Leita í fréttum mbl.is

Lygahringrás

Það er góð og gild regla að ljúga ekki, það getur verið snúið að ljúga mikið, því það er erfitt að halda utan um alla lygaþræðina og muna hverjum maður laug að. Nú er búið að ljúga svo mikið af þjóðinni að ráðamenn eru komnir í margfalda lygahringi. Það er nánast ómögulegt fyrir almenning að fylgjast með þessum lygaþráðum án þess að missa augun af rauða þræðinum sem mætti kalla almannahagsmuni.

Ég sé eiginlega bara sérhagsmunagæslu og valdasjúkt fólk sem hefur framið landráð. Af hverju var ICESAVE málið ekki tekið fyrir á alþingi. Ég mæli með því að alþingismenn labbi út í dag í mótmælaskyni. Mér finnst ansi innantómt hjá þingmönnum að kvarta og kveina yfir því að fá ekki að taka þátt í lýðræðinu en vera svo ekki tilbúið að gera eitthvað róttækt til að breyta ástandinu. Ef þið hafið ekkert að gera - leggið þá niður vinnu, farið í verkfall, hættið að kóa með ástandinu. 

Það verður aftur borgarafundir haldinn og hann verður á Nasa í kvöld klukkan 20. Þá fær maður kannski tækifæri að spyrja eða fá einhver skýrari svör. Hér er fréttatilkynningin: 

OPINN BORGARAFUNDUR #3 á NASA við Austurvöll, mánudaginn 17. nóvember klukkan 20:00.

Í pallborði verða ritstjórar og fréttastjórar helstu fjölmiðla landsins, auk fulltrúa frá Blaðamannafélagi Íslands.

Hvetjum ríkisstjórn Íslands og alla alþingismenn til að mæta á svæðið, hlusta á sína kjósendur og vera með í umræðunni. Hvetjum ennfremur alla fjölmiðlamenn og konur til að mæta og taka þátt.
 
Til hvers?
- Til að hinn almenni borgari geti komið hugmyndum sínum og skoðunum á framfæri á óvissutímum.

- Öllum stjórnmálamönnum, seðlabankastjórum, bankastjórum, fréttastjórum og öðru fjölmiðlafólki er boðið að mæta til að svara spurningum Íslendinga, milliliðalaust.
 
- Til að almenningur fái skýr skilaboð og sé ekki hafður útundan í umræðunni.
 
- Til að leita spurninga og svara um efnahagsástandið.
 
Fyrirkomulag:
Fjórir frummælendur hefja umræðuna (5 mínútur hver):

Irma Erlingsdóttir
, bókmenntafræðingur
Eggert Briem, stærðfræðingur
Björg Eva Erlendsdóttir, blaðamaður
Davíð A. Stefánsson, bókmenntafræðingur

Þegar frummælendur hafa lokið máli sínu er orðið gefið laust og hver sem vill fær tvær mínútur til að tjá sig úr sal eða spyrja þátttakendur í pallborði spurninga.
 
Fundarstjórn og tímavarsla verður sem fyrr tekin föstum tökum í nafni lýðræðislegrar umræðu.

Sýnum stuðning með þátttöku – spyrjum og heimtum svör – látum í okkur heyra.
 

 


mbl.is Icesave-deilan leyst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ólafur Vilhjálmsson

Þingmenn eiga að hætta að kvarta og flytja sjálfir þingmannafrumvörp um það sem gera þarf láta ríkistjórnina stjórnina eiga sig. Þingflokksformenn geta leit málin þannig að skipulag sé á hlutunum  

Jón Ólafur Vilhjálmsson, 17.11.2008 kl. 09:04

2 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Almenningur á að trufla störf Alþingis þangað til þingmenn gefast upp og knýja á að efnt verði  til kosninga. 6000+ manns hljóta að geta skipst á að gera það, svo fær löggan líka nóg að gera.

Greta Björg Úlfsdóttir, 17.11.2008 kl. 12:44

3 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Friðsamleg mótmæli í anda Gandhis.

Greta Björg Úlfsdóttir, 17.11.2008 kl. 12:46

4 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Það ætti að taka Stjórnarráðið fyrir líka, með því að setjast þar að á göngum þangað til fólk er borið burt, o.s.frv. Og Seðlabankann.

Greta Björg Úlfsdóttir, 17.11.2008 kl. 12:48

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Ég skal gera mitt besta til að koma þessari spurningu að Skorrdal - efast reyndar um að ég fái hreinskiptin svör ef það tekst...

það væri gott ef að fólk tæki sig saman og myndi hrinda í framkvæmd þessum tillögum þínum Gréta Björg ...

Birgitta Jónsdóttir, 17.11.2008 kl. 16:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 508727

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband