Leita í fréttum mbl.is

Kerti fyrir Tíbet

kertifyrirtibet 

Vinir Tíbets taka þátt í stærstu ljósaaðgerð í heimi þann 7. ágúst klukkan 21:00 á Lækjartorgi og þér er boðið. Ef þú hefur ekki tök á að koma á Lækjartorg getur þú kveikt á kerti á þessum tíma og sett í gluggann þinn til að sýna Tíbetum stuðning í frelsisbaráttu þeirra. Nánari upplýsingar og skráning fer fram á candle4tibet.org. 

Áþekkar ljósaaðgerðir munu fara fram út um allan heim og hafa yfir 515.000 skráð sig. Ljós í myrkrinu fyrir Tíbet á meðan setning Ólympíuleikana fer fram.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Stefni á að mæta, ekki spurning.

Georg P Sveinbjörnsson, 27.7.2008 kl. 02:29

2 Smámynd: Signý

Ég mæti pottþétt!

Signý, 27.7.2008 kl. 03:32

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Áð mér heilum og lifandi kem ég. Þú ættir nú að taka hana Öllu Möggu með þér svona til að brúa kynslóðabilið.

Árni Gunnarsson, 27.7.2008 kl. 11:44

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Frábært að þið ætlið að koma:)

Amma er á ferðalagi um Norðurland - ef hún verður kominn til borgarinnar þá skal ég með sanni taka hana með... enda býr hún loksins rétt hjá mér og ég reyni að hitta hana sem oftast enda er hún mikil fróðleiksnáma og alveg sérstaklega einstök mannvera.

Birgitta Jónsdóttir, 27.7.2008 kl. 11:52

5 identicon

Vonandi láta sem flestir sjá sig á þessum merka atburði.

...désú (IP-tala skráð) 28.7.2008 kl. 02:13

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Merki við daginn, en það verður að vera útikerti hjá mér, því allir mínir gluggar snúa í garðskálann.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.7.2008 kl. 09:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 508798

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.