Leita í fréttum mbl.is

Allir þræðir liggja til ...

Afar áhugavert viðtal frá Óháðu fréttaveitunni. Viðtal við rannsóknablaðamann frá Danmörku. Hann fjallar um hvert þræðirnir frá íslensku pappírs/stórfyrirtækjunum liggja sem og undarlega hringrás fjármagnsins. Hann kallar útrásarvíkingana bleyður - því enginn þeirra þorði að svara eða veita upplýsingar þó þeirra væri óskað með góðum fyrirvara -Frábært að það séu svona margar nýjar fréttaveitur að spretta upp. Lifi byltingin!
 

mbl.is Saga Sterling öll
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

athyglisvert, en hitt er ekki siður hvernig B-úlfarnir fengu sina milljarða.

Ég hef búið lengi i fyrrum sovetlandi og það segir mer enginn að tveir islendingar hafi getað flutt gamla bruggverksmiðju til Petursborgar og byrjað að brugga bjór an þess að vera i slagtogi við mafiuna!

Áfengis brugg, eiturlyf og vændi var aðal vettvangur mafiunnar (seinna bættist við fateignabrask) og bruggið snerist mikið um að kenna russum að drekka bjor i stað vodka og þa serðu hvaða risamarkaður er/var i veði. Eg get hvorki ne hef ahuga að að sanna þetta... eg bara veit það!

sigurður örn brynjolfsson (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 08:26

2 identicon

Endilega komið þessu í Kastljósið á Rúv og reynið að koma þessu á Stöð 2 en væntanlega birta þeir þetta ekki, því þeir vilja ekki styggja eigendur sína frekar en fyrri daginn.

Kristján Eldjárn (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 08:34

3 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Þetta brask er allt ein alsherjar svikamylla - svo hlæja þeir að okkur vesalingunum sem gleyptum við gjörðum þeirra - svona sirka abát - alla vega komust þeir upp með ótrúlega hluti.

Greta Björg Úlfsdóttir, 21.11.2008 kl. 10:48

4 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Þetta er bara óhugnanlegt! Er það svona glæpastarfssemi sem við erum að blæða út fyrir?? Er það von þó hálf þjóðin sé í losti Við verðum að fá ýtarlega rannsókn á þessu fjárglæfraspili öllu saman!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 21.11.2008 kl. 20:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 508772

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband