Leita í fréttum mbl.is

Hvað er verið að fela?

Í Ungverjalandi og í Úkraínu var fjallað um skilmála IMF láns þeirra á þinginu. Af hverju ekki hér? Hvað er verið að fela? Af hverju er ekki lýðræðislega fjallað um skilyrði lánsins hér - nú  er næsta víst að allir sem vilja getað hjá IMF séð skilmálana. Af hverju er þess krafist að við fáum ekkert að vita? Ef það er skilyrði frá sjóðnum þá finnst mér það afar ólýðræðislegt og geræðislegt.

Annars þá var ég sammála Andra Snæ í gær þegar hann sagði að það væri ef til vill mikið vinabragð þjóða þeirra sem valdaklíkan hér hefur leitað til að veita þeim ekki lán. Fólk í hinum stóra heimi skilur ekki af hverju allt spillingarsettið er enn við völd. Ég skil það ekki heldur og finnst eins og það sé verið að vonast til að allt sjóði upp úr hér nema að valdhafar séu svo þjáðir af hubris syndrome að þeim sé fyrirmunað að sjá þann skaða sem þeir hafa tekið þátt í að skapa.


mbl.is Lánsumsókn Íslands hjá IMF afgreidd á miðvikudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Landi

Það er vonandi að einu skylirðin á þessu láni sem verður fjallað um þann 19 verði þau,Geir víkur,Davíð víkur og öll Stjórnin,að örðu leiti frestast afgreiðslan aftur.

Landi, 16.11.2008 kl. 10:19

2 identicon

Jamm, frænka, góð spurning. Hvað er verið að fela?

Það er hellings vinna að kommenta hjá þér nema vera innskráður á mbl-blogginu. Ég þarf að staðfesta kommentið á tölvupóstinum mínum til að það birtist. Þú getur breytt þessu ... nema þú sért að sía út nafnlausa böggara með þessu móti. 

Gurrí (IP-tala skráð) 16.11.2008 kl. 14:29

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

mmmm, hve bananar eru góðir

Brjánn Guðjónsson, 16.11.2008 kl. 14:29

4 Smámynd: molta

var ekki krafan um hærri stýrivexti númer 19 af 30 skilmálum?  ekki mikið að marka skoðun Vilhjálms að við fengjum sérstaklega milda meðferð hjá þessum gamla vinnustað hanns... hann kannski var aldrei í því persónulega að kúga fátæku þjóðirnar, eða hélt að hatur IMF á fólki einskorðaist við fátækt fólk... en nú erum við geim, við erum fátæk.

molta, 16.11.2008 kl. 18:58

5 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Við fáum þetta fram. Fyrr eða síðar. Ráðamenn eru enn að halda í það að þeir fái áfram að stjórna. Sem verður ekki og þá kemur allt upp á yfirborðið.

Ævar Rafn Kjartansson, 16.11.2008 kl. 19:11

6 Smámynd: Ægir

Jæja ég held að aðalmálið sé nú hvernig í helv.... við ætlum að borga þessi ósköp. 650milljr.Iceslave plús IMF-pakkann!

Ægir , 16.11.2008 kl. 21:54

7 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Gurrí mín - ég er með þessa síu til að fá ekki ógrynni af skítakommentum frá fólki sem hefur ekkert betra að gera en að koma nafnlaust með það sem ég kalla flames ... þá hefst umræða um eitthvað allt annað en ég var að skrifa um og ég hef ekki tíma í að hreinsa það út:)

úff hvað það er eitthvað erfitt að vera íslendingur í dag, á hverjum degi kemur eitthvað nýtt fram sem er svo loðið að maður er engu nær um nokkurn skapaðan hlut og gleymir sér í endalausum getgátum frétta og bloggheima...

mæli með mótmælum af einhverju tagi á hverjum degi... hringið í ráðamenn og krefjist skýrra svara, skrifið þeim, sendið þeim banana eða farið í heimsókn til þeirra - þetta er að vera ansi persónulegt og ég krefst þess að þetta fólk segi af sér og hér verði mynduð þjóðstjórn umsvifalaust. 

ekkert sem þau skötuhjú segja er satt - alltaf bætir í lygarnar og ég veit það fyrir víst að þeir sem eru loðintungur eru með mygluheila.

Birgitta Jónsdóttir, 16.11.2008 kl. 23:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 508759

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband