Leita í fréttum mbl.is

Fundur fyrir utan kínverska sendiráðið

Laugardaginn 26. apríl klukkan 13:00 verður haldinn fundur fyrir utan kínverska sendiráðið að Víðmel 29. Fundurinn er til að minna kínversk yfirvöld að heimurinn fylgist grannt með ástandinu í Tíbet sem og til að heiðra  Panchen Lama, en hann varð 19 ára 25. apríl. Panchen Lama er næst æðsti Lama Tíbeta og var rænt af kínverskum yfirvöldum þegar hann var aðeins 6 ára gamall, ásamt allri fjölskyldu sinni. Enginn veit hvar hann er niðurkominn.
 



mbl.is Kínverjar funda með fulltrúa Dalai Lama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Mætum öll ! Mótmælum óumbeðnum alræðisstjórnarháttum kínverskra kommúnista yfir saklausum Tíbetum. Berum vitni um, að þjóðernishreinsanir þeirra og frelsissvipting hvers einasta Tíbeta, sem talar með sjálfstæði Tíbets eða hefur uppi fána landsins, SNERTI HJARTA OKKAR. Minnum á þá, sem pyntaðir og þrælkaðir hafa verið, lífið murkað úr í nauðungarvinnu og fangabúðum eða með aftökum, jafnvel fyrir utan heimili þeirra í ásýnd nágrannanna, jafnvel á fjöllum uppi á flótta frá landinu. Við mætum kl. eitt í dag fyrir utan kínverska sendiráðið til að bera vitni um mannhelgi þessa fólks og ófæddra, ofsóttra barna þeirra – við mætum EKKI kaldlynd og uppápússuð í boði kínverskra stjórnvalda á opununar- og lokahátíðum Ólympíuleikanna í Peking!

Jón Valur Jensson, 26.4.2008 kl. 10:10

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Því miður virðist sem fólk sé búið að setja Tíbet aftur í glatkistuna... betur má ef duga skal.

Ég vona að flensan fari að yfirgefa mig, get ekki hugsað almennilega, hvað þá komið á blað þeim greinum sem krauma innra með mér. Er ekki vön því að vera svona lengi veik.

Birgitta Jónsdóttir, 27.4.2008 kl. 13:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 508802

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband