrukknir (eða á einhverju öðru en áfengi) einstaklingar sem komu einvörðungu á svæðið (líklegast af tilviljun eða skakklappast á hljóðið) til þess að vera með leiðindi.

Það reyndar kemur fram í frétt á vísi.is að mótmælendur hafi komið lögreglunni til hjálpar, með því að mynda skjöld um lögreglumenna til þess að þessir menn myndu ekki henda grjóti. Það virkaði vel til að byrja með, en svo skiptu þeir um skoðun og ákvaðu að henda grjótinu anyways.

Hinsvegar finnst mér persónulega, sem mótmælandi, ekki máli skipta hvort það eru mótmælendur eða lögreglan sem "byrjar", við sem mótmælendur verðum að koma þannig út að við stöndum í lappirnar og missum ekki sjónar af málstaðnum sem við berjumst fyrir. Ef lögreglan lemur okkur og við ekki á móti þá vinnum við þann "fight" enda er þetta allt saman tekið upp, ljósmyndir sem og video.

Lögreglan gengur samt alltof hart fram að mínu mati og algjörlega fáránlegt að beiting táragas hafi verið heimiluð á 2-3 þúsund manns. Hvað ætla þeir að gera ef það skildi gerast að 10 þúsund manns mæti niður í bæ?

Mótmælandi spyr sig....

Isis, 22.1.2009 kl. 09:32

3 Smámynd: Héðinn Björnsson

Ég var þarna og steinkastið byrjaði eftir táragasið, en við skulum halda fókus. Þetta voru æðisleg mótmæli! Full af gleði og von. Það er ekkert smá kraftaverk að fá þúsundir Íslendinga til að vera fulla af von og gleði. Að við séum að vellta ríkisstjórninni með von og gleði er stórkostlegt afrek. Höldum haus, höldum fókus og höldum voninni. Betra samfélag er mögulegt!

Héðinn Björnsson, 22.1.2009 kl. 09:54

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Mikið er ég sammála þér Héðinn:) höldum fókus.

Birgitta Jónsdóttir, 22.1.2009 kl. 10:05

5 identicon

Ég hef í mörg ár vonað að þjóð mín vakni af svefndrunganum - og fengið skammir fyrir. Loksins þegar hún gerir það, þá upplifi ég mína verstu martraðarspádóma. En, ég trúi því að nýtt lýðveldi sé í sköpun - þjóð minni er treystandi fyrir réttlæti og sanngirni. Lögreglan, sem breyst hefur frá þjónum til valds (lögregluþjónn er núna lögreglumaður) mun þurfa að lúffa; við borgum þeim laun til að vernda lögin - ekki landráðamenn.

Skorrdal (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 11:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 508729

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband